Morgunblaðið - 28.01.2001, Síða 18
LISTIR
18 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Við styrkjum spennandi
menningarviðburði
á Norðurlöndum
Nú eru síðustu forvöð að sækja um styrki til norrænna menn-
ingarverkefna sem ná til minnst þriggja Norðurlanda/
sjálfstjórnarsvæða.
Hafið samband við skrifstofu Norræna menningarsjóðsins
í Kaupmannahöfn til að fá upplýsingar, umsóknareyðublöð
eða leiðbeiningar.
Á vefsíðu sjóðsins má lesa um starf hans og eins hvaða
verkefni hafa hlotið styrk.
Pantið umsóknareyðublöð skriflega eða símleiðis, einnig
er hægt að sækja þau á vefsíðu sjóðsins. Umsóknir þurfa að
vera póststimplaðar í síðasta lagi 15. mars 2001 til að koma
til greina við endanlega afgreiðslu þeirra í júní. Umsóknir
póststimplaðar í síðasta lagi 15. september verða afgreiddar í
desember.
NORRÆNI
MENNINGARSJÓÐURINN
Store Strandstræde 18, DK-1255 København K, Danmark.
Sími: +45 33 96 02 00. Netfang: kulturfonden@nmr.dk
Veffang: www.nordiskkulturfond.dk
ELDASKÁLINN
Invita sérverslun
Brautarholti 3, 105 Reykjavík
Sími: 562 1420 - Netfang: eldask@itn.is
Rýmingarsala – Eldhús - Böð
Persónulega eldhúsið
32-48
%
afslá
ttur
af sýn
ingar
innré
ttingu
m
LISTVINAFÉLAG Hallgríms-
kirkju stendur fyrir dagskrá í
kirkjunni í dag, sunnudag, klukkan
17 undir yfirskriftinni Dagsöngvar
um frið. Þar verður frumflutt sam-
nefnt tónverk eftir Jón Hlöðver Ás-
kelsson tónskáld við kvæði eftir
skáldið og rithöfundinn Böðvar
Guðmundsson.
Flytjendur verksins eru Hlín
Pétursdóttir, sópran, Guðlaugur
Viktorsson, tenór, kammerkórinn
Schola cantorum og Kári Þormar,
orgelleikari, en stjórnandi er Hörð-
ur Áskelsson. Í tengslum við frum-
flutninginn verða fluttar stuttar
frásagnir af stríðsátökum í samtím-
anum, en frásagnirnar eru sagðar
af íslenskum fréttamönnum og
fólki frá Rauða krossi Íslands. Tón-
skáldið Jón Hlöðver Áskelsson seg-
ir að kveikja verksins hafi verið
Kristintökuhátíðin á síðastliðnu
ári.
Hvor í sínu
landinu
,,Tónverkið Dagsöngvar um frið
var samið að beiðni söngmála-
stjóra, Hauks Guðlaugssonar, árið
1999 fyrir Tónmenntasjóð Þjóð-
kirkjunnar í tilefni af þessum
merku tímamótum, 1000 ára
kristnitökuafmælinu. Beiðninni
fylgdi ósk um að Böðvar Guð-
mundsson góðvinur minn semdi
kvæðin og var sú bón borin fram
með tilliti til náins samstarfs sem
við höfum átt áður við sameiningu
tals og tóna.“
Við hvaða verk eftir Böðvar hef-
ur þú samið tónlist áður?
,,Ég hafði áður samið tónlist við
tvö af leikritum Böðvars sem voru
fyrstu verk Alþýðuleikhússins á
sínum tíma og hétu Krummagull og
Skollaleikur. Nú vorum við staddir
hvor í sínu landinu, Böðvar í Dan-
mörku og ég á Íslandi. Við unnum
saman með hjálp rafbréfa. Böðvar
stakk upp á þeim ramma að verkið
næði til eins dags í bænalífi krist-
ins manns frá því að hann vaknar
og tekur á móti blessun og gleði
morgunbirtunnar og þar til hann
tekur á sig náðir. Því er tónverkið í
fjórum þáttum, morgunsálmur, há-
degissálmur, rökkurbæn og kvöld-
bæn. Mestu átökin í efni eru í há-
degissálminum, þar sem fjallað er
um hvernig við höfum forsmáð góð-
ar gjafir Guðs og breytt friði í ófrið
og þakklæti í vanþakklæti. Ég
reyni með hjálp kórs, orgels og ein-
söngvara að ná fram þeirri einlægu
og barnslegu trú sem við búum yfir
og draga jafnframt upp dökka liti
þeirra geigvænlegu afleiðinga sem
slæm breytni okkar hefur kallað
yfir heiminn. En á endanum er það
hin ljúfa nótt sem dregur sæng-
urtjöld sín yfir dagsins önn og fær-
ir yfir frið, sem við þörfnumst.
Af þessu má ráða að verkið hafi
ákveðinn og brýnan boðskap fram
að færa til áheyrenda sinna. Er
boðskapurinn allur á kristilegum
nótum, ef svo má að orði komast?
,,Já í besta skilningi þess orðs er
það sú leiðsögn og boðun kristinnar
trúar um að velja veg friðar og
þakklætis, en jafnframt hörð ádeila
á þá andstæðu stefnu sem mann-
skepnan velur af heimsku, mis-
skildu frelsi og drambi sem leiðir
til óréttlætis, stríðs og tortímingar.
Vonandi njóta áheyrendur einnig
gleði, kærleika og friðar í Dag-
söngvum um frið. Að minnsta kosti
er ég mjög þakklátur fyrir að hafa
fengið að semja þetta verk með
Böðvari og fyrir þann sóma sem
því er sýndur að verða flutt af svo
frábæru listafólki, sem raun ber
vitni.“
Morgunsálmur
Er sólin upp í austri rís
og yfir löndin fer
og ljóma slær á hrjóstug hraun
og haf og sorfin sker
þá opna þjóðir augu sín
og ást þín, Drottinn, við þeim skín,
gylltum akri, engirein
aldintré og blómagrein,
en furðulegt og fráleitt er
hve fár það sér.
Þá ættum við sem hlutum hvíld
við hljóðrar nætur brjóst
að leita þín í þökk og bæn
er þvílík undur bjóst,
en alltof margir í þess stað
sín augu byrgja. Fyrir það
er valdbeiting og myrkurmorð
sem mannsins hlutverk hér á storð,
því hjálpa, Drottinn, hrjáðum lýð
er háir stríð.
Þín ást er vís, þess vitni ber
hin væna, græna jörð,
hið glaða barn, hinn fleygi fugl,
hin frjálsa, káta hjörð,
en ormur sá er öndvert rís
er enn sem fyrr í Paradís,
hans ból er sérhvert byssuhlaup
og brjóstin fyllt með heiftarraup,
þeim grimmu hjörtum, Guð, ég bið,
þinn gefðu frið.
(Upphafsljóð Dagsöngva um frið)
Dagsöngvar
um frið
Tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson og ljóð-
skáldið Böðvar Guðmundsson hafa samið
saman verk á kristilegum nótum um stríð
og frið í nútímanum, sem frumflutt verður
í Hallgrímskirkju í dag. Þorvarður
Hjálmarsson innti Jón Hlöðver nánar
um tilurð og inntak verksins.
Kammerkórinn Schola Cantorum tekur þátt í frumflutningi verksins.
Böðvar
Guðmundsson
Jón H.
Áskelsson
VÍNARTÓNLEIKAR verða haldnir
í félagsheimilinu Hlégarði í Mos-
fellsbæ í dag kl. 17. Er það í fyrsta
sinn sem slíkir tónleikar eru haldnir í
Mosfellsbæ og er um nokkurs konar
tilraunaverkefni að ræða sem miðar
að því að efla tónleikahald í bænum.
Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýs-
dóttir sópransöngkona ásamt hljóm-
sveit sem skipuð er Sigrúnu Eð-
valdsdóttur fiðluleikara og konsert-
meistara, Sigurði Ingva Snorrasyni
klarínettuleikara, Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur píanóleikara og
Páli Einarssyni kontrabassaleikara.
Á efnisskránni verður hefðbundin
Vínartónlist. Leiknir verða valsar og
polkar, Vínarljóð og aríur eftir tón-
skáld á borð við Franz Lehár, Emm-
erich Kálmán og Robert Stoltz, að
ógleymdum Johanni Strauss yngri,
konungi Vínardansleikjanna.
Hefðbundin Vínartónlist
Þau Sigurður, Anna Guðný og Páll
hafa starfað saman í um 15 ár og
leikið við ýmis hátíðartilefni í Veislu-
tríóinu. Þær Sigrún Eðvaldsdóttir
og Sigrún Hjálmtýsdóttir hafa síðan
komið inn í samstarfið, m.a. þegar
Vínartónlistin hefur verið á dagskrá.
„Við komum gjarnan saman í janúar,
en það er sá tími ársins sem tíðkast
að leika Vínartónlistina,“ segir Sig-
urður. „Þetta er ákaflega góður hóp-
ur. Við erum búin að spila þessa
músík mikið og því hefur gengið vel
að koma þessu saman. Margir halda
þó að þetta sé tónlist sem auðvelt er
að spila en hún er það alls ekki. Það
er erfitt og vandasamt að leika þessa
músík, eins og reyndar er með
hverja aðra kammertónlist.“ Sigurð-
ur hefur mikla reynslu af Vínartón-
listinni en hann starfaði við það tvo
vetur meðan hann stundaði nám í
Vín að leika í hefðbundinni Strauss-
hljómsveit. „Vínartónlistin hefur átt
síauknum vinsældum að fagna um
allan heim undan farin ár og á það
ekki síður við um Ísland. Sinfóníu-
hljómsveitin byrjaði að vera með
Vínartónleika fyrir um 20 árum og
fór það hægt af stað en nú eru þetta
langfjölsóttustu tónleikar Sinfóní-
unnar,“ segir Sigurður.
Lífgað upp á
tónleikahald
„Það má segja að þetta sé nokkurs
konar tilraun til að lífga upp á tón-
listarlífið hér í bænum,“ segir Sig-
urður Ingvi Snorrason um tilefni
tónleikanna í Hlégarði. „Af þessum
hópi tónlistarfólks erum við þrjú úr
sveitarfélaginu, þ.e. við Anna Guðný
og Diddú. Það ekki hægt að segja að
það sé mikið líf í tónleikahaldi hérna
en þó hafa verið haldnir tónleikar á
aðventu undanfarin ár þar sem
Diddú hefur sungið. Þá höfum við í
Veislutríóinu verið að leika á Vínar-
dansleikjum sem haldnir hafa verið á
Hótel Örk í Hveragerði. Diddú söng
með okkur á tónleikum nú í ársbyrj-
un og í kjölfarið datt okkur í hug að
tilvalið væri að slá upp dálítilli Vín-
arstemmningu hér í bænum í janú-
ar.“ Menningarmálanefnd bæjarins
hefur síðan komið að þessu tilrauna-
verkefni auk þess sem veitingastjór-
inn í Hlégarði hefur veitt margvís-
lega aðstoð. „Bæjarbúar hafa tekið
þessari nýlundu vel, af miðasölunni
að dæma a.m.k. Ég vona að þetta
komi til með að vera skemmtilegur
viðburður í bæjarlífinu. Þetta er
náttúrulega tilraun en ef vel gengur
er ekkert því til fyrirstöðu að gera
þetta að árvissum viðburði,“ segir
Sigurður Ingvi að lokum.
Vínarstemmning
Morgunblaðið/Ásdís
Listafólkið Anna Guðný Guðmundsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sig-
urður Ingvi Snorrason, Sigrún Eðvaldsdóttir og Páll Einarsson.