Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 3
Mynd: Torfi Jónsson
MENN SÁ EG ÞÁ
ÚR SÓLARUÓÐUM
Höfundur Sólarljóða er ókunnur. Hann yrkir í 1. persónu um
dauða sinn og för inn í aðra tilveru. í þessum hluta segir hann
frá mönnum, sem hann sá í hinni nýju tiiveru og misjöfnu hlut-
skipti þeirra þar.
IV
Frá því er að segja,
hvað eg fyrst um sá,
þá ereg var í kvölheima kominn;
sviðnir fuglar,
er sálir voru,
flugu svo margir sem mý.
Margan mann
sá eg meiddan fara
á þeim glæddu götum;
andlit þeirra
sýndust mér öll vera
rýgjar blóði roðin.
Marga menn
sá eg moldar gengna,
þá er eigi máttu þjónustu ná;
heiðnar stjörnur
stóðu yfir höfði þeim
fáðar feiknstöfum.
Menn sá eg þá,
er mjög ala
öfund um annars hagi;
blóðgar rúnar
voru á bijósti þeim
merktar meinlega.
Menn sá eg þar marga ófegna, þeir voru villir vega; það kaupir sá, er þessa heims apast að óheillum. Menn sá eg þá, er af mikillæti virtust vonum framar; klæði þeirra voru kynlega eldi um slegin.
Menn sá eg þá, er mörgum hlutum véltu um annars eign; flokkum þeir fóru til Fégjarnsborgar og höfðu byrðar af blýi. Menn sá eg þá, er margt höfðu orð á annan logið; heljar hrafnar úr höfði þeim harðlega sjónir slitu.
Menn sá eg þá, er margan höfðu fé og fjörvi rænt; bijóst í gegnum renndu brögnum þeim öflgir eiturdrekar. Allar ógnir fær þú eigi vitað þær er helgengnir hafa sætar syndir verða að sárum bótum; æ koma mein eftir munuð.
Menn sá eg þá, er minnst vildu halda helga daga; hendur þeirra voru á heitum steinum negldar nauðlega. V Menn sá eg þá, er margt höfðu gefið af guðs lögum; hreinir kyndlar voru yfir höfði þeim brenndir bjartlega.
Menn sá eg þá,
er af miklum hug
veittu fátækum frama;
lásu englar bækur
og ymna skrift
helgar yfir höfði þeim.
Menn sá eg þá,
er mjög höfðu
hungri farið hörund;
englar guðs
lutu öllum þeim;
það er æðsta unað.
Menn sá eg þá,
er móðum höfðu
látið mat í munn;
hvílur þeirra
voru á himingeislum
hafðar hagiega.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró,
en hinum líkn, er lifa.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
24. DESEMBER 1986 '3