Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Page 20
Frú T er meðalmanneskja á hæð
og gengur með stór, svört
sólgleraugu, sem hylja mestallt
andlitið. Hár hennar er óhreint.
Hún þvær það sjaldan og litar það
sjálf. Þegar hún brosir, sést að í
hana vantar framtennurnar.
Einræður hennar fjalla alltaf um
sama efni: Mafían og KGB njósna
um hana.
eru allt öðruvísi en íslenzku stúlkurnar, sem
eru bæði óspilltar og saklausar." Ég hlusta
á hana með öðru eyranu, ég kann þessa
gömlu plötu utanað. Hún lætur móðann
mása alla leið að kaffihúsinu. Hún er þar
hagvön. Þar hefur hún „sitt“ borð og „sitt"
sæti. Eftir að hún hefur pantað bolla af
kaffi, verða konumar, sem eru að drekka
kaffi við skenkinn, fyrir barðinu á henni.
Hún talar, en ég hlusta og jánka. Stöku
sinnum áræði ég að hrista höfuðið. Einræð-
ur hennar fjalla alltaf um sama efni. Mafían
og KGB njósna um hana með aðstoð einnar
fylgdarmeyjar hennar, sem er pólsk. Hún
hefur hana engu að síður áfram í þjónustu
sinni vegna þess, að hún hefur aldrei fyrr
haft tækifæri til að fylgjast með njósnara
svo náið.
Mynd:
Flóki
Iþrjú ár hef ég eytt helgunum í einu af glæsileg-
ustu gistihúsum Parísarborgar. Ég átti íslenzka
vinkonu, sem hafði þar mjög sérstakt starf. Þegar
hún hélt heim til íslands, tók ég við af henni. í 25
ár hefur þetta fjögurra stjörnu stórhýsi verið at-
hvarf sextugrar konu, sem líkt og flug-
þreyttur farfugl hreiðrar hér um sig á efstu
hæðinni.
Hún er milljónamæringur, sem kýs heldur
að eyða ævikvöldinu hér en í fínu einbýlis-
húsi í auðkýfingahverfinu í Neuilly. Þrjár
ungar fylgdarmeyjar skiptast á um að ann-
ast hana dag og nótt og ég er ein þeirra.
Á hvetjum laugardegi, þegar ég geng inn
á „heimavígstöðvar“ frú T. spyr dyravörð-
urinn mig frétta og óskar mér illkvittnislega
góðrar skemmtunar. Eftir að hafa komizt
með erfíðismunum í gegnum hringdymar,
fer ég upp í lyftunni. Þegar ég er komin
upp, geng ég eftir ganginum og nem síðan
staðar fýrir framan ákveðnar dyr og banka.
Ung og aðlaðandi kona, klædd í morgun-
slopp, kemur til dyra. Gluggatjöldin eru
dregin fyrir og loftið í herberginu er þrung-
ið svefni. Hún hverfur inn í baðherbergið
og skömmu síðar fer hún burt með litla
tösku í hendinni um leið og hún óskar mér
góðrar helgar. Ég verð í þessu herbergi í
tvo sólarhringa. Síminn hringir. Ég á að
hitta frú T. fyrir framan lyftuna, hún er
tilbúin að fara út. Við hittumst á ganginum.
Mafían Ogkgb
NjósnaUmHana
Hún er meðalmanneskja á hæð og geng-
ur með stór, svört sólgleraugu, sem hylja
mestallt andlitið. Hár hennar er óhreint.
Hún þvær það sjaldan og litar það sjálf.
Þegar hún brosir, sést að í hana vantar
framtennurnar. Hún er hroðvirknislega
máluð í framan og varaliturinn nær út fyr-
ir varimar. Þótt hún verzli eingöngu við
fínustu og dýrustu tízkuverzlanir Parísar,
tekst henni aldrei að vera verulega snyrti-
lega klædd. Hún byijar þegar í stað að
mögla. Þetta á eftir að veða löng helgi. Það
hefur verið rótað í dótinu hennar, einhver
hefur notað snyrtivörumar hennar og stolið
einum sólgleraugum. I lyftunni lætur hún
dæluna ganga og rægir hinar fylgdarmeyj-
amar sínar tvær. Hún þolir þær ekki lengur,
þetta eru ekkert annað en símavændis-
gálur, sem hún ætlar að reka á mánudaginn
(en hún lætur aldrei verða af því). „Þær
Hún talar á ensku, en kryddar mál sitt
með frönskum orðum eins og t.d. „salopc",
þ.e. „dækja“, eða „l’ordure", þ.e. „óþverri,
skítur“. Fólk, sem er haldið kvalalosta,
sjálfskvalalosta eða samkynhneigð, fær það
jafnan óþvegið hjá henni; Cary Grant var
t.d. alræmdur kynvillingur í Hollywood,
vesalings Romy Schneider var lesba, þótt
hún hafi haldið við Alain Delon, sem Visc-
onti var svo í vafasömu vinfengi við, o.s.frv.
Hún nýtur þess að velta sér upp úr afbrigði-
legum nautnum náungans.
Og ekki iætur hún hjá líða að tíunda hina
ýmsu kvilla sína: ofnæmi, ristilkrampa,
ógleði og þennan óstöðvandi niðurgang.
Stöku sinnum læði ég að henni spumingum
um fortíð hennar, tilkomu auðæfa hennar,
en ég fæ aldrei svar. Nú verðum við að
koma okkur af stað. Við höfum margt að
gera: kaupa dagblöð, fara í stórverzlanir,
þar sem hún fer niðrandi orðum um allt sem
þar er á boðstólum og skapraunar búðar-
stúlkunUm með skipunum á ensku. Svo
verðum við að kaupa eitthvað handa dýrun-
um hennar og fuglum, sem eru í garðinum
„hennar“. Fyrst korn handa dúfunum, svo
smákökur úr bakaríum handa spörfuglun-
um, sem eru á alveg sérstöku fæði, „They
are so cute these little birds" — „þeir eru
svo sætir þessir smáfuglar".
Ekki má gleyma vínbetjunum handa
svartþröstunum. Loks eru það hnetur handa
krákunum, skræksköðunum og dúfunum og
fiskur handa mávunum. Nú vantar bara 250
g af nautahakki (sem við eldum í herberg-
inu hennar) handa kettinum og dós af
rússneskum laxi handa henni sjálfri. Við
erum búnar að birgja okkur upp fyrir helg-
ina. Allt er í stakasta lagi.
Við getum nú farið að borða á veitinga-
staðnum okkar, þar sem við eigum alltaf
frátekið borð. Henni á eftir að verða illt af
matnum. Ef hún talar ekki um eiturbyrlun,
þá er það gert í varúðarskyni: „Ég held,
að þeir setji eitthvað út í matinn. En ég á
það á hættu að vera sökuð um ofsókna-
ræði, ef ég læt grunsemdir mínar í ljós,
samt hef ég fulla ástæðu til að halda þetta."
Stundum segir hún, að þetta stafi af sam-
verkandi áhrifum veiks líkama og sjúkrar
sálar og styðst þá við málfar mitt og segir
„psychosomatique", en hvað getur hún gert
að því. Hvemig á maður að ná sér aftur,
þegar maður getur ekkert borðað án þess
að verða veikur og maður finnur, að bæði
menn og örlögin eru andsnúin manni? Er
maturinn ekki hollari á íslandi? Hún nartar
í matinn á diskinum, tekur steikina og læt-
ur hana inn í pappírsservíettu, framreiðslu-
stúlkunni greinilega til mikillar gremju:
kötturinn hennar kynni ef til vill að vera
svangur.
Þar Sem Tómið Ríkir
Við snúum aftur heim til herbergis henn-
ar. Þar ríkir tómið sjálft. Fyrir utan átjándu
aldar málverk, sem er stærra en ferða-
taska, til þess að því verði ekki stolið, þá
er þar ekkert til að lífga þennan óyndislega
stað. Engir persónulegir munir, aðeins það
allra minnsta, sem komizt verður af með.
Frú T. hefur verið á förum í 25 ár og her-
bergi hennar lítur því út nákvæmlega eins
og herbergi venjulegs skammdvalargests.
Hún er ekki aðeins ofsótt heldur finnst henni
líka, að sér sé ógnað. Á þessum tíma dags
tönglast hún jafnan á því, að fötin, sem
hanga í klæðaskápnum, séu ekki í rauninni
fötin hennar heldur ómerkilegar eftirlíking-
ar, hin raunverulegu föt hennar hafi verið
seld á svörtum markaði. En hvers vegna í
ósköpunum getur starfsfólk hótelsins ekki
látið hana í friði? Þessi staður er sannkallað
bófabæli! Bráðum verður hún að skipta um
herbergi vegna endurbóta, tekur það ekki
út yfir allan þjófabálk? (Öll herbergin í gisti-
húsinu hafa verið lagfærð nema hennar.)
Og maðurinn í næsta herbergi, sem fyllir
herbergið sitt reykjarstybbu, hvers vegna
leggur hann ekki þennan ósið niður? Ég
hörfa undan, en það er um seinan, hún er
búin að úða með ilmvatni allt herbergið,
húsgögnin og mig, sem er í hennar augum
aðeins hluti af þeim.
20