Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 104

Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 104
3. besti bjór í heimi rá því í október hafa íslenskir sjónvarpsáhorfendur skemmt sér við að horfa á tvo skondna Dani, þá Sören Petersen og Teis Damn, gæða sér á Thule bjór um leið og þeir koma með a11 sérstakar athugasemdir um okk- ur íslendinga og landið okkar. Ekki hefur farið fram hjá neinum að ástæðan er einföld. Þeir eru svekktir yfir því að Thule, þessi 3. besti bjór í heimi, að þeirra sögn, skuli vera íslenskur en ekki danskur. Að þeirra mati hefðu Danir aldrei átt að sleppa hendinni af íslendingum. Kveikjan að þessarí óvenjulegu auglýs- ingaherferð var frétt í Morgunblaðinu þar sem fram kom að Dans Ölnyder Selskap hefði kosið Thule bjór frá Sól-Víking á Ak- ureyri 3. bragðbesta bjórinn í veröldinni. Til greina komu 517 bjórtegundir frá 59 lönd- um. Einstakt tækifæri á ferðinni Gunnlaugur Þráinsson, einn af eigend- um auglýsingastofunnar Góðs fólks, las fréttina í Morgunblaðinu og heyrði Stefán Steinsen, markaðs- og sölustjóra Sól-Vík- ings, ræða um þessa ánægjulega frétt í út- varpsviðtali á þjóðbraut Bylgjunnar. Gunn- laugur sá strax að hér var einstakt tæki- færi fyrir Gott fólk til að komast í samstarf við Stefán Steinsen og þessa gamalgrónu, vanmetnu vöru, Thule. Það var miðviku- dagur og Gunnlaugur setti Jón Árnason hugmyndasmið og Gary Wake, textagerð- armann í að vinna úr þessu góðar auglýs- ingahugmyndir þegar í stað. Morguninn eftir, þegar hugmyndir höfðu fæðst og voru komnar á blað, hafði Sveinn Líndal, tengill á Góðu fólki, samband við Stef- án. Hugmyndin var kynnt fyrir honum og leist honum vel á. Eina vandamálið var að gert var ráð fyrir að auglýsingarnar yrðu teknar upp í Danmörku. Taka sjónvarps- auglýsinganna hófst í Kaupmannahöfn þremur dögum síðar, á sunnudag, með þeim Sören og Teis í aðalhlutverkum. Með góða vöru í höndunum Bruggmeistari Sól-Víkings, Baldur Kárason, vissi auðvitað alltaf að hann var með góða vöru í höndunum en sannast sagna var ekki hægt að lesa það úr sölutölunum. í sept- ember var hlutdeild Thule í sölu hjá ÁTVR aðeins 2.64% en hafði verið, þegar mest var, 12% árið 1994. „Við vissum að Thule er einn best bruggaði bjórinn og höfðu gert margar kannanir þar sem fólk valdi hann fram yfir aðrar tegundir. Salan minnkaði þó stöðugt," segir Stefán Steinsen. 104
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.