Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGuðmundur Þ. Guðmundsson lands-
liðsþjálfari í handknattleik / B1
Björgvin Björgvinsson var óstöðv-
andi í Hlíðarfjalli / B12
12 SÍÐUR40 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
SIGURSTEINN Baldursson hjól-
reiðakappi er að leggja lokahönd á
undirbúning eins lengsta ferðalags
sem Íslendingur hefur tekið sér fyr-
ir hendur. Hann ætlar að hjóla 35
þúsund kílómetra frá norðurströnd
Alaska og niður alla Norður- og
Suður-Ameríku þar sem hann endar
á suðurströnd Argentínu, „hjóla á
milli póla“, eins og hann segir sjálf-
ur, en lengri samfellda landleið er
ekki hægt að fara á jarðarkringl-
unni.
„Þetta er gömul ævintýraþrá sem
ég er að uppfylla,“ segir Sig-
ursteinn þegar hann er spurður um
hvað knýi hann til fararinnar.
„Grunnhugmyndin kviknaði í landa-
fræðitíma þegar ég var í grunn-
skóla. Leiðin varð endanleg í huga
mér fyrir sex árum og þá hófst und-
irbúningurinn sem hefur staðið
óslitinn síðan.“ Sigursteinn segir
ævintýraþrána hafa verið helsta
hvatann að ferðinni sem og þann
fjölbreytileika sem á vegi hans verð-
ur. Ferðalagið er um öll veðurbelti
jarðarinnar, frá ógnargaddi á
McKinley-fjalli þar sem frostið fer
niður í um 50 stig og yfir í rakan
frumskógarhita Mið-Ameríku.
Farangur metinn út
frá notagildinu
Ferðin krefst mikils undirbúnings
og sérhver hlutur sem tekinn er
með í ferðina er metinn með nota-
gildi og nauðsyn í huga enda ber
hjólreiðakappinn sjálfur allan far-
angurinn ferðina á enda. „Jákvætt
hugarfar er lykilforsenda undirbún-
ingsins en sérhæfður búnaður spilar
auðvitað stórt hlutverk. Allt sem ég
tek með mér, þar með talið hjólið,
vegur minna en 70 kíló,“ segir Sig-
ursteinn og bendir á að tíundi hluti
farangursins er myndavélabúnaður
enda áætlar hann að taka um 60 til
70 þúsund myndir í ferðinni. Far-
arskjótinn er svo sérútbúið hjól sem
sett er saman úr sex öðrum hjólum.
Verði birnir eða fjallaljón á veg-
inum er piparúði við höndina og
sjúkdómum er haldið í öruggri fjar-
lægð með hjálp bólusetninga.
Aðalóvissan er óútreiknanlegt
stjórnmálaástand syðst í álfunni og
þá sérstaklega í Kólumbíu. „Þar er
um átta þúsund manns rænt á
hverju ári, mannrán eru svo eðlileg-
ur hlutur að það þykir ekki einu
sinni fréttnæmt þegar einn og einn
túristinn enn hverfur,“ segir Sigur-
steinn og glottir, hann segist ætla að
hjóla hratt í gegnum Kólumbíu með
stuttu stoppi í einum háskólanna
þar í landi þar sem hann hefur verið
bókaður til fyrirlestrahalds.
Þegar hann er spurður um líkam-
legan undirbúning og hvernig hon-
um sé hagað segist Sigursteinn
minnstar áhyggjur hafa af þeim
þætti, það sé einveran sem hann
hafi meiri áhyggjur af. „Það er and-
legi þátturinn – tilhugsunin að vera
einn á ferð í tvö ár – sem vegur
þyngra en líkamleg hreysti, ég fór
til dæmis einn út að borða fyrir
skömmu, eingöngu til að prófa það,
og það var skrítin tilfinning að sitja
aleinn við málsverð og fara svo einn
í bíó á eftir,“ segir Sigursteinn og
hlær við, enda er félagsþörfin rík í
eðli sérhvers manns.
Tengist námsefni
í grunnskólum
Íslenskir grunnskólanemar munu
geta fylgst vel með ferð Sigursteins
þar sem hún verður tengd námsefni
í landafræði í grunnskólunum
næstu tvö árin. Krakkarnir fylgjast
með ferðalaginu og geta spjallað við
Sigurstein í tölvupósti auk þess sem
haldnir verða símafundir með
bekkjum þegar aðstæður leyfa.
Leiðangurinn hefst 15. maí nk. og
áætluð heimkoma er á svipuðum
árstíma – árið 2003.
Sigursteinn Baldursson ætlar að hjóla á milli póla
Ævin-
týraferð
yfir fjöll
og álfur
Morgunblaðið/Ásdís
Sigursteinn Baldursson hyggur nú að lokaundirbúningi ferðarinnar.
!"
#$%&' (
%)*#+
,)%!
SAMNINGANEFNDIR sjómanna-
samtakanna og Landssambands
íslenskra útvegsmanna hittust á
fundi hjá ríkissáttasemjara í gær.
Eftir því sem næst verður komist
dró ekkert saman í viðræðunum
og er staðan því óbreytt. Nýr
fundur hefur verið boðaður á
morgun, miðvikudag, kl. 14. Með-
an ekki nást samningar liggja
stór og smá fiskiskip bundin í
höfnum landsins.
Ekkert
dró saman í
sjómanna-
deilunni
Morgunblaðið/Kristinn
ÞRÍR menn sem sitja í gæsluvarð-
haldi vegna smygls á rúmlega 7.000
e-töflum og átta kílóum af hassi voru
handteknir í bifreið á fimmtudag
skömmu eftir að þeir leystu út vöru-
sendingu hjá hraðflutningafyrir-
tæki. Fíkniefnunum hafði verið kom-
ið fyrir í hátölurum.
Á föstudag úrskurðaði héraðs-
dómur Reykjavíkur mennina í
tveggja vikna gæsluvarðhald. Tveir
mannanna eru um fertugt en sá
þriðji rúmlega fimmtugur. Fleiri
voru handteknir vegna málsins en
þeim var sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
Samkvæmt verðkönnun SÁÁ
nemur söluverðmæti efnanna rúm-
lega 34 milljónum króna.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, vill ekki
staðfesta að mennirnir hafi áður
hlotið dóm vegna fíkniefnamála eða
að þeir hafi áður komið við sögu
fíkniefnamála.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík fer með rannsókn máls-
ins.
Þrír í varðhaldi
vegna smygls
KONA á fertugsaldri var í gær svipt
ökurétti í eitt ár og dæmd til að
borga 62.000 króna sekt í ríkissjóð
fyrir ölvunarakstur. Í dómi héraðs-
dóms Reykjavíkur kemur fram að
magn alkóhóls í blóði hennar reynd-
ist vera 2,31 prómill. Sé ökumaður
með 0,5 prómill í blóði telst hann
óökufær.
Konan neitaði sök og sagði skýrslu
lögreglunnar í veigamiklum atriðum
ranga. Hún hefði ekki ekið bifreið-
inni heldur setið í henni þegar lög-
regluna bar að. Þá hefði lögreglan
beitt hana miklu ofbeldi sem hún
taldi hafa staðið í marga klukkutíma.
Í læknisskýrslu segir að konan hafi
verið í andlegu uppnámi þegar hún
kom á slysadeild. Ekki var þó grunur
um meiriháttar meiðsl.
Konan var handtekin skömmu fyr-
ir kl. 7 á laugardagsmorgni og sam-
kvæmt skýrslu varðstjóra var komið
með hana á lögreglustöðina kl. 7.04.
Þrír lögreglumenn báru að þeir
hefðu séð konuna aka bifreiðinni
stuttan spöl áður en akstur hennar
var stöðvaður. Þeir höfðu þá stuttu
áður haft afskipti af konunni þar sem
hún sat í bifreiðinni og gert henni
grein fyrir að hún gæti ekki ekið bif-
reiðinni. Konan neitaði að gefa önd-
unarsýni að lokinni handtöku, neit-
aði að gefa kennitölu og neitaði
yfirhöfuð að ræða við lögregluna.
Sögðu lögreglumennirnir að konan
hefði barist um þegar hún var leidd
inn í lögreglubifreiðina en síðan
sofnað áfengissvefni.
Konan hafði tvívegis gengist undir
sátt og hlotið einn dóm fyrir brot á
umferðarlögum og verið svipt öku-
rétti af þeim sökum. Síðast hlaut hún
dóm árið 1993, varðhald í 30 daga
auk ævilangrar ökuleyfissviptingar,
en henni voru veitt ökuréttindi að
nýju fimm árum seinna.
Auk sektarinnar var konan svipt
ökuréttindum í ár og henni gert að
greiða allan sakarkostnað.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Sektuð og svipt ökuréttindum
fyrir ölvunarakstur
Taldi lögregl-
una hafa beitt
sig ofbeldi
UPPBOÐSFYRIRTÆKIÐ
Thomas Høyland auktioner í
Kaupmannahöfn hefur dregið til
baka frímerkt umslag sem talið
er vera með falsaðri utanáskrift
og selja átti á uppboði í lok mán-
aðarins. Verður umslagið nú eyði-
lagt.
Morgunblaðið greindi frá um-
ræddu umslagi á sunnudag, en
það er frá árinu 1897. Frímerkin
og stimpillinn, sem eru frá sama
ári, eru upprunaleg en utaná-
skriftin er talin fölsuð sem bendir
til þess að bréfið hafi aldrei farið í
póst og sé því minna virði en ella.
Thomas Høyland segist ekki hafa
vitað um tilurð umslagsins fyrr
en hann las um það í Morgun-
blaðinu um helgina og segist þá
hafa ákveðið að draga það til
baka af uppboðinu. „Við viljum
alls ekki selja þetta umslag og
munum eyðileggja það en halda
eftir frímerkjunum með stimpl-
inum, enda eru þau ekta.“
Umslagið verð-
ur eyðilagt