Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ LEIÐBEINENDUR í vinnuskólanum í Mosfellsbæ hafa að undanförnu verið að undirbúa sumarið og komu krakkanna í vinnuskólann. Það gera þau með margvís- legum hætti og nýlega sóttu þau námskeið hjá starfsþró- unarfyrirtækinu Skrefi fyrir skref þar sem þau lærðu ým- islegt forvitnilegt og gagn- legt varðandi umgengni við unglinga. Meðal þess sem þar var fjallað um var hvernig best væri að nálgast unglingana, hvernig hægt sé að merkja ýmislegt í fari þeirra sem vís- bendingar um andlega líðan þeirra og ekki síst hvernig hægt sé að virkja krakkana á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Það er grár miðvikudags- morgunn í Félagsheimilinu Bólinu við Varmárskóla í Mosfellbæ og leiðbeinend- urnir eru að leggja lokahönd á undirbúning áður en krakk- arnir mæta til vinnu 5. júní. Að passa upp á bökin Arnar Hauksson yfirleið- beinandi hefur orðið og brýn- ir fyrir hinum að hugað sé að því hvernig krakkarnir beiti líkamanum við garðyrkju- störfin. „Þið verðið að gæta að því hvernig krakkarnir nota verkfærin og að þau passi upp á bakið á sér,“ segir hann. Arnar hefur starfað hjá vinnuskólanum undanfarin ár og stundar nám í Kennarahá- skólanum á veturna. Leið- beinendurnir eru hver með sína möppu. Í þeim eru helstu upplýsingar um hvern- ig nauðsynlegt er að bregðast við ólíkum aðstæðum. Arnar brýnir fyrir hinum leiðbein- endunum hvernig þeir eigi að bera sig að og hvað beri að varast. Það er létt yfir hópn- um og flest hafa starfað sem leiðbeinendur áður. Meðal þess sem rætt er um eru launamál krakkanna og hót- anir um brottrekstur. Krakk- arnir eru forvitnir um launa- kjör sín sem vonlegt er og það er leiðbeinendanna að standa klárir á slíkum upp- lýsingum. Brottrekstur er á hinn bóginn neyðarúrræði og Arnar leggur áherslu á það við hina leiðbeinendurna að ekki sé verið að nota hótanir um brottrekstur nema brýn þörf sé á. Hinir samsinna því og aug- ljóst að margt af því sem Arnar ræðir á fundinum er gömul sannindi enda vanur mannskapur á ferðinni. Í vinnuskólanum í ár starfa rösklega 120 unglingar á aldrinum 14–16 ára. Að sögn Arnars sækja stöðugt færri í vinnuskólann frá því sem áð- ur var. Allir sem sækja um vinnu í vinnuskólanum eru því velkomnir og engum er neitað um vinnu. Hrafnhildur Þórhallsdóttir nemi í bókmenntafræði hefur verið leiðbeinandi í 4 sumur. Hún hefur ákveðnar skoðanir á því af hverju færri krakkar sækja um í vinnuskólanum nú en áður. „Ég held að það megi rekja það á einhvern hátt til þenslu í þjóðfélaginu. Krakk- ar á aldrinum 18–23 ára sem unnu kannski í Nóatúni, Hagkaup og öðrum stór- mörkuðum eru farnir í aðra vinnu. Yngri krakkarnir sækja þá í þessi störf. Maður sér þetta þegar maður fer í þessar verslanir.“ Fjóla Dögg Helgadóttir nemi í sálfræði er ný í hópn- um. Þetta er fyrsta sumarið hennar sem leiðbeinandi. „Þetta leggst bara vel í mig. Ég var á námskeiðinu hjá Skrefi fyrir skref og líka á garðyrkjunámskeiði um daginn,“ segir hún og segist engu kvíða. Hlakkar frekar til að takast á við ný verkefni. Vilja vita hver sé kærasti manns „Það er mjög mikilvægt að vera ákveðinn við krakkana. Sérstaklega fyrstu vikurnar. Síðan er hægt að slaka aðeins á eftir það,“ segir Arnar Hrafnhildur tekur undir orð Arnars og bætir við: „Þau eru svo ótrúlega fljót að komast inn á mann. Þau eru svo forvitin og spyrja mann um alla hluti. Vilja vita hver sé kærasti manns og þess háttar.“ Öll eru þau sammála um að það sé auðvelt að fá stimp- ilinn „vondi karlinn“. Auðvit- að verði þau að halda uppi ákveðnum aga og það geti á stundum kostað árekstra þó oftast leysist farsællega úr slíkum deilum. „Það er náttúrlega misjafn sauður í mörgu fé. Við reyn- um bara að taka á slíku,“ seg- ir Arnar og segir að reynt sé að dreifa úr hópnum í stað þess að ein klíka eða vinahóp- ur yfirtaki heilan vinnuhóp. „Það er sérstaklega mikið um það fyrst að þau séu að biðja um að fá að skipta um hóp,“ segir Hrafnhildur, en bætir við að það gangi jafn- framt yfir. Leiðbeinendur vinnuskólans búa sig undir að taka á móti 120 unglingum í sumarvinnuna Auðvelt að vera „vondi karlinn“ Mosfellsbær Morgunblaðið/Arnaldur Hrafnhildur Þórhallsdóttir, Arnar Hauksson og Fjóla Dögg Helgadóttir hlakka til að takast á við verkefni sumarsins. Arnar leggur línurnar á fundi leiðbeinenda í Bólinu. ÍBÚAR við Hraunbæ hafa ítrekað kvartað við borgaryf- irvöld undan rusli á svæðinu, sem þeir segja fjúka úr blaða- gámi sem staðsettur er við myndbandaleigu við Rofabæ, en segja athugasemdunum lít- ið sinnt. Umsjónarmaður gám- anna segir ástæðu draslsins vera þá að fólk láti hjá líða að setja ruslið í gáminn en skilji það eftir í pokum hjá honum. „Ég verð að segja að þetta er mjög hvimleitt,“ segir Gunnar Steinn Þórsson, einn íbúanna. „Draslið er hér upp eftir öllum götum. Við höfum oft kvartað yfir umgengni á svæðinu en finnst að yfirvöld sinni því ekki nógu vel þegar haft er samband.“ Hann segir íbúana í hverf- inu mjög meðvitaða um um- hverfi sitt. „Við erum t.d. með starfandi lóðafélög í mörgum stigagöngum í Hraunbænum þar sem við ráðum krakkana okkar í vinnu allt sumarið við að hirða garðana, slá túnin, setja niður plöntur og hvað- eina. Þegar hins vegar garðar húseigendanna annars vegar og svæði borgarinnar hins vegar eru orðin eins og svart og hvítt er greinilegt að eitt- hvað er að,“ segir hann. Gunnar segir nauðsynlegt að gámarnir séu losaðir oftar auk þess sem þörf sé á einum gámi í viðbót „Það er sem sagt dagblaðagámur við mynd- bandaleiguna og annar við Nóatúnsverslunina en enginn við 11–11-búðina,“ segir hann og bendir á að gatan sé sú fjöl- mennasta á landinu. „Það ætti því að vera sjálfsögð krafa að fá einn gám til viðbótar á svæðið.“ Ábendingar vel þegnar Pétur Elínarsson, eftir- litsmaður með blaðagámum hjá Reykjavíkurborg, segir ekki við gáminn að sakast heldur það fólk sem nenni ekki að setja í hann ruslið. „Á gámnum er lítil lúga til að ekki sé verið að troða þar inn öðrum hlutum, sem má ekki. Og það er mjög algengt að fólk skilji allt blaðaruslið eftir í plastpokum við gáminn þegar það uppgötvar að pok- arnir komast ekki inn um lúgu- opið. Það er aðalástæðan fyrir draslinu,“ segir Pétur. „Ástandið var t.d. mjög slæmt þarna í síðustu viku af því að einhver hafði hent plakötum sem voru bókstaflega út um öll tún.“ Aðspurður um hvers vegna ekki er settur blaðagámur við 11–11-búðina svarar Pétur því til að menn hefðu einfaldlega ekki athugað að þörf væri fyrir slíkt. „Ég stend einn í þessu eftirliti og þigg allar ábending- ar, þannig að hugsanleg stað- setning gáms þar verður skoð- uð í framhaldi af þessu. Þetta er bara eitthvað sem hefur far- ið fram hjá okkur,“ segir hann. Íbúar ósáttir við sóðaskap í umhverfi sínu „Rusl og drasl út um allt“ Árbær Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Gunnar Steinn Þórsson við umræddan blaðagám hjá Bón- usvídeói. Í baksýn má sjá eina gæsluvöllinn í Árbæ, en hann stendur við Rofabæ. Þangað fýkur oft rusl úr gámnum. ÚTITAFLIÐ við Lækj- argötu hefur staðið að mestu ónotað hin síðari ár. Það var sett upp árið 1981, jafnt borðflöturinn sem taflmennirnir, og þótti hvort tveggja mikil lista- smíði og vakti talsverða at- hygli í samfélaginu. Svo gerðist það að tafl- mennirnir voru æ sjaldnar dregnir fram á reitina og hættu loks alveg að koma fram í dagsljósið. Morg- unblaðið fór því á stúfana til að reyna að komast að því hvar taflmennirnir væru niðurkomnir. Fyrir svörum varð Hrannar B. Arnarsson, borgarfulltrúi og nýkjörinn forseti Skák- sambands Íslands. Voru endurgerðir „Mennirnir eru enn til,“ sagði Hrannar, „en þeir voru farnir að láta mjög á sjá, bæði vegna skemmd- arverka og veðrunar, enda voru þeir hafðir talsvert úti á tímabili. Sú ákvörðun var því tekin á ákveðnum tímapunkti að láta end- urgera þá alla saman og það var gert.“ Hrannar segir að jafn- framt hafi verið ákveðið að fara með taflmennina eins og listaverk. „Þeir eru því geymdir á vegum Kjarvals- staða í geymslu að Fáka- feni 9, og ekki hugsaðir lengur til daglegra nota, heldur meira til hátíða- brigða. Mönnum fannst nýtingin á sínum tíma afar lítil og ekki þess umkomin að bera vaktmann, sem þó var nauðsynlegt, vegna þess hversu vandaðir tafl- mennirnir voru og eru.“ Virðingarvottur og minnismerki Aðspurður hvort ekki væri ástæða til að láta út- búa nýja taflmenn, hvers- dagslegri, sem þá fengju að standa frammi til afnota dagsdaglega eða allt að því, kvaðst Hrannar telja að menn gerðu skákmönn- um ýmislegt annað frekar til gagns heldur en að horfa sérstaklega á þetta sem til daglegs brúks. Bæði hefði skákhreyfingin sjálf verið að flýja inn í hús með útiskákmót sín vegna rysj- óttrar tíðar hér á landi auk þess sem skákmálin væru að þróast þannig að menn væru oftar inni á kaffi- húsum að tefla eða þá á Netinu. „Ég sé því enga knýjandi þörf á að draga fram tafl- menn á útiborðið dags- daglega,“ segir Hrannar. „En hins vegar er full ástæða til að nýta þetta meira gert er núna og nýta fleiri tækifæri til að draga mennina út á tyllidögum og góðviðrisdögum. En það má samt aldrei gleymast að taflið sjálft er fyrst og fremst hugsað sem lista- verk og ákveðinn virðing- arvottur og minnismerki um hinn einstæða skák- áhuga og árangur sem ís- lenskir skákmenn hafa náð,“ sagði Hrannar að lokum. Hvar eru tafl- menn- irnir? Miðborg Morgunblaðið/Sigurður Jökull Hér má sjá taflmennina, sem nú eru í geymslu í Fákafeni 9. Hönnuður þeirra, Jón Gunnar Árnason, er e.t.v. þekktari fyrir listaverkið „Sólfar“, sem stendur við Skúlagötu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.