Frjáls verslun - 01.01.2000, Page 64
Leóþold Sveinsson, framkvœmdastjóri auglýsingastofunnar Auk, sem
hefur séð um margar af auglýsingum Tóbaksvarnarnefndar, segir að
sér hafi fyrst þótt auglýsingarnar dálítið hrikalegar en kurteislegar
auglýsingar á þessu sviði skili mjög takmörkuðum árangri.
ar í baráttunni við tóbaksframleiðendur sem stöðugt leita nýrra
leiða til að koma tóbaki á framfæri. Hann minnir á að fyrir
seinni heimsstyrjöldina hafi konur almennt ekki reykt á al-
mannafæri fyrr en American Tobacco Company réð Edward
LA. Barney, sérfræðing í almannatengslum, til að auka sölu á
tóbaki. Hann kom með þá hugmynd að láta konur kveikja á
„frelsis kyndli“ í páskaskrúðgöngu New York borgar, allt í
nafni jafnréttis kynjanna. Nú eru konur í óða önn að taka upp
vindlareykingar eftir mikla herferð vindlaframleiðenda, eru að
fylgja körlunum eftir og reyna að feta í þeirra fótspor."
„Það hlýtur alltaf að vera langtímamarkmiðið sem skiptir
mestu máli í auglýsingum og kynningum sem vara við hættu
eða kenna meðhöndlun hættulegra efna og hluta. Ef tekst að
breyta ímyndinni þá er björninn unninn, hvert svo sem mark-
miðið er.“
Kurteisin Skílar litlu Auglýsingastofan Auk hefur séð um
margar af auglýsingum Tóbaksvarnarnefndar og fékk hinar
umdeildu auglýsingar til umfjöllunar. „Þegar ég sá þessar aug-
lýsingar fyrst þótti mér þær dálítið hrikalegar," segir Leópold
Sveinsson hjá AtJK. „En okkar reynsla hér heima er sambæri-
leg reynslunni í öðrum löndum, sem sé að kurteislegar auglýs-
ingar skili takmörkuðum árangri. Sláandi auglýsingar hins veg-
ar vekja viðbrögð, bæði jákvæð og neikvæð. Þegar við fengum
þessar ákveðnu auglýsingar hingað til umfjöllunar söfnuðum
Ingvi Jökull Logason, auglýsingastofunni Hér&nú. „Imyndin er það
sem er sérstaklega erfitt að vinna á. “
við saman nokkrum reykingamönnum til að fá hjá þeim við-
brögð við þeim. Þar á meðal var einn reykingamaður sem er
mjög sáttur við að vera reykingamaður og ætlar sér að vera það
áfram. Allir sem sáu auglýsingarnar sögðu að þær vektu þá til
umhugsunar og fengju þá til að hugsa sinn gang og einn hætti
að reykja í kjölfarið, hvort sem það er þessu að þakka eða ekki.“
Nunna í kynfrasðslu Leópold segir mikilvægt að leita álits
reykingafólks því eins og einn góður maður sagði: ,Að láta
þann sem ekki reykir og hefur aldrei reykt dæma um gildi aug-
lýsinganna er eins og að láta nunnu kenna kynfræðslu." Kann-
anir hall sýnt að hræðsluáróður virkar fremur lítið á ungt fólk,
einfaldlega vegna þess hve dauðinn er því tjarlægur. Það álítur
að það sé bara eldgamalt fólk sem deyi af völdum sjúkdóma.
Því hafi verið reynt að nálgast unga fólkið í gegnum tískuna og
með fræðslu.
„Það má alveg búast við því að einhverjir forhertir verði bara
ennþá forhertari við að sjá svona auglýsingar," segir Leópold,
„en ég er þeirrar skoðunar að þeim verði hvort sem er ekki
bjargað. Allt hugsandi fólk hins vegar skoðar staðreyndirnar
sem koma fram í auglýsingunum og íhugar þær. Það hefur
hver og einn leyfi til að hafa skoðanir en reykingar eru ekki síst
spurning um tillitssemi gagnvart öðrum.“
Ekkl ráða reykingamenn! Fyrir nokkru gerði Auk auglýsingu
sem aðeins var birt einu sinni og vakti þvílíka athygli að allar
kaffistofur landsins loguðu af umræðum. „Þetta var auglýsing
sem beint var til atvinnurekenda um að ráða frekar fólk sem
ekki reykti," segir Leópold. „Hún var aðeins birt einu sinni en
að minnsta kosti einn sjónvarpsþáttur var helgaður þessu mál-
efni, tvær heilar þjóðarsálir fóru undir það og hundruð
dálksentímetra voru skrifaðir. Eg sló lauslega á það á sínum
tíma að hefðum við þurft að borga fyrir alla þessa umijöllun þá
væri verðmæti auglýsingarinnar 8-12 milljónir." 35
Að láta nunnu kenna kynfræðslu
„Að láta þann sem ekki reykir og hefur aldrei reykt dæma um gildi auglýsing-
anna er eins og að láta nunnu kenna kynfræðslu."
64
I Astralíu hættu 190 þúsund manns að reykja fyrstu sex mánuðina
sem auglýsingarnar voru sýndar.