Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Síða 29

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Síða 29
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Hús Stefáns Gunnlaugssonar og Símon Hansens-hús. Guðlaug kona hans, dóttir Ara lœknis Arasonar á Flugumýri. — Hús þetta var riYið 1887 og stendur þar nú hús Magnúsar Benjamíns- sonar & Co og snýr öfugt við gamla húsið. Nokkur vafi er á því, að þessi- tölusetning húsanna sé rétt, enda þótt þau sé aðeins tvö, því að í „Þjóðólfi“ segir að Lambertsens- hús sé nr. 2 við Veltusund. Grjótagata. 9. Þarna stóð áður Sandholtsbær, en lítið timburhús hafði verið reist þar 1845. Nú bjó þar Inger Margrét Thomsen (dóttir Einars snikkara Hannessonar á Eyrarbakka), ekkja Th. H. Thomsen, sem var verslun- arstjóri Flensborgarverslunar. En í þessu húsi áttu lengi heima tvær dætur hennar og stunduðu barna- kennslu. Var húsið þá altaf nefnt „Thomsenssystrahús". Það er nú horfið. 10. Þarna hafði Skálinn staðið, það hús Víkurbæar sem lengst var við líði. Bengdikt Gröndal yfirdóm ari bjó þar seinast. Hann lét rífa Skálann og reisa þar timburhús. Höfðu ýmsir mætir menn átt þarna heima, þar á meðal séra Svein- björn Hallgrímsson, og þarna leit „Þjóðólfur“ fyrst dagsins ljós. Þarna bjó nú Elín Thorstensen ekkja Jóns landlæknis, ásamt Guð- rúnu dóttur sinni. Hjá þeim leigði Jón A. Hjaltalín, sem þá Var á prestaskólanum. Tveimur árum seinna giftust þau Jón og Guð- rún. — Þar sem þetta hús stóð er nú Grjótagata 4. Túngata. 1. Dillonshús reist 1835. Þar bjó nú Sire Ottesen ásamt Henriettu dóttur þeirra Dillons lávarðar. Hún giftist seinna P. Levinsen verslunarstjóra. — Nú er þetta hús komið að Árbæ. 2. Þetta hús reisti Einar borgari Jónsson upphaflega. Nú átti þar heima Kristín Katrín Sveinbjörns- son ekkja Þórðar Sveinbjörnsson- ar dómstjóra, ásamt börnum sínum. Þetta hús var rifið 1875 og reisti Lárus Sveinbjörnsson bæarfógeti þá hús það er stendur þar enn og snýr stafni að götu. Kirgjugarðsstræti. 1. Þar bjó Teitur Finnbogason dýralæknir og kona hans Guð- rún Guðbrandsdóttir, ásamt syni sínum Guðbrandi, er seinna varð verslunarstjóri. Teitur reisti þetta hús 1835 og var það kallað Teits- hús. Seinna eignaðist það Björn P. Hjaltested járnsmiður og breytti því mjög, en síðan hefir það verið kallað Hjaltestedshús. (Suðurgata 7). 2. Brunnhús. Þar bjuggu Þor- steinsson Bjarnason lögregluþjónn og kona hans Ragnheiður Ólafs- dóttir. Þar er nú Tjarnarbíó. 3. Fyrir sunnan Brunnhús var lítið hús, byggt úr viðum baðstofu frá Kollafirði. Þar bjó nú Gísli Ólafsson jarðyrkjumaður og kona hans Sigríður Jónsdóttir með 3 dætur í bernsku. Seinna var reist þarna tvílyft kassahús og þar bjó Stefán Egilsson faðir Eggerts söngvara. Þetta hús varð að þoka þegar Slökkvistöðin var reist. 4. Þar var lítið hús og í því bjó Marie Nicoline Finsen, ekkja Ólafs Hannessonar Finsens yfir- dómara. Hjá henni var Niels R. Finsen ljóslæknir öll skólaár sín. Þar leigði nú Helgi E. Helgesen síð ar skólastjóri. — Nú stendur þarna hús Lárusar Jóhannessonar HR- dómara. 5. Þetta hús reisti Rasmus Hansen (faðir Morten Hansen skólastjóra) árið 1848. Þar bjó nú Guðrún Bjarnadóttir ekkja með tveimur fósturbörnum sínum. Hjá henni leigðu Einar Einarsson verslunar- maður og María Einarsdóttir kona hans frá Brekkubæ. — Þetta hús stendur enn og nú á þar heima Helgi Hjörvar rithöfundur. 6. Þetta hús lét Egill bókbindari Jónsson reisa 1849, var það tvíbýl- ishús. Bjó hann nú sjálfur í syðri helmingi hússins ásamt Guðrúnu Halldórsdóttur konu sinni, 3 börn um og 2 lærlingum. En í norður- enda hússins bjó Jón HjaltaKn land læknir ásamt Jakobínu konu sinni, dóttur Baagöe verslunarstjóra. — Þetta hús brann vorið 1883 og var það fyrsti stórbruninn í Reykja- vík. Aftur voru reist þarna tvö sambyggð hús og bjó séra Jóhann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.