Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 16

Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 16
LISTIR 16 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ St angaveiðifélags Reykjavíkur 2001 t i if l s j í r V e i s l u s t j ó r i : Stefán Hi lmarsson og hl jómsveit in Straumar ásamt Helga Björnssyni. Stefán Kar l Stefánsson Jóhann Fr iðgeir Vald imarsson, Stefán Hi lmarsson og Jóhanna V igd ís Arnardótt i r v ið und i r le ik K jartans Valdemarssonar. Glóðað ð ur humar með kóngasv v eppamauki Laxaterr ine með kampavíns s hlaupi Ís lenskar hre indýramedal íur með sel ler í - og kartöf lu lögum, bor ið ð fram með hindber ja- og súkku lað isósu Suðrænir ávext i r með kóko o sís og stökkum kókos Kaff i , te og konfekt Davíð Oddsson, forsætisráðherra 10. FEBRÚAR Á HÓTEL SÖGU KL.19.00 m a t s e ð i l lt i l l G R Í N : Hræsvelgur F O R D R Y K K U R : S Ö N G U R : H J Ó M S V E I T : B i k a r a f h e n d i n g H a p p d r æ t t i F o r s a l a o g b o r ð a p a n t a n i r á s k r i f s t o f u f é l a g s i n s l a u g a r d a g i n n 3 . f e b r ú a r k l . 1 3 - 1 6 . U p p l ý s i n g a r í s í m a 5 6 8 - 6 0 5 0 . M iðave rð kr. 9.900. Árshátíð ANDRÉS Magn- ússon opnar mál- verkasýningu í kaffiteríunni í Domus Medica mánudaginn 29. janúar. Á sýning- unni eru tuttugu og fjórar vatns- lita- og olíu- myndir. Andrés lærði myndlist hjá Finni Jónssyni, Jó- hanni Briem og Jóhannesi Jóhann- essyni í Myndlistarskóla Reykjavík- ur. Hann hefur áður haldið tíu einkasýningar, m.a. í Gerðubergi, Listhúsinu Laugardal og í Vest- mannaeyjum. Kaffiterían er opin frá kl. 8-19 og stendur sýningin um óákveðinn tíma. Vatnslita- myndir í Dom- us Medica Andrés Magnússon Þ egar hugtakið „nú- tímaleiklist“ er tek- ið til skoðunar verð- ur skýringin ekki jafn einföld og ætla mætti. Í sinni ein- földustu og gagn- sæjustu merkingu er nútímaleiklist sú leiklist sem býðst okkur nútíma- mönnum. Hversu langt aftur skil- greiningin „nútími“ nær í þessu samhengi er svo annað álitamál og þá er oftast litið eftir sögulegum viðmiðum, gjarnan umskiptum í listrænum skilningi, umskiptum sem seinni tíma menn hafa komið auga á eftir að þau hafa átt sér stað. Ennfremur er nauðsynlegt að skilja að tvö lykilhugtök í nútíma- leiklist; annars vegar nútíma- leikhús og hins vegar nútíma- leikritun, þar sem auðvelt er að benda á að þró- un nútímaleikhússins hafi ekki allt- af verið fullkomlega samstiga þró- un nútímaleikritunar, m.ö.o. breytingarnar sem orðið hafa á leikhúsinu sem margþættu list- formi hafa ekki allar haft áhrif á höfunda þess texta sem nútímaleik- húsið hefur hvað mest reitt sig á. Raunsæisstefnan í bók-menntum sem gjarnaner fest við síðustu ára-tugi 19. aldarinnar stangaðist að mörgu leyti á við þær hugmyndir sem voru uppi innan leikhússins á sama tíma þar sem myndlist og tónlist höfðu meiri áhrif á framvinduna en hræringar í veröld bókmenntanna. Einnig verð- ur að taka tillit til þess að stór- stígar framfarir í raunvísindum höfðu geysileg áhrif á tæknilega möguleika leikhússins t.a.m. upp- götvun rafmagnsins og ljósaper- unnar í kjölfarið sem gjörbreytti allri hugsun manna um notkun og beitingu ljósa í leikhúsi. Þegar hug- tak á borð við raunsæi er mátað við hugsun í leikhúsi kvikna marg- ar nýjar spurningar. Hugmyndir leikhúsfólks um raunsæi þeirrar leiklistar sem það stundar eru gjarnan litaðar af hugmyndum þess um áhrif listgreinarinnar á áhorf- endur sína. Efnislega getur annars mjög stílfærð leiksýning verið mjög raunsæ, samskipti þeirra persóna sem á sviðinu birtast geta í kjarna sínum verið raunsæ þó framsetn- ingin og umgjörð sýningarinnar sé samkvæmt öllum skilgreiningum bæði táknræn og stílfærð. Einn af frumkvöðlum þeirrar hugsunar sem mótað hefur um- gjörð leiksýninga alla 20. öldina var Þjóðverji að nafni Adolphe Appia (1862-1928). Appia var samstarfs- maður Richards Wagners í Bayreuth-leikhúsinu í Weimar og hreifst mjög af hugmyndum Wagn- ers um samruna allra listgreina í leikhúsinu; hugmyndir sem Wagn- er taldi að hann hefði náð að skapa í sviðsetningum sínum á Niflunga- hringnum. Hann vildi sjá leikhús þar sem tónlist, myndlist, texta og leiklist væri gert jafnhátt undir höfði og Appia var hans hug- myndasmiður í myndrænni út- færslu hugmyndanna. Seinni tíma menn hafa gert minna úr þessum hugmyndum Wagners og ávallt hafa verk verið skilgreind sem tón- verk, óperur fyrst og fremst. Hverfulleiki hins myndræna þáttar í leikhúsinu á þar vafalaust stóra sök enda í andstöðu við hugmyndir manna um leikhúsið sem lifandi listgrein að sviðsetja sýningar á sama hátt áratugum saman. Höf- undarverk Appia hefur því horfið í gleymsku þó hugmyndir hans hafi lifað áfram í sköpun eftirkomenda. Appia hafnaði alfarið þeirrileið, sem leikhúsið hafðibúið við um langt skeið,að myndræn útfærsla á leiksviði fælist í perspektívri teikn- ingu á baktjaldi ásamt tvívíðum mynduppstillingum hér og þar á sviðinu. Honum þótti fáránlegt að tefla saman svo fullkomnum and- stæðum sem væru líkami leikarans annars vegar og teikningar á bak- tjaldi hins vegar. Hann benti einnig á togstreituna milli sjónpunkta sem þetta skapaði þar sem miðja mynd- arinnar í baksviði væri vel ofan við höfuð leikarans sem ætti þó ávallt að vera miðpunktur athygli áhorf- andans. Hann lagði alla áherslu áþrívítt eðli leiklist-arinnar, þar sem þrívíðform, þ.m.t. leikarinn sjálfur, í rýminu væru samkvæm innbyrðis og sköpuðu heildstæðan heim leiksviðsins. Í útfærslu birtist þetta þannig að tröppur og pallar gegndu mikilvægu hlutverki, þar sem vettvangur leikarans, sviðið sjálft, er alltaf útgangspunktur. Appia þótti stinga mjög í augu það hlægilega ósamræmi sem var á milli leikarans og baktjaldsteikn- inga þar sem snæviþakin fjöll náðu leikaranum tæplega í öxl, eða hurðaop í ímynduðum fjarskanum námu við hné. Í dag hljóma hugmyndir Appia sjálfsagðar en voru á sínum tíma róttæk bylting í hugsun manna um leikhús. Hugmyndir Appia um notkun lýsingar í leiksýningum voru þó framsæknastar þar sem áður hafði lýsing gegnt þeim eina tilgangi í leikhúsinu að varpa birtu á sviðið svo það sem þar færi fram mætti sjást. Fyrir daga rafmagns- ins var þetta gert með kertum og olíuljósum og möguleikarnir tak- markaðir af þeim sökum. Með raf- magninu opnuðust nýjar leiðir en Appia sá í rauninni aldrei hug- myndir sínar í þessum efnum ræt- ast fullkomlega þar sem tæknilega var langt í land í að rafmagnsljós- inu mætti beita á þann hátt sem hann sá fyrir sér. Hann gat því í rauninni aðeins sýnt hugmyndir sínar um beitingu ljósa með teikn- ingum og í skrifum sínum; margir áratugir liðu áður en hægt var að framkvæma þær á leiksviðinu. Hann taldi lýsingu vera hluta þeirrar sjónrænu rýmismyndar sem sköpuð væri. Ljósið skyldi nota til að skapa form og mynstur í rýminu ekki síður en til þess að lýsa upp leikarann og aðra hluta sviðsins. Tæknilegar framfarir í leikhúsi urðu enda hvað mestar á þessum vettvangi á 20. öldinni þar sem ljósabúnaður í venjulegu leik- húsi er undantekningarlaust tölvu- stýrður og ljóskastarar af öllum stærðum og gerðum og hannaðir með ólík markmið í huga gegna lykilhlutverki. Möguleikarnir til að skapa þær myndir með lýsingu einni saman sem Appia sá fyrir sér fyrir 130 árum urðu ekki að veru- leika fyrr en löngu eftir daga hans. Einmitt þess vegna erukenningar hans og spárum notkun ljósa í leik-húsinu svo merkilegar þar sem hann sá fyrir sér og lýsti nákvæmlega lykilhlutverki lýsingar í nútímaleikhúsi. Hann skilgreindi ljós í leikhúsi sem tvíþætt. Annars vegar ljós sem notað er til að lýsa upp leikmynd og í daglegu tali er nefnd grunnlýsing. Hins vegar og miklum mun mikilvægara er hug- mynd hans um notkun ljóss til dramatískrar áherslu. Hann lýsir í skrifum sínum hvernig ljós í leik- sýningu sé á stöðugri hreyfingu, hvernig það eigi að draga fram áherslur hvers augnabliks, færa einn hluta sviðsins fram í miðpunkt athygli eða jafnvel einn leikara eða andlit hans eingöngu. Hann skil- greindi ljósgjafana sem annars vegar dreifða ljósagjafa og hins vegar þrönga ljósgjafa, þær tvær tegundir ljóskastara sem mest er beitt í dag. Hann lét sig dreyma um að hægt væri að stjórna hverj- um ljóskastara sjálfstætt og þannig mætti skapa þá hreyfingu ljóssins sem hann áleit svo mikilvæga. All- ar þessar hugmyndir hafði hann sett fram skilmerkilega fyrir alda- mótin 1900, löngu áður en þetta varð tæknilega mögulegt. Hann sér fyrir sér svo fíngerðar hreyfingar ljóssins að áhorfandinn yrði þeirra ekki var nema sem ómeðvitaðrar skynjunar, stöðug tilfærslu fók- uspunkts í leiksviðinu var fjar- lægur draumur sem hann gat ein- ungis útfært á teikniborði sínu en er í dag lykilatriði við samsetningu lýsingar hverrar einustu leiksýn- ingar. Hann sá ennfremur fyrirsér að með þróuðumljósgjöfum mættihvorutveggja lita leik- sviðið í öllum litum litrófsins og ennfremur mætti varpa myndum á leiksviðið og skapa þannig umgjörð um leikarann alfarið með ýmiss konar lituðu og formuðu ljósi. Formað ljós var í hans huga sveigj- anlegasti efniviðurinn sem sviðs- hönnuður framtíðarinnar hefði til ráðstöfunar. Adolphe Appia verð- skuldar því sannarlega að vera kallaður faðir ljósahönnunar í nú- tímaleikhúsi. Leikmynd hans fyrir uppfærslu á óperu Glucks Orfeus og Evrídís árið 1913 er af mörgum talin marka upphaf hönnunar leik- myndar og lýsingar í því er við köllum nútímaleikhús. Sviðsmyndir Appia fyrir þessa uppfærslu er hægt að skoða á myndbandi er nefnist Revolution and Rebirth og er hluti af mynd- bandaröð sem Háskólinn í Warwick á Englandi hefur gefið út undir heitinu Modern Theatrical Reform and its Debt to Antiquity. Fyrir áhugasama er hægt að panta myndbandið og önnur úr sömu röð með því fara inn á slóðina http://www.warwick.- ac.uk/fac/arts/Theatre_S/videos/ index.html. Helstu heimildir: Adolphe Appia: Artist and Vis- ionary of the Modern Theatre (Contemporary Theatre Studies; V. 6) Höf. Richard C. Beacham. Adolphe Appia, Prophet of the Modern Theater: A Profile. Höf. Walther Richard Volbach The Stage is Set. Höf. Lee Sim- onson. Mótað ljós á stöðugri hreyfingu Ein af hugmyndaskissum Adolpe Appia frá 1909 um samspil ljóss og leikmyndar. AF LISTUM Eftir Hávar Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.