Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Qupperneq 24
604
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Úr sögu Reykjavlkur:
Þetta er Reykja-
vík eins og hún
var árið 1858.
Myndin er tekin
úr ferðabók
Winklets, sem þá
var hér á ferð.
MIÐBÆRINN FYRIR EINNI ÖLD
FYRIR EINNI öld náði lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur vestan frá
Lambastöðum austur að Laugar-
nesslandi. Lögsagnarumdæmið
hafði verið stækkað gífurlega árið
1835, því að þá voru lagðar undir
Reykjavík jarðirnar Hlíðarhús með
Ánanaustum, Sel, Örfirisey, Arn-
arhóll og Rauðará.
Með þessari útþenslu fjölgaði
Reykvíkingum mjög og nú voru
þeir taldir 1444. En Reykjavík var
í tvennu lagi. Annars vegar var
Miðbærinn eða Kvosin, með timb-
urhúsum, en á báðar hendur við
hann voru kotahverfin, torfbæir
sem stóðu á víð og dreif og höfðu
verið reistir án þess að neitt væri
hugsað um skipulag byggðarinnar.
Á milli þeirra voru aðeins göngu-
etígar, en í Miðbænum átti svo að
heita að komnar væri skipulagðar
götur. Og þessar götur höfðu þegar
fengið nöfn og haldast flest þeirra
enn.
Það var árið 1848 að Rosenörn
stiftamtmaður lét gefa öllum göt-
um bæarins nöfn og tölusetja hús
við hverja götu. Þá voru lögfest
þessi nöfn: Lækjargata, Lækjar-
torg, Hafnarstræti, Austurstræti,
Aðalstræti, Læknisgata, Bratta-
stræti, Grjótastræti, Túngata,
Kirkjugarðsstæti, Kirkjubrú, Tjarn
argata, Vallarstræti og Austurvöll
ur. En fyfir austan læk var Ingólfs-
brekka.
Þess má geta hér, að Læknisgata
hafði áður verið nefnd Hlíðarhúsa-
stígur, en nú var hún skírð að nýu
til heiðurs Jóni Thorstensen land-
lækni, sem hafði reist sér þar íbúð-
arhús í Hlíðarhúsatúni. Aldrei var
húsið þó kallað Læknishús, held-
ur altaf Doktorshús, og mun það
nafn jafnvel loða við það enn. Nú
telst það til Ránargötu, en Lækn-
isgata er horfin úr málinu og heit-
ir gatan nú Vesturgata. Annars má
geta þess að Læknisgata varð Reyk
víkingum aldrei munntöm. Þeir
kölluðu hana altaf Hlíðarhúsastíg,
eða Stíginn, og Vesturgötunafnið
átti líka örðugt uppdráttar, því að
langt fram yfir aldamótin seinustu
töluðu menn um að fara vestur á
Stíg. Þeir voru vanafastir Vestur-
bæingar.
Kirkjugarðsstræti fékk seinna
nafnið Suðurgata, og Kirkjubrú
fékk nafnið Kirkjustræti. Bratta-
stræti og Grjótastræti munu hafa
breyzt í Brattagötu og Grjótagötu