Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2000, Side 26

Frjáls verslun - 01.01.2000, Side 26
Edda Sverrisdóttir, kaupmaður í Flex í Bankastrœti, segir að miðborgin sé að verða meira sér- verslanasvæði þarsem mikið sé lagt uþþ úrgóðri þjónustu, eins og í miðborgum erlendis. Efdr Höllu Báru Gestsdóttur Myndir: Geir Ólafsson VERSLUN Edda Sverrisdóttir, kaupmaður i versluninni Flex í Bankastræti, segir að miðborgin öðlist sér- stöðu við aukna samkeppni stór- markaða. „Miðborgin lifir!“ Edda Sverrisdóttir, kaupmaður í versluninni Flex í Bankastræti, hef- ur um árabil starfað í hagsmuna- samtökum fyrir miðborgina. Hún óttast ekki frekari samkeppni stærri verslunar- kjarna við miðborgina enda segir hún fólk vilja eiga fallega, lifandi og skemmti- lega miðborg eins og leitast sé við að skapa í Reykjavík. Edda er fædd árið 1953 á Siglufirði en fluttist ung að árum í Kópavoginn þar sem hún býr í dag. Tíu árum eyddi hún í útlöndum, fimm í Danmörku og fimm í Bandaríkjunum, en þar nam hún kvik- myndagerð við listaháskóla í San Francisco. Undanfarin níu ár hefur þó starfstitill hennar verið verslunarmaður en það var þá sem Edda keypti verslun- ina Flex, dekurverslun fyrir dömur, sem selur fatnað með ríka áherslu á fylgihluti. Búðin er í efsta húsinu í Bankastræti, húsi sem Jón Þorláksson, ráðherra og borgarstjóri, byggði á sínum tíma, og hæfir andi hússins versluninni vel. Þegar Edda hóf verslunarrekstur átt- aði hún sig ekki á því að hún þyrfti að eyða öllum þeim tíma í reksturinn sem raunin hefur orðið því hún ætlaði sér að vinna við gerð kvikmynda og sjónvarps- efnis samhliða rekstrinum. „Ég var svo mikið barn að halda að það að reka versl- un væri hægt að gera með annarri hendi. Ég ætlaði mér að ráða fólk, mæta í verslunina tvisvar sinnum í viku, sjá um innkaupin og raða í hillur og glugga. En það var nú öðru nær því maður þarf al- deilis að vera vakandi yfir öllu sem við kemur rekstrinum ætli maður að láta verslunina ganga og vita um hvað málið snýst. Það þýðir ekki að vera með fjar- stýringu á þessu, og svo hefur aldrei ver- ið hvað mig varðar því allur minn tími hefur farið í verslunina." Persónuleg þjónusta hefur alltaf verið einkenni í Flex og á Edda marga fasta viðskiptavini, innlenda sem erlenda. Sem dæmi nefnir hún karlmann frá Ba- hamaeyjum en hann hefur alltaf viðdvöl á Islandi á leið sinni yfir hafið. Tímanum eyðir hann í það að fara á sinfóníutón- leika og óperur ásamt því að koma við í Flex og versla. Einnig er um að ræða Bandaríkjamenn og Evrópubúa fyrir utan alla Islendingana. í Flex fæst ein- faldur og vandaður fatnaður en áherslan er rík á sérstæða skartgripi, eftir þekkta listamenn, sem undirstrika persónuleik- ann og hafa sérstakan stíl. Og það allra nýjasta eru glæsikjólar ásamt gull og demantsskartgripum. Sérverslanasvæði i háum gæðaflokki Þegar talið berst að stórum verslunar- kjörnum eins og Kringlunni og því hvort Edda vildi hafa Flex á þeim slóð- um segir hún þvert nei. Verslunin eigi ekki heima í slíkum kjörnum því hún sé sönn miðborgarverslun og verslun eins og Flex vilji fólk finna í miðborgum þeg- ar það fari til útlanda. „Ég hef byggt verslunina þannig upp að hún er sér- stök og það er upplifun að koma inn í hana. I Flex ertu að sjá eitthvað sem þú sérð ekki annars staðar og ég held að mér hafi tekist þetta að mjög mörgu leyti.“ Sú staðreynd að verslun Eddu er sönn miðborgarverslun hefur leitt hana, sem verslunareiganda í miðborg- inni, til að vera virkur þátttakandi í Mið- Miðborgin er að verða eins og miðborgir erlendis þar sem verslanir, þjónustufyrirtæki og veitingahús eru í háum gæðaflokki. Ferðamenn sækja í slíka kjarna. 26

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.