Frjáls verslun - 01.01.2000, Blaðsíða 70
Arni Pétursson, markaösstjóri Landsbréfa, og Þorsteinn G. Olajsson, verðbréfamiðlari hjá Landsbréfum. „Flestir viðskiptavinir Kauphallar Lands-
bréfa á Wall Street fjárfesta í pekktum fyrirtœkjum, eins og Microsoft, Nokia, Coca-Cola, General Electric, IBM, Citigroup, Sun Microsystems og
Amazon.com. Þá hafa tæknifyrirtækin verið vinsæl að undanfornu og í kjölfarið á umrœðunni hérlendis um DeCode varð mikill áhugi á lyfja- og líf-
tœknijyrirtœkjum, eins ogAmgen. “ FV-myndir: Geir Olajsson.
Viðskipti með hlutabréf á Netinu:
Ommur, mömmur, nemendur,
smiðir, rafvirkjar, læknar
IBandaríkjunum er svo mikill áhugi á
hlutabréfaviðskiptum á Netinu að
sagt er að húsmæður þar séu hættar
að horfa á sápuóperur í sjónvarpi á dag-
inn og hafi snúið sér að viðskiptum með
hlutabréf á Netinu - og fylgist grannt
með markaðnum á daginn! Þótt hús-
mæður á Islandi hafi ekki legið yfir sáp-
um í sjónvarpi á daginn hefur áhugi
þeirra, sem og allra annarra lands-
manna, á hlutabréfaviðskiptum stórauk-
ist. Mörg þúsund íslenskir ijárfestar eru
orðnir virkir þátttakendur á stærsta hlutabréfamarkaði heims
- Wall Street - í gegnum Kauphöll Landsbréfa. Halda má því
fram að um vakningu sé að ræða. Flestir gera viðskipti einu
sinni í mánuði eða sjaldnar þótt þeir skoði markaðinn reglu-
lega, kannski daglega. Hins vegar er lítið um svonefnda dag-
sala, fólk sem kaupir og selur oft á dag.
Það er ekki lengur einungis „eitt-
hvert jakkafatalið", eins og það hefur
verið nefnt, sem fjárfestir i hlutabréfum
á Netinu heldur almenningur; mömmur,
pabbar, ömmur, afar, nemendur, raf-
virkjar, smiðir, læknar, leigubílsstjórar
og svo mætti áfram telja. Fólk á öllum
aldri og í öllum stéttum sýnir nú fjárfest-
ingum í hlutabréfum áhuga sem aldrei
fyrr. Og það er ekki bara skattaskammt-
urinn réttfyrir jólin; ótrúlega margir eru
orðnir virkir þátttakendur, bæði á Verð-
bréfaþingi íslands sem og á stærsta hlutabréfamarkaði
heims, Wall Street, í gegnum Kauphöll Landsbréfa.
Microsoft og Nokia Árni Pétursson, markaðsstjóri Lands-
bréfa, og Þorsteinn G. Olafsson, verðbréfamiðlari hjá Lands-
bréfum, segja að af vinsælum fyrirtækjum á Wall Street, sem
Það erekki bara eitthvert „jakka-
fatalið“sem fjárfestir á Netinu.
/
Þúsundir Islendinga, á öllum aldri
og úr öllum stéttum, eru þátttak-
endur á Wall Street í gegnum
Kauphöll Landsbréfa.
Eftir Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
70