Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 20/1–27/1  KENNARAR í Félagi framhaldsskólakennara samþykktu nýjan kjara- samning við ríkið með 86,44% greiddra atkvæða. 969 sögðu já, 113 sögðu nei, 37 skiluðu auðu og tveir seðlar voru ógildir.  FASTEIGNAVERÐ er í sögulegu hámarki og var verðið í desember sl. 9% hærra en verðið var hæst áður í ársbyrjun ársins 1988. Fermetraverð á höfuðborgarsvæðinu hef- ur vaxið um 37% á síð- ustu tveimur árum sem er 25% umfram hækkun vísitölu neysluverðs á sama tíma.  STJÓRN Listaháskóla Íslands hefur rætt við borgarstjóra um mögu- leikann á því að setja ný- byggingu skólans á Miklatún í tengslum við Kjarvalsstaði.  FLUGUMFERÐAR- STJÓRAR hafa samþykkt verkfallsboðun. Í Félagi flugumferðarstjóra eru tæplega 100 manns og er 32 þeirra skylt að vinna í verkfalli og halda uppi nauðsynlegri örygg- isgæslu.  MEIRIHLUTI bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar hyggst bjóða kennslu við nýjan grunnskóla í Ásl- andi út sem einka- framkvæmd. Skólastarfið skal hefjast næsta haust fyrir 1.–7. bekk.  BYRJUNARLAUN leik- skólakennara hækka um 26,8% samkvæmt kjara- samningi sem undirrit- aður voru við sveit- arfélögin í vikuni. Öryrkjafrumvarpið að lögum ÖRYRKJAR sem eiga rétt á greiðslum vegna dóms Hæstaréttar fá greitt í samræmi við breytingar á almannatryggingalögum um næstu mánaðamót. Forseti Íslands stað- festi lögin sem samþykkt voru á Al- þingi aðfaranótt miðvikudags. 32 stjórnarþingmenn voru fylgjandi frumvarpinu en 23 á móti. Ísfélagið hættir bolfiskfrystingu MIKIL óvissa ríkir í atvinnumálum í Vestmannaeyjum í kjölfar ákvörð- unar stjórnar Ísfélags Vestmanna- eyja hf. um að hætta bolfiskfryst- ingu. Fiskverkafólk í Eyjum kveðst harmi slegið og í óvissu um framtíð sína hjá fyrirtækinu. Um 170 manns eru nú á atvinnuleysisskrá í bænum, sem er um 8% vinnuafls Vestmanna- eyinga. Guðjón Hjörleifsson bæjar- stjóri segir ákvörðunina mikið áfall fyrir bæjarfélagið enda muni a.m.k. tugir manna missa atvinnuna. Tæpur helmingur Símans seldur STURLA Böðvarsson samgönguráð- herra leggur í næsta mánuði fram frumvarp á Alþingi um sölu á 49% hlutafjár í Landssímanum á þessu ári. Framkvæmdanefnd um einka- væðingu leggur til að sala á hlut rík- isins í Landssímanum hefjist í vor. Í fyrsta áfanga verði 14% seld til al- mennings og starfsmanna . Á síðari hluta ársins 2001 verði leitað eftir kjölfestufjárfesti í 25% hlutafjárins, sem geti síðar stækkað í 30 til 35% hlut. Í þriðja áfanga verði áhersla lögð á sölu til almennings og fjár- festa á íslenskum og erlendum mörkuðum og gæti sú sala hafist á árinu 2002. INNLENT FRIÐARVIÐRÆÐUR Ísraela og Palestínumanna hafa staðið í Egypta- landi undanfarna daga, en forsætis- ráðherra Ísraels, Ehud Barak, hefur lýst yfir svartsýni á að árangur náist. Þá hefur Shlomo Ben-Ami, utanríkis- ráðherra Ísraels, sagt að ólíklegt sé að samkomulag náist áður en forsætis- ráðherrakosningar fara fram í Ísrael 6. febrúar nk. Samkvæmt skoðanakönn- unum nýtur Ariel Sharon, frambjóð- andi Likud-bandalagsins, mun meira fylgis en Barak og segja fréttaskýr- endur að eina leiðin fyrir Barak til að ná endurkjöri sé að gera samninga áð- ur en að kosningunum kemur. Í byrjun vikunnar gagnrýndu Palestínumenn það hlutverk sem Bandaríkjamenn hafi gegnt í friðarumleitununum fyrir botni Miðjarðarhafs undanfarin sjö ár. Sagði samninganefnd Palestínumanna að utanríkisstefna Bandaríkjanna í tíð Bills Clintons fyrrverandi forseta hafi haft „hörmulegar afleiðingar“ fyrir friðarumleitanirnar. Helstu ásteyting- arsteinarnir í viðræðunum eru framtíð Austur-Jerúsalem, og örlög palest- ínskra flóttamanna og ísraelsks land- náms á herteknum svæðum. Alvarlegri gróðurhúsaáhrif ÁHRIF svonefndra gróðurhúsaloft- tegunda í lofthjúpi jarðar eru alvar- legri en talið hefur verið. Fram kom í skýrslu helstu loftslagssérfræðinga heims, sem greint var frá í vikunni, að fylgifiskar gróðurhúsaáhrifanna muni hafa mikil áhrif svo öldum skipti. Er því spáð að hitastig á jörðinni muni hækka um á bilinu 1,4 til 5,8 stig á þessari öld. Slíkar breytingar geti orð- ið til þess að eyða sumum vistkerfum og gleypa önnur. Sagði Klaus Töpfer, framkvæmdastjóri umhverfismála- áætlunar Sameinuðu þjóðanna, að þessi skýrsla ætti að „hringja aðvör- unarbjöllum“ um allan heim. Svartsýni Baraks  ALAN Greenspan, seðla- bankastjóri í Bandaríkj- unum, sagði við þarlenda þingfulltrúa á fimmtudag- inn að horfur á vaxandi tekjuafgangi ríkissjóðs sköpuðu svigrúm til skatta- lækkana. Þykja þessi orð bankastjórans koma sér vel fyrir George W. Bush, sem nýtekinn er við for- setaembætti, því hann lagði í kosningabaráttu sinni mikla áherslu á lækk- un skatta. Greenspan vildi aftur á móti ekkert segja um áform Bush um skatta- lækkanir.  DANSKIR sjómenn eru æfir vegna samkomulags Evrópusambandsins og Noregs um að stöðva þorskveiðar í Norðursjó í tíu vikur. Sagði talsmaður dönsku sjómannanna að þetta væri „heimskuleg- asta ákvörðun sem tekin hefur verið í Evrópusam- bandinu“.  GEORGE W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, bauð starfsfólk sitt velkomið í Hvíta húsið á mánudaginn og bað það að gæta vel- sæmis. Hann greindi enn- fremur frá því að hann hefði afráðið að hætta stuðningi við sjóði sem styrki alþjóðleg samtök er veiti ráð um skipulag barn- eigna, þ.á m. fóstureyð- ingar. Er þetta breyting á stefnu frá því í tíð Bills Clintons.  DREGIÐ hefur úr neyslu kókaíns og heróíns í heim- inum samkvæmt skýrslu SÞ, sem birt var í vikunni. ERLENT SÉRFRÆÐINGUM á fjármála- markaði líst vel á tillögur um einka- væðingu Landssímans og telja þær geta styrkt íslenskt efnahagslíf. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Búnaðar- bankans-verðbréfa segir að sér lítist vel á tillögur einkavæðingarnefndar um sölufyrirkomulag einkavæðing- arinnar. Að hennar mati sameini þær markmiðin um sem hæst heild- arverð, sérstök kjör fyrir starfs- menn og almenning og sem skyn- samlegasta innkomu Landssímans á hlutabréfamarkaðinn. „Mér finnst koma til greina að á- kveða viðmiðunarverð til kjölfestu- fjárfestis strax í fyrsta áfanga, sem þó yrði hærra en það gengi sem gild- ir við sölu til almennings. Tilgang- urinn með því er að koma í veg fyrir að tímabundið hátt verð á eftirmark- aði standi í vegi fyrir því að það tak- ist að finna kjölfestufjárfesti, en ár- angur í sölu til erlendra fjárfesta er háður því hvort hann fæst og hver hann verður,“ sagði Edda Rós enn- fremur. Hún segir að í þriðja áfanga söl- unnar ætti að leggja áherslu á sölu til erlendra aðila og þá sérstaklega til Norðurlandanna enda sé líklegt að kjölfestufjárfestirinn komi þaðan. Forstjóri Tele Danmark hafi þegar lýst yfir áhuga. Landssíminn sé eitt af fáum íslenskum fyrirtækjum sem kunni að vekja athygli erlendra fjár- festa, þannig að hér sé einstakt tæki- færi til að styrkja íslenskan hluta- bréfamarkað og fá inn erlent fjár- magn til landsins. Edda Rós segir að hugsanlega komi til greina að skrá Landssímann einnig í erlendri kauphöll. „Ég tel að verkefnið ætti að vinn- ast í samvinnu innlendra og erlendra fyrirtækja, þar sem innlendi aðilinn er með sölukerfi fyrir innlendan markað og þekkingu á innlendum markaði, en erlenda fyrirtækið hefur sérþekkingu á verðmati fjarskipta- fyrirtækja og einkavæðingu þeirra. Búnaðarbankinn hefur gert sam- komulag við Enskilda Securities í London og Stokkhólmi sem hefur víðtæka reynslu á þessu sviði. Bank- arnir voru sameiginlega með kynn- ingu fyrir Einkavæðingarnefnd á síðasta ári og kynntu hugmyndir að sölufyrirkomulagi,“ sagði Edda Rós ennfremur. Almar Guðmundsson, forstöðu- maður greiningardeildar Íslands- banka/FBA, segir að það séu mjög jákvæð skilaboð inn á fjármálamark- aðinn að búið sé að útfæra einkavæð- ingu Landssímans og að það liggi fyrir að hann verði einkavæddur að fullu á næsta ári. „Við teljum áfram mikilvægt, eins og við höfum reyndar sagt áður, að þetta tækifæri verði notað til þess að lyfta erlendri fjárfestingu svolítið og að erlendir fjárfestar komi þarna inn. Það er gott út frá þjóðhagslegu sjónarmiði, meðal annars ef við lítum á gengi krónunnar sem hefur átt undir högg að sækja. Þetta gæti styrkt það. Okkur hefur vantað er- lenda fjárfestingu inn í landið og þetta er kjörið tækifæri til að gera eitthvað í því,“ sagði Almar. Aðspurður um tillögurnar um hvernig staðið verður að sölu hluta- fjár, segir Almar að fyrsti hlutinn um sölu til starfsmanna sé mjög eðlileg- ur og sama gildi um sölu til almenn- ings, þar sé um að ræða hina hefð- bundnu einkavæðingarleið. Hins vegar megi velta fyrir sér hvort söl- una til kjölfestufjárfestis í haust hafi þurft að binda niður við 25% og að hans mati hefði kannski verið heppi- legra að hafa það aðeins sveigjan- legra. Ef menn væru að fá sterkan kjölfestufjárfesti inn, hvort sem hann væri innlendur eða erlendur, gæti jafnvel komið til greina að hafa það aðeins meira sem selt væri. Hann sagði aðspurður um verð- mat á fyrirtækinu að almennt séð hefði þróunin í Evrópu verið sú að símafyrirtæki hefðu verið að lækka í verði. Annars vegar hefðu menn ver- ið að minnka væntingar sínar til þessara fyrirtækja og hins vegar hefði sá kostnaður sem þessi fyrir- tæki hefðu meðal annars þurft að leggja til kaupa á leyfum fyrir þriðju kynslóða farsíma, þar sem vöxturinn í framtíðinni yrði, orðið til þess að lækka verðmatið. Það myndi mögu- lega hafa minni áhrif hér, þar sem þessum tillögum fylgdu upplýsingar um að farin yrði svo nefnd fegurð- arsamkeppnisleið í útboðum og það væri miklu jákvæðara hvað þetta snerti. Ef litið væri til þess sem þeir hefðu skoðað í þessum efnum,en það miðaðist við tölur frá árinu 1999, þá myndi verð á bilinu 30-35 milljarðar króna ekki koma honum á óvart. Sérfræðingar um tillögur um einkavæðingu Símans Tækifæri til að auka erlenda fjárfestingu BALDUR eftir ljósmyndarann Ara Magg var valin mynd ársins 2000 af Blaðaljósmyndarafélagi Íslands. Fréttamynd ársins, Á sorgar- stundu, tók Þorkell Þorkelsson. Íþróttamynd ársins, Örn Arnarson setur Íslands- og Norðurlandamet, höfundur Sverrir Vilhelmsson. Portrett ársins, Síungur töffari suður með sjó, Ari Magg. Mynd- röðin Þöglar hamfarir eftir Ragnar Axelsson var valin myndröð ársins. Þjóðlegasta myndin er Glíma í þágu kristni eftir Kjartan Þorbjörnsson, skoplegasta myndin er eftir Þorkel Þorkelsson, landslagsmynd ársins, Á jökulgöngu, eftir Ragnar Axels- son, tískumynd ársins, Í stormi lífs- ins, eftir Ara Magnússon. Besta mynd af daglegu lífi var valin Bar- ist áfram í veðrinu eftir Ragnar Ax- elsson. Myndir ársins 2000 eru til sýnis í Listasafni Kópavogs. Ari Magg Mynd árs- ins 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.