Morgunblaðið - 10.04.2001, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 67
DAGBÓK
STRIGASKÓR
FRÁBÆR VERÐ
Verð 1.990
st. 28-35
Verð 1.690
st. 24-31
Verð 2.990
Svart
st. 31-46
Kringlunni 8-12 sími 568 6211
Skóhöllin Bæjarhrauni 16 Hafnf. sími 555 4420
Verð 3.490
Svart
st. 36-46
DÖMU-HERRA-BARNA
Kvartbuxur
Jakkar
Vesti
Skyrtur, stærðir 36-46, verð kr. 5.900
Buxur, stærðir 36-46, verð kr. 5.900
Kjólar, stærðir 36-44, verð kr. 7.900
Margir litir.
Kringlunni — s. 568 1822
HÖRFATNAÐUR
ÚRSLIT Íslandsmótsins í
sveitakeppni hefjast á morg-
un, miðvikudag, og lýkur
þeim síðdegis á laugardag-
inn. Tíu sveitir hafa unnið
sér rétt til þátttöku og spila
þær allar innbyrðis 24 spila
leiki. Danir hafa annan hátt á
sínu meistaramóti, en þeir
spila með útsláttarfyrir-
komulagi, eins og gert er í
bikarnum hér á landi.
Danska meistaramótinu
lauk fyrir skömmu með sigri
sveitar Peters Schaltz
(Dorthe Schaltz, Lars Blak-
set, Matthias Bruun, Knut
Blaset og Henrik Binderkr-
antz). Hér er spil frá fjórð-
ungsúrslitum, þar sem varn-
arsamvinnan brást illilega
hjá AV-parinu:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ KD74
♥ G76
♦ G107
♣ D42
Vestur Austur
♠ G9652 ♠ –
♥ 985 ♥ K10
♦ D42 ♦ ÁK986
♣ G7 ♣ K98653
Suður
♠ Á1083
♥ ÁD432
♦ 53
♣ Á10
Vestur Norður Austur Suður
Rön Adamsen Schou Koch
-- -- -- 1 hjarta
Pass 2 hjörtu 2 grönd * 4 hjörtu
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
* láglitirnir
Eftir láglitainnákomuna á
tveimur gröndum taldi Steen
Schou að dobl sitt á fjórum
hjörtum væri beiðni um
„óeðlilegt útspil“ – augljós-
lega spaða, því hann hafði
sýnt 10 spil í laufi og tígli.
Makker hans, Jacob Rön,
var ekki á sömu bylgjulengd
og kom út með laufgosann!?
Það var sannarlega dýrt
útskot, því nú var enginn
tapslagur á lauf og sagnhafi
þurfti ekki annað en að spila
hjartaás og meira hjarta til
að vinna spilið. Spaðaíferðin
var léttfundin – ásinn út, og
síðan mátti svína fyrir G9
vesturs.
Ef vestur skilur doblið
sama skilningi og Schou ætti
hann að koma út með spað-
aníu til að benda á tígul frek-
ar en lauf. Eftir að hafa
trompað fyrsta slaginn gæti
austur þá lagt niður tígul-
kóng og fengið kall í litnum. Í
ljósi spaðaníunnar ætti það
kall að vera byggt á drottn-
ingunni frekar en tvíspili og
því gæti austur „rólegur“
spilað undan tígulásnum og
fengið aðra stungu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STAÐAN kom upp í blind-
skák á Amber mótinu er
lauk í Mónakó fyrir
skömmu. FIDE heims-
meistarinn Viswanathan
Anand (2790) fékk að vita
hvar Davíð keypti ölið gegn
gömlu kempunni Ljubomir
Ljubojevic (2566). Júgóslav-
inn blóðheiti
hafði svart og
refsaði andstæð-
ingnum fyrir
riddaraflan.
19...Hxf7!
20.Bxf7 Rxe3
21.Dxe3 Bb5!
22.c4 Litlu hefði
breytt fyrir
hvítan að leika
22.Hd4 þar sem
eftir 22...Bc5 er
fátt til varnar.
22...Bc5 23.Hd4
Bxc4! 24.Hc1 b5
25.Bxe6 Da7! og
hvítur gafst upp
enda gengur 26.Hcd1 t.d.
ekki upp sökum 26...Bxe6
27.Hd8+ Hxd8 28.Hxd8+
Bg8 og svartur vinnur.
Skákin tefldist í heild sinni:
1.e4 c5 2.Rf3 e6 3.d4 cxd4
4.Rxd4 Rc6 5.Rc3 Dc7 6.Be2
a6 7.O-O Rf6 8.Be3 Be7 9.f4
d6 10.De1 O-O 11.Dg3 Bd7
12.Had1 Kh8 13.Rf3 Rb4
14.Hd2 d5 15.e5 Re4
16.Rxe4 dxe4 17.Rg5 Bc6
18.Bh5 Rd5 19.Rxf7+
o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi
Áss Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt erfitt með að ákveða
í hvorn fótinn þú ætlar að
stíga en þessum vangavelt-
um verður þú að sigrast á.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Búðu þig undir óvænt tíðindi
því það er betra að vera
viðbúinn en verða fyrir áfalli.
Þá verður líka eftirleikurinn
auðveldari.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Grunnurinn þarf að vera góð-
ur til þess að það sem á hon-
um rís sé til frambúðar.
Gefðu þér því nægan tíma til
að undirbúa hlutina.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er ákaflega gefandi að
eiga sálufélaga sem skilur þig
og þekkir allar þínar þarfir.
Um leið og þú nýtur þessa þá
mundu að slík vinátta verður
að vera gagnkvæm.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur verið gaman að láta
gamminn geisa um allt milli
himins og jarðar en mundu að
viðmælandi þinn kann líka að
hafa margt skemmtilegt fram
að færa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Til þín er leitað með forustu í
ákveðnu máli. Taktu hana að
þér þótt það kunni að kosta
nokkurn tíma því það verður
þér bæði til gagns og gleði.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að athuga vel hvern-
ig þú setur hlutina fram því
það skiptir sköpum að allir
skilji hvert þú ert að fara ann-
ars gengur ekkert upp.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það getur reynst þér erfitt að
velja úr þá sem þú vilt helst
vinna með en gefðu þér til
þess góðan tíma því mikið ríð-
ur á samheldni ykkar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er úr vöndu að ráða þeg-
ar staðið er frammi fyrir
mörgum möguleikum en láttu
ekki hugfallast heldur veldu
framhaldið í rólegheitum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Skoðanir sem þú hefur lengi
haldið fram fá nú allt í einu
hljómgrunn víðar en þig hafði
nokkurn tíma órað fyrir.
Þessu fylgja skemmtileg
kynni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér finnst athygli annarra
óþægileg og allt að því kæf-
andi. Þú þarft að ná þínu oln-
bogarými svo þú getir um
frjálst höfuð strokið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér líður eins og þú hafir orð-
ið undir valtara en átt nú
samt erfitt með að sjá hvað
olli því. En þú þarft bara að
takast á við vandann með
hetjulund.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér finnst eins og þú náir
ekki til fólks og ættir því að
endurskoða með hvaða hætti
þú talar til þess. Finndu svo
aðra heppilegri framsetn-
ingu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 10. apr-
íl, verður sjötugur Hinrik
Óskar Guðmundsson, Bóli,
Biskupstungum. Hann tek-
ur á móti gestum á heimili
sínu 12. apríl, skírdag, eftir
kl. 16.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu til
styrktar Rauða krossi Íslands 2.000 kr. Þær heita Pálína
Margrét Kristinsdóttir og Dagný Ísafold Kristinsdóttir.
Hlutavelta
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu 800 kr. Þær heita Heiðrún Inga
Þrastardóttir og Aldís Björg Jónasdóttir.
Þú skalt hjálpa honum
með heimadæmin
meðan þú getur.
Næsta ár fer hann í
fjórða bekk.
LJÓÐABROT
DRAUMALANDIÐ
Ó, leyf mér þig að leiða
til landsins fjallaheiða
með sælusumrin löng.
Þar angar blómabreiða
við blíðan fuglasöng.
Þar aðeins yndi fann ég,
þar aðeins við mig kann ég,
þar batt mig tryggðaband,
því þar er allt, sem ann ég;
það er mitt draumaland.
Guðm. Magnússon