Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 51
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
www.xd.is
DAGSKRÁ
Mánudagur 5. febrúar
kl. 19.00-19.10 Skólasetning: Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
kl. 19.10-20.40 Sjálfstæðisstefnan: Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra.
kl. 20.55-22.30 Hornsteinninn - fjölskyldan: Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi.
Þriðjudagur 6. febrúar
kl. 19.00-20.30 Heilbrigðisþjónusta í þróun: Ásta Möller, alþingismaður.
kl. 20.45-22.15 Árangursríkur málflutningur: Gísli Blöndal, markaðs- og
þjónusturáðgjafi.
Fimmtudagur 8. febrúar
kl. 19.00-20.30 Ríkisfjármál/efnahagsmál: Geir H. Haarde, fjármálaráðherra.
kl. 20.45-22.15 Sveitarfélög í örum vexti: Ásdís Halla Bragadóttir,
bæjarstjóri í Garðabæ.
Mánudagur 12. febrúar
kl. 19.00-20.30 Hugvitið verður í askana látið: Eyþór Arnalds, forstjóri
Íslandssíma.
kl. 20.45-22.15 Árangursríkur málflutningur: Gísli Blöndal.
Þriðjudagur 13. febrúar
kl. 19.00-20.30 Nýting náttúru landsins í þágu ferðaþjónustunnar:
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra.
kl. 20.45-22.15 Borgin - Seinni hálfleikur: Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
borgarstjórnarflokksins.
Fimmtudagur 15. febrúar
kl. 19.00-22.15 Sjónvarpsþjálfun: Gísli Blöndal og Björn G. Björnsson,
kvikmyndagerðarmaður.
Mánudagur 19. febrúar
kl. 19.00-20.30 Greina- og fréttaskrif: Gréta Ingþórsdóttir,
framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna.
kl. 20.45-22.15 Að taka þátt í flokksstarfi: Hanna Birna Kristjánsdóttir,
aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Þriðjudagur 20. febrúar
kl. 19.00-20.30 Fjölmiðlar og stjórnmál: Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
alþingismaður.
kl. 20.45-10.15 Fagur fiskur í sjó: Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra.
Fimmtudagur 22. febrúar
kl. 19.00-20.30 Menntun og menning á tímum hnattvæðingar:
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra.
kl. 20.45-22.15 Samkeppnishæfni ísl. vinnumarkaðar: Gunnar Páll
Pálsson, forstöðumaður VR.
Mánudagur 26. febrúar
kl. 19.00-20.30 Íslenska stjórnkerfið á nýrri öld: Hannes H. Gissurarson,
prófessor við HÍ.
kl. 20.45-22.15 Hvað eru og hvað gera sveitarfélög?: Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Þriðjudagur 27. febrúar
kl. 19.00-20.30 Jafnrétti í reynd: Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur.
kl. 20.45-22.15 Ísland í samkeppni þjóðanna: Tómas Ingi Olrich,
alþingismaður og formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Fimmtudagur 1. mars:
kl. 20.00-22.00 Heimsókn í Alþingi.
Starfshættir Alþingis og meðferð þingmála:
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
Skólaslit.
Staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Tími: 5. febrúar til 1. mars.
Innritun:
Sími 515 1700/1777 - bréfsími: 515 1717
Heimasíða: http://www.xd.is
netfang: xd@xd.is
Þáttökugjald: kr. 11.000
Nemendagjald: kr. 9.000
BRÉF TIL BLAÐSINS
Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs,
Árni Steinar Jóhannsson, Jón Bjarnason,
Kolbrún Halldórsdóttir,
Steingrímur J. Sigfússon, Þuríður Backman
og Ögmundur Jónasson
verða á ferð um landið vikuna 29. janúar til 2. febrúar. Þau bjóða til
spjallfunda um stjórnmál í heimabyggð, landsmálin og hvaðeina
sem heimamenn vilja taka til umræðu á eftirtöldum stöðum:
Mánudagur 29. janúar
Svartiskógur, Norður-Héraði, kl. 15:00 - Þuríður, Árni Steinar og Ögmundur
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað, kl. 20:00 - Þuríður, Árni Steinar
og Ögmundur
Veitingahúsið Krákan, Grundarfirði, kl. 20:00 - Jón og Kolbrún
Þriðjudagur 30. janúar
Hótel Bjarg, Fáskrúðsfirði, kl. 15:00 - Þuríður og Árni Steinar
Hótel Bláfell, Breiðdalsvík, kl. 20:00 - Þuríður og Árni Steinar
Verkalýðshúsinu, Stykkishólmi, kl. 20:00 - Jón og Kolbrún
Miðvikudagur 31. janúar
Langabúð, Djúpavogi, kl. 9:30 - Þuríður og Árni Steinar
Pakkhúsið, Höfn Hornafirði, kl. 19:30 - Stofnun félagsdeildar VG á Höfn
Kl. 20:00 hefst í Pakkhúsinu opinn fundur með Árna Steinari, Jóni,
Kolbrúnu, Steingrími og Þuríði
Fimmtudagur 1. febrúar
Freysnes kl. 14:00 - Árni Steinar, Jón, Kolbrún, Steingrímur og Þuríður
Hótel Kirkjubæjarklaustur, kl. 20:00 - Árni Steinar, Jón, Kolbrún,
Steingrímur og Þuríður
Föstudagur 2. febrúar
Víkurskáli, Vík, kl. 10:30 - Árni Steinar, Jón, Kolbrún og Þuríður
Vinstrihreyfingin - grænt framboð.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 51
ÞAÐ eru margir sem geta sagt
sögur af undarlegum símhringing-
um, mannaferðum í lokuðum göt-
um eða eiga um sárt að binda
vegna þess að óprúttnir náungar
læddust um hús þeirra að næt-
urlagi, skemmandi eignir sem ekki
verða bættar. Oft hefur fólk sagt
frá því að eftir innbrot leið því
ekki vel í húsi sínu, var aldrei
öruggt um sig og vildi helst flytja.
Það er án efa ótrúlega sár
reynsla að vera t.d. að koma úr fríi
og koma að húsi sínu brotnu og
skemmdu, sjá persónuleg verð-
mæti eyðilögð og skynja það að
ósvífið fólk hafi farið höndum um
hluti sem manni þykir vænt um.
Hvað þá að vakna við slíkt eða
jafnvel að koma að húsi sínu og
finna barn sitt í felum undan inn-
brotsþjófum.
Hvað er hægt að gera?
Líklega er besta leiðin sú að
vaka yfir umhverfi sínu og taka
höndum saman við nágrannana
gegn skemmdarvörgum. Ná-
grannavarsla er hugtak sem nær
yfir þær forvarnir sem nágrannar
taka höndum saman um. Hug-
myndin er sú að hver hyggi að
sínu, geri þjófum erfitt fyrir með
að komast inn og taki þátt í að
fylgjast með óeðlilegum manna-
ferðum í grenndinni. Ef ég fer t.d.
til útlanda í sumarfrí þá er ým-
islegt sem ég get fengið granna
mína til að sinna og ég geri það
sama fyrir þá. Við gætum sett rusl
í tunnur hvers annars, kveikt og
slökkt ljós, hreyft bíla á bílastæð-
um, hengt þvott á snúrur hvers
annars o.s.frv.
Allt þetta gefur vísbendingar til
óprúttinna aðila að vakað sé yfir
málum og að þeim væri sæmst að
halda sig fjarri.
Af þessu tilefni verður fundur í
Setbergsskóla þriðjudaginn 30.
janúar kl. 20.30. Þar munu ýmsir
kynna málefnið og vonandi munu
nágrannar í hverfinu sýna sam-
stöðu gegn innbrotsþjófum og
skemmdarvörgum.
MAGNÚS ÞORKELSSON,
aðstoðarskólameistari
í Flensborgarskóla.
Geta grannar
hjálpast að?
Frá Magnúsi Þorkelssyni:
Nágrannavarsla í Setbergs-
landi og Mosahlíð