Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Organisti
Vegna ársleyfis organista óskum við eftir að
ráða organista við Keflavíkurkirkju frá 1. maí
2001—30. apríl 2002. Umsóknir þurfa að berast
fyrir 23. apríl 2001 til sóknarnefndar Keflavíkur-
kirkju, Kirkjuvegi 25, Keflavík.
Nánari upplýsingar gefur umsjónarmaður,
Elías Guðmundsson, í síma 420 4300.
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju.
Frá Kvennaskólanum í Reykjavík
Laus eru til umsóknar
kennslustörf
við skólann næsta vetur í eftirtöldum greinum:
Eðlisfræði 100% starf.
Franska 100% starf.
Umsóknarfrestur er til 27. apríl nk. Umsóknir,
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
berist skólanum á Fríkirkjuvegi 9. Ekki þarf sér-
stakt umsóknareyðublað. Ráðningartíminn
er frá 1. ágúst nk. Launakjör eru skv. samning-
um kennarafélaga og ríkisins.
Skólameistari og aðstoðarskólameistari veita
nánari upplýsingar í síma 562 8077.
Skólameistari.
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga
auglýsir eftir félags-
ráðgjafa
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar
eftir að ráða félagsráðgjafa eða starfsmann
með hliðstæða menntun og reynslu af störfum
innan félagsþjónustu. Viðkomandi bíður
spennandi starf í nýrri stofnun enda kemur
hann til með að gegna stóru hlutverki við
áframhaldandi uppbyggingu félagsþjónustu
á Snæfellsnesi. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir forstöðumað-
ur í síma 430 7800 (vs.) eða 436 6601 (hs.). Um-
sóknir þurfa að berast Félags- og skólaþjónustu
Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ, fyrir
19. apríl nk.
Á starfssvæði Félags- og skólaþjónustu Snæ-
fellinga búa tæplega 4.000 manns, flestir á
þéttbýlisstöðunum Stykkishólmi, Grundarfirði,
Ólafsvík og Hellissandi. Á Snæfellsnesi er
kraftmikið og fjölbreytt mannlíf, ægifögur nátt-
úra og greiðar samgöngur til og frá höfuðborg-
arsvæðinu.
Laus störf við
Framhaldsskólann
á Húsavík
Á næsta skólaári eru eftirtalin störf við Fram-
haldsskólann á Húsavík laus til umsóknar:
Staða aðstoðarskólameistara, námsráð-
gjafa og umsjónarmanns tölvumála.
Þetta eru hlutastörf (50%) og gert er ráð fyrir
að viðkomandi kenni einnig við skólann.
Þá eru lausar kennarastöður í:
Stærðfræði, viðskipta- og tölvugreinum,
dönsku (1/2 staða) og sálfræði (1/2 staða).
Einnig stundakennsla í sérgreinum
almennrar námsbrautar.
Launakjör samkv. kjarasamningum KÍ og ríkis-
ins. Auk þess eru sérstök húsnæðiskjör og
flutningsstyrkur í boði! Ekki er nauðsyn að
sækja um á sérstökum eyðublöðum.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl og upplýsingar
veita skólameistari og Gunnar Baldursson,
aðstoðarskólameistari, í síma 464 1344.
Guðmundur Birkir Þorkelsson,
skólameistari.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR
Kaupi bækur og bókasöfn.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Listmunir
Erum að taka á móti verkum fyrir næsta list-
munauppboð sem verður haldið í maí.
Fyrir viðskiptavini leitum við að góðum verk-
um gömlu meistaranna.
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14—16,
sími 551 0400.
ÝMISLEGT
Landssamtökin Þroskahjálp í samvinnu við félagsmálaráðuneytið, Mannréttindaskrif-
stofu Íslands og Norræna samvinnuráðið um málefni þroskaheftra, boða til ráðstefnu
helgaðri minningu Ástu B. Þorsteinsdóttur, alþingismanns og fyrrverandi formanns
Landssamtakanna Þroskahjálpar.
„Þetta gæti aldrei gerst hér“
Ráðstefna um réttaröryggi og réttindagæslu fatlaðra
á Grand Hóteli mánudaginn 23. apríl 2001.
Fundarstjórar: Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri í Reykjavík, og Berglind Ásgeirsdóttir,
ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu.
Á milli erinda verða lesin ljóð eftir Ásdísi Jennu Ástráðsdóttur og Bjöllukór Tónstofu
Valgerðar spilar
8.30-9.30 Afhending ráðstefnugagna.
9.30 Ávarp.
Gerður Steinþórsdóttir, varaformaður Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Ljóð
9.40-9.50 Setning.
Ásdís Jenna Ástráðsdóttir.
Ljóð
9.50-10.10 Jafnræðisreglan - um réttinn til að vera öðruvísi
Brynhildur Flóvenz lögfræðingur.
10.10-10.20 Fyrirspurnir og umræður
10.20-10.40 Kaffi
10.40-11.05 Starf og verkefni Umboðsmanns fatlaðra í Svíþjóð.
Hans von Axelson, skrifstofustjóri umboðsmanns fatlaðra í Svíþjóð.
11.05-11.20 Fyrirspurnir og umræður
11.20-11.45 Jafnrétti og þátttaka
Starfsemi miðstöðvar um jafnrétti fatlaðra í Damnmörku.
John Möller, framkvæmdastjóri LEV, fulltrúi félagsmálaráðherra í stjórnarnefnd
um málefni fatlaðra í Danmörku.
11.45-12.00 Fyrirspurnir og umræður.
12.00-13.00 Matur.
13.00-13.25 Reynsla Norðmanna af löggjöf til að afmarka og hafa eftirlit með
beitingu nauðungar í þjónustu við þroskahefta.
Sidsel Grasli, formaður norsku þroskahjálparsamtakanna og nefndarmaður
í eftirlitsnefnd um framkvæmd laganna.
13.25-13.40 Fyrirspurnir og umræður.
13.40-14.00 Er þörf á aukinni réttindagæslu fyrir fólk með fötlun á Íslandi?
Hvað fela ný lagafrumvörp í sér?
Halldór Gunnarsson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
14.00-14.15 Fyrirspurnir og umræður.
Bjöllukór
14.15-14.30 „Maður verður að berjast fyrir rétti sínum.“
María Hreiðarsdóttir formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun
14.30-15.00 Kaffi
Bjöllukór
15.00-16.00 Pallborð:
Hvernig verður réttaröryggi fatlaðra best tryggt á Íslandi?
Stjórnandi: Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Þátttakendur: Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismað-
ur, Ragnheiður Thorlacius, foreldri og lögfræðingur, Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmað-
ur, Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar.
16.00-16.10 Ráðstefnuslit. Halldór Gunnarsson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Að lokinni ráðstefnu býður félagsmálaráðherra upp á léttar veitingar.
Skráning þátttöku er á skrifstofu Landssamtakanna Þroskahjálpar, sími 588 9390,
fax: 588 9272, eða tölvupóstfang: afgreidsla@throskahjalp.is
Þátttökugjald er kr. 6.500, fatlaðir og foreldrar greiða 3.500 kr. Innifalinn í þátttöku-
gjaldi er hádegisverður og kaffi.
Erlendir fyrirlestrar verða þýddir á íslensku.