Frjáls verslun - 01.03.1999, Blaðsíða 67
þeir krefjast agaðra vinnubragða og heiðarleika í samskiptum, og einmitt
þessi atriði hafa fallið okkur vel í geð,“ bætir Sigfús við.
Fjölþættur rekstur Margir líta eingöngu á Heklu sem bílafyrirtæki. Starf-
semi fyrirtækisins er mjög fjölþætt og vörur frá Heklu, stórar og smáar, víða.
„Hekla kemur víða við sögu Okkar fyrstu viðskipti voru með ávexti frá
Spáni. Síðan bættust Bandaríkin við. Við flytjum einnig inn Volkswagen bif-
reiðar frá Þýskalandi og eigum mikil viðskipti við Japani. Bílar og þunga-
vinnuvélar frá Japan eru eftirsóttar gæðavörur. Gufuaflshreyflarnir frá
Mitsubishi Heavy Industries, sem mala nú gull á Nesjavöllum fyrir Reykvík-
inga, eru sennilega með frægari gufuaflshreyflum - og að sjálfsögðu átti
Hekla heiðurinn að þeim innflutningi," segir Sigfús hress í bragði.
Að sögn Sigfúsar hefur margt breyst frá þeim tíma er Hekla hóf innflutn-
ing á Caterpillar árið 1948. „Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og við-
skiptahættir hafa breyst mikið. Bandarísku fyrirtækin eru geysilega stór og
þau þrjú stórfyrirtæki sem Hekla skiptir við eru leiðandi í viðskiptum um all-
an heim. Núna fara fyrirtækin enn stækkandi og þau eru byijuð að kaupa
upp minni fyrirtæki. Nú gerumst við umboðsaðilar fyrirtækja sem áður
voru í samkeppni við okkur, þannig að allt er þetta breytingum undirorpið. í
viðskiptum gildir samt alltaf sama reglan; að vera framsækinn og heiðarleg-
ur. Með það að leiðarljósi ætlum við hjá Heklu að vera með forystu á nýrri
öld.“ B3
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu. Fyrirtœkið er með umboð fyrir Caterpillar,
Goodyear og General Electric. „Bandaríkjamenn eru sérlega hugmyndaríkir og
opnir í viðskiptum og við höjum lœrt margt afþeim í gegnum tíðina. “
FV-mynd: Geir Ólafsson.
Lærdómsríkt
og skemmtilegt
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu, segir það
bœði lærdómsrikt og skemmtilegt að
skipta við Bandaríkjamenn. Hekla hóf
viðskipti við þá í síðari heimsstyrjöldinni,
eða árið 1943.
iðskipti Heklu við Bandaríkin hófust í síðari
heimsstyijöldinni, eða árið 1943, en Hekla var
stofnuð árið 1933 af Sigfúsi Bjarnasyni. Á
þeim tíma hafði stofnandinn, Sigfús, skrifstofú í New
York. Núna er Sigfús Sigfússon forstjóri Heklu. Hann
er yngsti sonur Sigfúsar, og þrátt fyrir vaxandi viðskipti
Heklu við Bandaríkin hefur forstjóri fyrirtækisins enga
skrifstofu í New York!
Hekla hefur umboð fyrir nokkur bandarísk gæða-
fyrirtæki. Það var árið 1948 sem Hekla fékk umboð
fyrir Caterpillar vinnuvélar. Caterpillar var þá, og er
enn, eitt af stærstu og virtustu fyrirtækjum Bandaríkj-
anna á sviði vinnuvéla, skipavéla og rafstöðva. Það var
því mikill fengur að því að flytja inn vöru frá svo virtu
fyrirtæki. Allt frá árinu 1948 hafa Caterpillar vinnuvél-
ar verið mikið nýttar við vega- og virkjanagerð á íslandi
og bátavélarnar frá Caterpillar hafa haldið íslenska
báta- og skipaflotanum vel gangandi. Caterpillar vél- '
arnar hafa því, í gríni og alvöru, lagt grunninn að sam-
göngukerfinu og gert okkur íslendingum kleift að
sækja sjóinn af krafti.
General Electric er annað risafyrirtæki sem Hekla
hefur umboð fyrir. Framleiðsla General Electric er
mjög fjölbreytt og hafa ýmsar vörur þeirra verið seldar
á Islandi. Vörurnar frá General Electric eru víða; há-
þróuð lækningatæki eru á sjúkrahúsum, spennuvirki
eru í eigu Landsvirkjunar - og allir þekkja heimilistæk-
in frá GE.
Goodyear er þriðja bandaríska fyrirtækið sem
Hekla er með umboð fyrir. Goodyear er stærstí hjól-
barðaframleiðandi í heimi auk þess sem fyrirtækið
starfar mikið í efnaiðnaði. Vörur frá Goodyear hafa ver-
ið mikið seldar til framleiðslu á málningu á íslandi.
Krafan um gæði ,,Að mínu matí er bæði skemmtilegt
og lærdómsríkt að vinna með Bandaríkjamönnum,“
segir Sigfús Sigfússon. „Þeir eru sérlega hugmynda-
ríkir og opnir í viðskiptum og við höfum lært margt af
þeim í gegnum tíðina. Þeir hafa gert miklar kröfur tíl
okkar í Heklu og sumt af þeirra viðskiptaháttum höf-
um við innleitt hjá okkur. Við verðum auðvitað að
halda uppi ákveðnum gæðum bæði í vöru og þjónustu.
Bandaríkjamenn hafa verið leiðandi í gæðamálunum;
■■■
.
■m
wmmm