Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Blaðsíða 6
„Valagilsá". Undirleikari bæði við kon- ungsmóttökuna og á tónleikunum var Ásta Einarsson. Elín giftist Jóni Laxdal kaup- manni og tónskáldi í Reykjavík og var önnur kona hans. Hún andaðist í spönsku veikinni 1918. Þá er að nefna Herdísi Matthíasdóttur, alsystur Elínar Matthíasdóttur Laxdal. Herdís var fædd 1886. Einnig hún var mikils metin söngkona, kom stundum fram sem einsöngvari á tónleikum sem aðrir gengust fyrir og fyrri hluta árs 1911 hélt hún sjálf tvenna tónleika þar sem einsöngur hennar var aðalatriði efnisskrár. Herdís giftist 1914 Vigfúsi Einarssyni sem þá var bæjarfógetafulltrúi í Reykjavík en síðar skrifstofustjóri í stjómarráðinu. Hún lést úr spönsku veikinni 1918 eins og Elín systir hennar og var að þeim báðum mikill mannskaði, eins og mörgum öðrum sem þessi hryllilega farsótt svipti lífinu á besta aldri. Vigfús Einarsson kvæntist síðar ann- arri konu sem einnig kom við sögu í tónlist- arlífi Reykjavíkur. Það var Guðrún fædd 1901, Sveinsdóttir Hallgrímssonar verslun- armanns á Akureyri og Mattheu Matthías- dóttur Jochumssonar. Var hún systurdóttir Herdísar. Sonur þeirra Guðrúnar var Einar Vigfússon sellóleikari, f. 1927. Valgerður Lárusdóttir var enn ein söng- konan sem athygli vakti snemma á öldinni, en hún mun fýrst hafa komið fram 1905. Hún var fædd 1885, dóttir Lárusar Halldórs- sonar sem þá var fríkirkjuprestur á Reyðar- firði og konu hans, Kirstínar Katrínar Pét- ursdóttur organleikara Guðjónssonar. Hún giftist 1910 séra Þorsteini Briem sem síðar var prófastur á Akranesi og ráðherra. Val- gerður andaðist langt fyrir aldur fram 1924. Meðal þeirra kvenna sem komu fram sem píanóleikarar og meðleikarar með söngvur- um var Matthildur Einarsdóttir Hjörleifsson- ar rithöfundar Kvarans og konu hans, Gísl- ínu Gísladóttur. Var hún á þessum árum nefnd frk. Matthildur Hjörleifsson. Hún var fædd 1889 oggiftist 1908 Ara Jónssyni sem þá var ritstjóri og málflutningsmaður í Reykjavík en tók síðar upp ættamafnið Amalds, var lengst sýslumaður og bæjar- fógeti á Seyðisfirði og varð á efri árum kunnur rithöfundur. Hún hefur ekki verið nema 15 ára þegar hún kom fram á tónleik- um í Bárunni ásamt Kristrúnu Hallgríms- son, Sigfúsi Einarssyni, Brynjólfi Þorláks- syni o.fl. í desember 1904. Á árunum 1910-12 kom Anna (Klemens- dóttir) Jónsson stundum fram sem einsöngv- ari á tónleikum, maðal annars á minningar- tónleikum sem Sigfús Einarsson stóð fyrir á aldarafmæli Péturs Guðjónssonar. Hún er enn á lífi, háöldruð, þegar þetta er ritað (í ársbyijun 1986), fædd 1890, dóttir Klem- ens Jónssonar, síðar landrítara og ráðherra, og fyrri konu hans, Þorbjargar Stefáns- dóttur. Anna giftist 1913 Tryggva Þórhalls- syni síðar ráðherra, sem lést 1935. Enn er þá ónefnd ein kona sem átti eftir að verða atkvæðamikil í íslensku tónlistar- lífi, bæði sem söngkona og píanóleikari, þótt ekki væri hún íslendingur að ættemi. Þetta var Valborg, fædd Hellemann, sem varð kona Sigfúsar Einarssonar og var eftir það nefnd fini Valborg Einarsson. Hún var fædd í Kaupmannahöfn, dóttir Alfreds Helle- manns verkfræðings. Hún kemur fyrst fram á tónleikum í Reykjavík, svo að séð verði 1904, en sest hér að ásamt Sigfúsi 1906, og er eftir það mjög virk i tónlistarlífínu. Eftir andlát Sigfúsar 1939 fluttist frú Val- borg aftur til Danmerkur. Böm þeirra Sigús- ar vom Einar fiðluleikari, sem lengst var konsertmeistari í Árósum og Elsa Sigfúss söngkona. Á heimsstyijaldarámnum fyrri, 1914-18, virðist hafa dregið mjög úr tónleikahaldi í Reykjavík. En þegar að lokinni styijöldinni verður hér aftur breyting á. Þá kemur hingað í fyrsta skipti söngkonan frú Dóra Sigurðsson sem eftir það var tíður gestur í tónleikasölum Reykjavíkur næstu áratugi, þótt aldrei væri hún búsett hér á landi. Hún var fædd 1893, dóttir Roberts Köchers málflutningsmanns í Leitmeritz í Austurríki, en giftist 1918 Haraldi Sigu’rðssyni píanó- leikara frá Kaldaðamesi. Vom þau búsett í Kaupmannahöfn alla tfð. Dóttir þeirra er Elísabet Sigurðsson sem stundum kom hingað heim til tónleikahalds fyrr á ámm og var ágætur hljóðfæraleikari, jafnt á klarínettu sem píanó. Nöfn þeirra kvenna sem hér hafa verið nefndar em tekin úr gömlum efiiisskrám tónleika, en frá mörgum tónleikum hafa engar efnisskrár varðveist svo að kunnugt sé, og hafa í sumum tilvikum ef til vill aldrei verið til. Einnig kemur það einatt fyrir að ekki em í efnisskrám tilgreind nöfn undirleikara og jafnvel einsöngvara, en með hliðsjón af því sem ráða má af varðveittum efnisskrám má ætla að þar hafi konur ósjald- an átt hlut að máli. Valgerður Lárusdóttir. Ásta Hallgrímssou. Ef sleppt er nöfnum þeirra Brynjólfs Þorlákssonar og Sigfúsar Einarssonar koma ekki önnur nöfn oftar fyrir [ efnisskrám þessara ára en nöfn þeirra Ástu (Svein- bjömsson) Einarsson, Valborgar (Helle- mann) Einarsson og Kristrúnar Hallgríms- son. Flestar þær konur sem við þessa sögu koma munu hafa verið fyrst heimasætur en síðar húsmæður sem sinntu þjónustunni við listina í hjáverkum frá öðmm störfum. Tvennir tónleikar á fyrsta áratug 20. ald- ar skera sig úr að því leyti að þar koma eingöngu fram konur, og hefðu þeir að því leyti sómt sér prýðilega á þeim kvennaára- tug sem nú er nýliðinn. Hinir fyrri vom haldnir 1. júlí 1906 í Bámnni sem svo var nefnd. Þær konur sem þar komu fram vom fr, Guðríður Jóhannsdóttir, frk. Kristrún Hallgrímsson, frú Elísabet Þorkelsson og frk. Elín Matthíasdóttir. Þama var fluttur einleikur á píanó, leikið á píanó fjórhent og sunginn einsöngur og tvísöngur. Viðfangs- efnin vom m.a. eftir Schumann, Wagner, Beethoven og íslenska höfunda: Jón Lax- dal, Bjama Þorsteinsson, Sigfús Einarsson og Áma Thorsteinson. Síðari „kvennatónleikarnir" sem hér um ræðir vom haldnir 1909, en dagsetningar er ekki getið. Þar fluttu tónlist frú Ásta Einarsson, frú Valborg Einarsson, frú Erika Gíslason, frú Henrietta Brynjólfsson og frk. Jarþrúður Pétursdóttir, en frú Thorborg Guðlaugsson las upp. Tónlistin var úr ýms- um áttum, en mest erlend. — Af þessum nafnaiista má sjá að mun fleiri konur koma hér við sögu en þær sem nokkur skil hafa verið gerð hér að framan. Um 1920 verða ýmsar breytingar á tón- listarlífinu í Reykjavík. „Söngskemmtanir" með mjög samsettum efnisskrám verða æ sjaldgæfari og í þeirra stað koma „tónleik- ar“ sem einn eða fáir flytjendur bera uppi. Nöfn flesfra þeirra kvenna sem svo mjög höfðu komið við sögu undanfama áratugi hverfa smám saman af efnisskrám tónleika. í staðinn koma nöfn manna sem um þetta ieyti komu heim til starfa frá námi erlend- is. Páll ísólfsson verður brátt atkvæðamikill, bæði í eigin tónleikahaldi og sem undirleik- ari á orgel ogpíanó. Emii Thoroddsen verður einnig eftirsóttur undirleikari og heldur eig- in tónleika. Fleiri mætti enn nefna. Og nú tekur að bera nokkuð á því að útiendingar komi hingað til tónleikahalds, stundum með undirleikara með sér. Hér hefur verið dvalið við fyrstu tvo ára- tugi þessarar aldar vegna þess hve konur áttu mikinn og ríkan þátt í því tónlistarlífi sem þá var að vakna hér og varð grundvöll- ur þess sem síðan hefur gerst á því sviði. En eftir 1920 er eins og hlutur þeirra minnki um skeið, og það verða karlmenn, iærðir í útlöndum, sem meir og meir setja svip sinn á tónlistarlíf höfuðborgarinnar. Þó voru þeir ekki einir um að leita sér menntunar erlendis. Árið 1913 er frá því Ástríður Melsted. sagt að ung kona, Katrín Norðmann, hafi verið við tónlistamám erlendis ásamt nokkr- um ungum mönnum. Hún giftist síðar Einari' Viðar, sem reyndar var einn af mörgum dóttursonum Péturs Guðjónssonar, og dóttir þeirra er Jórunn tónskáld Viðar. Katrín er enn á lífi í hárri elli, hefur til skamms tíma starfað sem píanókennari og rak um árabil hljóðfæraverslun hér í borg. Þær konur sem koma við sögu á næstu árum eru aðallega söngkonur. Þar má nefna Guðrúnu Ágústsdóttur, sem um langt ára- bil var ein helsta sópransöngkonan, móðir Kristins Hallssonar, og systumar Elísabet Einarsdóttur og Maríu Markan, en meðal afkomenda þeirra er einnig margt tóniistar- fóik. María náði meiri frama á listabrautinni en flestir aðrir íslendingar, starfaði um ára- bil erlendis, hlaut þann sóma m.a. að syngja í Glyndeboume í Englandi og var ráðin við sjálfa Metropolitan-óperuna í New York, þótt minna yrði úr starfi hennar þar en efni stóðu til. — Elísabet 61 allan aldur sinn hér heima og átti, ásamt Guðrúnu Ágústs- dóttur og mörgum öðmm, dijúgan þátt í því mikia landnámi sem Tónlistarfélagið beitti sér fyrir með óratóríuflutningi sínum á fjórða og fímmta áratugnum. Eftir að Þjóðleikhúsið tók til starfa 1950 komu fram nýjar söngkonur, margar hveij- ar ágætlega menntaðar í list sinni, og skipuðu sér í fiokk brautryðjenda um ópem- flutning. Ég nefni aðeins Þuríði Pálsdóttur, Guðrúnu Á. Símonar, Guðmundu Elíasdótt- ur og Sigurveigu Hjaltested. Lengra ætia ég ekki að hætta mér í upptalningu nafna, enda vandséð hvar þá skyldi staðar numið, því að flöldi ágætra listakvenna sem nú starfa á sviði tónlistar er miklu meiri en svo að unnt sé að nefna nema örfáar. Þetta á jafnt við um hljóðfæraleikara og söngvara. Á fyrstu 50 ámnum sem Tónlist- arskólinn í Reykjavík starfaði, 1930—80, lauk þar alls 121 nemandi burtfarar- eða einleikaraprófi. Þar af em 59 konur, eða næstum alveg nákvæmlega helmingur. At- hyglisvert er, að af fyrstu 30 nemendunum sem prófi luku er 21 kona, og virðist því sem karlmennirnir hafi heldur sótt á síðari árin. Síðan söngkennaradeild, sem nú heitir tónmenntakennaradeild, var stofnuð við skólann hefur fjöldi kvenna lokið því námi og ýmsar getið sér mikið orð sem kennarar og söngstjórar. Nægir þar að nefna nafn Þorgerðar Ingólfsdóttur. í Sinfóníuhljómsveit íslands er hátt á annan tug íslenskra kvenna í strengjadeild- inni og oft á þriðja tug alls. Þar hefír kona verið í forystu um árabil, Guðný Guðmunds- dóttir konsertmeistari, og fleiri konur gegna þar miklum ábyrgðarstörfum. Það hefur löngum vakið eftirtekt og ver- ið umhugsunarefni hve fáliðaðar konur em í hópi tónskálda, ekki aðeins hér á landi heldur í öllum löndum. Líklega — og von- andi — er þetta nú að breytast. Engum sögum fer af tónsmíðum íslenskra kvenna fyrr en nokkuð er komið fram á þessa öld. Ég hygg að fyrsta kona til að flíka slíkri viðleitni hér á landi hafi verið Guðmunda Nielsen. Hún var fædd á Eyrarbakka 1885 dóttir Péturs (Peters) Nielsens sem var verslunarstjóri þar, danskrar ættar, og konu hans, Eugeniu Jakobínu Guðmundsdóttur Thorgrímsens, og var því náskyld Ástu Ein- arsson og Kristrúnu Hallgrímsson sem fyrr er getið. Mæður þeirra allra vom systur, en móðurfaðir þeirra, Guðmundur Thor- grímsen, stjómaði verslun Lefoliis á Eyrar- bakka í 40 ár, 1847—87. Guðmunda stundaði nám erlendis í verslunarfræðum og tónlist, rak eftir það um skeið verslun á Eyrarbakka, var um árabil organleikari við kirkjuna þar og kenndi mörgum organleik. Þótti hún ágætur organleikari og nákvæmur og góður kennari. Hún andaðist 1936. Guðmunda Nielsen varð einnig fyrst ís- lenskra kvenna til að beita sér fyrir nótna- útgáfu. Hún sendi frá sér heftið „Ljóðalög fyrir orgel og píanó" sem hún hafði safnað og búið til prentunar, en útgefandi var Hljóðfærahús Reykjavíkur. Heftið er án ártals eins og títt er um nótnabækur, en nótumar em stungnar og bókin prentuð í Kaupmannahöfn. Frágangur heftisins er hinn snotrasti. Efnið er tínt saman úr ýms- um áttum. Það er yfirieitt smekklega valið og má segja að þar sé aðeins tvennt sem kemur nokkuð á óvart: Annars vegar að fyrsta lagið í bókinni er eftir Guðmundu sjálfa við „Gamlar stökur" Einars Bene-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.