Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 8
DESEMBERGRE I N I N vtmiwMý/1 nmMimiim f li 1-Aö (ÉwSfK Mynd: Sigrún Eldjárn. ísleiizkur skurðlæknir á 18. öld Sumarið 1717 eru tveir menn á ferð ríðandi á leið til Hóla yfir Kolbeinsdal, þar sem nú heitir Flekkuhvammur. Er þeir eru komnir yfir ána stíga þeir af baki og taka af koffortahestum þeim, er þeir hafa með sér; sjá þeir þá tvær Af Jóni Steinssyni Bergmann sem sigldi utan til að læra læknislist 1714 og skar m.a. upp sullaveikan bónda með góðum árangri EFTIR ÆVAR R. KVARAN kindur nálægt sér, utarlega í Ástungu, aðra hvíta, hina svarta. Annar ferðalanganna, sem augsýnilega er fyrirmaður, biður nú fylgdarmann sinn að hjálpa sér að handsama kindumar. Þeir ná þeim og binda þær sauð- bandi. Því næst opnar fyrirmaðurinn koffort sín og tekur þar upp skurðfæri ýmiss konar og tekur til við að skera í kindumar, og lætur ekki staðar numið fyr en hann hefur skorið annan bóginn af báðum kindunum: Síðan saumar hann svarta bóginn á hvítu kindina; meðan hann er að starfa þessum, er hinn bógurinn orðinn svo líflítill, að þessi skurðmeistari treystist ekki til að græða hann við svðrtu kindina, eins og ætlun hans hafði verið, og slátra þeir félagar henni því. Að svo búnu sendi skurðmeistarinn fylgd- armann sinn á undan heim með kofforts- hestana, en varð sjálfur eftir hjá kindinni og dvaldist hann þar þrjá sólarhringa, þang- að til hann þóttist viss um að hún mundi lifa. Enda fór svo að kind þessari batnaði að fullu, lifði mörg ár eftir þetta og varð hin vænsta ær, en hvammur sá, er þetta bar til í heitir síðan Flekkuhvammur. Skal ég nú gera nokkru nánar grein fyr- ir þessum listalækni, er notaði þannig þúfnakolla fyrir skurðborð og fjallahvamm fyrir skurðstofu til vísindalegra tilrauna sinna. Steinn biskup Jónsson á Hólum og frú Valgerður kona hans áttu nokkur börn, og koma þrjú þeirra við sögu þessa: Jón Steins- son, er tók sér viðumefnið Bergmann, og systur hans tvær, Jórunn og Helga. Bróðir Steins biskups hét Þorgeir, og er sagt að hann hafi búið á Skaga, áður en hann fór að Hólum og varð ráðsmaður hjá bróður sínum árið 1716. Þorgeir var afbragðs læknir. Átti hann lækningabók ágæta, og var sagt, að Jón bróðursonur hans hafí lært undirstöðuna til læknislistar sinnar hjá honum, en þá hefur hann verið mjög ungur; enda aðeins 16 eða 17 vetra er hann sigldi til náms árið 1714. Jón var þrjú eða fjögur ár erlendis og sóaði mjög fé sínu, en lærði læknisfræði. Lýsir Jón Espólín Jóni Steinssyni svo, að hann hafí verið skáld gott og haft gáfur til hvers svo sem vera skyldi, og svo góður læknir, að það hafí verið í minnum haft. Ýmis kvæði eru til enn í dag eftir Jón Steinsson, og hafa sumir jafnvel eignað honum kvæðin: „Ég veit eina baugalín" og „Björt mey og hrein", sem annars venjulega eru eignuð séra Stefáni Ólafssyni og prentuð í ljóðmæl- um hans. Þessi vísa kvað vera eftir Jón: Blíð til máls með bjartan háls ber af áls ljóss sólum dokkin frjáls er dýja báls dóttir Páls á Hólum. Jón hefur að öllum líkindum komið til íslands aftur sumarið 1717, og er sagt að hann hafi komið út í Hofsós. Þegar hann var stiginn af skipsfjöl, gerði hann boð heim til Hóla, að sækja sig og föggur sínar, og var þá maður sendur eftir honum út í Hofs- ós. Þeir fóru yfir Kolbeinsdal á inneftirleið og þá var það, að Jón gerði hina furðulegu skurðaðgerð á kindunum, er ég lýsti í upp- 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.