Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 13
Skálholtskirkja — byggð á grunni miðaldakirkjunnar og annarra fyrri kirkna á sama stað, er það verk Harðar, sem hann hefur mestar mætur á. lagatíma, þegar Hitler hafði náð einræðis- völdum. Útsendarar og snuðrarar nasista voru allsstaðar og hvaðeina var endurmetið í ljósi hinnar nýju villimennsku. En hvað um aðra eins framúrstefnu og Bauhausstíll- inn var? Var það ekki allt önnur leið, sem hinir nýju herrar vildu fara. Ég spurði Hörð um það. „Jú, það er rétt; þeir vildu fara aðra leið. Speer, arkitekt Hitlers var á allt öðrum nótum; hann vildi leita til fortíðarinnar og þær byggingar, sem hann teiknaði, — sum- ar komust raunar ekki lengra en á blað - voru monúmentalismi að rómverskri fyrir- mynd til að dásama og undirstrika valdið. Það var alger andstæða við stefnu Bau- haus. Þróunin varð sú, að þessu nýjabrumi var haldið niðri á valdatíma Hitlers. Stefnan var að minnsta kosti ekki áberandi þau ár- in, en hún leið ekki undir lok. Að sjálfsögðu blasti við í Þýzkalandi hvað var að gerast, þótt maður upplifði það ekki eins og sýnt er í kvikmyndum, þar á meðal þessari um örlög Obermann-fjölskyldunnar. Ég tók lokapróf í Dresden í lok árs 1936 og kom heim í byijun 1937. Helming þess tíma, sem ég dvaldist úti í Þýzkalandi, var Hitler við völd. Fyrir valdatöku hans var mjög órólegur tími, þar sem kommúnistar og nasistar elduðu saman grátt silfur. En svo var eins og allt dytti í dúnalogn og þessi ógnaröld, sem maður vissi síðar að hafði verið á bak við tjöldin, var alls ekki augljós; helzt þó í stórborgunum. Það var daglegur viðburður 1934 og '35 að sjá raðir af nasistum utan við verzlanir gyðinga. En myrkraverkin sjálf voru ekki höfð til sýnis. Það kom fyrir í skólanum, að átök urðu á milli erlendra stúdenta, sem felldu sig ekki við aríakenningu Þjóðveija og þýzkra stúdenta, sem hlynntir voru nasi- staflokknum eða voru þar félagar. Þetta mæddi á mér á tímabili vegna þess að ég var formaður Félags erlendra stúdenta í háskólanum í Dresden, en þeir voru þá um 200 talsins frá hinum ýmsu þjóðum. Ástandið var orðið þannig 1936, að SA- sveitir eða brúnstakkar nasista urðu að vera í skólanum og tóku mjög virkan þátt í öllu pólitísku lífi þar. En ég minnist þess ekki að þeir væru ofbeldissinnaðir og við hin vorum ekki hrædd við þá. En það bar furðu- lega mikið á fyrirlitningu Þjóðveija á útlendingum almennt, sama hvaðan þeir voru. Þjóðremban var orðin svo mikil og í augum margra var Þýzkaland nafli heims- ins, sjálft Herraríkið. Þrátt fyrir þetta á ég mjög ljúfar minning- ar frá skólaárunum í Þýzkalandi. Dresden var þá stórkostleg borg og ein mest lista- borg í Evrópu. Allar listgreinar blómstruðu þar og sjálf var borgin feykilega falleg; byggingarnar flestar frá fyrri öldum - og allt var það lagt í rúst. En bæði þar og í Darmstadt leið mér vel. Innan úr Skálholtskirkju. í kórnum blasir við altaristafla Nínu Tryggvadóttur. Þessi árin voru allmargir íslendingar við nám í Þýzkalandi, einkum í verkfræði. Við höfðum mikið samband, svo og við Norður- landamenn. Aftur á móti reyndu Þjóðveij- amir sem mest þeir máttu að forðast okkur. Nú er það gerbreytt. En slík voru áhrif þjóð- emisstefnunnar; það er skammt frá föður- landsást yfir í öfgafengna þjóðrembu. Ég hef alltaf verið heillaður af Evrópu og þessum gamla evrópukúltúr. Þjóðvetjar em líka merkileg þjóð og sterk, en valdatíð Hitlers var eins og hjartaveila, sem síðan hefur komizt í lag. Það er merkilegt, að á þessum tíma vom fleiri háskólar hlutfalls- lega í Þýzkalandi en í nokkm öðm landi í heiminum og kennarakosturinn var víða frá- bær. Það er aldeilis makalaust að þetta skyldi fara svona hrapallega í ljósi þeirrar miklu menntunar, sem þjóðin bjó við.“ ☆ Sjö arkitektar vom fyrir á íslandi þegar Hörður kom heim 1937, en það tíðkaðist ekki þá fremur en nú, að arkitektar teikn- uðu meiripartinn af því sem byggt var. Það gerðu hagir og verkvanir byggingamenn og fórst það oft vel úr hendi. Það var ekki litið á háskólamenntaða arkitekta sem algera nauðsyn, segir Hörður. Það hefur ekki veitt af víðsýnni sjónarmiðum og Hörður tók meðal annars að sér það hlutverk að bregða upp ljósi og uppfræða landsmenn um arki- tektúr og skipulagsmál, sem hann hafði lagt stund á sem sérgrein. Á löngu tíma- bili, eða framundir það að hann tók við embætti húsameistara ríkisins, skrifaði hann greinar um þessi efni í Vísi og fleiri blöð; þar á meðal Lesbók Morgunblaðsins árið 1937. „Ég veit að þessi skrif höfðu sín áhrif í þá vem að glæða skilning á nauðsyn mennt- aðra manna á þessu sviði. Almenningur tók þessu vel að ég held, en frá arkitektunum, starfsbræðmm mínum, fékk ég enga upp- örvun“. Hörður var ekki fyrr kominn heim en hann þreif pennann og hóf að segja lands- mönnum, einkum Reykvíkingum, til synd- anna, m.a. fyrir sjálfsánægjuna, sem lætur menn sætta sig við ófullkomleikann og meira en það. I Morgunblaðsgrein vorið 1938 segir hann svo: „Hjer á landi er oft talað um Reykjavík sem íburðarmikinn bæ, sem beri vott um fágun almennrar auðlegðar. Ef einhver byggir þolanlega viðunandi hús yfir höf- uð sjer, þá þykir mörgum sem þar sje risinn enn nýr vottur um auðlegð og „fínheit“ hins ríka fólks í bænum. Sje nú húsagerð og umgengni í Reykjavik borin saman við það sem tíðkast jafnvel í þrengstu skilyrðum ut- anlands, þá fyllist maður undrun og sársauka yfir því, að Reykjavík skuli vera höfuðborg á einu fegursta bæjar- stæði, sem fyrir augu ber. Hvað skyldi það vera, sem erlendur ferðamaður, er leggur leið sína hingað til lands, fyrst rekur augun í? Ekki eru það sígild listaverk í byggingum og fagr- ir skrúðgarðar,- Þau fyrirbrigði í húsagerðarlist, sem hjer bera fyrir aug- un, eru ekki slík ágæti alment skoðað, að útlendingurinn sje ekki öðru eins og betra vanur úrsínum heimahögum,- Það sem hann fyrst rekur augun í og setur á sig til frásagnar er heim kemur, og jafnvel flytur með sér í myndum, eru þau atríði, þar sem við stöndum verulega að baki erlendum menningarborgum. En þessi atriði eru einkum öll umgengni almennings um hús sín og lóðir, ásamt skorti á eftirliti af hálfu hins opinbera með því, að borgararnir gæti skyldu sinnar í þessum efnum. “ ☆ Stundum hef ég fundið að því við arki- tekta, að þeir virðist annaðhvort enga til- finningu hafa fyrir litum, eða þá að þeir þori alls ekki að nota þá. Það djarfasta sem hægt er að hætta sér útí, em mismunandi grátónar og afleiðingin verður sú, að um- hverfið verður ein grámuska. Hörður hefur fundið þetta, þegar hann kom heim frá námi og skrifar svo í Morgunblaðið sumarið '38: „Hjer hjá okkur vill allt verða grátt. Loftið er grátt og landið mikinn hluta ársins. íbúarnir taka svip af landi og lofti, og ekki síður híbýlin. Grái liturínn er sá, sem mest ber á í svip bæjarins. Hjer er ekki hægt að grípa til sígrænna tijáa. En hvað er þá hægt að gera til þess að bærinn verði bjartari og meira aðlaðandi á svipinn? Helsta ráðið sýnist vera að leggja meiri áherslu á málningu og bjartari húðun húsanna en gert hefur verið... “ Athyglisvert og jafn gilt enn í dag er það sem Hörður skrifaði þá í tímaritið Þjóðina um þann vanda að byggja smekklega upp LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1986 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.