Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 13
VEGLEG dagskrá verður í Þorgeirs-
kirkju að Ljósavatni og Húsavíkur-
kirkju í tilefni af lokum kristnihátíðar
sem staðið hefur yfir síðustu tvö ár.
Dagskráin verður á páskadag, 15.
apríl.
Hátíðarguðsþjónusta verður í Þor-
geirskirkju kl. 14 þar sem kór presta-
kallsins syngur undir stjórn Dagnýj-
ar Pétursdóttur. Elma Atladóttir
syngur einsöng og hjónin Marika og
Jaan Alavere leika á fiðlur. Sr. Arn-
aldur Bárðarson prédikar en prófast-
urinn sr. Pétur Þórarinsson og sr.
Sighvatur Karlsson á Húsavík þjóna
fyrir altari. Halldór Blöndal forseti
Alþingis flytur ávarp í lok messunnar.
Hátíðartónleikar verða í Húsavík-
urkirkju kl. 17 á páskadag þar sem
flutt verður fjölbreytt dagskrá.
Kirkjukór Húsavíkur syngur undir
stjórn Judit György við undirleik Ald-
ár Rácz auk þess sem Adrienne D.
Davis leikur á þverflautu með kórn-
um. Gospelkór Húsavíkur flytur létta
trúarsöngva undir stjórn Fjalars
Freys Einarssonar við undirleik
Kaldo Kiis. Sjö einsöngvarar koma
fram, þau Elísabet Hauge mezzó-
sópran, Hildur Sigurðardóttir sópr-
an, Kristján Þ. Halldórsson baritón,
Judit György sópran, Garðar Egg-
ertsson bassi, Baldvin Kr. Baldvins-
son tenór og Aðalsteinn Júlíusson
tenór. Einnig kemur fram sjö manna
sönghópur sem syngur „Eitt er orð
Guðs“ eftir G. Fauré. Þá koma hljóð-
færaleikararnir Lára S. Jóhannsdótt-
ir á fiðlu, Kaldo Kiis á básúnu, Adri-
enne D. Davís á þverflautu, Aldár
Ráce á píanó og orgel og Judit Gy-
örgy á orgel einnig fram.
Kristnihátíð lýkur
Dagskrá í
Þorgeirs-
kirkju
FJÖLBREYTT dagskrá verður á
Skíðasvæðinu í Tindaöxl í Ólafsfirði
um páskana, en þar verður boðið
upp á hin ýmsu mót auk þess sem
opin verður þrauta- og leikjabraut
fyrir börnin.
Dagskráin hefst með skaflamessu
á skírdag kl. 13.30, en að henni lok-
inni tekur við parakeppni á öðru
skíðinu. Tveir eru í liði, karl og
kona og er annað að vinstra skíðinu
en hitt á því hægra. Símnúmeramót
verður á föstudaginn langa og er
keppt í flokkum heimilissíma, fyr-
irtækjasíma og farsíma. Á laugar-
dag fyrir páska verður svigmót í
öllum flokkum og þá verður einnig
fjölskylduboðganga þar sem verða
þrír í sveit og etja kappi í stuttri
boðgöngu í ljósabraut.
Á páskadag verður svonefnt
„ættarmót“ í alpagreinum.
Kiwanismótið í göngu verður
haldið annan páskadag og þann
sama dag veður samhliðasvigleikur
á brettum.
Skíðasvæðið verður opið alla dag-
ana frá kl. 11 til 17. Göngubraut
verður einnig opin og þá verða sér-
stakir leikjatímar fyrir á yngstu en
þeir hefjast kl. 11 á morgnana.
Skíðapáskar
í Tindaöxl
FÉLAGSMÁLARÁÐ hefur sam-
þykkt að veita Magnúsi Ólafssyni
heilsugæslulækni 150 þúsund styrk
vegna rannsóknarverkefnis. Magnús
óskaði eftir styrk að upphæð 300
þúsund krónur. Rannsókn hans er
ætlað að kanna mögulegt samspil of-
fitu og ofþyngdar og námsárangurs
og líðanar hjá grunnskólabörnum.
Samspil of-
fitu og náms-
árangurs
Félagsmálaráð
veitir styrk
HILDUR Kristín Jakobsdóttir læt-
ur ekki deigan síga þótt hún sé
þjökuð af parkinsonssjúkdómi, en
hún opnaði í síðustu viku sýningu
á verkum sínum í tómstunda-
miðstöðinni Punktinum við Kaup-
vangsstræti á Akureyri.
Hún átti lengst af heima á
Hvammstanga en flutti til Ak-
ureyrar síðasta haust, „til að vera
nær þeim góða lækni, Gunnari
Friðrikssyni, sem uppgötvaði sjúk-
dóminn fyrir tveimur árum,“ segir
hún, en álitið er að hún hafi geng-
ið með sjúkdóminn í allt að 13 ár
þar á undan. Greining fékk hins
vegar ekki fyrr en nú fyrir tveim-
ur árum. Það vildi þannig til að
Hildur var á gangi á Hvamms-
tanga og datt illa með þeim afleið-
ingum að hún tvíökklabrotnaði,
leggbrotnaði og reif liðbönd í
ökkla. Hildur náði að skríða heim
til sín og hringja í eiginmann sinn,
Gunnar Valgeir Sigurðsson sem
kom henni til hjálpar.
Alltaf kvalin
en ekkert fannst
Hún var þá send til aðhlynn-
ingar á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri og kom þá jafnframt í
ljós að það sem þjakað hafði hana
í mörg ár var parkisonssjúkdóm-
ur. Hún hafði margoft leitað lækn-
is vegna verkja en án árangurs.
„Ég lagðist á þessum tíma fjórum
sinnum inn á geðdeild. Ég var allt-
af kvalin, en það fannst ekkert að
mér þannig að mér fannst að þá
hlyti eitthvað að vera að sálinni í
mér. Geðlæknarnir hérna sögðu
mér hins vegar að ég væri ekki
haldin geðsjúkdómi og vitnuðu
meðal annars til þess að ég væri
svo jákvæð og smitaði alla í kring-
um mig,“ sagði Hildur.
Síðasta haust fluttu þau hjónin
frá Hvammstanga til Akureyrar
og hefur Hildur farið á hverjum
virkum degi í tómstundamiðstöð-
ina Punktinn, en þar vann hún að
myndunum sem nú eru sýndar
þar. Hildur starfaði lengi sem
handavinnukennari á Hvamms-
tanga, en hún segir að það sé sitt
lán að geta saumað. „Ég er svo
hamingjusöm að guð gaf mér vit
til að sauma,“ sagði hún.
Dregur nálina út
með tönnunum
Eitt sinn saumaði hún brúðu
sem hún gaf nafnið herra Park-
inson og þegar henni líður illa af
völdum sjúkdómsins tekur hún nál
og stingur í brúðuna. „Ég læt
sjúkdóminn ekki stjórna mér, ég
reyni að halda mínu striki og
sinna því sem ég mögulega get.
Auðvitað kostar það margvíslegar
tilfæringar oft á tíðum, en þetta
potast allt,“ sagði Hildur, en hún
Sigga á Punktinum útbjó fyrir
hana ól sem hún vefur um hönd
sér og í lófanum er leður sem hún
notar til að ýta nálinni áfram.
Stundum hefur hún ekki mátt til
að draga nálina út og þá grípur
hún til þess ráðs að nota tenn-
urnar. Þannig getur hún áfram
setið við saumaskap sem gefur
henni mjög mikið og notið hins
góða félagsskapar sem fyrir hendi
er á Punktinum. „Það er alveg
yndislegt fólk hér og gott að
vera.“ Hún hefur útbúið bréfa-
klemmu á þann veg að hún nýtist
við að þræða nálina og nú fyrir
skömmu datt henni í hug að segja
hak á sleif og ætlar að athuga
hvort slíkt hjálpartæki nýtist sér
til að hekla. „Ég sakna þess að
geta ekki heklað lengur, en ég
ætla að athuga hvort ég get það
með sleifinni.“
Hildur segist engan veginn
nenna að vera veik og henni fellur
ekki verk út hendi. „Ég ætla aldr-
ei að gefast upp, það er nauðsyn-
legt að hafa eitthvað við að vera
sem heldur manni gangandi og þó
ég sé oftast kvalin af verkjum þá
hlakka ég til hvers nýs dags,“
sagði Hildur en sjúkdómurinn
leggst í vöðva og veldur miklum
kvölum. Hún fær rafmagnsstuð
þrisvar á sólarhring og það veldur
því að henni líður betur á eftir.
„Og svo er maðurinn minn dugleg-
ur að hita fyrir mig grjónabakstra
í örbylgjuofninum, en hann er
óskaplega góður við mig og sér al-
veg um að gera allt fyrir mig, því
það er svo margt sem ég get ekki
sjálf. Ef ég ætti hann ekki að
þyrfti ég að vera á stofnun og það
líst mér nú ekki nægilega vel á.“
Býr til mynstur
í huganum
Hildur sagðist alla tíð hafa verið
jákvæð, „ég nenni ekki að vera
neikvæð, það er svo leiðinlegt,“
útskýrir hún. Margt hefur hún þó
misjafnt reynt á lífsleiðinni, en af
6 börnum sínum hefur hún misst
3. „Ég hef alltaf reynt að vera
sterk, sama hvað á dynur.“
Hún sagði að það sæist á lita-
samsetningu myndanna hvernig
henni liði. „Þegar mér líður illa
hvíli ég mig og bý til mynstur í
huganum, ég reyni alltaf að hugsa
eitthvað fallegt. Ef ég sé fyrir mér
fallega liti og mynstur þá líður
mér ekki svo illa, svona reyni ég
að plata sjúkdóminn,“ sagði Hild-
ur.
Hún fer í sund á Kristnesi einu
sinni í viku, tvisvar sinnum sækir
hún æfingar á Bjargi og einnig fer
hún í nudd. „Ég reyni að gera allt
sem gerir mér gott, maður verður
að gera sem mest sjálfur. Það er
mjög gott að sækja þessa staði,
yndislegt fólk sem tilbúið er að
gera svo mikið fyrir mann.“
Þegar Hildur vann að undirbún-
ingi sýningarinnar átt hún í raun
að vera á sjúkrahúsi, en sagðist
ekki hafa haft til þess tíma. Það
var svo mikið að gera. Sýningin
verður opin til næstu mánaðamóta
á sama tíma og opið er á Punkt-
inum.
Morgunblaðið/Kristján
Hildur Kristín Jakobsdóttir við tvö af verkum sínum á sýningunni á Punktinum á Akureyri.
Hildur Kristín Jakobsdóttir lætur parkinsonssjúkdóm ekki aftra sér frá listsköpun
Nenni ekki að vera veik
Nokkur verk Hildar Kristínar.
Hildur Kristín þarf að bíta í nálina við saumaskapinn, þar sem hún hefur
ekki kraft til að draga hana í gegn með höndunum.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦