Morgunblaðið - 28.01.2001, Page 32

Morgunblaðið - 28.01.2001, Page 32
32 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. UMRÆÐUR UM HÆSTARÉTT Þær umræður, sem staðiðhafa síðustu daga umHæstarétt eru gagnlegar, bæði fyrir réttinn sjálfan og líka fyrir almenning. Það er sjaldgæft að fram fari umræður um Hæsta- rétt og vinnuaðferðir réttarins og dómara hans. Þess vegna er mikil fjarlægð á milli æðsta dómstólsins og þjóðarinnar. Flestar kynslóðir íslenzkra lög- fræðinga hafa fengið það uppeldi í lagadeild Háskóla Íslands að Hæstiréttur sé nánast óskeikull og niðurstöður hans skuli ekki dregnar í efa. Vafalaust hefur þetta viðhorf breytzt í lagadeild- inni hin síðari ár enda væri annað úr takt við þá breytingu, sem orð- ið hefur á tíðaranda. Í eina tíð var ekki höfð uppi gagnrýni á forseta, biskup og Hæstarétt. Sú afstaða þykir ekki lengur við hæfi. Í opnu og lýðræðislegu samfélagi eins og okkar Íslendinga eiga menn held- ur ekki að hafa áhyggjur af því, þótt hart sé tekizt á í umræðum um málefni eða í þessu tilviki stofnanir. Slíkar umræður hreinsa andrúmsloft og skýra línur. Síðustu árin hefur Hæstiréttur legið undir gagnrýni fyrir það, að dómar hans séu ekki nægilega skýrir. Þetta á bæði við um dóm- inn í Öryrkjabandalagsmálinu og eins og menn muna var sú gagn- rýni einnig höfð uppi vegna dóms Hæstaréttar í máli því, sem Valdi- mar Jóhannesson höfðaði vegna fiskveiðimála. Það skiptir ekki máli í þessu sambandi, hvort menn telja þessa gagnrýni sann- gjarna eða ósanngjarna. Hitt vek- ur athygli að hún kemur upp aftur og aftur. Þá er ekki óeðlilegt að sú spurning vakni, hvort dómarar Hæstaréttar hafi yfir að ráða nægilegum fjölda löglærðra að- stoðarmanna til þess að kafa ofan í flókin mál. Staðreyndin er að álitamálin í okkar samfélagi hafa orðið stöðugt umfangsmeiri og flóknari. Það kallar á aukna vinnu stjórnmálamanna til þess að setja sig inn í mál og það sama á t.d. við um starfsmenn fjölmiðla. Dómstólar hljóta að vera í sömu stöðu. Er hugsanlegt að gagnrýn- in um óskýra dóma byggist á því, að dómarar Hæstaréttar hafi ein- faldlega ekki viðunandi aðstöðu og aðstoð til að kynna sér máls- efnin nægilega vel? Umræðurnar um Hæstarétt vekja líka spurningar um það, hvort þær aðferðir sem notaðar eru til þess að velja dómara í rétt- inn eigi lengur við. Lögfræðingar sækja um embætti dómara við Hæstarétt. Rétturinn sjálfur fjallar um umsóknir og kveður á um, hvort umsækjendur séu hæfir og ráðherra skipar. Það hefur augljóslega mikla þýðingu að Hæstarétt skipi fólk með djúpa þekkingu á lögvísindum. Er nægi- lega vel tryggt með núverandi kerfi að svo sé? Það má draga í efa. Umræðurnar undanfarna daga snúast um það, hvort forseti Hæstaréttar hefði átt að svara bréfi forseta Alþingis. Enginn dregur í efa rétt forseta Alþingis til að senda forseta Hæstaréttar bréf. Í sjálfu sér getur enginn dregið í efa rétt forseta Hæsta- réttar til að svara bréfinu og allra sízt þegar í ljós er komið að meirihluti dómara í réttinum var sammála því að bréfinu skyldi svarað. Hitt getur verið meira álitamál, þegar í ljós er komið, að fjórir af níu dómurum í réttinum voru and- vígir því að bréfinu yrði svarað, hvort það var hyggilegt af forseta réttarins að ganga gegn vilja svo stórs minnihluta dómara. Þar hef- ur forseti réttarins þurft að vega og meta annars vegar þá hags- muni sem að réttinum snúa og hins vegar mikilvægi þess, að ekki ríki óvissa í samfélaginu um það, hvort draga mætti þá ályktun af dómi Hæstaréttar í máli Öryrkja- bandalagsins að frumvarp ríkis- stjórnarinnar, sem nú er orðið að lögum væri brot á stjórnarskrá lýðveldisins. Óneitanlega eru miklir almannahagsmunir tengdir því, að slík óvissa sé ekki til stað- ar og þess vegna hefur forseti Hæstaréttar ákaflega sterk rök fyrir sinni ákvörðun, þótt hún hafi verið erfið miðað við aðstæður innan réttarins. En jafnframt hefur ekkert kom- ið fram, sem bendir til, að ágrein- ingur hafi verið milli dómara Hæstaréttar um efnisatriði í bréfi forseta réttarins. Engum þarf að koma á óvart, þótt lögfræðinga greini á um þetta atriði. Í grein í Morgun- blaðinu í gær segir Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við laga- deildina, sem nú er dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg: „Þannig eru bréfaskriftir forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar óvenjulegar en kunna að réttlæt- ast af þeim sérstöku aðstæðum og mjög svo hörðu deilum, sem dóm- ur Hæstaréttar hefur vakið.“ Í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, sagði Páll Sigurðsson, prófessor við lagadeildina, hins vegar: „Hvernig sem á er litið var þar a.m.k. gengið fram á yztu nöf varðandi eðlilega og leyfilega stjórnarhætti. Og það má einnig vissulega halda fram með fullum rökum, að gengið hafi verið fram af brúninni.“ Það er með rökræðum sem þessum, sem smátt og smátt verð- ur til nýr skilningur á því í hvaða farveg eðlilegt er að þróa Hæsta- rétt við breyttar þjóðfélagsað- stæður. Slíkar umræður eru af hinu góða. Þ EGAR George W. Bush sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna um síðustu helgi eignuðust Bandaríkin nýjan forseta. Eftir átta ára valdatímabil demókrata hafa repúblikanar náð völdum í Hvíta húsinu á nýjan leik. Þetta mun vafalítið leiða til töluverðra breytinga og að minnsta kosti umfangsmikilla vangaveltna um það í hverju breytingarnar verða fólgnar. Atburðir síðustu helgar eiga sér hins vegar einnig aðra hlið því að maður, sem um átta ára skeið hefur gegnt embætti forseta Bandaríkj- anna, tekur nú við hlutverki hins „óbreytta borg- ara“ á nýjan leik. Líkt og ávallt þegar Bill Clinton á í hlut ganga hlutirnir ekki hávaðalaust fyrir sig. Síðustu dagar hafa einkennst af miklum vangaveltum um marg- víslegar embættisgjörðir forsetans áður en hann lét af embætti, ekki síst náðanir Clintons síðustu dagana, sem hann var forseti. Má nefna sem dæmi mál Marc Rich, sem verið hefur landflótta í um tvo áratugi, (og kom við sögu í tengslum við hugs- anlega sölu á íslenzkri skreið fyrr á árum) en hann er sakaður um að hafa átt viðskipti við Íran í trássi við viðskiptabann Bandaríkjastjórnar á sínum tíma. Komið hefur í ljós að Denise Rich, fyrrum eiginkona Marc Rich, var mikilvægur styrktarað- ili Hillary Clinton í kosningabaráttu hennar í New York. Var saksóknarinn, sem fór með málið í New York, ekki látinn vita af því, að Clinton hygðist náða viðkomandi. Andstæðingar Clintons telja þetta enn eina sönnun þess, að hann hafi aldrei látið siðferði flækjast fyrir sér í störfum sínum. Stuðnings- menn hans telja málið smávægilegt. Að mörgu leyti endurspeglar þetta þær deilur sem verið hafa í gangi frá því að Clinton tók við embætti. Það er hins vegar ekki síður forvitnilegt að velta því fyrir sér hvað taki við nú þegar hann lætur af embætti. Að mörgu leyti eru demókratar í nýrri stöðu. Clinton er fyrsti forsetinn úr röðum demó- krata í um hálfa öld sem náði endurkjöri, eða frá því Franklin D. Roosevelt gegndi embættinu. Hann er sömuleiðis einungis 54 ára gamall, fullur af orku og langt frá því að setjast í helgan stein. Engum dettur í hug að Clinton muni nú hætta af- skiptum af stjórnmálum og sjálfur gaf hann sterk- lega til kynna, er hann ávarpaði stuðningsmenn sína á Andrews-flugvelli um síðustu helgi, að hann ætlaði sér áframhaldandi hlutverk í bandarískum stjórnmálum. Það veit hins vegar enginn hvert það hlutverk verður. Í fjölmiðlum hefur verið gælt við þá hug- mynd að Clinton muni bjóða sig fram sem borgar- stjóri New York, með þeim rökum að það sé eina starfið í landinu sem sé honum samboðið. Þá hafa borist fréttir af því að sjónvarpsstöðvar hafi reynt að falast eftir starfskröftum forsetans. Löng hefð er fyrir því í bandarískum stjórn- málum að forsetar hverfi af vettvangi og láti lítið fyrir sér fara þegar forsetatíð þeirra lýkur. Þann- ig hefur ekki borið mikið á George Bush, frá því að hann lét af störfum fyrir átta árum, og það sama má segja um Gerald Ford. Raunar á það sama við um Jimmy Carter, þó svo að hann hafi nú á síðustu árum látið til sín taka á ýmsum sviðum, m.a. í tengslum við lausn deilumála á Haiti og í Norður- Kóreu. Það á þó vart við Bill Clinton að sitja lengi að- gerðalaus og því má gera ráð fyrir að ekki muni líða á löngu áður en að hann lætur að sér kveða á nýjan leik. Sú staðreynd er líklega fremur áhyggjuefni fyr- ir leiðtoga Demókrataflokksins en fyrir hinn nýja forseta repúblikana. Clinton gnæfir yfir flokks- bræður sína og líklegt er að þeir, sem sækjast munu eftir því að verða talsmenn flokksins, muni eiga undir högg að sækja, verði hann enn til staðar á hinu pólitíska sviði. Á það jafnt við um leiðtoga demókrata í þinginu, s.s. Richard Gephardt og Tom Daschle, sem Al Gore, forsetaefni flokksins í síðustu kosningum. Taki Clinton þá ákvörðun að hafa áframhaldandi afskipti af bandarískum stjórnmálum yrði hann óhjákvæmilega helsti leið- togi Demókrataflokksins. Ekki má heldur útiloka að hann verði fenginn til að einbeita sér að lausn alþjóðlegra deilumála, til dæmis með því að skipa hann sendiherra yfir ákveðnum málaflokki. Þar myndi hin mikla reynsla hans vafalaust nýtast til fulls, auk þess sem það myndi auðvelda flokks- bræðrum hans að finna sér nýjan leiðtoga fyrir næstu forsetakosningar. Clinton-árin og stéttaskipting Árin sem Clinton gegndi embætti voru viðburðarík. Banda- ríkin bjuggu við ein- staka hagsæld en jafnframt var á stundum stormasamt, jafnt á alþjóðavettvangi sem í kring- um sjálft forsetaembættið. Því má nú búast við því að miklar umræður fari í gang um hvað hafi ein- kennt Clinton-tímabilið og hver sé niðurstaða þess. Francis Fukuyama, prófessor í stjórnsýslu- fræði við George Mason-háskóla í Washington, er einn þeirra sem að undanförnu hafa ritað greinar um arfleifð Clintons. Fukuyama segir í grein í Wall Street Journal að flest hafi þróast til betri vegar í stjórnartíð Clintons, að minnsta kosti ef tekið sé mið af tölfræðilegum upplýsingum um hagi Bandaríkjamanna. Til að mynda hafi dregið verulega úr glæpatíðni, um 20% á landsvísu og mun meira á sumum stöðum s.s. í New York. Þetta hafi haft margvíslegar afleiðingar í för með sér, til dæmis að millistéttin hafi á nýjan leik getað lagt undir sig miðsvæði stórborganna. Þá hafi þungunum táningsstúlkna fækkað og hjónaskiln- uðum sömuleiðis. Heildarmyndin er hins vegar mun flóknari en tölfræðin gefur til kynna, segir Fukuyama. Það eigi til að mynda við um stéttaskiptingu. Á sjötta áratugnum hafi almennt verkafólk yfirleitt getað skilgreint sig sem millistéttarfólk út frá sjónar- miðum þess tíma. Það átti hús, bíl og þvottavél. Þekkingarsamfélag tíunda áratugarins hafi hins vegar orðið til að búa til nýja gjá er þrýsti verkafólki niður þjóðfélagsstigann en ýtti milli- og yfirstétt upp. Þetta er að hans mati m.a. skýringin á þeirri reiði sem greina mátti meðal bandarískra verka- manna í garð alþjóðavæðingar og NAFTA, frí- verslunarsamnings ríkja Ameríku, á sama tíma og millistéttin tók efnahagsstefnu Reagan-áranna í sátt. Menningarlega séð átti sér hins vegar stað ákveðin samræming þar sem börn eftirstríðskyn- slóðarinnar urðu sífellt „hefðbundnari“ í hugsun og tóku hin viðteknu fjölskyldugildi upp á sína arma. Hinir efnuðu í Bandaríkjunum urðu, svo notuð séu orð Fukuyama, „ótrúlega ríkir“ í stjórnartíð Clintons. Það sem þótti mikið á Reagan-tímanum er í dag skiptimynt í augum auðmanna. Fukuyama segir að sjálfsmynd hinna ríku hafi einnig breyst verulega á þessum tíma. Í augum margra séu Reagan-árin tímabil „græðginnar“, þrátt fyrir að í stjórnartíð Clintons hafi þau tákn, sem yfirleitt eru notuð til marks um það, verið enn meira áberandi. Þetta telur hann að megi rekja til þess að kynslóðin, sem kennd er við börn eftir- stríðsárakynslóðarinnar (á ensku babyboomers) hafi þá fyrst auðgast. Þetta eigi ekki síst við um starfsmenn fjölmiðla, sem ekki hafi lengur getað bent með fyrirlitningu á þá er högnuðust vel. Þetta dugir þó ekki til. Hinum nýríku gat liðið vel vegna þess að þeir voru fulltrúar eins konar „bóhemískrar borgarastéttar“. Þeir sem henni til- heyra sjá ekkert athugavert við það að láta efna- hyggjuna ráða ferðinni í einu og öllu ef menn hafi réttar skoðanir á ákveðnum málefnum: um- hverfismálum, kynþáttamálum, jafnréttismálum og fátækt. Fukuyama segir Clinton-hjónin vera hina full- komnu fulltrúa þessarar þróunar. Þau trúi því í einlægni að hin góðu áform þeirra réttlæti við- skipti þeirra, meinsæri og svimandi háar greiðslur fyrir útgáfusamninga. Að mati prófessorsins má einnig greina þver- sagnir þegar litið er á samskipti hvítra og svartra í Bandaríkjunum. Þótt staða blökkumanna hafi batnað að nær öllu leyti, ef tekið er mið af tölfræði, virðist sem gjáin á milli hvítra og svartra haldi áfram að breikka. Þrátt fyrir allt tal Clintons um sættir kynþáttanna segir hann bilið halda áfram að breikka. Þetta hafi komið í ljós í réttarhöld- unum yfir O.J. Simpson og einnig í nær órofnum stuðningi blökkumanna við Al Gore í síðustu for- setakosningum. Þetta telur hann benda til þess að bilið á milli hvítra og svartra í Bandaríkjunum sé í auknum mæli menningarlegt en ekki efnahags- legt. Þversögn Clinton- tímabilsins Allt þetta segir Fuku- yama bera að sama brunni. „Þegar upp er staðið eru djúpstæð- ustu breytingar Clin- ton-áranna menning- arlegar fremur en efnahagslegar. Það er skýringin á helstu pólitísku þversögn tímabilsins: Hvers vegna einhver íhaldssamasti forseti Demó- krataflokksins var jafn hataður af hægrimönnum og raun ber vitni og tókst að skipta bandarískum stjórnmálum í fylkingar betur en nokkrum öðr- um.“ Skýringuna segir hann vera að Clinton-hjónin hafi verið „bóbosar“, bóhemískir fulltrúar borg- arastéttarinnar. Sjálfhverf, valdagírug og upptek- in af efnishyggju. Þau hafi hins vegar ekki skil-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.