Frjáls verslun - 01.01.2000, Qupperneq 41
II
stofa hans er nánast úti á götu. Þetta hefur eflaust verið talsvert
átak fyrir hann þvi hann átti langan feril að baki sem topp-
stjórnandi í tveimur bönkum með aðstöðu á efiri hæðum og í lít-
illr snertingu við daglega viðskiptavini.“
Hvað segir Ragnar Sjálfur? En hvað segir Ragnar sjálfúr um
mannlegu samskiptin í stjórnun sinni? „Sá reynsluheimur sem
ég kem úr er skömmtun lána í upphafi ferils míns og síðan
lánamálin á kreppuárunum ffá ‘89 til ‘94 þegar mörg góð fyrir-
tæki og stjórnendur, sem maður hafði átt góð samskipti við,
urðu undir í baráttunni og gátu ekki staðið í skilum. Það var
harður heimur og fremur óskemmtilegur fyrir báða, þá sem
lánuðu og þá sem tóku lán. Það hefur áhrif á menn að vera í
hörðum málum til langs tíma, hvað þá ef þeir tímar eru erfiðir.
Mig langaði því að breyta til og snúa mér meira að almennri
stjórnun. Það var því nokkur tilbreyting fyrir mig að taka við
starfi mínu hjá Europay. Ég tel að ég hafi haft gott af þessari
NÆRMYND
Hnýtir flugur Kristján segir að Ragnar sé ekki aðeins fær veiði-
maður heldur þyki hann sömuleiðis slunginn við að hnýta flug-
ur. „Oft hefur hann hnýtingarsettið með sér og hnýtir flugur á
staðnum eftir aðstæðum. Hann tekur vel eftir í náttúrunni og
þekkir vel aðstæður, það hjálpar honum í veiðinni. Hann veiðir
mikið og veitist það létt; hefúr ekki mikið fyrir því. Ragnar er at-
hugull og fjölfróður og setur sig yfirleitt betur en aðrir inn í hluti
sem fengist er við. Maður lærir oft mikið af honum með því að
umgangast hann. Hann getur að vísu verið svolítið óvæginn ef
því er að skipta. Hann er gæddur afskaplega mikilli kímnigáfu
sem nýtist honum yfirleitt vel. Hann er mjög skemmtilegur í
góðra vina hópi og afar traustur og ábyggilegur maður.“
Ragnar stundar sund á hveijum morgni og er ævinlega
mættur klukkan sjö í sundlaugina í Garðabæ. Þess má geta að
á svipuðum tírna á morgnana mætir viðtakandi forstjóri VISA
Islands, Halldór Guðbjarnason. Sundlaugagestirnir í Garðabæ
eru þegar farnir að tala um tvo heita potta, VISA-pottinn og
Hann á það til að setja saman vísur. Líklegast kemur það úr móðurættinni.
Afi hans, Ragnar Ásgeirsson kennari, setti saman margar fallegar vísur
sem og móðurbróðir hans, Úlfur Ragnarsson læknir.
breytingu og ég hef reynt að leggja rækt við mjúku hliðarnar í
mér og að dreifa valdi sem frekast er kostur. Sjálfsagt er með
mig eins og marga stjórnendur að ég get brugðið mér í ýmis
gervi, verið bæði mjúkur og harður eftir því sem við á. En ég
er mér þess meðvitandi að gerist ég harður og miðsfyrður
ganga þeir hlutir til baka sem ég hef reynt að koma hér á, til að
auka verðmæti fyrirtækisins, svo það er ljóst að það verð ég að
varast.“
Kristján Oskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis, er í veiði-
hópnum fræga sem veiðir sjóbirting á sumrin uppi í Borgar-
firði og telst til nánustu vina Ragnars. Kynni þeirra hófust
raunar fyrir um þijátíu árum, þegar þeir, báðir nýbyrjaðir í
viðskiptafræði, unnu með námi, hlið við hlið, sem bókarar hjá
BR Yfirmaður þeirra hjá BP var Halldór Vilhjálmsson, núver-
andi framkvæmdastjóri fjármála hjá Flugleiðum. Síðar unnu
þeir Ragnar og Kristján saman um árabil hjá íslandsbanka.
Þess má geta að Ragnar var um árabil stjórnarformaður
Glitnis, dótturfélags íslandsbanka, og sinnti raunar starfi
framkvæmdastjóra félagsins í upphafi samhliða bankastjór-
starfi sínu.
Euro-pottinn. Það eru ekki mörg ár síðan Ragnar hóf að stunda
sund daglega. Helgunum sleppir hann helst ekki úr og mætir
þá klukkan átta er laugarnar opna. Þetta sýnir vel stefnufestu
hans. Hann hefur sigtað á sundið og heldur sínu striki, það er
hans leikfimi.
„Þegar eg var sjómaður" Þegar Ragnar var sautján ára
menntskælingur valdi hann sjómennsku sem sumarstarf tvö ár
í röð og vann sem háseti á olíuskipinu Kyndli. „Það var frábær
reynsla," segir Ragnar og telur að ungir menn hafi bæði gott af
því að vera í sveit og komast í snertingu við sjómennskuna.
Um sumrin sín á sjónum hefur hann yfirleitt notað orðalag-
ið: „Þegar ég var sjómaður.“ Sagt er að nokkuð sé um liðið síð-
an synir hans hættu að trúa sjómannasögum hans.
Þegar hann varð fertugur hélt hann mikið afimæli þar sem
margir frasarnir flugu. Sagt er að þar hafi Ragnar útskýrt
hvernig menn eigi að stýra áhættu sinni í fjármálum. Hann
sagðist hafa lært það þegar hann var í sveit sex sumur á Grund
í Skorradal að fara ætti með peninga eins og (kúa)skít, það ætti
að dreifa þeim vel. Vel mælt! ffij
STUNDAR Þ Ú ÖRUGG VIÐSKIPTI?
Vanskilas/crá__________________
Rétt ákvöröun byggir á öruggum upplýsingum
HRINGDU STRAX í SÍMA 550 9600 QG FÁÐU UPPLÝSINGARNAR SEM ÞIG VANTAR
LÁNASTRAUST HF. ÞVERHOLTI 14,105 REYKJAVÍK SjlVII 550 9600 FAX 550 9601 NETFANG mottaka@lt. is
LÁNSTRAUST HF.
41
rnJALo VfcKðLUN