Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 10
vcui JZáúJaajl snt c J<U£ hoyuxM^. b yM*h^cvt.'fortiVX-£J f&Íf)&tK$SON,e<fr STEÍNM STEIf Mynd: Örlygur Sigurðsson. Smásaga eftir Indriða G. Þorsteinsson eir voru að ýta nýjum Opel-bíl inn á verkstæðið og mér varð af einskærri forvitni gengið til þeirra til að spyija hvað væri að svona nýjum bfl. Þeir sögðu að kúplingin væri ónýt. Þótt ég þekkti ekki bílinn og vissi þaðan af síður hver átti hann, vissi ég aðeins um einn mann í borginni sem ók alltaf með annan fótinn á kúplingunni. Ég lét því flakka hvort eigandinn væri Sigvarður Jónasson. Þeir litu upp og urðu svolítið hissa á svip og sögðu að ég ætti kollgátuna. Þótt engum kunni að þykja þetta fyndið þá fannst mér það fyndið af því Sigvarður Jónasson var líklega eini maðurinn sem ók að staðaldri með fótinn á kúpling- unni. Ég hafði kynnst honum á fímmta áratugnum. Þá átti hann Volvo sendibíl sem virtist þola aksturslagið. En ég hafði fljótlega séð að Sigvarður var hræddur í bíl og hræddur við bfla. Eina vöm hans gegn þeirri hræðslu var að standa á kúplingunni. Mér datt í hug að ástæðan væri bílvelta sem hann hefði lent í þegar hann var ung- ur. Þá var alltaf verið að velta bflum. Sigvarður Jónasson var oft erlendis í viðskiptaerindum og það var aðeins stundum sem fundum okkar bar sam- an. Hann var glaðlegur og alúðlegur maður og rak upp stóra hlátra, einkum þegar talið barst að afrekum stjóm- málamanna, eða þegar nefndar vom virkjanir og önnur stórplön landinu til gagns. Þetta var á tíma þegar ekki gekk of vel að skrifa. Ég var peningalítill með köflum, en hann leit á mig sem rithöfund sem væri að vinna í alvöru. Hann spurði hvort ég ætti koffort full af handrit- um og lést verða hissa þegar svo var ekki. Hann sagðist nefnilega hafa þekkt rithöfund sem bar ekki við að eiga minna en eitt koffort af handritum ef ske kynni að ein- hver efaðist um hæfíleika hans. Mér fannst alltaf nokkur léttir að hitta Sigvarð, eins og ég hefði skjól af honum. Þær stundir var ég ekki iðjuleysingi til byrði forsjárfólki mínu. Ég rakst á bækur frá þriðja áratug aldarinnar þar sem Sigvarðs var getið. Hann var þá komungur maður og nýlega búinn að ljúka lögfræðiprófi frá háskólanum og þótti líklegur til forustu í stjómmálum. Ekki settist hann þó á þing heldur fór út í fasteignaviðskipti og átti tölu- vert af húsum í byijun seinna stríðs. Um það leyti þótti líklegt að Þjóðveijargerðu loftárás á Reykjavík. Mestu réði um þá skoðun að breska hemámsliðið bjó sig undir að mæta flugvélum með skothríð. Sigvarður fór til spá- konu um þessar mundir, sem ráðlagði honum að selja eignir sínar, einkum stóreign á hafnarsvæðinu í Reykjavík. Það kom aldrei til loftárásar þótt einstaka þýsk flugvél flygi yfir til að kanna aðstæður. Þjóðveijar urðu sem kunnugt er höndum seinni að koma hingað þegar þeir fóra inn í Noreg og Danmörku. Vegna spádómsins og vegna orðróms um að von væri á loftárásum taldi Sigvarður Jónasson að mikið af húsum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.