Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 60
FRÉTTIR
60 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁGÆTI lesandi.
Þá erum við að vakna úr vetrar-
dvalanum hjá Blómi vikunnar og er
ekki vonum seinna. Blómin hér
sunnan lands eru löngu farin að
bæra á sér, a.m.k. þessi
sem eru fljótust til, þótt
Akureyringar þurfi að
fresta skíðamóti vegna
of mikils fannfergis er
því ekki til að dreifa
hér. Já, snjórinn mætti
sannarlega dreifast
jafnara. Annars er síð-
vetrarsólin það versta
sem ég veit, svona frá
sjónarhorni garðeig-
andans. Þegar er
flennisól dag eftir dag
og gjarnan næðingur
og svo brunagaddur á
nóttinni er erfitt að
vera lítið barrtré. Á
daginn fer „blóðið“ að
streyma en jörðin er
frosin, svo ekkert vatn kemst upp til
að vega upp á móti útgufuninni. Þá
er hætt við slæmum sólbruna og
jafnvel algjörri sölnun þegar verst
lætur. En sleppum svona svarta-
gallsrausi og hugsum um vorið
framundan.
Ég hef stundum verið spurð hvers
vegna blómstra páskaliljurnar aldr-
ei á páskunum. Það er nú það. Pásk-
arnir eru á þessu sífellda tímaflakki,
sem erfitt er fyrir blessuð blómin að
henda reiður á, það eru vetrarpásk-
ar, sumarpáskar og allt þar á milli.
Þessi grein er skrifuð viku fyrir
páska og ég sé ekki betur en það geti
verið farið að sjá í gult á nokkrum
blómum á páskadag á þeim páska-
liljum, sem standa við suðurhlið
hússins.
Ég sagði einmitt sjá í gult, því al-
flestir setja órjúfanlegt samasem-
merki við gula litinn og páskaliljur.
Flestir þeir sem á annað borð horfa
einhvern tímann á blóm eiga auðvelt
með að lýsa páskaliljum, það eru
þessar gulu með lúðurinn fram úr
blóminu á mjóa leggnum með blöðin
eins og gras. Einfalt mál. En í tilfell-
inu páskaliljur er það hreint ekki
einfalt.
Páskaliljur tilheyra ættkvísl, sem
kallast narcissus á lat-
ínu og hefur fengið
nafnið hátíðarliljur á
okkar góða máli, orð
sem nánast enginn
notar. Grasafræðinga
greinir á um hvað fjöl-
skyldan er stór, þeir
sem eru fyrir bláa
blóðið segja 25 en aðr-
ir segja svona 50-60.
Verra er að það geta
myndast blendingar í
náttúrunni og svo
hafa garðyrkjufræð-
ingar komið til sög-
unnar og farið að leika
sér, svo nú eru til allt
að 8.000 „sortir“.
Uppruni hátíðalilja er
þó á hreinu, þeirra náttúrulega vaxt-
arsvæði er við Miðjarðarhafið, þær
vaxa villtar allt frá Portúgal í vestri,
á Spáni, í Frakklandi, Sviss, Júgó-
slavíu og Grikklandi og líka í Norð-
ur-Afríku. Meira að segja finnast
sumar tegundir þeirra í Asíu, allt að
Kína og Japan.
Nafnið narcissus er komið úr
grísku og til er grísk goðsögn um
sveininn Narkissos, sem hafnaði
einni fjallagyðjunni sem elskaði
hann, en þegar hann sá spegilmynd
sína í vatni varð hann svo hugfang-
inn af eigin fegurð að hann gat ekki
slitið sig frá myndinni og varð þar
hungurmorða, en upp af líkama
hans óx svo páskalilja. Þeir hafa
löngum verið sjálfselskir, karlmenn-
irnir.
Sumir blása nú á grísku goða-
fræðina og sjá skyldleika við orð
sem merkir að svæfa, deyfa, Norð-
urlandabúar nota orðið narkose,
sem er rótskylt. Forn-Egyptar
tengdu páskaliljur við svefninn eða
dauðann og þeir bundu kransa úr
páskaliljum, sem þeir krýndu hina
dauðu með, þannig kransar hafa
fundist í grafhýsum. Hvað um það,
trúin á að narcissus-laukar væru
eitraðir hefur lengi loðað við. Í
heimsstyrjöldinni er sagt að Hol-
lendingar hafi borðað ógrynni af
túlipanalaukum til að vega upp á
móti matarskorti, en að þeir hafi
ekki snert páskaliljulauka. Reyndar
voru þeir hakkaðir saman við hyas-
intur og gefnir svínum!
En víkjum aftur að blómunum,
þessum stóru, gulu með lúðurinn.
Þau eru ekki alltaf stór, gul með lúð-
ur, stundum eru þau með bolla eða
skál fram úr sér. Blómblöðin eru
sex, og umhverfis fræfla og frævu
vex svokölluð hjákróna, sem er
breytileg að stærð og lögun og er
iðulega notuð til að flokka þennan
aragrúa sem til er af páskaliljum.
Blómaliturinn er að vísu oftast gul-
ur, en samt eru hvítir, rjómagulir
eða rauðgulir litir algengir. Oft eru
blómblöð og hjákróna með sitt
hvorum litnum, svo sem mismun-
andi gulum lit, eða blómblöðin hvít
og hjákrónan gul, bleik eða jafnvel
múrsteinsrauð. Líka eru til fyllt
afbrigði af hátíðaliljum, sem líkjast
jafnvel ósköp lítið þessum hefð-
bundnu gulu lúðurblómum.
Fjölbreytni hátíðalilja felst ekki
aðeins í blómlit og lögun hjákrónu.
Hæð þeirra er ákaflega mismun-
andi. Til eru tegundir sem eru að-
eins 10-15 cm og sóma sér mæta vel í
steinhæð, aðrar verða 50-60 cm há-
ar. Oftast er eitt blóm á hverjum
stöngli, en þær eru líka til fjölblóma.
Þær hátíðaliljur, sem ræktaðar eru
inni á jólum, eru t.d. fjölblóma og
sama gildir um ýmsar útitegundir
eins og „Topolino“, sem er um 30 cm
á hæð, fallega hvít með allt að sjö
blóm á hverjum blómstöngli.
Blómatími hátíðalilja er mjög
mismunandi og nöfnin segja nokkuð
til um blómgunartímann. Til eru
febrúarliljur, páskaliljur, skírdags-
liljur, hvítasunnuliljur og jóns-
messuliljur. Með því að velja hátíða-
liljum mismunandi stað í garðinum
er unnt að hafa þær í blóma næstu
tvo mánuði eða fram í miðjan júní.
Margir kaupa litlar páskaliljur í
pottum fyrir páskana, þá er um að
gera að henda þeim ekki þó blómg-
un ljúki, en setja þær út í garð þegar
veður leyfir. Þær blómstra svo að
vori í garðinum.
Góða skemmtun og gleðilega
páska.
PÁSKA-
LILJUR
Páskaliljan Narcissus Salmon Trout kostaði þúsundir króna um 1950.
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
451. þáttur
ÍSLENSKT vatn frá Iceland Spring
fékk hæstu einkunn í flokki ókolsýrðs
vatns þegar fjórir vínsérfræðingar
Göteborgs-Posten voru föstudaginn
23. mars s.l. fengnir til að blind-
smakka þær 54 gerðir vatns frá 13
löndum sem blaðamaður fann í hillum
í Gautaborg. 17 gerðir voru ókolsýrð-
ar og 38 kolsýrðar. Íslenska vatnið
fékk fjóra af fimm mögulegum og var
það vatn sem þrír af smökkurunum
settu efst.
Iceland Spring var eitt í efsta flokki
með fjóra. Flestar hinar gerðirnar
fengu þrjá. Þar í hópi var meðal ann-
ars Evian frá Frakklandi sem er eitt-
hvert söluhæsta vatn heims og
sænskt kranavatn sem lætt var inn í
könnunina. Nokkrar gerðir fengu tvo
í einkunn. Eitt í botnsætinu var dýr-
asta vatnið í flokki ókolsýrðs vatns,
frá Whistler í Kanada. Það fékk ein-
ungis einn af fimm mögulegum.
Í grein á neytendasíðu Göteborgs-
Posten kemur fram að það hafi verið
mun erfiðara að gefa vatni einkunn en
víni þar sem leitað er eftir eins miklu
bragði og mögulegt er.
Gott vatn á hins vegar ekki að hafa
neitt bragð heldur vera hlutlaust,
ferskt og hreint.
Mikil aukning hefur orðið á neyslu
vatns í umbúðum í Svíþjóð á undan-
förnum árum. Aukningin í Svíþjóð
hefur verið 65% á árabilinu 1992 til
2000 og nú er neysla hvers Svía 17
lítrar á ári eða alls 150,6 milljónir lítra
árið 2000.
Bar sigurorð af einu
söluhæsta vatni heims
Iceland Spring sigraði í blindsmökkun
Göteborgs-Posten
DR. ÞÓRHALLUR Eyþórsson flyt-
ur fyrirlestur í boði Íslenska mál-
fræðifélagsins miðvikudaginn 18.
apríl kl. 17.15 í stofu 422 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist þágufalls-
sýki, nefnifallssýki og þróun íslenska
fallakerfisins. Í honum verður fjallað
um orsök og uppruna ýmissa breyt-
inga á frumlagsfalli í íslensku sem
ekki sér enn fyrir endann á.
Þórhallur Eyþórsson lauk MA-
prófi í málvísindum, grísku og latínu
frá Háskólanum í München 1986 og
doktorsprófi við Cornell-háskóla
1995. Þórhallur gegndi rannsóknar-
stöðu á vegum Vísindasjóðs á árun-
um 1994 til 1997. Hann hefur verið
stundakennari í málvísindum við Há-
skóla Íslands, gistilektor við Har-
vard-háskóla og gegnir nú rannsókn-
arstöðu við Manchester-háskóla í
Bretlandi.
Fyrirlestur um þróun ís-
lenska fallakerfisins
ÞRJÚ námskeið fyrir stjórnendur
verða haldin hjá Endurmenntunar-
stofnun HÍ í apríl.
Dagana 23. og 24. kennir Dr.
Neil Katz á námskeiðinu Leiðtog-
ar og lærdómur þar sem mark-
miðið er að skapa skilning á marg-
víslegum hlutverkum stjórnanda á
nútímavinnustað. Með æfingum
verður leitast við að kynna nýjar
aðferðir í leiðtogastarfinu og
styrkja hæfni og öryggi. Katz hef-
ur kennt áður á vegum EHÍ meðal
annars samningatækni sem kjara-
nefndir launþegasamtaka hafa not-
ið góðs af. Hann er höfundur fjöl-
margra bóka og greina um
samningatækni og lausn ágrein-
ings.
23. apríl kennir Svíinn Mats
Tallving á námskeiði EHÍ um
þekkingarstjórnun en hann er
kunnur ráðgjafi fyrirtækja og
stofnana á sviði fjölmiðla- og upp-
lýsingafræði.
Námskeiðið er ætlað öllum sem
vinna við starfsmannastjórnun,
samskipti og upplýsingamiðlun á
vinnustöðum. Farið verður í nauð-
syn þess að þekkingarstjórnun sé
virk í fyrirtækjum og stofnunum.
Mats Tallving kennir einnig á
námskeiði um innri upplýsingavefi
dagana 24. og 25. apríl. Námskeið-
ið er ætlað verkefnastjórum og
öðrum sem sjá um uppbyggingu
og uppfærslu á innri vef í fyr-
irtækjum og stofnunum.
Fjallað verður um hvernig
skipuleggja má ýmsa þætti í miðl-
un á fyrirtækjavef, þarfagreiningu,
greiningu á markhópi, samninga
við þá sem leggja til efni og þjálf-
un og notagildi Vefjarins til lengri
tíma.
Frekari upplýsingar um þessi
námskeið eru á vefsíðum Endur-
menntunarstofnunar, www.endur-
menntun.is, og þar er jafnframt
hægt að skrá sig.
Endur-
menntun
fyrir
leiðtoga