Frjáls verslun - 01.01.2000, Blaðsíða 38
NÆRMYND
Síðustu jól voru Plastjól með stóru
péi og settu íslendingar met í notk-
un greiðslukorta. Enda höfðu Ragn-
ar Önundarson, 47 ára framkvæmda-
stjóri Europay, og hans fólk í nógu að
snúast í byrjun febrúar þegar kom að
jólauppgjörinu. Þetta voru umsvifamestu
mánaðamót í sögu kortafyrirtækjanna
beggja, VISA Islands og Europay, og eru
menn þó ýmsu vanir á þeim bæjum á
þessum árstíma. Að sögn Ragnars jók EftirJónG. Hauksson.
Europay hlutdeild sína lítillega á síðasta
ári gagnvart VISA íslandi. Og andstætt við VISA hefur
Europay ekki notað dreifikerfi banka og sparisjóða við útgáfu
korta heldur verið sjálft útgefandi korta sinna þar til á síðasta
ári. Ragnar er í nærmynd að þessu sinni. Hann er fæddur 14.
ágúst 1952 í Reykjavík, sonur hjónanna Önundar Ásgeirssonar,
sem lengi var forstjóri BR síðar Olís, og konu hans, Evu Harne
Ragnarsdóttur kennara. Hann varð stúdent frá MH vorið 1972
og síðan lauk hann viðskiptafræðiprófi frá Háskóla íslands vor-
ið 1976. Hann er kvæntur Áslaugu Þorgeirsdóttur kennara og
eiga þau tvo syni, 21 árs og 17 ára.
Skömmtun gamla kerfísins Þótt Ragnar hafi verið fram-
kvæmdastjóri Europay í eitt og hálft ár er hann enginn nýgræð-
ingur í Ijármálaheiminum. Hann hefur reynslu af skömmtun
gamla kerfisins og frjálsræði hins nýja. Hann er með þeim allra
viðskiptavinum þegar inn er komið.
Skrifstofur eru gleijaðar á alla kanta og
gegnsæið algert. Bæði viðskiptavinir og
starfsmenn geta verið í augnsamþandi
við hann. Ragnar sér vel niður í salinn en
á sama hátt er hægt að fylgjast með hon-
um á skrifstofu sinni. Með þessu leggur
hann áherslu á að vera einn af liðinu í
stað þess að setja sig á bekk skörinni
_____ hærra. Gegnsæið er raunar svo mikið að
Myndir: Geir óiafsson. þeir sem aka um Ármúlann og fram hjá
íyrirtækinu geta horft beint inn á skrif-
stofuna til hans og séð hann að störfum í dagsins amstri. Sagt
er að starfsfólk meti þetta fýrirkomulag og kunni vel við þess-
ar þreytingar. Hann er að koma á ákveðnum kynslóðaskiptum
í annars rótgrónu fyrirtæki.
Leíðtogi „Ég reyni að vera fremur leiðtogi en stjórnandi,"
segir Ragnar. „Við leggjum áherslu á valddreifingu og fylgjum
hugmyndafræðinni um hag hluthafa, „shareholder value“. Hér
eru sex forstöðumenn, sem ég kalla stjórnendur félagsins. Ég
reyni að stilla mig um að stjórna þeim í smáatriðum en leiða
hópinn þess í stað. Fari ég að stjórna þeim og vera með sífelld
afskipti gengur valddreifingin til baka. Reynslan sýnir líka að
betur sjá augu en auga.“
Eigendur Europay eru íslandsbanki, með 35% hlut, Lands-
banki og Búnaðarbanki eiga 20% hvor og síðan eiga sparisjóð-
Ragnar Önundarson, 47 ára
framkvæmdastjóra EUROPAY
/
Islands, er enginn nýgrœðingur í
jjármálaheiminum. A einu og
hálju ári hjá jyrirtœkinu hejur
hann opnað fyrirtækið inn á við.
yngstu sem ráðnir hafa verið sem bankastjórar hérlendis. Að-
eins 27 ára, eða fyrir tuttugu árum, var hann ráðinn aðstoðar-
bankastjóri Iðnaðarbankans. Örlögin höguðu því þó þannig að
ábyrgðin hvíldi fyrr á herðum hans en gert var ráð fyrir þar
sem Pétur Sæmundsen bankastjóri veiktist alvarlega vorið
1980 - og fyrir vikið mæddi nokkuð á Ragnari sem starfandi
bankastjóra. Fjórum árum síðar var hann ráðinn einn þriggja
aðalbankastjóra Iðnaðarbankans. Með honum þar 1 banka-
stjórn voru þeir Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka, sem
ráðinn var bankastjóri Iðnaðarbankans haustið ‘82 i kjölfar láts
Péturs, og Bragi Hannesson, fyrrverandi forstjóri Iðnlána-
sjóðs. Ragnar varð síðar einn framkvæmdastjóra hjá íslands-
banka þegar hann tók til starfa i ársbyijun 1990.
Ragnar tók við góðu búi hjá Europay af Gunnari Bærings-
syni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, fyrir einu
og hálfu ári, en engu að síður ákvað hann að opna fyrirtækið
inn á við þegar hann tók þar við, breyta stjórnunarstílnum og
sfytta boðleiðir með það að markmiði að auka valddreifingu og
efla virkni fyrirtækisins gagnvart viðskiptavinum.
Reif niður veggi Ragnar opnaði fyrirtækið innan frá í bók-
staflegri merkingu því hann lét bijóta niður veggi innandyra
og breyta innréttingum. Til dæmis var anddyrinu breytt
þannig að skrifstofur á fyrstu og annarri hæð blasa núna við
irnir samtals 25%. Eigendahópurinn að kortafyrirtækjunum
tveimur, Europay og VISA ísland, eru því að stórum hluta þeir
sömu.
„Þetta var geysigott fyrirtæki þegar ég kom hingað ‘98 og
ég tók við góðu búi. Félagið var fjársterkt, hér var gott starfs-
fólk, gott viðskiptakerfi og traust merki, Eurocard, Mastercard
og Maestro vörumerkin. Þessi öfl leysi ég best úr læðingi með
því að vera fremur leiðtogi en smáatriðastjórnandi."
Þegar skyggnst er á bak við tjöldin um stjórnandann og
manninn Ragnar Önundarson er honum í stuttu máli lýst af
fyrrum samferðamönnum hjá Iðnaðarbanka og íslandsbanka
sem ákveðnum og metnaðargjörnum stjórnanda sem hafi
áberandi kímnigáfu og sé fylginn sér við að ná markmiðum sín-
um. Hann er sagður vel lesinn, Ijölfróður, og mjög opinn fyrir
nýjungum.
Hreinn og beinn „Ragnar er afar traustur. Hann er ekkert að
leika í samskiptum við starfsmenn þótt hann tali í rauninni sér-
stakt tungumál við hvern og einn. Hann er hreinn og beinn og
segir skoðanir sínar tæpitungulaust. Gagnvart óöruggum
starfsmönnum kann þetta stundum að virðast svolítið hörku-
leg framkoma,“ segir Magnús Pálsson, núverandi forstöðu-
maður Þróunar hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar og fyrrum sam-
starfsmaður hans í Iðnaðarbankanum við Lækjargötu, og bæt-
38