Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 37                                          ! "       #   $  %    & '   ( ) *         ! "     "  #   "    $     # "      "   %  "  "    &%  &   "          ' &     ( &)*+ " " + &)+ $                                        !"  # $" "  % "   &                          ! " #   $%    %$%              ! " #        $% " " &     '! ( & "  )     * ( * (" *  "   +   ,                          ! " #                              !  "#       ! " # !#$$                                        !        !          !" #  $ % &'  "     ( ' !"    ' ) % #  !" % #  ' % #    %    #%  "    #      #     !"    #   '      #% * * *+ , Móðursystir mín kvaddi þennan heim hinn 12. janúar sl. Hún var aldrei kölluð neitt annað en Gunna frænka innan fjölskyldu okkar, gilti þá einu hvort fólk var skylt henni eða ekki. Gunna frænka bjó lengi vel við Sólvallagötu í Reykja- vík. Fyrir mig voru heimsóknir til hennar eins og að ganga inni í æv- intýri því garðurinn við húsið sem hún bjó í var með mörgum stórum tjám og fyrir mig sem kom úr trjá- leysinu á Vestfjörðum var ákveðin dulúð yfir þessu. Aldrei kom neinn að tómum kof- unum hjá henni Gunnu frænku, alltaf gat hún skellt upp veislu- GUÐRÚN BJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR ✝ Guðrún Björg Þorsteinsdóttirfæddist á Reyðarfirði 10. októ- ber 1921. Hún lést á Landakoti hinn 12. janúar síðastliðinn. Guðrún bjó í Reykjavík mestan hluta ævi sinnar. Útför Guðrúnar fór fram í kyrr- þey 17. janúar. borði með engum fyrirvara og allt- af átti hún til fullan pott af heima- gerðum ávaxtagraut. Nú seinni árin eftir að ég fluttist suður og stofnaði eigin fjölskyldu var það ávallt hluti af Reykjavíkurferð að koma við hjá Gunnu frænku í Aust- urbrúninni þar sem hún bjó síðustu árin. Henni fannst gaman að fá að fylgjast með börnum mínum vaxa og dafna og þar voru nú ekki síðri veisluborðin, staflarnir af vöfflum og meðlæti. Nú seinni árin hafa verið Gunnu frænku erfið, hún hef- ur oft dvalið á spítala og síðustu mánuðina var hún á öldrunardeild K-2 á Landakoti, vil ég fyrir hönd aðstandenda færa starfsfólkinu þar bestu þakkir fyrir umönnun henn- ar sem og starfsfólki hjartadeildar Landspítalans í Fossvogi. Hvíl í friði, Gunna frænka. Hrefna Höskuldsdóttir. Gunna frænka, undir því nafni þekktu allir mínir vinir þig, því þú varst frænka með stóru Fi. Fyrst man ég eftir þér þegar þú fluttir til Ísafjarðar, þá voruð þið systurnar þrjár, þú, Stína og Gulla mamma mín, allar við reksturinn á veit- ingastaðnum Uppsölum og allar að ala mig upp. En ekki veitti af að eiga þrjár mömmur. En það var fyrst eftir að ég flutti til Reykja- víkur með börnin mín þrjú að ég kynntist því hvað það var gott að eiga þig að, elsku Gunna frænka. Þú varst alltaf boðin og búin að passa fyrir mig og aðstoða mig á allan hátt og alltaf komum við til þín í sunnudagsmatinn. Ég veit vel að oft áttir þú erfiða tíma og fékkst lítið til að tala um þá, en það var eins og þú værir að bæta það upp með því að hugsa um mig og börn- in mín. Núna þegar við erum að taka saman eigur þínar rifjast svo margt upp, strumpaplatan er enn til eins og fyrir tuttugu árum, borðar sem þú varst vön að setja í hárið á Gullu og Hrafnhildi og svo margt annað. Gunna mín, ég kveð þig með miklu þakklæti og ég veit að þú ert hvíldinni fegin eftir erfið veikindi undanfarin ár. Guð blessi þig og minninguna um þig. Rannveig Höskuldsdóttir. ✝ Katrín SigríðurGuðmundsdóttir var fædd á Enni í Engihlíðahreppi, Húnavatnssýslu, hinn 13. mars 1931. Hún lést 19. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðmundur Hall- dórsson, f. 14. júlí 1902, d. 8. júlí 1944, og Halldóra Karls- dóttir, f. 15. október 1906, d. 18. septem- ber 1984. Katrín giftist Karli Steingrímssyni, f. 25. sept- ember 1927, hinn 15. mars 1952 og varð þeim tveggja barna auðið. Þau eru: 1) Guðmundur, f. 4. september 1953, kona hans er Ratree Sombonn, f. 7. febrú- ar 1966. Guðmund- ur á einn son, Karl, f. 11. júlí 1984. 2) Hanna, f. 10. des- ember 1958. Henn- ar maður er Rúnar Westmann, f. 31. maí 1959. Börn þeirra eru Eva, f. 13. október 1982, og Rúnar, f. 26. júlí 1998. Fyrir átti Hanna Katrínu Lind Guðmunds- dóttur, f. 22. sept- ember 1975. Ólst hún upp hjá afa sín- um og ömmu, Katrínu og Karli. Sambýlismaður Katrínar Lindar er Jóhann Eyþórsson, f. 8. októ- ber 1977. Útför Katrínar var gerð frá Akureyrarkirkju 26. janúar. Er við lítum um öxl til ljúfustu daga liðinnar æfi. Þá voru þar stundir í vinahópi sem veittu okkur mesta gleði. (milo.) Mig langar í örfáum orðum að minnast Katrínar Guðmundsdóttur eða Kæju eins og hún var alltaf kölluð, hún var gift Karli Stein- grímssyni móðurbróðir mínum. Mér finnst að hún hafi verið meira tengd mér en bara mágkona mömmu, eins og ömmustelpan mín sagði: Er hún Kæja ekki pínulítið frænka okkar eins og Dændi frændi (Karl Steingrímsson) sagði ég, við áttum hana öll: Kæja var svo ljúf og góð kona, sem vildi öllum vel, tók alltaf á móti okkur brosandi með opinn faðminn. Minningarnar frá bernsku minni eru heimsóknir í Ránargötu 10, þar sem þau Dændi bjuggu og hafði ég unun af að máta jakkana hennar slæðurnar og ekki síst skóna. Minntist hún oft á þetta. Svo fluttu þau í Ránargötu 1, þar bjuggu afi og amma á neðri hæðinni og fjöl- skyldan mín í Ránargötu 19 það var stutt að fara á milli húsanna og lagði maður mikið á sig til að hlaupa eftir götunni þó að veður væri vont og myrkrið stundum ógn- vekjandi. Við ræddum stundum um gömlu góðu dagana þá kallaði hún mig Im- bigó því ég hafði átt erfitt með að bera nafnið mitt fram sem barn. Það var gaman þegar hún var að kenna mér að dansa á eldhúsgólf- inu sínu og oft var hún búin að laga á mér hárið því hún sagði að ég væri svo mikil pjattrófa. Já, Kæja átti alltaf tíma handa mér. Hún átti fallegt heimili, las mikið og hafði mjög gaman af að ráða krossgátur. Mikill vinskapur var á milli fjöl- skyldna okkar og var oft glatt á hjalla í afmælum og jólaboðum hjá mömmu og pabba og mikið var gaman þegar Dændi tók upp harm- onikkuna og allir fóru að syngja. Þessar stundir lifa í minning- unni. Fyrir nokkrum árum fluttu þau í Skarðshlíðina og áttu ynd- islega íbúð og þangað flutti móðir mín líka fyrir skömmu svo enn var stutt að heimsækja þau öll þegar ég kom í bæinn og gott að systkinin voru nálægt hvort öðru. Elsku Kæja! Lífið þitt hefur ekki verið dans á rósum, hvað heilsufar snertir, þú hefur mátt þola veikindi sem buguðu þig að lokum, þó þú hafir barist hetjulega en alla tíð er það aðeins einn sem ræður og við lútum að hans vilja. Kæja mín ég kveð þig og þakka fyrir alla okkar skemmtilegu stundir því þær voru margar. Elsku Dændi, ég og fjölskyldan mín biðjum góðan guð að styrkja þig og fjölskylduna þína í þessari miklu sorg um leið og við þökkum fyrir allt. Ingibjörg Jónsdóttir. Elsku æskuvinkona, þá er komið að leiðarlokum um sinn, ekki svo að mig grunaði það ekki þegar ég var hjá þér í sumar og sá hvað þú varst orðin veik þá þegar. En maður heldur alltaf í vonina í lengstu lög. Það á eftir að vera skrítið að koma norður fyrir mig og fjölskylduna alla, þegar þú ert horfin okkur, engin Kaja í Ránargötu 1 eða Skarðshlíðinni. Það verður skarð fyrir skildi þar sem ég sit, núna rétt eftir að Hanna Dóra, dóttir þín hringdi í mig og lét mig vita að þú værir látin. Nú flykkjast að mér gamlar minningar, allt frá því við munum eftir okkur í innbænum, þá litlar stelpur í búaleik undir bátnum hans afa þíns fyrir framan Frið- bjarnarhúsið, setjandi tjöru í fötin okkar og fá bágt fyrir. Eða að reka kýrnar í veg fyrir afa þinn, sem rak þær fram fyrir Krókseyri á daginn og við að sækja þær á kvöldin og koma þeim í fjós. Þá man ég þegar við eignuðumst sparksleða og skófl- ur. Fundum okkur ísjaka og ýttum frá landi fyrir innan Leirugarð, svo hætti skóflan að botna og jakinn í tvennt. Okkur var bjargað af ung- um manni, honum Hauki sem seinna varð helmingurinn af Hauki og Kalla manninum þínum, en þeir spiluðu um allt á böllum og allir eldri Akureyringar þekkja vel. Já, það streyma að mér minningar af samveru okkar, bæði á Akureyri og fyrir sunnan og síðast í Hveragerði. Þótt þú værir á Akureyri og ég fyr- ir sunnan, var aldrei langt á milli okkar, ekki síst þau ár sem mamma þín bjó í Reykjavík og mamma mín fyrir norðan. Símann var alltaf hægt að nota og var hann óspart notaður. Ég átti því láni að fagna að geta talað við þig á meðan þú lást á sjúkrahúsinu nokkrum sinnum. Síðast viku áður en þú lést. Þá voru lokaorðin þín þegar ég bað þig að láta þér batna. Þá sagðir þú við eig- um eftir að hlæja saman seinna, Alda mín. Ég vona að góður Guð passi Kalla minn, Guðmund, Hönnu Dóru, Katý og fjölskyldur þeirra um ókomin ár. Megi hann vera með ykkur öllum í þessari miklu sorg. Svo segir bros þitt, besta systir mín. Nú beinist aftur kveðja mín til þín, Og brennheitt höfuð hneigi ég í tárum, Mín hjartans vina frá svo mörgum árum. Um regni grátnar grundir sig grúfir nótt- in hljóð, Með grárri skímu bráðum fer að morgna. Mér finnst ég vera að syngja mitt sein- asta ljóð Og sálar minnar lindir vera að þorna. Ég veit, þú hefðir sagt mér að herða huga minn. Ég hugga mig sem best til að gera vilja þinn. Ég geymi hvert þitt bros í minning minni. Ég man og skal ei gleyma samvist þinni. Ég vildi ég gæti fléttað þér fagran minn- iskrans. En fyrir augun skyggja heitu tárin. Svo vertu sæl, mín systir! Í faðmi fann- klædds lands. Þú frið nú átt. Við minninguna – og sárin. (Hannes Hafstein) Þín æskuvinkona Alda Berg. KATRÍN SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.