Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Side 22

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Side 22
Úr uppfærslu Þjóðleikhússins á Aurasálinni: Bessi Bjarnason í hlutverki Harpagon, Sigurður Sigurjónsson í hlutverki Meistara Jakobs og Pálmi Gestsson í hlutverki Cléante. r Þ J O Ð Moliére og Aurasálin Af fáum nöfnum veraldarsögunnar leggur ann- an eins ljóma, eins og af nafni Moliéres. Þegar Frakkar tíunda sína andans menn er það oft- ar en ekki, að nafn Moliéres verður þeim fyrst á vörum og er þar þó mikið mannval, hugsuð- EFTIR SVEIN EINARSSON Þetta fræga gamanleikrit Moliéres barst hingað fyrst fyrir rúmri öld og í tvígang hafa menntaskólanemar flutt það. Það er nú í fyrsta sinn flutt hér af atvinnuleikurum og verðurjólaleikrit Þjóðleikhússins, frumflutt á annan dag jóla. ir eins og Montaigne, Pascal, Montesquieu, Rousseau, Voltaire, skáldin Racine, Cor- neille, Hugo, Baudelaire, Verlaine, lengi mætti telja. Eða tónskáld, byggingarlistar- menn, kvikmyndagerðarmenn, dansasmiðir, að ógleymdum öllum myndlistarmönnunum. Sennilega eru Frökkum þó fáir eða engir kærari en Moliére og þjóðleikhús þeirra, Comedie Francaise, elsta þjóðleikhús verald- ar, heitir líka öðru nafni Hús Moliéres. En hver var hann? Hann hét reyndar réttu nafni Jean-Baptiste Poquelin, og Moli- ére var það nafn sem hann tók sér, þegar hann lét eftir löngunum sínum og fór að troða upp á leiksviði, í stað þess að sinna lögfræðistörfum eins og menntun hans sagði til um; Moliére varð líka skáldanafn hans, því að brátt fór hann einnig að setja saman leiki fyrir sig og félaga sína. En byrjum á byijuninni. Hann var fædd- ur í París ánð 1622, og af efnuðum borgurum kominn, faðir hans var konung- legur hirðveggfóðrari og vildi koma synin- um, sem fljótt sýndi að hann hafði líflegar gáfur, til mennta. Hann gekk í mennta- skóla, sem hét Clermont (þessi skóli er enn til og heitir í dag Louis-le-Grand og munu Parísar-íslendingar kannast við hann); þarna nam hann hjá jesúítum. Þess er getið að skólapilturinn Moliére hafi hneigst að fornaldarhöfundum og ekki síst hafi hann ástundað latnesku gamanleikjahöfundanna Terentíus og Plautus. Þetta var kannski ekki svo óvenjulegt námsefni á þessum árum, og til gamans má geta, að um líkt leyti lásu einmitt skólapiltar í Skálholts- skóla Terentíus. En af verkum Moliéres síðar, má reyndar sjá, að hann hefur lesið þessa höfunda óvenju grannt, því að til þeirra sækir hann beinlínis efnisþræði og atvik, meira að segja í Aurasálinni okkar. Moliére lagði líka stund á heimspeki, sem löngum hefur þótt gott veganesti á lífsleið- inni og síðan lauk hann lagaprófi við háskólann í Orléans 1642, aðeins tvítugur að aldri. Leikhúsmaðurinn En nú tók líf hans allt aðra stefnu. Þess er getið, að allt frá bamæsku hafí tilburðir og uppátæki trúðanna og fíflanna á markað- inum á Saint-Germain heillað hann; ein sögn, ósönnuð að vísu, gengur út á það, að hann hafí ungur gerst nemandi hins fræga ítalska leikara Scaramouche, sem auðvitað var ættaður úr spunaleiknum ítalska, commedia dell’ arte, en sú alþýðu- leiklist hefur löngum verið talin einn af hápunktum leiklistarsögunnar, þó að ekki væri mikið á blað fest í þeim leikjum og um bókmenntalegt gildi mætti deila; en það er nú einu sinni svo, að á leiklist dugir ekki að leggja bókmenntalegt mat eingöngu og hefur mörgum orðið hált á því. Hins vegar leituðu skáldin mjög til commedia dell’ arte (sem trúlega átti sér, fyrir sinn part, rætur í trúðleikjum og markaðsleikjum allar götur til Rómveija og Griklqa); þar er Moliére fremstur í flokki, en einnig Goldoni, Gozzi, Holdberg, Marivaux, svo að nefnd séu að- eins fáein þekktustu nöfnin. En það mun hafa verið árið 1643, að Moliére kynntist leikkonu, sem Madeleine Béjart hét, og hafa menn löngum haft fyrir satt, að vingott hafí verið með þeim. En hvað sem veldur, tekur hinn ungi Jean- Baptiste okkar sig til ásamt Madeleine og fjölskyldu hennar, og stofnar leikhús, sem valið var heitið l’íllustre Théátre, hið stór- fræga leikhús. Samtímis tók hann sér heitið Moliére. Æskan hugsar stundum hátt og sýnir ekki hógværð í samræmi við þroska, en svo fór, að áður en tvö ár voru liðin, var hið stórfræga leikhús komið á hausinn. Þegar þetta gerðist voru fyrir tvö rótgróin leikhús í París, Hðtel de Bourgogne, sem einkum fékkst við harmleiki, og Théátre du Marais (kennt við Marais-hverfíð, sem enn stendur og ýmsir þekkja), og samkeppnin varð of mikil, enda reyndi Moliére fyrir sér með harmleikjum, sem þá voru í tísku og það var ekki hans sterkasta hlið, eins og síðar kom í ljós.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.