Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 59
Þessari spurningu sem og öðrum verður svarað á æðri stöðum og við verðum að sætta okkur við að bíða þeirrar vitneskju sem við fáum þar, þegar að okkur kemur. Þakklæti er okkur hjónunum efst í huga fyrir að hafa fengið að þekkja Tobbu og eiga hana að vini, sem í okkar augum eru forréttindi. Við kynntumst Tobbu og Magga, mann- inum hennar, á ferðalagi fyrir 24 ár- um í Ródesíu sem nú heitir Zim- babve, þar sem þau bjuggu um skeið. Í raun má segja að Afríka hafi átt hug þeirra hjóna alla tíð, þótt þau hafi seinna flutt heim til Íslands. Sérstaklega fannst henni erfitt að sætta sig við kuldann hér heima og má segja að rætur hennar hafi að hluta til orðið eftir á suðurslóðum, en dóttirin Sonja býr í Höfðaborg í Suð- ur-Afríku ásamt eiginmanni og ung- um syni. Þetta barnabarn hennar var augasteinninn hennar en hún fékk bara því miður ekki að fylgjast með uppvexti hans eða sjá fleiri barnabörn eins og hana dreymdi um. Eftir heimkomuna til Íslands styrktust vináttuböndin sem höfðu myndast við Tobbu og Magga í Afr- íku og má segja að þau bönd hafi haldið áfram að styrkjast allt fram á þennan dag. Hugurinn leitar tvö ár aftur í tím- ann er þau komu að heimsækja okk- ur í maímánuði í hjólhýsið okkar sem við höfðum komið fyrir á landskika sem við höfðum keypt í Eyrarskógi í Svínadal. Áttum við þar saman ynd- islega stund sem endaði með því að þau ákváðu að slást í hópinn og kaupa sér líka land í skóginum. Leið ekki á löngu þar til allt var komið í gang og í júlí var fokheldur sumarbústaður fluttur á lóð, ekki fjarri staðnum þar sem okkar bú- staður átti að koma. Þá var hafist handa við að fullgera bústaðinn. Leið varla sú helgi sem þau voru ekki að vinna í honum, sumar sem vetur, og marga gleðistundina áttum við með þeim þar. Verða minning- arnar um þær stundir geymdar á vel vörðum stað í hugskoti okkar sem dýrmætustu gersemar. Í eðli sínu var Tobba dul, en samt geislaði af henni hlýju sem yljaði þeim um hjartaræturnar sem þekktu hana. Átti hún því marga vini og öllum vildi hún sinna. Jafnvel í veikindum sínum undir það síðasta þegar krafturinn var að dvínaa, lét hún aldrei í ljós þreytu gagnvart fólki, heldur var sígefandi. Minningin um hana mun halda áfram að ylja okkur þrátt fyrir að jarðnesku lífi hennar sé lokið. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við elsku Tobbu okkar og biðjum Guð um að styrkja Magga og dæturnar Sonju og Hegu í þeirra miklu sorg. Karítas og Hólmar. Elsku vinkona. Í dag kveðjum við þig, sem nú ert farin í þína hinstu ferð. Okkar vinátta hefur haldist í 40 ár, og aldrei borið skugga á. Okkur verður hugsað til unglingsáranna í barna- og gagnfræðaskólanum. Oft höfum við skemmt okkur yfir minn- ingum frá árinu sem við áttum sam- an stúlkur í London. Þá var tvistað á Wiský A go, go og borðaðir ham- borgarar og drukkið vanillusjeik á Wimpýs. Það vafðist ekki fyrir okk- ur að sauma kjól fyrir kvöldið eða greiða eðalgreiðslu. Síðan hefst nýr kafli í lífi okkar, sem snerist um framtíðina. Í þrem heimsálfum var stofnað til fjöl- skyldubanda. Á Íslandi, Afríku og Bandaríkjunum. Framtíðin bar með sér skin og skúrir í lífi okkar allra. En alla tíð studdum við hver aðra, í blíðu og stríðu. Elsku Tobba, við tókum allar þátt í gleði þinni, þegar dóttursonur þinn, Danimar Magnús, fæddist og þú varst orðin amma. Litli prinsinn hennar Sonju gaf þér gleði og ham- ingju eins og þú gafst okkur öllum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Elsku vinkona. Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Það er sárt að sjá á eftir þér, yndislega vin- kona, í blóma lífsins, en kveðjumst að sinni. Við vottum móður þinni Dórotheu, elskulegum manni þínum, Magnúsi, dætrunum Helgu og Sonju og henn- ar fjölskyldu, dýpstu samúð okkar. Þínar einlægar vinkonur, Ása, Unnur Gréta og Guðríður. Þá er baráttu Þorbjargar vinkonu minnar lokið. Hún stóð sig eins og hetja til síðasta dags. Ég fann svo vel styrk hennar í síðustu heimsókn- inni, aðeins tveimur dögum áður en hún kvaddi. Hugarfarið var enn já- kvætt og handtak hennar þétt. Þor- björg var fjölskyldumanneskja af öllu hjarta. Maggi og dæturnar voru henni allt og það var sérstaklega gaman að taka þátt í gleði hennar þegar fyrsta barnabarnið fæddist í fyrra. Ég á eftir að sakna einstakrar nærveru Þorbjargar bæði í vinskap og starfi. Fjölskyldu hennar votta ég mína dýpstu samúð. Sárt er vinar að sakna, sorgin er djúp og hljóð. Minningar djúpar vakna svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, leysir upp myrkrið svarta, vinur þó falli frá. Góðar minningar geyma, gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma, þér munum við ei gleyma, sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Þín vinkona Helga Briem. Ég kynntist Þorbjörgu þegar hún hóf störf í sendiráði Bandaríkjanna. Á milli okkar myndaðist ágætis vin- skapur. Við gáfum okkur alltaf tíma til að spjalla svolítið saman og skiptast á fréttum hvor af annarri. Ég fékk að heyra um það hvað hún og Maggi, eiginmaður hennar, höfðu afrekað að gera fyrir sumarbústað- inn um helgar en það voru alltaf ein- hverjar framkvæmdir í hverri ferð. Hún talaði líka oft um dætur sínar. Helgu, sem býr hér heima, og Sonju sem býr í Suður-Afríku. Hún varð svo stolt þegar Sonja eignaðist litla drenginn sinn og gerði hana að ömmu. Hún talaði oft og mikið um barnabarnið sitt. Verst þótti henni hvað það var langt að heimsækja hann. Þau létu verða af því um síð- ustu jól að fara til Suður-Afríku til þess að fjölskyldan gæti öll haldið jól saman. Ég mun minnast hennar með söknuði og sendi fjölskyldu hennar og ættingjum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi Þorbjörgu og veiti henni eilífan frið. Kallið er komið, komin er stundin. Vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Kristjana Óladóttir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 59 Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Persónuleg þjónusta Slóð heimasíðu okkar er runar@utfarir.is Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Símar 567 9110 og 893 8638 ;   .  * (    $   %                /  .4 /.4 /2    ,@ 7# $    ,'  . $ . , # . , 7' . , # ;, 2,,,'  $ 3. ) . , ,'  *- 0'# +-'  . , # $ . , ,' 4                        F/ 0 2  .#  "> ) $         :          9  0,-'# ')$F$,,'  *- !  & #  / F$,,'   + ,# 0'F$,#  3$  ,'  -1 ,  -  ,'   $ & -#  "  "1 #$"  "  "1  ;  .   .   (    $ %(%   $                    * 4! 2    -  3 #"  .         *        ,'  # # /+  ,' # 4, * , ,'   3  ,' # $ 3&   ,' ,'  7' ! " $ #   * $ ,' #  $    ,' # $ 3*  ,'  # $ 3# "  "1 #$+8 <     .   (   %(%   $  $%                 8       4* .     ;  ,:5 +8- ) 8  7'  # $  >)  #  G ,'  $ 7'  # 7# $  ,'  )  # <) ) ,'      #  0','    )$ ,'  $ $ # "  "1 #$"  "  "1  4           8       /&DJ  2  & 8->8- 8# !-'      :      1   :$ 7 ) *           7'  ,'  7'   0'# &  GK ,'  -1  / 83#  3/ 83,'   / 83,'  ; 0'# ) / 83#   " *-1 ,'    / 83# *  ) & #  / / 83,'     0' # / $ K/ 83,'  F   # + / 83# I  / *$# "  "1 #$"  "  "1 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.