Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 60
UMRÆÐAN 60 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Aldarfjórðungur er liðinn frá stofnun Iðjuþjálfafélags Ís- lands en það var 4. mars 1976 sem félagið var formlega stofnað eftir nokkurn undir- búning ötulla frum- kvöðla fagsins. Stofn- félagar voru tíu talsins. Nú 25 árum síðar eru félagar um 145. Saga iðju- þjálfunar hér á landi er ekki löng en hún einkennist af eldmóði hugsjónafólks sem sá í faginu möguleika sem íslenskt samfélag þyrfti að njóta góðs af. Íslensk námsbraut Skortur á iðjuþjálfum hefur frá upphafi staðið eðlilegri þróun fags- ins fyrir þrifum og stöndum við töluvert að baki nágrannaþjóðum okkar hvað það varðar. Menntun sína hafa íslenskir iðjuþjálfar hing- að til þurft að sækja til annarra landa og meðal annars af þeirri ástæðu hefur nýliðun í faginu verið of hæg. Með stofnun iðjuþjálfunar- brautar við Háskólann á Akureyri árið 1997 var langþráðum áfanga náð en stofnun námsbrautar hafði verið baráttumál Iðjuþjálfafélags Íslands frá upphafi. Nú í vor út- skrifast fyrstu 15 nemarnir frá námsbrautinni og árlega má vænta um 15 nýrra iðjuþjálfa til starfa. Ástandið lagast eitthvað við þessa ánægjulegu viðbót en hins vegar mun taka langan tíma að metta markaðinn. Ástæða þess að iðju- þjálfar hafa lagt metnað og vinnu í að kynna iðjuþjálfun er því hreint ekki sú að verkefni skorti, síður en svo. Okkur ber hins vegar að kynna möguleika fagsins og vekja athygli á því ef við teljum að eitthvað megi betur fara í heilbrigðisþjónustunni og annars staðar þar sem fagþekk- ing iðjuþjálfa kemur að gagni. Aðgengi að iðjuþjálfun Um langt árabil störfuðu iðju- þjálfar nær eingöngu á sjúkrahús- um og endurhæfingarstöðvum en síðari ár hafa þeir í auknum mæli farið til starfa utan hefðbundinna sjúkrastofnana t.d. hjá félags- og skólaþjónustu sveitarfélaga. Iðju- þjálfar sækja um störf sem tengjast stjórnsýslu og hjá einkafyrirtækj- um. Margir fara í störf sem ekki er sérstök hefð fyrir að iðjuþjálfar sinni. Heilsuefling, forvarnir, hæf- ing og endurhæfing eru meginvið- fangsefni iðjuþjálfa. Því er sérlega mikilvægt að kraftar þeirra nýtist ekki einungis inni á sjúkrahúsum, heldur einnig þar sem hægt er að koma í veg fyrir að til varanlegs skaða komi. Enn- fremur til að aðstoða fólk í sinni daglegu iðju með því að draga úr áhrifum fötlunar, veikinda eða slysa. Í Heilbrigðisáætlun til 2010 er lögð meiri áhersla á forvarnir og endurhæfingu en áður hefur sést. Vonandi fer þess brátt að sjá stað sem víðast í samfélag- inu, það er í heilbrigð- iskerfi, félagsþjónustu, skólum og leikskólum og raunar hvar sem því verður við komið. Framboð og eftirspurn Ýmsir þættir hafa áhrif á fram- boð og eftirspurn eftir þjónustu eins og þeirri sem iðjuþjálfar veita. Stjórnvöld stýra aðgengi að þjón- ustunni meðal annars með því að semja um þjónustukaup við sumar stéttir en ekki aðrar. Munur á sam- keppnisstöðu iðjuþjálfa og sjúkra- þjálfara eða sálfræðinga og geð- lækna eru góð dæmi um þetta. Þannig getur Gunna farið til sjúkraþjálfara á stofu niðri í bæ og fær til þess styrk frá Trygginga- stofnun ríkisins (TR) en Jón er ekki eins heppinn því hann er í þörf fyrir iðjuþjálfun og hana fær hann tæp- ast nema leggjast inn á sjúkrahús eða greiða hana fullu verði ella. Rök hafa verið færð fyrir því að reglur TR um að greiða fyrir sjúkraþjálf- un en ekki iðjuþjálfun valdi því meðal annars að sjúkrahús vilji frekar ráða til sín sjúkraþjálfara en iðjuþjálfa þar sem sjúkrahúsið get- ur rukkað TR fyrir hluta af kostn- aði við sjúkraþjálfun. Það er rétt- lætismál að almenningur geti fengið samsvarandi niðurgreiðslu á kostn- aði við iðjuþjálfun og til dæmis sjúkraþjálfun. Með samningi TR við iðjuþjálfa myndi skapast rekstrar- grundvöllur fyrir iðjuþjálfunarstof- ur og þannig yrði aðgengi almenn- ings að slíkri þjónustu stóraukið. Iðjuþjálfun í heilsugæslu Aðgengi að þjónustu iðjuþjálfa ætti samkvæmt lögum um heil- brigðisþjónustu nr. 97 frá 1990 (gr. 19.1) að vera tryggt með því að á heilsugæslustöðvum eða í tengslum við þær skuli bjóða upp á þjónustu iðjuþjálfa. Þetta er næstum óþekkt hér á landi og innan heilsugæsl- unnar virðist lítið reynt til þess að útvega fólki iðjuþjálfun. Stór land- svæði eru því án slíkrar þjónustu og þurfa til dæmis börn utan af landi að sækja iðjuþjálfun hjá Æf- ingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra (ÆSLF) í Reykjavík. Bið- tíminn eftir iðjuþjálfun hjá ÆSLF er um eitt og hálft ár. Það er langur tími í lífi barns. Reynslan af tilraunaverkefni um iðjuþjálfun í heilsugæslu sem og niðurstöður matshóps er mat ár- angur verkefnisins mæla líka ein- dregið með því að heilsugæslu- stöðvar sinni því lögboðna hlutverki sínu að bjóða upp á þjónustu iðju- þjálfa. Aukin samvinna við yfirvöld Af viðbrögðum ráðamanna t.d. innan heilsugæslu, félagsþjónustu og skólakerfis er ljóst að hluti af skýringunni á því að iðjuþjálfun er ekki ofar á forgangslista er óljós vitneskja um eðli þjónustunnar. Brýnt er að kynna betur hvað iðju- þjálfar gera og geta gert á hinum ýmsu stigum heilbrigðis- og félags- þjónustu og að borgararnir eiga lögum samkvæmt að hafa aðgang að iðjuþjálfun í tengslum við sína heilsugæslustöð. Iðjuþjálfafélagið hefur gegnum tíðina unnið slíkt kynningarstarf eftir föngum. Nauð- synlegt er að hefja markvisst kynn- ingarstarf til dæmis innan heilsu- gæslunnar og hljóta iðjuþjálfar að kalla eftir því að heilbrigðisyfirvöld taki virkan þátt. Iðjuþjálfafélag Ís- lands er fúst til samstarfs við heil- brigðisyfirvöld og önnur stjórnvöld um hvaðeina sem til framfara getur talist fyrir heilbrigði á Íslandi. Við teljum það hins vegar ekki vera okkar einkamál hvort farið er eftir lögum, til dæmis lögum um heil- brigðisþjónustu. Að tryggja jafnan aðgang þegnanna að þjónustu er sömuleiðis verkefni sem iðjuþjálfar geta ekki leyst í eigin ranni. Vilji og áhugi yfirvalda er nauðsynleg og eðlileg forsenda þess að þessi mál verði færð til betri vegar. Með von um að allir landsmenn hafi aðgang að þjónustu iðjuþjálfa í framtíðinni. Iðjuþjálfun fyrir alla Kristín Sigursveinsdóttir Iðjuþjálfun Borgararnir eiga lögum samkvæmt, segir Krist- ín Sigursveinsdóttir, að hafa aðgang að iðju- þjálfun í tengslum við sína heilsugæslustöð. Höfundur er formaður Iðjuþjálfa- félags Íslands. HINN 1. maí síðast- liðinn urðu þau tíðindi að tónlistarmenn og -kennarar tóku hönd- um saman og fjöl- menntu með kröfu- spjöld, þeyttu flautur og börðu bumbur í hinni árlegu kröfu- göngu launþega um betri kjör handa öllum og afnám launamisrétt- is. Það skein gleði úr hverju andliti, í hróp- andi ósamræmi við til- efnið og úrhellisrign- ingu. Gleði vegna þess að framtíðarhorfur séu bjartar í launamálum þessara launþega? Nei, gleði vegna þess að loksins, loksins tókst þessari fámennu og tvístruðu starfsstétt að þjappa sér saman og mótmæla kjör- um sínum opinberlega. Þennan dag fann hver einstaklingur í hópnum að návist hans sjálfs skipti máli og hið lang- þráða takmark um hóp- efli meðal tónlistar- manna var að verða að veruleika. Menn sungu baráttusönginn hástöf- um og af hjartans inn- lifun, bæði „nallann“ ástsæla og nýjan bar- áttusöng tónlistarkenn- ara sem saminn hafði verið sérstaklega af þessu tilefni. Loksins er tónlistarmönnum úr öllum stéttarfélögum svo misboðið að þeir hrista af sér alla deyfð og vanmáttarkennd gagnvart eigin framtíð og sameinast í kröfu- göngu. Nú spyrja kannski einhverjir: „Tónlistarkennarar, fengu þeir ekki kjarabót eins og grunnskólakennar- ar, já eða jafnvel eins og framhalds- skólakennarar? Hvers vegna var ekki samið við þá um leið og hina?“ Staðreyndin er að tónlistarkennarar hafa á síðustu árum dregist verulega aftur úr öðrum kennurum í launum. Þeir hafa nú allt að 25% lægri laun en grunnskólakennarar. Kjarasamning- ar runnu út í lok nóvember síðastlið- ins og enn hefur ekki borið á miklum vilja hjá samninganefnd sveitar- félaga til að leiðrétta þennan mun. Samfara versnandi kjörum hafa tón- listarkennarar þurft að sætta sig við vaxandi vinnuálag og vinnutíma sem færist stöðugt lengra fram á kvöld vegna einsetningu skóla. Vinnuálag hefur aukist vegna aukinna náms- krafna og nýrra námskráa, en ekki síður vegna þess að nú er tónlistar- kennslu skorinn þröngur stakkur í tíma. Gerð stundaskráa hefur orðið sífellt erfiðari og á kostnað vinnu- hléa. Tónlistarkennarar sinna stórum hluta vinnuskyldu sinnar eft- ir klukkan fimm á daginn og um helg- ar, nánast á venjulegum dagvinnu- taxta, þrátt fyrir ómæld óþægindi fyrir fjölskyldulíf þeirra. Tónlistar- kennarar hafa heldur ekki setið við sama borð og aðrir kennarar hvað varðar möguleika á yfirvinnu. Til dæmis er algengt að tónlistarkenn- arar kenni við fleiri en einn tónlistar- skóla í meira en 100% starfi samtals án þess að fá nokkurn tíma borgaða yfirvinnu. Slíkt þekkist ekki meðal grunnskólakennara og samt semja tónlistarkennarar um laun sín við sömu aðila. Hér mætti líka bæta við að fáar stéttir hafa til þessa verið jafn viljugar og tónlistarkennarar að gefa vinnu sína þegar á þarf að halda í þágu nemenda. Aðrir hafa spurt: „ Sinfóníuhljóm- sveitin! Hvað gerir fólkið eiginlega? Er þetta ekki bara hobbí?“ Þessi mis- skilningur er ótrúlega lífseigur. Per- sónulega er mér nóg boðið hvað varð- ar skilningsleysi stjórnvalda gagnvart nauðsyn þess að koma á móts við þá sem vinna að menntun í landinu. Ég verð hins vegar að við- urkenna að ég er orðlaus gagnvart því virðingarleysi sem að starfsbræð- ur mínir í Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa mætt í baráttu sinni fyrir hærri launum og lágmarksréttindum. Sinfóníuhljómsveit Íslands er skipuð úrvals hljóðfæraleikurum sem hafa í alla staði sannað á und- anförnum árum að eru starfi sínu vaxnir. Hróður hljómsveitarinnar hefur borist víða um lönd og hljóm- sveitin er í örri framþróun. Í nýlok- inni rannsókn sýnir Ágúst Einarsson prósfessor í hagfræði fram á mikil- vægi hljómsveitarinnar fyrir þjóð- arbúskapinn. Menning skilar nefni- lega arði eins og aðrar atvinnu- greinar og stendur þar jafnfætis landbúnaði. Þrátt fyrir að vinnu- Tónlistarmenn brýna vopnin! Kristín Mjöll Jakobsdóttir Tónlist Ég hvet alla þá sem láta sig málið varða, segir Kristín Mjöll Jakobs- dóttir, að kveðja sér hljóðs og sýna tónlistar- mönnum og tónlistar- kennurum stuðning.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.