Morgunblaðið - 28.01.2001, Síða 6
ERLENT
6 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
OLÍUMENGUN er alvar-leg hvar sem hún verðuren þegar skýrt var fráþví, að olíuskip hefði
strandað við Galapagos-eyjar, var
ljóst, að þar var í uppsiglingu stór-
slys á alþjóðlegan mælikvarða. Eyj-
arnar eru kunnar um allan heim
fyrir mjög sérstætt lífríki, fágætar
plöntur og dýr, sem þar hafa þróast
í mikilli einangrun um árþúsunda-
skeið. Þær eru eins og lifandi til-
raunastofa og urðu enda Charles
Darwin, hinum fræga, enska nátt-
úrufræðingi, sú opinberun, sem
kveikti hjá honum kenninguna um
þróun tegundanna.
Það var snemma í síðustu viku að
olíuskipið Jessica strandaði á rifi
skammt frá höfninni á San Cristo-
bal, einni Galapagos-eyjanna. Var
skipið, sem er 30 ára gamalt, full-
lestað olíu, með um 900 tonn, og
skömmu eftir strandið fór hún að
leka í sjóinn. Lagðist skipið fljót-
lega á stjórnborða og tilraunir til að
rétta það af báru engan árangur.
Fór betur en
á horfðist
Yfirvöld í Ekvador hafa verið
harðlega gagnrýnd fyrir að bregð-
ast seint og illa við strandinu og
segja sumir, að þau hafi ekki tekið
við sér fyrr en yfir þau rigndi til-
boðum vestrænna ríkja um aðstoð.
Frá Bandaríkjunum komu sérfræð-
ingar og flokkur manna frá strand-
gæslunni með mikinn búnað og
Evrópusambandið og önnur ríki
buðust til að leggja fram fé og fólk.
Það kom þó ekki í veg fyrir, að olí-
an héldi áfram að leka úr skipinu.
Um tíma stefndi í stórkostlegt
umhverfisslys en svo vel vildi til, að
hagstæðir vindar báru meginolíu-
flekkinn, 1.200 ferkílómetra stóran,
í norðvestur og burt frá eyjunum.
Olía barst þó upp að ströndum
nokkurra eyja en ekki er vitað um
nema fáa fugla, sem hafa orðið olí-
unni að bráð. Aðra hefur tekist að
hreinsa og einnig sæljón, sem mikið
er af á eyjunum. Það má því segja,
að betur hafi farið en á horfðist
þótt vísindamenn hafi áhyggjur af
langtímaáhrifum þeirrar olíu, sem
sokkið hefur til botns við eyjarnar.
Hún getur drepið þörungagróður,
sem er einn mikilvægasti hlekk-
urinn í fæðukeðjunni á þessum
slóðum.
Fyrr í vikunni tilkynntu yfirvöld í
Ekvador, að öll áhöfn olíuskipsins
hefði verið handtekin, en hún er
sökuð um að hafa valdið strandinu
með vítaverðu kæruleysi. Skipstjór-
inn, Tarquino Arevalo, hefur raunar
tekið á sig alla ábyrgð á strandinu.
Segir hann, að í næturmyrkrinu
hafi hann haldið, að ljós á bauju
væri vitinn, sem átti að sýna honum
leiðina inn í höfnina á San Cristob-
al. Því hefði farið sem fór.
Darwin og þróun
tegundanna
Í Galapagos-eyjaklasanum eru
stærstu eyjarnar þrettán að tölu.
Þar eru sex smáeyjar og um fjöru-
tíu klettar eða sker. Er eyjaklasinn
1.000 km vestur af Ekvador og
myndaðist í eldsumbrotum fyrir sjö
til níu milljónum ára. Ljóst er, að
eyjarnar hafa aldrei verið tengdar
meginlandinu, og því var það mönn-
um nokkur ráðgáta í fyrstu hvernig
lífið, plöntur og dýr, hefði borist
þangað. Nú þykir ljóst, að
plöntufræ hafi borist þangað ýmist
með vindum eða fugli og dýrin ým-
ist synt eða flotið þangað á trjám
frá ströndum meginlandsins.
Frægasti maðurinn, sem komið
hefur til eyjanna, er að sjálfsögðu
enski náttúrufræðingurinn Charles
Darwin. Þangað kom hann á skip-
inu Beagle 15. september 1835.
Skipið var við eyjarnar í fimm vikur
og Darwin, sem þá var 26 ára gam-
all, rannsakaði lífríkið á fjórum
þeirra stærstu í 19 daga. Í þessari
„lifandi tilraunastofu þróunarinnar“
eins og hann kallaði eyjarnar sá
hann og skildi hvernig lífverurnar
höfðu þróast, ekki síst vegna ein-
angrunarinnar, og lagað sig að
þeim aðstæðum, sem þær bjuggu
við. Eitt frægasta dæmið eru Darw-
in-finkurnar, sem nú eru kallaðar,
en þær munu upphaflega hafa verið
einnar ættar. Síðar greindust þær í
nokkrar undirtegundir, sem hafa
ólíkan gogg eftir því hverjir lífs-
hættir þeirra eru.
Darwin var ekki nema hálfþrítug-
ur þegar hann kom til eyjanna eins
og fyrr segir en kenningu sína um
þróun tegundanna lagði hann þó
ekki fram fyrr en hálfri öld síðar.
Ofveiði, allt of mikil byggð
og ágangur ferðamanna
Strand Jessicu og olíumengunin,
sem það olli, hefur orðið til að vekja
athygli umheimsins enn á ný á
þessari náttúruperlu, sem Galapa-
gos-eyjar eru. Ljóst er, að þar er
víða pottur brotinn og stjórnvöld í
Ekvador hafa verið harðlega gagn-
rýnd fyrir að láta þar flest reka á
reiðanum.
Talsmaður bandarísku strand-
gæslunnar, sem aðstoðaði við að
hreinsa upp olíuna, sagði til dæmis,
að skipið, sem er 30 ára gamalt,
hefði ekki fengið að sigla á alþjóð-
legum siglingaleiðum og aðrir hafa
gagnrýnt Ekvadorstjórn fyrir of-
veiði og allt of mikla byggð í eyj-
unum. Þar búa nú 16.000 manns og
hefur fjölgað um 65% frá 1990. Þá
hefur ágangur ferðamanna aukist
ár frá ári og sumir eru farnir að
spá því, að verði ekki snúið af þess-
ari braut, muni ekki verða komist
hjá óbætanlegu umhverfisslysi á
eyjunum. Ýmis umhverfissamtök
hafa lagt til, að Galapagos-eyjar
verði settar undir alþjóðlega stjórn,
en ekki þykir líklegt, að Ekvador-
stjórn muni fallast á það.
Heimildir: Reuters, AFP, AP, BBC,
CNN.
AP
Starfsmenn Galapagosþjóðgarðsins vinna að því að hreinsa upp olíuna, sem lekið hefur frá Jessicu.
Mikið um-
hverfisslys
í einstakri
náttúru
AP
Tvær sækembur sóla sig á kletti við ströndina.
! " # $ " % ' (
) )
) )
"
* "
) )
)
+!, -
! , '
,'
,
. ' B A K S V I Ð
Galapagoseyjar búa yfir afar sérstöku
lífríki og því var óttast að stórkostlegt
umhverfisslys væri í uppsiglingu þegar
fregnir bárust af því að olíuskip hefði
strandað við eina af eyjunum.