Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 21
Kristinn Magnússon Kirkjan Hvert krosshús undir himinboga skal vígt á bjargi orðanna hljóða: Hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir er ég þar mitt á meðal Sannlega — sannlega I hans nafni Höfundurinn er prentari og stöðumælavöröur i Reykjavík. Jónas Friðgeir Heilög jól I skammdeginu fögur skín skærust jólastjarnan mín. Frelsis hátíð, friðar sól — færir okkur, heilög jól. í Betlehem var barnið fætt, barnið sem að um er rætt. Jesú barnið — björtust sól — blessuð séu, heilög jól. Jólin eru hátíð Hans, Herrans Jesús — Frelsarans. Hann er líf og Hann er skjól — Hann gaf okkur, heilög jól. Frelsis hátíð, fagnaðar. Friður ríkir allsstaðar. Birtir yfir, blessuð sól — bjarma slær á, heilögjól. Sigurjón Ari Sigurjónsson • Allir þeir munir, sem hún metur mikils, eru ýmist vandlega faldir undir koddanum hennar eða rúminu. Hún geymir líka ýmsa persónulega muni í handtöskunni sinni. Eg segi henni að fari ástandið versnandi, verði hún bráðum að fara að ganga með bak- poka, þar sem gersemar henar fengju að vera í friði. Hún brosir. Mér tekst stundum að fá hana til að hlæja. Það er þetta skop- skyn hennar, sem gerir það að verkum, að ég velti því stundum fyrir mér, hvort henni sé í raun og sanni alvara, og hvort þetta sé ekki eintómur leikur af hennar hálfu, gerður til að vita, hversu langt hún getur leitt mig. Nú erum við á leið í almenningsgarðinn. Þetta er eins og atriði úr Hitchcock-mynd- inni „Fuglunum". Heilir herskarar af dúfum steypast yfir okkur. Síðan færa krákurnar sig feimnislega nær okkur á meðan grár köttur læðist áfram í snjónum. Þetta er eins og örkin hans Nóa. En um borð í þessa örk, þar sem frú T. situr ein vð stjórn- völinn, er mönnum bannaður aðgangur. Böm, sem haldin eru öllum illum öndum og hafa sjúklega nautn af því að flæma fuglana burt, em sérstaklega illa þokkuð. Þetta „skip“, „þessi örk“, þessi garður hætt- ir að vera eign almennings, eftir að hún er stigin á skipsfjöl. Það er hér, sem henni líður skást. Um stund em sálarkvalir hennar gleymdar. Það em bara hún og fuglamir. En brátt tmfla vegfarendur þennan yndis- lega fund: „Af hverju em þeir úti að ganga, þurfa þeir ekki að vinna?" Frakkar em iðju- leysingjar, „það er engin furða, að efnahag- ur þeirra sé svona bágborinn"! En þeir em undir eins gleymdir og hún lætur rigna góðgæti yfir fuglana og mig. Eg hristi það af mér. Ekkert skiptir hana lengur máli, hvorki gamla konan, sem er að sötra rauðvínið sitt, né róninn, sem er að fróa sér í mnnanum bak við okkur. Hver fugl er ávarpaður með nafni. Hún skírði einn spörv- ann skírnamafni einnar fylgdarmeyjar sinnar, heiður, sem mér hefur ekki ennþá verið auðsýndur, en ég get vel beðið þessar- ar upphefðar ... Hún leggur fyrir mig nokkrar spumingar um íslenzka fugla. — Dúfa sest á öxlina á henni, á loðkápuna, sem kostaði 7.000 fr. (eða tæpar kr. 45.000). Nokkrir ferðamenn, sem eiga leið framhjá okkur, hrífast af þessari sjón og taka mynd- ir af þeim. Þegar heim er komið, heldur hún þmmu- ræður um kvalalosta. Það er fólk, sem kvelur fuglana í garðinum með nælon- þræði. „Vesalingamir litlu!“ Dag nokkurn sýndi hún mér þann, sem helzt lá undir gmn, sá var að lesa dagblaðið sitt í ró og næði. Hún heimtaði, að ég færi til hans, og segði honum, að við fylgdumst með hon- um. ÓTTAST AÐ FARA í RÚMIÐ Nú á ég tveggja tíma frí, sem ég reyni að eyða með því að hugsa um eitthvað ann- að. Frú T. hefur ýmislegt fyrir stafni, annað hvort gæðir nún sér á sælgæti eða pijónar. Áður fyrr lét hún mig pijóna á sig peysur: „íslenzkar konur em svo myndarlegar í höndunum", og það var segin saga, að hún rakti þær jafnan upp vegna þess að liturinn klæddi hana ekki. Þetta taugastríð endaði á þann veg, að ég sagði loksins við hana, að það væri bezt, að hún tæki sér sjálf pijóna í hönd. Síminn hringir. Hún þarfnast mín: „Ég er tilbúin. Hittið mig fyrir framan lyftuna!" Við fömm aftur á sama kaffíhúsið og þar hlusta ég enn einu sinni á hana. Stundum fær hún mig til að hlæja. Hún er ágætis hermikráka. Bezt tekst henni upp með Marilyn Monroe: „I want to be loved by you“, svo og hinar ýmsu fylgdarmeyjar mínar. Ég ímynda mér, að hún hermi eftir mér, og ég þykist vita, að hún geri það ljóm- andi vel. Ég á klukkustundarfrí fyrir kvöldmatinn, sem við borðum í herbergi hennar um leið og við horfum á sjónvarpið. Hún endursendir einn tómat úr salatinu aftur í eldhúsið, vegna þess að hún uppá- stendur, að hann hafi verið á annars manns diski. Það er fisklykt af gafflinum hennar og „á þetta að heita geitarostur?" „Það er reginhneyksli fyrir fjögurra stjörnu hótel að láta þetta viðgangast“. Hún snýr starfs- fólkinu í kringum sig, sem sættir sig við duttlunga hennar og framkvæmir skipanir hennar umyrðalaust. Ég bíð þess, að hún verði aftur róleg. Um miðnætti, þegar dagskránni er lokið, fer hún að búa sig í háttinn. En það er ekki svo einfalt mál fyrir hana: í stað þess að fara að sofa í herberginu sínu, verður hún að sofa í mínui Allt hennar dót er flutt inn í litla herbergið mitt og mitt inn í henn- ar, sem er miklu rúmbetra. Þannig dreymir hana í rúminu mínu eða um það, en ég hef aftur á móti martröð í hennar. Til að rétt- læta þessar næturferðir sínar, ber hún fram ástæður, sem hún veit, að eru fáránlegar. Henni fínnst hún vera vemduð í herberginu mínu. Það er henni hlífískjöldur og vamar- virki. Það er hennar athvarf og skel. Eins og bam óttast hún þá stund, þegar hún verður að fara að hátta og vera ein. Hún gerir allt til að draga skilnaðarstundina á langinn. Hún gleymir alltaf einhveiju, hún vekur mig um miðjar nætur undir því yfir- skini, að sér líði illa: „Komið undir eins, mér líður svo hræðilega illa!“ Ég er ekkert að flýta mér að fara í fötin aftur. Þegar ég er komin inn til hennar vill hún endilega, að ég nuddi á sér bakið: „Gerður gerði það svo vel.“ Þessi herbergjaskipti skipta hana meginmáli. En það er óhugsandi, að her- bergið mitt verði endanlega herbergið hennar. Hún hefur aðeins augastað á her- berginu mínu vegna þess, að það er ekki hennar. Það verður að taka af skarið. Og kvölds og morgna sjá gestimir á efstu hæðinni mig skálma eftir göngunum með dótið okkar. Eftir þetta langa næturstrit, reyni ég loksins að sofna um leið og ég naga mig í handarbökin fýrir að hafa ekki sagt henni mitt álit á þessu uppátæki henn- ar. FastirLiðirEins OgVenjulega Sunnudagurinn hefst á sinn vanalega hátt: „Eruð þér vöknuð? Ja? Jæja, það er eins gott, því að ég verð ekki til fyrr en eftir hálftíma," og frú T. slítur samtalinu. Sunnudagarnir eru öðruvísi en hinir dagar vikunnar. Við leyfum okkur þann munað að borða morgunverðinn á hótelinu. Frú T. vekur þegar í stað á sér athygli með því að neita að sitja við borðið, sem yfírþjónn- inn vísar henni á. Hún velur ýmist borð, sem ekki hefur verið lagt á, eða borð fyrir fleiri en tvo. Við setjumst og hún furðar sig á skapvonzkunni í yfirþjóninum. Hún talar og ég hlusta á hana með öðm eyranu. Ég virði fyrir mér gestina, olíukónga frá Tex- as, Japani, svo og fasta morgunverðargesti, sem búa ekki á hótelinu. Bak við mig kann- ast ég við einn af prófessorunum mínum í sálarfræði, sem er að semja fyrirlestur fyrir næsta tíma. Tíminn líður og fuglamir bíða, en á sunnudögum gefum við þeim ekki bara einu sinni heldur tvisvar og jafnvel þrisvar, hvernig sem viðrar. Síðan fæ ég tvær klukkustundir til að hvíla lúin beinin, á meðan hún horfír á „Animals of The World" [Dýrin á jörðunni], þáttur sem hún missir aldrei af undir neinum kringumstæðum, og sem verður henni jafnan mikið umkvörtun- arefni. Það eina sem situr eftir í huga hennar er kvikskurður á dýrum og útrýming vissra dýrategunda. Þá er kominn tími til að fara á kaffihús- ið eftir viðkomu í garðinum. Eins og alltaf á hveijum sunnudegi eftir hádegi sitja tvær gamlar lesbur við næsta borð við okkur. Onnur þeirra sem er með fallegan hatt, pantar sitt venjulega „bananasplitt" (þ.e. banana og ís með þeyttum ijóma). Hin ber jarðarbeijasultu á ristað brauðið um leið og hún reykir vindil. Þegar þær fara burt kveðja þær okkur íbyggnar á svip, en ungfrú T. þykist ekki sjá þær. Eftir kvöldmatinn, sem við borðum í herberginu hennar um leið og við horfum á myndina, sem bytjar kl. 20.30, borgar hún mér, þótt það geti verið breytilegt eftir þvi hvernig skapi hún er í. Við förum báðar hjá okkur. Hún vildi að ég eyddi helgunum með henni sem vin- kona hennar, og eflaust að ég neiti að taka við greiðslunni. Ég finn til svolítillar sektar, og hönd mín, sem tekur við seðlunum, undir- strikar einsemd hennar. Eftir myndina verð ég að flytja dótið okkar enn einu sinni á milli herbergja. Ég kveð hana um leið og ég óska henni góðrar viku. Ég sofna úr- vinda af þreytu. Á mánudagsmorgun leysir ung kona mig af. Ég er á heimleið. Neðanjarðarlestin er full af hálfsofandi fólki á leið í vinnuna. Ég held ég hátti aftur þegar ég kem heim. Nú sé ég hana ekki næstu fimm dagana, en því miður hverfur hún ekki úr huga mínum. Ég hélt lengi vel að ég gæti hjálpað henni, unz ég ge'rði mér grein fyrir því að hún hafði hvorki þörf fyrir það né löngun til þess. Hún hrærist áfram í sínum sjúka hugarheimi, sem nánasta umhverfi hennar er nú líka smitað af. Það verður alltaf ein- hver ung fylgdarstúlka tilbúin að gerast þátttakandi í æði hennar og fylgja henni frá hótelinu til garðsins og sömuleiðis til baka. Jafnskjótt og ég verð sloppin út úr „vítahringnum" mun einhver koma í minn stað, ef til vill ung íslenzk námskona, hver veit? Sólveig Anspaoh er sálfræöingur í París. Hún er dóttir Geralds Anspach og Högnu Sigurðar- dóttur arkitekts. Hún skrifar um kvikmyndir í ýmis blöö. A jólum A ég sök þess heims sem er svangur þurfandi kvalinn og smáður, þess heims sem er drepinn eitri öryggisleysi og felur sig í vimu eiturlyfja, meðan eyðingarvopnin bíða eftir skapadægrinu, er ég sekur fundinn fyrir það eitt að ég læt mig litlu varða að þúsundir deyja daglega, á ég að gæta bróður míns og láta mola af borði mínu falla sem brauð handa hungruðum heimi, er það mitt að gefa þessum öðrum tækifæri til þess að allir eigi gleðileg jól s og ný ár vonar Höfundurinn er heildsali og hafa oft birst Ijóö eftir hann i Lesbók. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1986 21

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.