Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 29

Morgunblaðið - 28.01.2001, Side 29
Þessa fjármuni verðum við að fá til að undirbúa landið til að taka við þeim ferðamannafjölda sem við getum átt von á að fá.“ Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra sagði rétt að of litlu fjár- magni hefði verið veitt til fjölsóttra ferðamannastaða hingað til. „Menn hafa skoðað hve miklu þyrfti að kosta til á næstunni til að geta staðið sómasamlega að því að taka á móti þessum mikla fjölda sem nú kemur til landsins. Það er hægt að slá tölu á þess upphæð og hún er um 450 milljónir króna til að bæta úr á allra næstu árum. Þá eru ekki inni í því nýjar stöðvar við Vatna- jökul í sambandi við nýja þjóðgarð- inn, enda er ekki búið að vinna það til enda.“ Landeigendur tortryggnir vegna þjóðlendukrafna Að sögn ráðherra munu um 70 milljónir króna fara í uppbyggingu ferðamannastaða og dreifast milli þeirra staða sem fagaðilar segja að séu í mestri þörf. „Það er öruggt að fjármagnið mun aukast inn í þennan geira á næstu árum.“ Aðspurð sagðist Siv ekki getað svarað því hve mikið stjórnvöld myndu leggja fram í sjálfan Vatna- jökulsþjóðgarðinn, því stofnun hans væri ennþá í undirbúningi. „Ég finn að hér er mjög góð samstaða um að láta þessa hug- mynd og hugsun ganga vel og þeg- ar það tekst munu skapast hér störf og ég held að þau verði frek- ar mörg, þó erfitt sé að segja til um það núna, en ég tel að þau muni verða mörg og muni koma á næstu árum.“ Á ráðstefnunni kom fram að tor- tryggni gætir meðal landeigenda í garð hugmynda um stofnun Vatna- jökulsþjóðgarðs eftir að fjármála- ráðherra lagði fram kröfur um þjóðlendur í Austur-Skaftafells- sýslu. Þorsteinn Sigfússon bóndi á Skálafelli sagði að vegna eðli máls- ins settu menn samhengi þarna á milli. „Í mínum huga og fleiri landeig- enda þýðir ekkert fyrir ríkið að koma og ræða við okkur landeig- endur. Ég var mjög jákvæður í sumar fyrir hugmynd um Vatna- jökulsþjóðgarð, en eftir að mál fóru að þróast á þennan veg fór ég að hugsa mig um. Til þess að við getum stofnað þetta í sátt við alla, því það er alveg rétt að landeig- endur þurfa að vera með í málinu og þetta þarf að vera unnið í sátt við þá, þá bið ég Siv um að beita sér fyrir því að ríkið dragi þessa línu til baka og þá skulum við tala um málið.“ Ljóst að þjóðgarðurinn mun stækka í framtíðinni Siv Friðleifsdóttir sagði að línan sem dregin var hefði komið sér í opna skjöldu. Ráðherra sagðist hins vegar ekki geta beitt sér fyrir því að línan yrði dregin til baka, enda væri nauðsynlegt vegna stofnunar þjóðgarðsins að fá úr því skorið hvort og hvaða eignarhald landeigendur hefðu á jöklinum sjálfum. „Varðandi Vatnajökulsþjóðgarð er það forsenda fyrir því að geta á endanum stofnað hann að við vit- um um eignarhaldið á jöklinum sjálfum. Hugsanlega munu ein- hverjir landeigendur telja að land- ið þeirra nái upp á jökulinn. Þá er betra að fá það fram sem fyrst til að útkljá þá deilu. Og það er þess vegna sem nefndin lagði til að menn myndu fara að skoða eign- arhaldið á þessum stað hér næst.“ Ef niðurstaðan reynist sú að hluti af jöklinum er eignarland verður að taka afstöðu til þess hvort ætlunin er að hafa einkaland innan þjóðgarðsins eða hvort reynt verður að kaupa skikann fyrir sanngjarnt verð. Á Snæfellsnesi er nú verið að kaupa upp jarðir, að sögn ráðherra, enda talið æskileg- ast að land innan þjóðgarðs sé í eigu ríkisins þar sem það auðveldi talsvert stjórnun á landinu. Þá segir ráðherra ljóst að í framtíð- inni muni þjóðgarðurinn stækka út fyrir mörk jökulhettunnar sjálfrar. „Það er alveg ljóst að þjóðgarð- urinn mun stækka. Ég held að hann muni stækka fyrr til norðurs og vesturs yfir svæðið þar en hing- að suður á bóginn. Það eru svæði eins og Kverkfjöll og Lakagígar og fleiri svæði, friðlönd sem við eigum hérna fyrir norðan, sem koma sterkt inn í myndina sem svæði sem falli inn í þennan þjóðgarð.“ Nýskr. 8.1998, 1400cc vél, 3 dyra, sjálfskiptur, silfurgrár, ekinn 24 þ. GSM, ABS, sumardekk á ál-felgum, spoiler, airbag o.m.fl. Verð 1.290 þ. Honda Civic Lsi Grjóthálsi 1 Sími 575 1230/00 b b íla a lan n d notaðir bílar bilaland.is B&L Vikunámskeið í Heilsustofnun NLFÍ Námskeið í streitustjórnun: 7. janúar (fullbókað) og 21. janúar (bókun stendur yfir) Viltu hætta að reykja? Næstu námskeið: 14. janúar og 4. febrúar 2001 Upplýsingar og innritun í síma 483 0300. Taktu í taumana MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 29 Flísar og parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri Útsala Útsala Pipar & salt, Klapparstíg 44

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.