Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Síða 47
SÍÐUSTU
ÁBÚENDUR
í KRÝSUVÍKURSÓKN
tytzta og fljótfarnasta leiðin til Krýsuvíkur, að
minnsta kosti fyrir þá, sem á
höfuðborgarsvæðinu búa, er að aka til
Hafnarfjarðar, suður og niður Hvaleyrarholtið
og beygja við fyrstu vegamót til vinstri, halda
Hjónin í Stóra Nýjabæ
héldu lengst út og
komu öllum sínum
seytján börnum til
manns
EFTIRÓLAFE.
EINARSSON
síðan þvert yfir Kapelluhraun, þar til Að
Snókalöndum kemur. Aka þá til hægri og
halda ferðinni áfram upp í Vatnsskarð og
enn áfram eins og leið liggur meðfram
Kleifarvatni, allt þar til kemur að Krýsuvík.
En hún var, eins og mörgum er kunnugt,
höfuðból Krýsuvíkursóknar, en fór í eyði
um síðustu aldamót. Bærinn stóð undir
samnefndu fjalli (Bæjarfelli) stuttan spöl
fdrá Krýsuvíkurkiriq'u.
Um það bil 10 til 15 mínútna gangur var
frá höfuðbólinu til Stóra-Nýjabæjar, sem
var austan við Stóra-Kambafell á
Austurengjum. Stóri-Nýjibær er þekktastur
fyrir, að ábúendur, Guðmundur Jónsson frá
Hlíð í Selvogi og kona hans, Kristín
Bjömsdóttir frá Herdísarvík, bjuggu þar
myndarbúi og héldu lengst út við búskapinn
allra þeirra, sem í Kiýsuvíkursókn bjuggu.
Þess ber að geta, að Guðmundur Jónsson
frá Selvogi missti föður sinn, þegar hann
var á fermingaraldri, með sviplegum hætti.
En faðir hans féll niður um ís á Hlíðarvatni
og dmkknaði. Mikill harmur hefur það verið
syninum. Og varð hann að taka að sér
forsjá heimilisins strax eftir fermingu. En
sú þolraun, sem föðurmissirinn hlýtur að
hafa orðið syninum unga, mun óefað hafa
mótað hann og hert, enda var Guðmundur
alla tíð mikill búforkur, jafnhliða því að
vera afbragðs formaður á vetrarvertíðum
um áratugi.
Næsti bær við Hlíð í Selvogi, var
Herdísarvík. Það gat því varla hjá því farið,
að þau Kristín frá Herdísarvík og
Guðmundur frá Hlíð kynntust. Tókust með
þeim ástir þegar á unglingsámm. Og vom
þau gefín saman í hjónaband í
Krýsuvíkurkirkju af séra Eggert Sigfússyni
á Vogsósum, þann 8. september 1895. Hún
18, en hann 29 ára að aldri.
Eins og fram hefur komið, var
Guðmundur í Stóra-Nýjabæ afburða
búforkur og jafnhliða því mikill formaður.
Gerði út bát frá Herdísarvík ámm saman í
félagi við Símon á Bjamastöðum í Ölfusi
og var ennfremur formaður í Grindavík í
þijár eða fjórar vertíðir fyrir Júlíus
Einarsson, ættaðan þaðan.
Undirritaður ræddi við þau
Nýjabæjarsystkini, Hrafnhildi
Guðmundsdóttur og Sigurð Guðmundsson.
Þau vom sammála um, að ekki hafi verið
einmanalegt á heimili þeirra í Nýjabæ. Alltaf
nóg að gera, segir Sigurður. Auðvitað gat
það verið erfitt á stundum, t.d. var um fimm
kflómetra gangur milli að Krýsuvíkurbergi
og þangað þurfti oft að fara til fugla- og
eggjatöku frá heimili þeirra og austur að
Herdísarvík var vegalengdin um það bil 10
kflómetrar. Og sama var að segja um leiðina
vestur að ísólfsskála, hún er svo til jafn löng.
Þessi nefndu býli vom næstu nábúar
okkar og oft heimsótt, þegar vel stóð á, og
veður hamlaði ekki, segir Sigurður að
lokum.
Það vom Nýjabæjarhjónin, frú Kristín
Bjömsdóttir, heimasætan frá Herdísarvík
og Guðmundur Jónsson frá Hlíð í Selvogi,
sem lengst héldu út. Þau hófu búskap að
Stóra-Nýjabæ í Krýsuvík árið 1893 og fluttu
þaðan alfarin 1933 til Hafnarfjarðar og
bjuggu
Fjölskyldan frá
Stóra-Nýjabæ
við Krísuvík
Sigurður, Vilhjálmur, Guðmundur,
Bjarni, Eiríkur, Þorgeir, Einar, Lovísa,
Ingibjörg, Jónína, Sólveig, Þórlaug,
Þuriður, Elín, Sólbjörg, Hrafnhildur,
Guðrún.
Á miðri myndinni eru foreldrar
barnanna, Guðmundur Jónsson og
Kristín Bjömsdóttir.
Þannig voru húsakynnin í Stóra-Nýjabse, þar sem þau Krístín og Guðmundur ólu Nýjabæjarþjónin, Knstín Björnsdóttir frá Herdísarvík og Guðmundur Jónsson frá
upp sinn stóra barnahóp. Hlíð í Selvogi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1986 47