Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ STOFNUN Vatnajökuls-þjóðgarðs, sem mundi nátil Vatnajökuls og Skafta-fellsþjóðgarðs, gæti að mati heimamanna orðið til þess að efla verulega ferðaþjónustu og samfélagið almennt í Austur- Skaftafellssýslu. Umhverfisráð- herra tekur undir þær væntingar og telur að Vatnajökulsþjóðgarður sé mikið hagsmunamál fyrir Horn- firðinga sem og landsmenn al- mennt. Hornfirðingar leggja áherslu á að stofnun og rekstur þjóðgarðsins verði í nánu samstarfi við heima- menn og að nægilegt fjármagn verði tryggt til að koma þjóðgarð- inum á legg og til framtíðarrekst- urs hans. Horfa menn til þess að þjóðgarðurinn í Skaftafelli hafi á árum áður verið vanræktur frá hendi hins opinbera og að slíkt megi ekki endurtaka sig varðandi uppbyggingu Vatnajökulsþjóð- garðs. Þetta kom m.a. fram á ráðstefnu sem umhverfisráðuneytið stóð fyr- ir á Höfn í Hornafirði um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Ríkisstjórn- in samþykkti í lok september á síð- asta ári tillögu Sivjar Friðleifs- dóttur um stofnun þjóðgarðsins sem mun ná yfir núverandi Skafta- fellsþjóðgarð og fylgi síðan jökul- rönd Vatnajökuls. Á ráðstefnunni kom fram að kurr er meðal land- eigenda vegna kröfu fjármálaráð- herra fyrir hönd ríkisins um þjóð- lendur í Austur-Skaftafellssýslu og telja þeir að kröfugerðin tengist stofnun þjóðgarðsins, sem komi þá hugsanlega til með að fylgja þjóð- lendulínunni en ekki jökulröndinni. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra sagði í setningarávarpi að nú stæðu Íslendingar á krossgötum varðandi stofnun þjóðgarða, enda væri nú fyrirhugað að stofna tvo þjóðgarða á næstu tveimur árum. Fyrst yrði lokið við að stofna Snæ- fellsnessþjóðgarð en síðan yrði stefnt að opnun Vatnajökulsþjóð- garðs á alþjóðlegu ári fjalla 2002. Þjóðgarður stykir áform um stofnun jöklasafns Ráðherra sagði að stofnun þjóð- garðsins fylgdu meiri möguleikar en menn áttuðu sig á nú. Vatnajök- ulsþjóðgarður yrði stærsti þjóð- garður Evrópu og engum líkur þar sem ís og eldur mættust á ein- stæðan hátt. Sótt yrði um að koma þjóðgarðinum á heimsminjaskrá yfir einstæð náttúrufyrirbrigði og því myndi fylgja mikil kynning er- lendis. Meðal framsögumanna á ráðstefnunni var Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður í Skaftafelli og sagði hann að fjár- magn hefði verið aukið til þjóð- garðsins undanfarið og að nú væru breyttir tíma frá því að menn gleymdu þjóðgarðinum um skeið. Í máli sínu rakti hann þróun í fjölg- un ferðamanna til landsins á und- anförnum árum, en þeim hefur fjölgað gríðarlega síðustu árin. Ár- ið 1993 komu til landsins 158.000 ferðamenn en á síðasta ári um 300.000. Alþjóða ferðamálaráðið spáir því síðan að árið 2020 komi hingað 500.000 ferðamenn, en aðrir spá talsvert meiri fjölgun og að 7- 900.000 ferðamenn gætu komið til landsins árið 2020. Aðspurður sagði Ragnar Frank að lítið mál væri að stjórna svo stórum þjóðgarði ef peningar væru fyrir hendi. Það væri hins vegar ljóst að ekki gengi upp að miðstýra þjóðgarðinum frá Reykjavík og að aðalatriðið væri að samstaða heimamanna væri fyrir hendi. Þorbjörg Arnórsdóttir frá Hala í Suðursveit og einn bæjarfulltrúa Hornafjarðar sagði að bæjarstjórn legði áherslu á náið samráð við Náttúruvernd ríkisins og umhverf- isráðuneytið. Hún sagði hugmynd- ir um Vatnajökulsþjóðgarð falla vel að mörgum hugmyndum sem Austur-Skaftfellingar hafi verið að vinna að á undanförnum árum og að stofnun þjóðgarðsins ætti að geta styrkt enn frekar þá ferða- þjónustu sem fyrir er og stuðlað að betra aðgengi að jöklinum og frek- ari uppbyggingu þjónustustaða fyrir ferðamenn. Þá hefðu heimamenn áhuga á að efla hvers konar rannsókna- og vísindastarf sem tengist jöklinum, auk þess að gera sögu og menn- ingu héraðsins sýnilegri. Að sögn Þorbjargar styrkir stofnun þjóð- garðs áform um uppbyggingu jöklasafns og jöklamiðstöðvar og eflingu rannsókna- og vísinda- starfa innan fyrirhugaðra Ný- heima á Höfn. Þorbjörg lagði jafnframt áherslu á að í hugum heimamanna skipti öllu máli að stofnun Vatnajökuls- þjóðgarðs hefði ótvíræðan efna- hagslegan ávinning í för með sér. Í því skyni að meta þann ávinning hefði verið haft samband við þró- unarstofu Byggðastofnunar og óskað eftir að sérfróðir aðilar taki að sér að meta efnahagslegan ávinning af stofnun Vatnajökuls- þjóðgarðs með tilliti til eflingu byggðar og framþróunar í atvinnu- lífi. „Það verður að vera gulltryggt að nægjanlegt fjármagn komi frá hinu opinbera til uppbyggingar og reksturs þjóðgarðs,“ sagði Þor- björg. Hún sagði jafnframt að það hefði verið reiðarslag að fá fram kröfur þjóðlendunefndar, sem kæmu í veg fyrir frjálsa samninga við landeig- endur. Mörg ár tæki að útkljá þau mál en mikilvægt væri að gera sér grein fyrir því að kröfugerðin væri ekki endanleg niðurstaða og mætti ekki spilla fyrir áætlunum um þjóðgarð eða drepa niður áhuga landeigenda á að setja hluta lands síns undir þjóðgarðinn. Sigurður Sigurðarson fram- kvæmdastjóri Jöklaferða var einn frummælenda og sagðist hann ekki sjá fyrir sér hagnað til skemmri tíma litið af Vatnajökli sem þjóð- garði, en til lengri tíma litið gæti ferðaþjónustan hagnast á stofnun þjóðgarðsins. „Ég á heldur ekki von á því að róttækar breytingar verði á stöðu ferðaþjónustunnar þó svo að einn góðan veðurdag verði Vatnajökull þjóðgarður. Þjóðgarð- urinn getur skapað tækifæri en flest þessi tækifæri hafa verið til staðar. Samt hefur ekkert breyst.“ Að sögn Sigurðar veit enginn nákvæmlega hvernig þjóðgarður á Vatnajökli kemur til með að líta út, nema hvað vitað sé að hann eigi að ná yfir jökulhettuna. „Ég er þeirr- ar skoðunar að hann eigi að ná yfir meira svæði en það sem tilheyrir nákvæmlega jöklinum sjálfum. Um árabil hefur hann gengið fram og til baka og allt land umhverfis jök- ulinn er meira og minna mótað af honum. Ég er þeirrar skoðunar að Austur-Skaftafellssýsla öll og jafn- vel hluti af Vestur-Skaftafellssýslu eigi að fylgja inn í þjóðgarðinn á Vatnajökli. Með því móti mun ferðaþjónustan frekar geta nýtt hann sér til framdráttar.“ Bitur staðreynd að ferðþjón- ustan er févana og máttlítil Sigurður sagði það bitra stað- reynd að íslensk ferðaþjónusta, sérstaklega utan höfuðborgar- svæðisins, væri talsvert máttlítil og févana. Aðeins væri um blóm- legan rekstur að ræða yfir sum- artímann og það væri engin til- viljun að eigendur Flugfélags Íslands hafi alvarlega íhugað að hætta flugi til Hafnar yfir vetr- armánuðina og að Flugleiðahótel hafi velt fyrir sér að hætta rekstri Hótels Hafnar yfir vetrartímann. Þá væri saga Jöklaferða flestum kunn og víti til varnaðar en með sameiningu við önnur afþreying- arfyrirtæki væri hugsanlegt að festa kæmist á þau mál. Ásmundur Gíslason formaður Ferðamálasamtaka Austurlands sagðist telja að Vatnajökulsþjóð- garður kæmi til með að efla og styrkja ímynd héraðsins. „Ég vil líta á þennan Vatnajökulsþjóðgarð sem allsherjar eflingu fyrir allar atvinnugreinar, ekki bara að líta á ferðaþjónustuna.“ Halldóra Bergljót Jónsdóttir formaður bæjarráðs Hornafjarðar sagðist telja að stofnun þjóðgarðs- ins hefði jákvæð áhrif á allt sam- félagið, iðnaðarstarfsemi, verslun og þjónustu. Hún lagði jafnframt áherslu á að nægilegt fjármagn yrði að fást til stofnunar þjóð- garðsins. „Ef vel á til að takast þarf að leggja nokkuð mikið fjármagn í þetta, ekki bara nokkra tugi millj- óna, í eflingu upplýsingamiðstöðv- ar og aðgengi fyrir ferðamenn.                                                 !     !          "   #  !         "$  "$      "  #"                         $ %!     &!                     % & ' &  ( ) * *      %!            + # ' #    ( ,  ' #      - ,          Tryggja þarf fjármagn og samstarf við heimamenn Umhverfisráðuneytið hélt á dögunum ráð- stefnu á Höfn um stofnun Vatnajökuls- þjóðgarðs þar sem fram kom að heimamenn telja þjóðgarðinn styrkja ferðaþjónustu og áform um uppbyggingu jöklasafns á Höfn. Eiríkur P. Jörundsson sat ráðstefnuna og komst að því að kröfur ríkisins um þjóð- lendur valda tortryggni meðal landeigenda í tengslum við þjóðgarðinn. Hornfirðingar telja Vatnajökulsþjóðgarð geta orðið verulega til framdráttar fyrir héraðið Morgunblaðið/Eiríkur P. Frá ráðstefnu umhverfisráðuneytisins á Höfn um Vatnajökulsþjóðgarð. Frá vinstri eru Ragnar Frank Kristjánsson, þjóðgarðsvörður í Skafta- felli, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra, Hermann Hansson fund- arstjóri, Halldóra Bergljót Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Hornafjarð- ar, og Ásmundur Gíslason, formaður Ferðamálasamtaka Austurlands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.