Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 74
FÓLK Í FRÉTTUM 74 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLUNNI, S. 568 9017 — LAUGAVEGI, S. 511 1717 Spennandi tilboð um helgina af völdum vörum föstudag og laugardag Ný búð fyrir stelpur Diesel Calvin Klein jeans Kookai Tark Imitz Laura Aime French connection Matinique Mao All saints Morgan 4 you Parkz Free Billi bi Vagabond Zinda The Seller Laugavegi 89, s. 511 1750 Nicegirl gallapils 3.990 X-tra bolir 1.590 Diesel skór 3.990 Sparkz gallajakkar 4.990 Belti frá 990 Tiger lampar 1.990 Seba sængurver 3.990 Laura Aime hermannapils 3.990 i ÞEIR FJÖLMÖRGU unnendur þýsku hljómsveitarinnar Ramm- stein sem ekki náðu í miða á fyr- irhugaða tónleika sveitarinnar í Laugardalshöllinni 15. júní geta nú tekið gleði sína á ný því ákveðið hefur verið að efna til aukatónleika daginn eftir, 16. júní. Eins og kunnugt er seldist upp á auglýsta tónleika Rammstein á mettíma síðasta mánudag og herma fregnir að þeir miðar sem eru í um- ferð séu búnir að ganga kaupum og sölum í vikunni á uppsprengdu verði. Að sögn Kára Sturlusonar, eins tónleikahaldara, voru þýsku rokk- ararnir agndofa þegar þeir fréttu af þessum mikla áhuga hér á landi. Þeim hafi því bæði verið ljúft og skylt að verða við beiðni tónleika- haldara um að svara hinni miklu eftirspurn með því að leika á auka- tónleikum og gefa fleiri lands- mönnum færi á að njóta margróm- aðra og skrautlegra tónleika sinna. Kári segir að möguleikinn á auka- tónleikum hafi ætíð verið fyrir hendi en að nauðsynlegt hafi verið fyrir tónleikahaldara að treysta fjárhagslegan grundvöll og það hafi tekist með aðstoð Rautt-fyrir- fram greiddrar GSM-þjónustu, Radíó X og Popp Tíví. Aukatónleikarnir verða sem fyrr segir 16. júní og á sama tíma og áð- ur auglýstir tónleikar. Ekki hefur enn verið staðfest hvort eða hvaða listamenn koma til með að sjá um upphitun. Miðaverð á auka- tónleikana verður hið sama og hefst salan á næstkomandi fimmtu- dag. Fyrirkomulag hennar verður nánar kynnt síðar. Ljósmynd/Olaf Heine Rammstein eru djúpt snortnir yfir viðbrögðunum á Íslandi. Aukatónleikar í Höllinni 16. júní Gleðitíðindi fyrir Rammstein-unnendur HIN goðsagnakennda hljóm- sveit Ham hefur ákveðið að lengja upprisu sína um eina tónleika. Upphaflega ætlaði sveitin aðeins að koma saman einu sinni, til þess að hita upp fyrir þýsku sveitina Ramm- stein í Laugardalshöll 15. júní. Nú hefur Ham hins vegar ákveðið að bæta við einum tón- leikum sem verða á Gauki á Stöng miðvikudaginn 13. júní, tveimur dögum áður en sveitin stígur á svið Laugardalshall- arinnar í fyrsta og síðasta sinn. Samkvæmt Sigurjóni Kjart- anssyni, söngvara- og gítar- leikara, er tilgangur Gaukstón- leikanna sá að liðsmenn langaði til að leika á einum tón- leikum, einir og óstuddir. Engin önn- ur hljómsveit leiki því á undan eða eftir þetta kvöldið. Eða eins og Sig- urjón orðaði það sjálfur: „Ham er ekki upphitunarhljómsveit!“ Sigurjón segir að sveitin muni spila mun fleiri lög á tónleikunum á Gauknum en í Laugardalshöllinni, svo að aðdáendur sveitarinnar fái há- marks-Ham-skammt á þeim þremur dögum sem sveitin verður formlega starfandi. Liðsmenn sveitarinnar eru hins- vegar enn þá harðir á því að fram- koma þeirra á tónleikum Rammstein verði þeirra allra, allra síðasta. Hljómsveitin hefur æft stíft síðustu tvær vikur og er við það að komast í gamla formið. Mannaskipanin er sú sama í dag og hún var þegar sveitin lagði upp laupana árið 1994 sem þýðir að ásamt Sigurjóni skipa hana þeir Óttar Proppé söngvari, Björn Blöndal á bassa, Arnar Geir Ómars- son trommari og Jóhann Jóhannsson á gítar og hljómborð. Miðar á tónleikana á Gauknum verða seldir í forsölu en nánari upp- lýsingar um verð, hvar, hvenær og hvernig verða opinberaðar síðar. Ham heldur tónleika á Gauki á Stöng 13. júní Hámarks- Ham-skammtur Ham – engin upphitunarhljómsveit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.