Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Katrín Ólafsdótt-ir fæddist 27. mars 1951 á Melstað í Glerárþorpi. Hún lést föstudaginn 25. maí síðastliðinn á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi. Foreldrar Katrínar voru Ólafur Ólafsson sjómaður, f. 7. júní 1909 á Patreksfirði, d. 31. ágúst 1973, og Sólveig Snæbjörns- dóttir húsfreyja, f. 15. desember 1915 á Tálknafirði, d. 6. september 1999. Systkini Katrín- ar eru: 1) Grétar, f. 14.8. 1935, kona hans er Helga Jónsdóttir, þau eiga tvo syni. 2) Ásdís, f. 5.10. 1936, eiginmaður hennar var Baldur Jónsson, hann lést 6.1. 1990. Þau eiga þrjár dætur. 3) Ólafur, f. 4.2. 1938, kona hans er Sigrún Oddsteinsdóttir, þau eiga tvo syni. 4) Örn, f. 12.2. 1940, d.17.2. 1962. 5) Ómar, f. 10.8. 1941, kona hans er Björg Aðal- steinsdóttir, þau eiga þrjú börn. 6) Halldór, f. 14.3. 1948, kona hans er Ragnheiður Anna Þengilsdóttir, þau eiga þrjá syni. Hinn 27. desember 1975 giftist Katrín eftirlifandi eigin- manni sínum, Stef- áni J. Eiríkssyni, f. 12. febrúar 1949. Synir Katrínar og Stefáns eru Eiríkur, f. 19.2. 1975, sam- býliskona hans er Friðrika D. Þórleifs- dóttir, f. 1.10. 1973, dóttir hennar er Karen Margrét f. 29.7. 1995; 2) Ólafur, f. 26.5. 1978; og 3) Helgi, f. 16.10. 1981. Katrín útskrifaðist sem fóstra árið 1972 og úr framhaldsnámi í listgreinum árið 1997. Katrín vann allt frá útskrift við fóstru- störf, lengst af sem leikskólakenn- ari á leikskólanum Norðurbergi í Hafnarfirði eða frá 1984. Útför Katrínar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Ég kveð þig í dag, elsku Kata mín, þú varst mér svo kær og ég er alveg viss um að það eru ekki allir svona heppnir eins og ég að eiga tengda- móður sem er í senn svo góð vinkona. En lífið er hverfult og eftir sitjum við hin tóm og vitum ekki í hvorn fótinn á að stíga. Illvígur sjúkdómur sem þú hafðir barist við eins og hetja í mörg ár varð þér að lokum að falli. Ég minnist svo margs sem verður nú ekki talið upp hér en helst minnist ég allra góðu stundana á Hjalla- brautinni, hvernig þú tókst alltaf á móti okkur með fallegu brosi og kossum, einum á hvora kinn. Svo hlunkuðumst við tvær í sófann og slúðruðum á meðan Eiki og Stefán fóru inn í herbergi og spáðu í veiði- flugur og annað í þeim dúr. Svo minnist ég þess hvað þú varst alltaf góð við Karen mína, tókst hana til þín eins og hún væri þín eigin og henni þótti svo vænt um þig. Mér leið alltaf svo vel með þér, við ætluðum saman til sólarlanda í sum- ar með fjölskylduna og í veiðiferð í haust og ekki grunaði mig að það yrði ekkert úr því, það var ekki fyrr en síðustu dagana sem ég gerði mér grein fyrir og horfðist í augu við hversu veik þú varst í raun orðin. Núna mun ég passa strákana þína og geri mitt besta til að þeim líði vel. Megi allar góðir vættir vaka yfir Stefáni og strákunum og öðrum ást- vinum á þessum erfiðu tímum. Hvíl þú í friði. Friðrika Þórleifsdóttir. Elsku mágkona. Nú er komið að kveðjustundinni. Lífsljósið hennar Kötu vinkonu minnar og mágkonu er slokknað. Það var síðla árs 1968 sem kynni okkar hófust þegar Halldór bróðir þinn „fór að gera hosur sínar grænar fyrir mér“. Við urðum fljótt góðar vinkonur, nánast jafnöldrur, ungar og áhyggjulausar á leið út í líf- ið. Það var oft gaman hjá okkur þeg- ar við unnum saman á dagheimilinu Efri-Hlíð, en það var þar sem þú tókst ákvörðun um þitt ævistarf, fóstra skyldi það verða og við sem þig þekktum urðum svo sannarlega ekki hissa, því börnin hændust að þér. Upp í hugann kemur „mynd“ af jólaboði hjá tengdaforeldrum mín- um, þegar öll börnin hópuðust saman í herberginu þínu og þú spilaðir á gít- arinn og söngst með þeim af hjartans lyst. Svo kynntist þú honum Stefáni þínum, þið eignuðust þrjá fjöruga og góða stráka og við urðum uppteknar í barnauppeldinu því við Halldór vor- um líka með þrjá stráka sem áttu hug okkar allan. Þegar þeir urðu „hálffullorðnir strákarnir“, slepptum við höndinni af þeim og flugum í sól- ina. Við Kata áttum yndislega viku á Costa del Sol, þar sem við nutum sól- ar, góðs matar og svo tónlistar á kvöldin með kaffi og tíu. Það var svo fyrir tveimur árum sem við fórum góða ferð til Portúgal með körlunum okkar, ásamt Sólveigu, Bubba og börnum þeirra. Eftir þá ferð stofn- uðum við Pottalafélagið, sem styrkti sambandið enn meira á milli okkar. Gott samband var á milli þín og Friðriku, unnustu Eiríks og Karenar dóttur hennar, þær veittu þér mikla gleði. Elsku Kata mín þú hefur staðið þig eins og hetja í veikindum þínum, þar hefur þín létta lund og jákvæði í gegnum lífið hjálpað. Það er komið að leiðarlokum, við Halldór eigum eftir að sakna þín og við þökkum þér fyrir allt sem þú gafst okkur. Guð geymi þig og veiti Stefáni, Eiríki, Ólafi, Helga, Frið- riku og Karen styrk á raunastundu. Þín mágkona Ragnheiður. „Einstakur“ er orð sem er notað þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýr- mætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem bezt lýsir þér. (Terri Fernandes.) Það voru forréttindi að eiga hana Kötu að sem vin og mágkonu, við systur kveðjum hana með virðingu og söknuði. Megi algóður Guð styrkja Stefán bróður, drengina þeirra og aðra ástvini. Þórný og Guðrún. Lífið er skrítið, oftast skemmtilegt en stundum sorglegt. Það er sorg- legt að kveðja góða frænku en það er skemmtilegt að minnast allra góðu stundanna sem við áttum saman. Kata var ekki bara móðursystir mín heldur og vinkona. Það var alveg sama hvað ég tók mér fyrir hendur, hún fylgdist með og studdi mig í einu og öllu. Líf okkar beggja tvinnaðist saman á svo skemmtilegan hátt. Hún unglingurinn að taka á mér stelpu- prikinu. Þá fyrst hófst uppeldisstarf- ið hennar. Þegar Kata frænka kom að passa okkur systurnar vissum við að von var á góðu. Hún í forystuhlutverki í eldhúsinu og nú skyldu sko búnir til karamellu-sleikipinnar á línuna. Mamma var nú ekki beint ánægð, því hin ráðagóða frænka reif í sundur þvottaklemmur til að hafa sem pinna. Alltaf nennti hún að atast með okkur í öllu. Ég horfði með aðdáun á frænku mína verða að skvísu þegar hún festi á sig gerviaugnhárin, klæddist stuttu pilsi og hélt af stað í Glaumbæ með vinkonunum. Kata fór í Fóstruskólann og gerð- ist alvöru fóstra af lífi og sál. Þá hófst föndurtímabilið sem varði ansi lengi. Kata bjó til allt. Mér er það sérstaklega minnisstætt þegar hún var að búa til sýnishornamöppu í skólanum með alls kyns föndurhug- myndum. Svo voru það leikskólalög- in sem sungin voru með okkur og Kata spilaði undir á gítar. Hún var söngelsk og lærði um tíma söng. Auðvitað varð það til að kveikja söngáhuga hjá lítilli frænku sem glamraði á píanóið og þóttist kunna allt eins og stóra frænkan. Svo kom Stefán, kærastinn, til sögunnar. Allt varð voða leyndar- dómsfullt. Við systurnar pískruðum úti í horni og horfðum á þennan rauðhærða strák. Kata og Stefán giftu sig og eignuðust þrjá yndislega drengi, Eirík, Ólaf og Helga. Nú fengum við systurnar að taka þátt í uppeldinu á þeim. Oft fékk ég að koma til Kötu og Stefáns þegar þau bjuggu í Kópavoginum, bæði til að passa og taka til. Mikið urðum við glaðar systurnar þegar fjölskyldan fluttist í Hafnarfjörð í næstu götu við okkur. Sú ríka hefð hennar Kötu að halda góðum tengslum innan fjöl- skyldunnar var einstök. Hún gaf allt- af allt af öllu hjarta. Seinna þegar ég hóf búskap og eignaðist börn styrkt- ust böndin enn betur og við Bubbi, Stefán og Kata urðum miklir vinir. Sú vinátta styrktist til muna eftir að Kata veiktist. Veikindin bar hún í hljóði. Þau áttu ekki að ná yfirhönd- inni, sama hvað gengi á. Með því held ég að Kata hafi haft vinninginn ansi lengi. Það skyldi staðið meðan stætt var. Kata og Stefán lifðu lífinu lifandi saman. Fóru í útilegur, veiðitúra og ferðalög til útlanda. Alltaf hélt hún vel utan um strákana sína, alla fjóra, og heimilið. Allt sem hún gerði var gert af alúð og gleði. Ljúfar gleði- minningar um ástúð hennar munu lýsa okkur öllum veginn áfram. Frænku minni þakka ég allt sem hún gaf mér. Megi algóður Guð vaka yfir henni. Sólveig Baldursdóttir. Elskuleg móðursystir mín, Katrín Ólafsdóttir er látin langt fyrir aldur fram. Hennar minnumst við sem glæsilegrar konu með sitt fallega bros og hlátur. Hún var einstök manneskja sem svo sannarlega ræktaði garðinn sinn af einskærri natni. Hún var frændrækin með ein- dæmum enda var oft margt um manninn á Hjallabrautinni. Það eru ótal minningar sem við eigum með Kötu frænku. Hún var yngst sex systkina og voru þær tvær systurn- ar, mamma og hún. Með þeim var mikil vinátta og einstaklega gott samband. Það er því mikill missir fyrir mömmu að hafa ekki Kötu hjá sér lengur. En minningin um hana mun ylja okkur um ókomna tíð. Kata var með eindæmum barngóð og passaði hún okkur systurnar oft, þá var föndrað eða þá að hún bjó til karamellusleikjó eða kornflexkökur handa okkur. Við fengum líka að gramsa í snyrtitöskunni hennar og prófa varalitina og naglalökkin. Hún var mikill sælkeri og oft gátum við gleymt okkur í spjalli um matargerð og uppskriftir. Alltaf tókst henni að betrumbæta rétti þannig að þeir urðu gómsætari en þær áttu upphaf- lega að vera. Það var slegist um að sitja með henni í bíl á ferðalögum því hún lumaði alltaf á einhverju góð- gæti. Það var sama hvar hún var, á ættarmótum, í afmælum, í jólaboð- um eða á ferðalögum; alltaf var hún hrókur alls fagnaðar. Hún dró fram gítarinn sinn og söng af innlifun, því söngur og tónlist var hennar yndi. Það var sama hvort við fórum saman í sund eða í Kaupfélagið, alltaf heyrðist kallað: „Hæ, Kata,“ þá voru það krakkar af leikskólanum og hún gaf sig alltaf að þeim og spjallaði við þá. Hún var leikskólakennari af lífi og sál. Þegar þau Stefán eignuðust svo Eikana, eins og við kölluðum þá gjarnan, fengum við að passa þá. Það var oft fjör á Hjallabrautinni þegar vinir þeirra voru að koma eða hringja og alltaf tók hún Kata vel á móti þeim. Hún fylgdist vel með strákunum sínum og var dugleg að mæta á leiki og hvetja þá, þegar þeir spiluðu með FH. Kata hafði unun af útivist, oft fórum við saman í göngu- ferðir, í sund eða út að hjóla. Það verður erfitt að halda áfram án Kötu, því hún var manni allt í senn, frænka, vinkona og félagi. Við sendum Stef- áni, Eiríki, Friðriku og Karen, Óla og Helga okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum algóðan Guð að styrkja þá í sorginni. Snædís, Benedikt, Arnar Snær og Lillan. Kata frænka er látin. Hún var yngst systkina sinna, litla systir mömmu. Hún var enn í föðurhúsum þegar við systurnar vorum litlar stelpur og komum í heimsókn til ömmu og afa. Í minningunni var hún þessi káta, glaða frænka með fallega brosið sitt sem naut tækifæranna. Hún var frænkan sem ég leit upp til þegar tíska og útlit fór að skipta mig máli. Hún var söngelsk fram úr hófi. Hún söng með Kór Langholtskirkju til margra ára, fór í einsöngsnám og söng í starfinu sínu sem leikskóla- kennari. Hún hreinlega söng sig í gegnum lífið með gítarinn sinn hvar sem var og hvenær. Þegar hún kynntist Stefáni, eiginmanni sínum, og eignaðist strákana sína þrjá, Eik- ana eins og þeir voru kallaðir, feng- um við systurnar að taka þátt í þessu öllu með henni. Við höfðum gaman af því að passa Eikana og ekki skemmdi það fyrir okkur þegar þau fluttu suður í Hafnarfjörð í næsta ná- grenni við okkur. Þá varð sambandið enn nánara. Þegar ég kynntist Eiríki mínum, stofnaði fjölskyldu og eign- aðist börn þá tók hún þátt í barna- uppeldinu með okkur. Hún var dug- leg að koma í heimsókn og jafnvel að passa fyrir okkur. Hún mætti alltaf í öll afmæli, söng afmælissönginn og stundum kom hún með gítarinn. Af- mælisgjafirnar frá henni voru líka með spennandi innihaldi og oft frum- lega innpakkaðar. Börnin mín Bald- ur Örn og Steinunn voru mjög hrifin af henni og minnast hennar sem góðrar frænku. Hún var fóstra heil í gegn. Sumarið var góður tími fyrir hana þar sem hún var mikill sóldýrk- andi. Hún notaði hvert tækifæri sem gafst til að baða sig í sólinni. Oft sát- um við saman í sólbaði og kepptumst um hvor væri brúnni. Hún hafði oft- ar vinninginn. Hún naut þess að ferðast bæði innanlands og utan. Síð- ustu árin vorum við fjölskyldurnar farnar að fara saman í veiðitúra, úti- legur og sumarbústaðaferðir og eig- um við góðar minningar úr þeim ferðum. Við höfðum líka gaman að því að halda matarboð saman og var þá matargerðin sjálf sem skipti miklu máli. Hún hafði unun af því að elda mat og helst að koma með ein- hverjar nýjungar og slá okkur hinum við. Hún var sannur sælkeri. Fyrir nokkrum árum greindist hún með ill- vígan sjúkdóm. Hún komst yfir erf- iðasta hjallann og átti góðan tíma en svo tóku veikindin sig upp aftur og barðist hún af sinni einstöku þraut- seigju þar til yfir lauk. Síðustu vik- urnar voru orðnar erfiðar hjá henni og hún orðin þreytt. Hún var samt ekki af baki dottin. Ég er þakklát henni fyrir að koma í afmæli sonar míns í byrjun maí, hún vildi ekki að láta sig vanta í það skiptið. Ég vil biðja góðan Guð að vera með þeim Sefáni, Eiríki, Friðriku, Karen, Óla og Helga. Einnig vil ég þakka henni mömmu og systrum mínum hversu vel þær hafa annast og styrkt Kötu frænku í gegnum árin. Hafdís og fjölskylda. Elsku Kata, uppáhaldsfrænkan mín, er farin til Guðs. Takk Kata fyr- ir að vera svona góð við mig og passa mig í vetur. Það var svo gaman að vera hjá þér, við spjölluðum um heima og geima og oft hjálpaðir þú mér að læra, smurðir handa mér nesti og keyrðir mig stundum í skól- ann. Ég sakna þín mikið og ég ætla að geyma allt föndrið sem við föndr- uðum saman vel og vandlega þangað til ég verð stór. Seinna ætla ég svo að kenna henni litlu systur minni að búa til fiskabúr, bolluvönd og ávexti úr ull eins og þú kenndir mér að búa til. Ég vona að mamma geti svo lært að búa til spagettí og hakk eins og þú gerðir, því það var alltaf svo gott í matinn hjá þér. Mér fannst meira að segja teið hjá þér gott. Ég á eftir að sakna þess að fara ekki með þér í sund og að við eigum ekki eftir að kaupa okkur „candy-floss“ á Akur- eyri. Það var alltaf gaman að koma til ykkar Stefáns og leika með dótið, lita og teikna og fá að vera í tölvunni hans Helga. Ég hefði viljað geta farið í veiðiferð með þér í sumar því þið gáfuð mér svo flotta veiðitösku í af- mælisgjöf og ég vildi að þú hefðir getað komið í afmælið mitt í síðustu viku en þú varst orðin svo veik. Nú veit ég að þér líður vel hjá Guði og ömmu frammi. Ég bið góðan Guð um að varðveita þig elsku Kata mín og líka Stefán, Eika, Friðriku og Karen, Óla og Helga. Þinn frændi Arnar Snær. Ég minnist Kötu frænku minnar með söknuði. Hún var alltaf svo fín. Hún var gjafmild og glöð kona. Alveg frá því að ég man eftir mér var ég oft hjá henni og þótti það allt- af jafn gaman. Hún átti svo margt glingur sem ég fékk að skreyta mig með. Þó svo að ég legði undir mig stofuna í leik þá virtist það ekki skipta máli. Svo framarlega að ég hefði gaman þá var hún sátt. Hún lét draum okkar beggja ræt- ast að fara saman til útlanda þegar við fórum til Portúgals haustið 1999. Það var mín fyrsta utanlandsferð. Kata kunni sko að fara til útlanda. Hún sagði mér frá öllu sem skipti máli. Mér er minnistætt þegar hún fór með mér að láta setja göt í eyrun. Ég hafði nefnilega guggnað nokkrum sinnum á því. Það var því engin und- ankomuleið í þetta skiptið. Ég ætlaði ekki að verða frænku minni til skammar. Það var svo margt sem við Kata gerðum saman að ég get ekki lýst því. Minningarnar eru mér sem dýrmætur sjóður sem ég á alltaf. Guð geymi elsku frænku mína. Ásdís Arna Björnsdóttir. Við vorum oft saman, ég og Kata. Sungum og spiluðum. Kata og Stefán gáfu mér gítar svo við gætum spilað saman. Hún hugsaði svo vel um mig. Ef ég var veikur þá kom hún yfir til okkar og lagaði seyði til að mér liði betur. Stundum átti hún til að koma gagngert til að svæfa mig með söng eða spennandi ævintýrum. Kata frænka kunni alla leikskólasöngv- ana. Aldrei missti hún af afmælunum hjá okkur systkinunum. Hún var mjög lasin þegar ég varð fjögura ára gamall 15. maí síðastliðinn, en hún kom samt með veiðistöng í pakka. Nú ætla ég að verða veiðimaður með Stefáni. Hún vakti alltaf yfir velferð minni og ég veit að nú vakir hún yfir okkur öllum sem engill á himnum hjá Guði. Takk fyrir allt, Kata mín. Unnar Lúðvík Björnsson. Þegar pabbi hringdi í mig síðast- liðinn föstudag, þá hvarflaði það ekki að mér, að hann væri að tilkynna mér lát systur sinnar, hennar Kötu. Þó að búast hefði mátt við því, þá kom það mér mjög á óvart en Kata var búin að berjast hetjulega við krabbamein í mörg ár. Alltaf hélt ég að hún myndi ná sér en nú er þessi lífsglaða kona dáin. Þegar hugurinn reikar aftur þá kemur margt upp í hugann en fyrst og fremst glöð og kát Kata frænka. Og þegar ég sit og skrifa þessi orð og hugsa um það að ég geti ekki fylgt henni til grafar, þá hrynja tár niður á lyklaborðið hjá mér. Kata frænka hafðu þökk fyrir allt. Minning um góða konu lifir. Aðalsteinn. Það var fríður og föngulegur hóp- ur ungra meyja sem hittist fyrir utan Fríkirkjuveg 11 haustið 1969. Allar höfðu það að markmiði að útskrifast sem leikskólakennarar að þremur árum liðnum. Hópurinn var sá stærsti þegar hér var komið sögu Fóstruskóla Sumargjafar, alls 34 nemendur. Við komum alls staðar að af landinu og þekktumst misjafnlega mikið og sumar voru að stíga sín fyrstu skref um höfuðborgina. Við KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.