Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Síða 17
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
597
Kirkjan í
stöðamönnum Jóns biskups Arasonar
og sona hans.
Níu árum eftir andlá't merkisprests-
ins Bjarna Halldórssonar, en þau 9
ár var Halldór sonur hans prestur í
Selárdal eða árið 1645, verður prestur
í Selárdal séra Páll Björnsson, sá and-
ríki ræðuskörungur og tungumálagarp-
ur.
Séra Páll Bjömsson var fæddur að
Sauæbæ á Rauðasandi árið 1621. For-
eldrar hans voru Björn sýslumaður
Magnússon í Saurbæ á Rauðasandi og
kona hans Helga Arngrímsdóttir prests
lærða. Bjöm sýslumaður faðir séra
Páls var sonur Magnúsar prúða sýslu-
manns, þe®s mikla og göfuga höfðingja
og konu hans Ragnheiðar Eggertsdótt-
ur lögmanns Hannessonar hirðstjóra.
Var Magnús prúði albróðir Staðarhóls-
Páls, afa Brynjólfs biskups Sveinsson-
ar og bróðir Jóns lögmanns Jónssonar
sem var einn áhrifamesti höfðingi
landsins á sinni tíð. Átti Jón í miklum
deilum við Guðbrand biskup, sem al-
kunnugt er. — Helga Amigrímsdóttir
móðir séra Páls. var dóttir Amgríms
lærða, frænda Guðbrands biskups á
Hólum og fyrri konu Amgríms, Sól-
veigar Gunnarsdóttur, sem kölluð var
,,Kvennablómið,“ því hún þótti ein
fríðasta kona á íslandi á sinni tíð. Var
Gunnar faðir hennar ráðsmaður á Hól-
um í tíð Guðbrandar biskups, og var
bróðir Áma Gíslasonar sýslumanns á
Hliðarenda í Fljótshlíð þess mikla og
harðsnúna höfðingja, sem átti í mikl-
um deilum við Magnús prúða, en giftu
þó saman böm sín að lokum. Páll
lauk prófi frá Hólaskóla undir hand-
leiðslu Þorláks Skúlasonar biskups
frænda síns með miklu lofi. Sömuleið-
is prófi frá háskólanum í Kaupmanna-
höfn, með ágætiseinkunn, þar sem hann
lagði stund á auk guðfræðinnar, latínu,
grísku, hebresku og stærðfræði. Hann
lærði ennfremur kaldeisku og sanskrít
og síðast lærði hann arabisku og hafði
hann lokið við að læra hana rétt fyrir
dauða sinn. Var Páll svo lærður mað-
ur, að enginn íslendingur stóð honum á
Selárdal.
sporði, eftir því sem sagnaritarar telja.
Jón Þorkelsson Skálholtsrektor, sem
var mjög lærður maður telur séra Pál
hafa verið andrikastan ræðuskörung
sinnar samtíðar, að undanskildum Jóni
biskupi Vídalín, sem var náfrændi Páls,
því þeir voru systkinasynir, þótt séra
Páll væri 45 árum eldri en Jón biskup.
Séra Páll var hinn bezti kennari.
Tók hann marga pilta til kennslu, með-
al þeirra voru þeir bræðurnir frændur
hans, Jón Vídalín, sem síðar varð
biskup i Skálholti, og Arngrímur bróð-
ir Jóns, sem síðar varð kunnur mennta-
maður. Lærðu þeir bræður hjá prófasti,
latínu, grísku og hebresku, til undir-
búnings undir háskólanámið áður en
Jón biskup sigldi til háskólans í Kaup-
mannahöfn. Einnig er talið áreiðalegt
að séra Páli hafi kennt Magnúsi Ara-
syni landmælingamanni tungumál og
stærðfræði. Hann var bráðgáfaður, en
átti barn með dóttur séra Páls.
Hann drukknaði við ey á Breiðafirði.
Var sonur Ara sýslum. í Haga. Eins og
þeim sem lesið hafa æfisögu Jóns
biskups Vídalíns er kunnugt gekk hann
að afloknu háskólanámi í her Dana,
og ætlaði sér með því að komast til
hærri metorða. En þar sem að móðir
hans og öðrum ættingjum leizt ek’ki á
þá ráðabreytni, tók hún það ráð að
kaupa son sinn úr herþjónustunni, með
fjárhagslegri hjálp ættingja og vina
Jóns. Er talið að séra Páll, sem var
þeirra ættingja Jóns langríkastur, því
hann var stórauðugur, hafi lagt drjúgt
af möikum til þess að kaupa þennan
béð keim að beiáidai.