Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Qupperneq 37

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Qupperneq 37
Þannig lítur Vilnius út: Mörg húsanna hafa upprunalega verið fögur, en eru 'niður- nídd og bílar sjást varla á götunum. fyrsta var haldið í St. Pétursborg árið 1990. Að þessu þingi standa litháíska deild IBBY- samtakanna, sem eru alþjóðleg samtök áhugamanna um bama- og unglingabók- menntir, Rithöfundasamband Litháa, menntamálaráðuneytið og Landsbókasafnið í Vilnius. Þátttakendur eru um fimmtíu frá tíu þjóðlöndum, m.a. rithöfundar og ljóð- skáld, háskólakennarar, bókasafnsfræðing- ar og útgefendm- bókmenntatímarita. Meg- inumræðuefni þingsins er þjóðsagnahefðin í bamabókmenntum. Einkum er fjallað um mismunandi birtingarform ævintýra- og þjóðsagnaminna í bókmenntum síðai'i tíma. Litháar lýsa því hvernig skáld þeirra og rithöfundar notuðu þjóðsagnaminni í verk- um sínum á sovéttímanum til að efla þjóð- ernisvitund og frelsisþrá landa sinna, og viðhalda tengslum þeirra við eigin sögu og menningu. I formi sakleysislegra ævintýra fyrir börn mátti koma á framfæri margvís- legum boðskap og heimspeki sem annars hefði aldrei sloppið gegnum nálaraugu rit- skoðaranna. Niðurstaða Litháanna er sú að listamenn geti ævinlega fundið leiðir til að segja sannleikartn, sama hversu ófrjálsar aðstæður þeir búi við. Eistlendingar og Lettar hafa að ýmsu leyti sömu sögu að segja, en það er fróðlegt að heyra hversu ólíkur þjóðsagnaheimur þessara þriggja nágrannalanda er. Öll búa þau yfir stórkostlegri sagnahefð, sem sann- arlega væri áhugavert að kynnast nánar. Erindin á ráðstefnunni eru ýmist flutt á litháísku, rússnesku eða ensku, og þrátt fyrir hetjulegar tilraunir tveggja túlka til að þýða fyrirlestrana beint upp í eyrun á þinggestum höfum við sterklega á tilfinning- unni að ýmislegt skih sér miður vel í þýðing- unni. En túlkarnir mega hafa sig alla við, því að á þriðja tug erinda eru flutt úr ræðu- stóli þá fjóra daga sem þingið stendur, þar með tahn tvískipt frásögn okkar Islendinga af draugum, tröhum, jólasveinum og huldu- fólki í gömlum og nýjum búningi. Samhhða þinginu er sett upp htil barna- bókasýning þar sem tældfæri gefst til að skoða sýnishorn frá flestum þátttökulönd- unum. Austur-evrópsku bækurnar eru aug- ijóslega margar gerðar af vanefnum, pappír- inn lélegur og litprentun fábrotin. Okkm- þykh' bágt að geta ekki kynnt okkur inni- haldið, því að þar kennir án efa fleiri grasa en úthtið gefur til kynna. Sjálfar höfðum við í farteskinu u.þ.b. tutt- ugu myndskreyttar bækur sem íslenskir og hirða. Þarna getur að hta gamaldags heysátur með strigayfirbreiðslum, sem vekja minningar um æskustundir í íslenskri sveit fyrir daga böggunarvéla og plastpökk- unar. Með örlitlu hugarflugi má galdra hey- hminn fram í nasirnar og finna stráin sting- ast upp í rassinn. Við horfum á aldagamla búskaparhætti hða hjá, karl slær með orfi og ljá, kona rakar dreif. Hvergi er dráttar- vél að sjá en hér og hvar eru hestvagnar á ferð eftir moldargötum utan þjóðvegarins. Við bæjarlæk er kona að þvo þvott og á túni situr önnur kona undir kvígu og mjólk- ar beint í stóran brúsa. Á leiðinni er áð einu sinni til að farþegar geti létt á sér. Kynni okkar af litháískum almenningssalemum hafa hingað til verið með þeim hætti að okkur fýsir lítt til nýrra náðhússfunda, og þetta thtekna skipti verð- ur ekld th að breyta viðhorfi okkar. Salemi er í rauninni ahtof fínt orð yfir þá hörmung sem landlæg er í Litháen á þessu sviði, — flór er raunsannari lýsing. Víða em einung- is göt í gólfum með svehhálum fótstigum sitthvoramegin og bilaðri sturtu sem ýmist veitir engu vatni eða orsakar stórflóð með voðalegum afleiðingum fyrir fótabúnað gest- anna. Og þar sem klósett em th staðar er óþrifnaðurinn svo mikhl að jafnast helst á við íslensk félagsheimih eftir mergjað sveitabah. Þetta kemur hla heim og saman við snyrthegt yfirbragð Litháa og veldur okkur talsverðum hehabrotum. Á rithöfundasetrinu Urbo Kalnas Á rútubhastöðinni í Klaipeda bíða okkar rithöfundamir Romas og Rimas, en Rimas er formaður Klaipedadehdar Rithöfunda- sambandsins. Þessir heiðursmenn bjóða fram leiðsögn sína síðasta áfangann. Eftir stundarkorn emm við fjögur komin um borð í ferju á leið út á Neringa-rifið, þar sem þingið verður haldið í sjávarþorpinu Nida, um klukkustundarakstur frá ferju- staðnum. Neringa-rifið er sannkölluð náttúmpara- dís og stór hluti þess hefur verið gerður að þjóðgarði. Á sumrin er þetta vinsæh ferðamannastaður, bæði fyrir innfædda og útlendinga, sem einkum koma frá Þýska- Olga Guðrún með útskorinni maddömu. landi. Hávaxnir furaskógar Neringa — hí- býh íkorna, vhlisvína og dádýra — em mannanna verk, því upphaflegi skógurinn var höggvinn th óbóta á 16. og 17. öld með þeim afleiðingum að 14 þorp fóra á kaf í sand. Sandhólamir á Neringa em frægir og staðurinn stundum nefndur evrópska Sahara. Nida er lítið, fahegt þorp og í útjaðri þess stendur rithöfundasetrið Urbo Kalnas, dvalarstaður okkai' meðan á þinginu stend- ur. Urbo Kalnas var byggt fyrir tuttugu ámm, eitt margra hstamannasetra sem Ráðstjórnarríkin létu reisa innan vébanda sinna og þar gátu rithöfundar og fjölskyldur þeirra dvahð með Utlum thkostnaði við ágætar aðstæður. Það er nú í eigu litháíska Rithöfundasambandsins sem hefur ekki efni á að reka það á gömlu vhdarkjömnum, svo fátækir rithöfundar geta ekki lengur dvalist þar og hafa vikið fyrir þýskum túristum. Þjóðsögur í barna- bókmenntum Næsta morgun hefst annað barnabók- menntaþing Eystrasaltslandanna, en það bókaútgefendur vora svo vinsamlegir að gefa okkur th fararinnar. Það er skemmst frá því að segja að þessar bækur vekja gríð- arlega athygh á sýningunni. Ein þeirra er reyndar valin af stjórnanda þingsins, Dr. Kestutis Urba, sem gjöf th Háskólans í Klaipeda th minningar um ráðstefnuna. Hinar bækumar fara á Háskólabókasafnið í Vilnius th almenningsnota. Þátttaka Islendinga á ráðstefnunni er Litháum augljóslega mikið gleðiefni, því að þeir hampa okkur við hvert tækifæri eins og sjaldgæfum sýningargripum, svo við vit- um varla hvaðan á okkur stendur veðrið. Vinátta þeirra er vitaskuld sprottin af þeirri staðreynd að Islendingar gengu fyrstir fram fyrir skjöldu fyrir rúmum tveimur árum og viðurkenndu sjálfstæði þeirra, og það dreng- skaparbragð mun Litháum seint þykja fuh- þakkað. Stundum hvarflar að okkur að óþarflega vel sé við okkur gert af þjóðernissökum, t.d. þegar við komumst að því að aðrir ráð- stefnugestir búa flestir 1 jökulköldum íbúð- um á Urbo Kalnas en okkar ofnar era iðu- lega volgir. Og sumir þurfa að sofa með eymatappa th að heyra ekki hamaganginn í músunum, en hjá okkur era engin kvik- indi stærri en könguhær. Við friðum sam- viskuna með því að bjóða lopapeysumar okkar th afnota á nóttunni, en göngum ekki svo langt að ættleiða mýsnar. Listaskógur Eitt af því eftirminnilegasta frá Litháen verður án efa heimsókn okkar á Safn tré- skurðarlistarinnar á Neringaskaganum. Þetta er ekkert venjulegt safn, heldur skóg- ur fuhur af hstaverkum; fólk og fyrirbæri úr htháískum þjóðsögum. Hér era drekar og prinsar, andar og árar, dvergar og tröh skorin út í tré af frábærum hagleik. Margar stytturnar eru bráðfyndnar en aðrar hádr- amatískar; myndin af sjómannskonunni sem mænir út á hafið eftir báti eiginmannsins snertir kunnuglegan streng í íslenskum hjörtum. Á skógarstígnum hittum við fjóra litla drengi sem blása fyrir okkur í flautur og fá að launmn smápeninga og gott í munn- inn. Böm í Litháen era þefvís á ferðamenn og betla gjarnan af þeim sælgæti, tyggjó eða peninga. Á þeirri viku sem við dvelj- umst í landinu sjáum við varla eitt einasta bústið barn, og reyndar virðist okkur Lithá- ar almennt áberandi grannholda. Þjóðhátta- fræðingur við Háskólann í Vhnius upplýsir okkur um að á síðastliðnum vetri hafi fólk lést mhdð í þrengingunum, fuhorðnir að meðaltah um 6-8 kíló. Og ekki hefur ástand- ið batnað. Ytri fátækt, innri auðlegð I hádegishléinu á öðmm degi ráðstefn- unnar ríkir óvenju þungbúið andrúmsloft í matsalnum. Þær fregnir hafa borist frá Rússlandi að þar sé aht á suðupunkti mhli Jeltsíns og póhtískra andstæðinga hans, Jeltsín hafi leyst upp þingið og nú safni. menn liði á báða bóga. Félögum okkar á ráðstefnunni er veralega bragðið. Augnaráð þeirra og svipbrigði bera vott um þann kvíða sem blundar í brjósti manna hér vun slóðir — óttann við að nýir hörmungatímar geti skohið á þegar minnst varir. Ráðstefnuna sitja fjórir indælir Rússar. Meðal þeirra er Tatjana Dobronitskaya, spjöh málamanneskja sem hefur m.a. afrek- að að þýða „Pelastikk" Guðlaugs Arasonar yfir á rússnesku þótt hún hafi aldrei hlotið thsögn í íslensku. Hún tjáir okkur að mikih samdráttur hafi orðið í bókaútgáfu í Rúss- landi, pappír sé fokdýr og kaupgeta almenn- ings hth. Sömu sögu segja þingfuhtrúar annarra Austur-Evrópimkja. I Litháen er útgáfa barnabóka ekki nema þriðjungur af því sem var fyrir þremur áram, og þar af era þýðingar 60-70%. Útgáfufyrirtækjum í landinu hefur hins vegar stórfjölgað og era nú orðin 600 talsins, en þar era afkastahtlar eiginútgáfur í meirihluta. Flestir rithöfund- ar búa við kröpp kjör. Þrátt fyrir frábæra viðleitni ráðstefnu- haldara fer ekki á mhli mála að hér er bláfá- tæk þjóð í hlutverki gestgjafans. Það skort- ir flest sem á Vesturlöndum þykja sjálfsögð. þægindi á samkomu af þessu tagi; hér er hvorki ljósritunarvél, myndvarpi né tölva, öll pappírsgögn skorin við nögl, og í ráð- stefnusalnum er ískalt, sætin hörð og ekk- ert kaffi á brúsa th að ylja sér við á margra klukkustunda löngum fundum. í heimsókn- um th opinberra aðha í Nida og Klaipeda era veitingar fábrotnar — neskaffi í krús og beinakex eða nokkrir sopar af gosi — en samt höfum við það ávallt á tilfinning- unni að okkur sé sýnd ýtrasta gestrisni. Það má með sanni kahast kraftaverk að þessi ráðstefna skuh hafa orðið að veruleika við ríkjandi aðstæður. Framtakið einkennist af bjartsýni og kjarki sem ríkari þjóðir gætu dregið lærdóm af. Litháar leysa verk- efni sitt með sóma, því að skipulagning þingsins er ótrúlega góð þegar haft er í huga að þetta er frumraun gestgjafanna í ráðstefnuhaldi. Og þótt ýmsu sé áfátt í ver- aldlegum efnum býr þjóðin yfir menningar- legri auðlegð sem vekur aðdáun og virðingu gestkomandi. Það hvarflar að okkur á kveðjustund að gaman vaari að geta boðið þessu góða fóhd heim th íslands. Hvort íslenskur kjarkur dregur nógu langt til að sá draumur megi rætast verður framtíðin að skera úr um. En víst er að samskiptum okkar við unnend- ur barnabókmennta í Eystrasaltslöndunum er ekki lokið. Höfundar eru rithöfundar. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. DESEMBER1993 37

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.