Morgunblaðið - 10.04.2001, Page 20
VIÐSKIPTI
20 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Öruggari heimur með
Klapparstíg 27, sími 552 2522.
0—13 kg
m/sólskyggni og
höfuðpúða
Kr. 12.800
9—18 kg
5 hallastillingar
Kr. 14.900
15—36 kg
Frábær stóll
Hæðarstillt bak
Kr. 10.900
Ath: Lokað laugardag
fyrir páska.
í stærðfræði og öðrum raungreinum fyrir grunnskóla,
framhaldsskóla og háskóla. Ath. sérsniðið námskeið
fyrir grunnskólanema.
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan ehf.
Brautarholti 4, sími 551 5593.
www.tolst.com
NÁMSAÐSTOÐ
BÚNAÐARBANKINN gengst
í dag kl. 16.30 fyrir fundi í fund-
arsal A á Hótel Sögu þar sem
viðfangsefnið er þróun krón-
unnar og staða efnahagsmála.
Framsögu hafa Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, Már Guðmundsson,
aðalhagfræðingur Seðlabank-
ans og Bolli Þór Bollason, skrif-
stofustjóri efnahagsskrifstofu
fjármálaráðuneytisins.
Fundur
um stöðu
krónunnar
á Sögu
NÝSKÖPUN 2001 hélt á dögunum
námskeið í höfuðstöðvum SPRON á
Skólavörðustíg en það var sér-
staklega ætlað fyrirtækjum. Ný-
mæli í keppninni nú að er að hún
tengist í fyrsta sinn samkeppni sem
Evrópusambandið stendur fyrir ár-
lega. Þátttakendur í Nýsköpun
2001 keppa því jafnframt um rétt til
þess að fara til Brussel í desember á
þessu ári og taka fyrir Íslands hönd
þátt í keppni um bestu evrópsku ný-
sköpunarverkefnin.
Að sögn Ágústar Pétursssonar
verkefnisstjóra var námskeiðið
ákaflega vel sótt og gekk það vel.
Greinilegt sé að svona keppni höfði
ekkert síður til starfandi fyrirtækja
en frumkvöðla og einstaklinga sem
séu að stíga fyrstu skrefin. „Við
settum okkur það markmið að ná
ekki aðeins til frumkvöðlanna held-
ur viljum við einnig ná til nemenda
í framhalds- og háskólum og raun-
ar ekki síður til fyrirtækjanna í
landinu en þar er oftast enginn
skortur á góðum hugmyndum.
Þátttakan á námskeiðinu í SPRON
staðfestir það sem okkur grunaði
að fyrirtækin ættu fullt erindi í
samkeppnina.“
Aðspurður segir Ágúst að hann
hafi haldið á annan tug námskeiða
víða um land á síðustu vikum auk
námskeiða í Reykjavík og að þau
hafi sótt á fjórða hundrað manns.
Þá sé mikill áhugi fyrir kepninni í
framhalds- og háskólum og er búist
við tugum viðskiptaáætlana frá
þeim. Víða séu nú starfand nem-
endahópar að gerð viðskiptaáætl-
ana fyrir keppnina.
„Nýsköpun 2001 er samkeppni
um viðskiptaáætlanir þar sem horft
er til hugmyndaauðgi annars vegar
og skipulegrar framsetningar og
röksemdafærslu hins vegar og
-markmiðið er að allir þátttakendur
hafi af þessu ávinning. Þeir sem
ætla að vera með þurfa að ljúka við-
skiptaáætlun sinni fyrir 31. maí.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Námskeið sem Nýsköpun 2001 hélt á dögunum í höfuðstöðvum SPRON á Skólavörðustíg var vel sótt.
Áhugi hjá fyrirtækjum
á Nýsköpun 2001
SAMKVÆMT ársreikningi Vals-
manna hf. nam tap á rekstri félags-
ins í fyrra 6,9 milljónum króna. Í
tilkynningu frá félaginu segir að í
ljósi þess erfiða árferðis sem var á
verðbréfamörkuðum hér á landi og
erlendis á síðasta ári teljist þessi
niðurstaða ekki slæm. Eins þegar
haft sé í huga að Valsmenn hf.
lögðu 5,5 milljónir króna til knatt-
spyrnudeildar Vals en sú fjárhæð
var gjaldfærð að fullu.
„Valsmenn hf. og Knattspyrnu-
deild Vals gerðu með sér samning
um stuðning Valsmanna hf. gegn
því að félagið fengi 50% af tekjum
knattspyrnudeildarinnar af sölu
leikmanna til útlanda ef til þess
kæmi. Hér er því um áhættufjár-
festingu að ræða sem auðvitað get-
ur tapast en gæti hæglega skilað
sér til baka í tekjum fyrir Vals-
menn hf. Þá er stofnkostnaður all-
ur gjaldfærður, 1,3 milljón króna,
þannig að afkoman er að öðru leyti
í jafnvægi,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að innborgað
hlutafé nemur 45 milljónum króna
og bókfært eigið fé var í árslok
tæpar 40 milljónir króna. Hluthaf-
ar eru um 500 talsins.
Ein breyting varð á stjórn Vals-
manna hf. á aðalfundi félagsins
sem haldinn var nýlega. Stefán
Gunnarsson múrari hættir að eigin
ósk í stjórninni en í stað hans var
kjörinn Björn Úlfljótsson fram-
kvæmdastjóri. Aðrir í stjórn eru
Brynjar Harðarson viðskiptafræð-
ingur, formaður, Helgi Magnússon
framkvæmdastjóri Hörpu hf.,
varaformaður, Friðrik Sophusson
forstjóri Landsvirkjunar, Elías
Hergeirsson skrifstofumaður í
Héðni, Örn Gústafsson viðskipta-
fræðingur og Kjartan G. Kjartans-
son, framkvæmdastjóri SP fjár-
mögnunar hf.
Tap Valsmanna
hf. 6,9 milljónir
króna í fyrra
SAMKOMULAG um áframhaldandi
þróun Galileo-gervihnatta- og fjar-
skiptakerfisins, sem kemur til með
að samanstanda af 30 gervihnöttum
og vera komið í notkun árið 2008,
náðist á fundi ráðherra samgöngu-
mála Evrópusambandsríkjanna sem
lauk í síðustu viku. Á fundinum var
samþykkt að leggja til 100 milljónir
evra, eða um 8,3 milljarða íslenskra
króna, til undirbúnings og þróunar-
vinnu og kemur jafnhátt framlag á
móti frá Evrópsku geimvísindastofn-
unni (European Space Agency).
Markmiðið var að ná samstöðu um
fjármögnun á verkefninu á leiðtoga-
fundi ESB-ríkja í Stokkhólmi nýver-
ið en það tókst ekki. Ágreiningur
hefur verið milli aðildarríkjanna um
skiptingu verkefnisins milli einka-
fjárfesta og ríkisstjórna. Lönd eins
og Þýskaland og Bretland hafa viljað
að fjármagn komi einnig að stórum
hluta frá einkageiranum. Kostnaður-
inn við uppbyggingu kerfisins er
áætlaður um 3,25 milljarðar evra eða
um 270 milljarðar íslenskra króna.
Þau lönd sem hafa verið með hvað
mestar efasemdir benda á að kostn-
aður við verkefni af þessu tagi fari
iðulega langt fram úr áætlun. Ein
meginástæðan fyrir áhuga ESB
ríkja á Galileo-áætluninni er að nú
treysta þau á GPS-kerfi Bandaríkja-
hers. Þau benda á að þeim sé ekki
tryggður jafn aðgangur að kerfinu
og auðveldlega sé hægt að loka fyrir
aðgang þeirra. Samfara auknum
möguleikum á sviði fjarskipta eins
og á sviði þriðju kynslóðar farsíma sé
nauðsynlegt að hafa eigið gervi-
hnattakerfi sem lönd sambandsins
hafi tryggan aðgang að.
„Evrópa hefur nú tækifæri til að
byggja nútímalegt fjarskipta- og
siglingakerfi (navigation system)
sem kann að verða mikilvægur hluti
af fjarskiptakerfi Evrópu og heims-
ins alls,“ segir Björn Rosengren,
sænski ráðherrann sem fer með for-
mennsku í ráðherraráði samgöngu-
mála í ESB (Council of Transport
ministers). Hann bætti við að Galileo
geti boðið Evrópubandalagsríkjun-
um betri þjónustu og tækifæri til að
nota kerfið til margvíslegra nýrra
nota og síðast en ekki síst fæli Gali-
leo kerfið í sér mikil tækifæri fyrir
evrópsk fyrirtæki.
Samstaða næst
um Galileo
STJÓRNUNARFÉLAG Íslands og
Vegsauki þekkingarklúbbur, einka-
umboðsaðili Brian Tracy á Íslandi,
hafa tekið upp samstarf um aukna
fræðsluþjónustu og námskeiðafram-
boð við viðskiptavini sína og félags-
aðila. Að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu verður samstarfið m.a.
fólgið í samrekstri skrifstofu, að-
gengi félagsaðila að námskeiðum og
fræðsluþjónustu beggja aðila og
sameiginlegum innflutningi á bestu
erlendu fyrirlesurum sem völ er á.
Fyrsta sameiginlega verkefnið
verður heimsókn Brian Tracy til Ís-
lands í lok apríl og verður boðið upp
á úrval námskeiða um stjórnun, sölu,
tímastjórnun og hámarksárangur
fyrir konur auk þess sem boðið verð-
ur upp á sérstakan árangursskóla
helgina 28.–29. apríl. Í tengslum við
komu Brians Tracy til Íslands gefur
Vegsauki út þriðju bókina eftir hann
á íslensku: 100 ófrávíkjanleg lögmál
um velgengni í viðskiptum, en áður
hafa komið út bækurnar Hámarks-
árangur og Farsæld er ferðalag. Von
er á bókinni úr prentun síðustu vik-
una í apríl.
Stjórnunar-
félagið og
Vegsauki í
samstarf
♦ ♦ ♦