Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 27
MIKLAR umræður eru nú í Bret-
landi um framtíð konungdæmisins
í kjölfar nýs hneykslis vegna hisp-
urslausra ummæla Sophie, greif-
ynju af Wessex, um menn og mál-
efni. Vilja sumir að Bretar taki sér
til fyrirmyndar norrænar hefðir í
málum konungdæmisins og dregið
verði úr útgjöldum vegna þjóð-
höfðingjans. Dagblaðið Independ-
ent sagði að skyldulið Windsor-
ættarinnar væri búið að láta
óstöðvandi hneigðina til að grafa
sína eigin gröf stýra sér og afleið-
ingarnar væru mun áhrifaríkari en
skynsamleg rök fyrir umbótum.
„Rökin fyrir því að koma á um-
fangsminna og reiðhjólavæddu
konungdæmi eru allt í einu orðin
meira sannfærandi,“ sagði blaðið.
Sophie gefur í skyn í viðtalinu
að Elísabet drottningarmóðir, sem
orðin er hundrað ára gömul, komi
í veg fyrir að Karl prins geti gifst
æskuvinkonu sinni, Camillu Parker
Bowles. Að sögn Sophie hefur
Tony Blair forsætisráðherra ekki
hundsvit á vanda landbúnaðarins,
konan hans er „enn verri“ í þeim
efnum og hatar landsbyggðina.
Fjárlagatillögur Gordons Browns
fjármálaráðherra eru ekkert ann-
að en kosningabrella.
William Hague, leiðtogi Íhalds-
flokksins, segir hún að sé vel gef-
inn en því miður hljómi hann eins
og „strengjabrúða“. Ljóst er að í
fyrstu frásögnum annarra fjöl-
miðla en The News of the World
voru sum ummælin ýkt og rang-
færð. Blaðið segist nú hafa ákveðið
að birta ummælin orðrétt til að
hreinsa andrúmsloftið en áður
hafði það samið við greifynjuna
um að gera það ekki.
Þrátt fyrir ummælin segist Blair
styðja konungdæmið af eindrægni
og Hague tók upp hanskann fyrir
greifynjuna. „Hver úr röðum okk-
ar, þekktra einstaklinga í opinberu
lífi, hefur ekki einhvern tíma gert
mistök?“ spurði hann og ráðlagði
fólki að gleyma ummælunum.
Viðskiptafélagi greifynjunnar,
Murray Harkin, hefur einnig við-
urkennt í viðtali að neyta öðru
hverju kókaíns og rætt um að hann
geti skipulagt teiti fyrir samkyn-
hneigða og kynlífsferðalög fyrir
viðskiptavini. Sophie og Harkin
sögðu bæði upp störfum sínum á
sunnudag en greifynjan mun eiga
meirihluta í fyrirtækinu.
„Fórnarlamb gildru“
Sophie, sem hét upprunalega
Sophie Rhys-Jones og er 36 ára, er
eiginkona Játvarðs prins, yngsta
sonar Elísabetar drottningar.
Gengu þau í hjónaband fyrir tveim
árum. Hún er sögð dugleg og lífs-
glöð, er af borgaralegum ættum og
notar sjálf ekki greifynjutitilinn,
kallar sig Sophie Wessex. Rétt fyr-
ir brúðkaupið komst dagblað yfir
gamla ljósmynd af henni þar sem
hún var nakin að ofanverðu í
ferðalagi á Spáni, einnig vakti það
athygli að hún ákvað að halda
áfram störfum við fyrirtæki sitt
eftir hjónabandið.
Hinn 1. apríl síðastliðinn lét Sop-
hie blekkjast af blaðamanni frá
blaðinu News of the World til að
tjá sig um um konungsfjölskyld-
una, stjórnmál, fyrirtækjarekstur
sinn og gagnið sem hún hefði þar
af tengslunum við hirðina. Blaða-
maðurinn sagðist vera arabískur
sheik og vilja eiga viðskipti við fyr-
irtæki greifynjunnar og hljóðritaði
samtalið sem birt var að hluta á
sunnudag. Sama dag sagði Sophie
af sér formennsku í stjórn fjöl-
miðlafyrirtækis síns er nefnist R-
JH. Hún segist iðrast gerða sinn
ákaft, einkum þætti sér slæmt að
hafa komið drottningunni í vanda
en sagðist vilja áfram gegna borg-
aralegu starfi.
„Ég er í öngum mínum yfir því
að hafa orðið fórnarlamb gildru
sem lögð var fyrir mig og fyr-
irtæki mitt en einnig iðrast ég sárt
dómgreindarleysis míns þegar ég
féll fyrir blekkingunni,“ sagði hún.
Elísabet II. drottning sendi frá
sér yfirlýsingu þar sem hún for-
dæmdi blekkingar blaðsins gagn-
vart greifynjunni en jafnframt
sagði að samdar yrðu nýjar leið-
beiningar fyrir fólk í konungsfjöl-
skyldunni um launuð störf sem það
gegndi. Væri það nauðsynlegt í
ljósi mála Sophie að tryggja að
ekki kæmi til „hagsmunaárekstra“.
Á hinn bóginn var lýst stuðningi
við ósk hennar um að halda áfram
að vinna eins og Játvarður. „Þetta
er ekki auðvelt og þau feta ótroðn-
ar slóðir en það er rétt að á okkar
tímum sé þeim leyft það,“ sagði í
yfirlýsinguni.
Löng röð hneykslismála
Hneyksli af ýmsu tagi hafa ein-
kennt bresku konungsfjölskylduna
síðustu árin en hún þótti áður
mjög vönd að virðingu sinni. Má
nefna hjónabandsörðugleika og
skilnað Karls ríkisarfa og Díönu
heitinnar prinsessu, skilnað Önnu
prinsessu, skilnað Andrésar prins,
framhjáhald Karls með æskuást-
inni Camillu Parker-Bowles sem
var þá eins og hann gift en er nú
skilin. Nú bætast við grunsemdir
um að Sophie og Játvarður, sem
ber titilinn jarl, misnoti aðstöðu
sína til að hagnast í fyrirtækja-
rekstri.
Almannatengslafyrirtæki Sophie
er með um 80 milljóna króna árs-
veltu og hefur bækistöð í einu dýr-
asta hverfi London, Mayfair. Eru
laun hennar talin vera tæp 100
þúsund pund á ári, nær 12 millj-
ónir króna. Játvarður rekur á hinn
bóginn sjónvarpsmyndafyrirtækið
Ardent sem hann stofnaði 1993.
„Ég er smeykur um að töfrarnir
séu horfnir,“ sagði þingmaðurinn
Tony Wright í gær í útvarpsviðtali
við BBC um framtíð konungdæm-
isins. „Við verðum að taka ákvörð-
un um það hvernig hægt sé að láta
stjórnarskrárbundið konungdæmi
virka og hvort við eigum að gera
það.“ Hann sagði nauðsynlegt að
ríkisstjórnin tæki framtíð kon-
ungdæmisins til gagngerrar end-
urskoðunar og ef það yrði ekki
gert myndi það líða undir lok.
Dagblaðið The Mirror var ekk-
ert að skafa utan af hlutunum í
leiðara um konungsfjölskylduna,
sagði þjóðina ekkert þurfa á „þess-
um örverpum“ að halda og enn síð-
ur mökum þeirra. Þingmaðurinn
Jeremy Corbin, sem er vinstrisinni
í Verkamannaflokki Blairs, hefur
áður lagt til að konungdæmið
verði lagt niður og annaðhvort
kjósi þingið þjóðhöfðingja eða
hann verði þjóðkjörinn. Corbin
ítrekaði í gær skoðanir sínar á
konungdæminu. Lagði hann til að
tækifærið yrði notað þegar ferli
núverandi drottningar lýkur en oft
hefur verið rætt um að hún muni
segja af sér og þoka þannig fyrir
Karli sem er rúmlega fimmtugur.
Sophie greifynja af Wessex hættir störfum hjá almannatengslafyrirtæki sínu í kjölfar hneykslis
Vilja „reiðhjóla-
vætt“ konungdæmi
London. AP.
Reuters
Játvarður, jarl af Wessex og yngsti sonur Elísabetar Bretadrottningar,
ásamt eiginkonu sinni, Sophie, greifynju af Wessex, í opinberri mót-
tökuveislu í Barein í lok mars.Viðtalið sem nú hefur valdið hneyksli mun
hafa verið tekið í ferðalaginu.
Reuters
Sophie, greifynja og eiginkona
Játvarðar jarls af Wessex, kem-
ur til skrifstofu sinnar við
Mayfair í Lundúnum í gær.