Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 40

Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. KRISTJÁN Ragnarsson, stjórn-arformaður Landssambandsíslenskra útvegsmanna, LÍÚ,segir hugmyndir Árna Vil- hjálmssonar um kvótakerfið, sem hann viðrar í viðtali við Sjómannablaðið Víking og Morgunblaðið birti kafla úr í gær, ekki vera nýjar þar sem hann hafi viðrað þær fyrir nokkrum árum. „Ég hélt að menn hefðu lært af reynsl- unni að þeir kaupa sig ekki frá ágreiningi um kvótakerfi með greiðslu auðlinda- gjalds. Annaðhvort er fyrirkomulagið hagkvæmt fyrir útgerðina, og þar með fyrir þjóðfélagið, eða ekki. Ef það er ekki hagkvæmt þá á að varpa því fyrir róða, en ekki að kaupa það fyrir peninga. Ég er þeirrar skoðunar að kvótakerfið hafi reynst bæði þjóðarbúinu og útgerðinni vel. Ég er svolítið hissa á stjórnarfor- manni fyrirtækis sem leggur fram árs- reikning á síðasta aðalfundi með tæplega 20 milljóna króna halla að hann sé að leggja til frekari gjöld. Mér sýnist það ekki geta gerst með öðrum hætti en þeim að hann ætli að fella niður takmarkaðar arðgreiðslur til hluthafa og flytja þær til ríkisins. Það tel ég ekki skynsamlegt,“ segir Kristján. Fjölbreytt eignaraðild mikilvæg Hann segir að viðtalið við Árna í Sjó- mannablaðinu beri vott um það að í krafti stærðar síns fyrirtækis, Granda, sé til- hneiging til þess að drepa af sér minni fyr- irtæki í þeim tilgangi að komast yfir meiri heimildir. „Það myndi þá gerast á kostnað lands- byggðarinnar, sem mér finnst ekki ástæða til að íþyngja með frekari gjöldum, sam- anber það sem maður upplifir núna víða um land. Ég er algjörlega ósamþykkur því að aflétta stærðartakmörkunum á veiði- heimildum fyrirtækja. Árni vill lyfta þess- um þökum eða afnema þau og ég er ekki einn af þeim sem sjá fyrir sér örfá sjáv- arútvegsfyriræki í greininni. Ég tel fjöl- breytta eignaraðild mjög mikilvæga og hagkvæma þegar til lengri tíma er litið,“ segir Kristján. Í viðtalinu í Víkingi segist Árni m.a. vera undrandi á því frelsi sem menn hafi til að flytja heimildir frá einni fisktegund til annarrar. Þetta hafi leitt til þess að sumar tegundir hafi verið veiddar langt umfram ráðleggingar Hafró. Nefnir Árni sem dæmi að árið 1989 þótti hæfilegt að veiða 30 þúsund tonn af grálúðu en veiðin það ár hefði farið upp í tæp 60 þúsund tonn. Kristján Ragnarsson furðar sig á þess- ari samlíkingu Árna og undrast að stjórn- arformaður eins stærsta útgerðarfyrir- tækis sé ekki betur að sér um málefni greinarinnar, eins og hann orðar það. „Árið 1989 var síðasta ár sóknarmarks og meirihluti þessarar umframveiði var vegna sóknarmarksins. Sum skip voru á kvóta, önnur á sóknarmarki. Skilningur manna jókst á því að þetta kerfi yrði að af- nema þar sem það var stjórnlítið til tak- mörkunar á veiði úr einstökum tegund- um,“ segir Kristján. Óttast örfáa útgerðarrisa Varðandi þau ummæli Árna Vilhjálms- sonar að samvinna sjávarútvegsfyrir- tækja í ólíkum landshlutum geti verið hag- kvæm en sameining alls ekki segir Kristján ekkert takmarka samstarf fyr- irtækja í dag. Þannig telji LÍÚ það hag- kvæmt að skipta á jöfnum veiðiheimildum og það hafi ekkert með aflahámörk að gera innan fiskveiðiársins. „Ég óttast hins vegar í okkar útgerð- arsögu að við fáum hér örfáa risa og það er eitthvað sem ég vil ekki sjá. Árni sér fyrir sér að með kvótahámarkinu geti Grandi ekki sameinast Haraldi Böðvarssyni hf. að óbreyttum ástæðum. Það er hans mat en ég sé ekki neina þörf fyrir sameiningu þessara fyrirtækja. Þetta er mín bjarg- fasta skoðun og ég stend við hana,“ segir Kristján Ragn- arsson. Gjaldtaka mun ekki skapa sátt Sigurgeir Brynjar Krist- geirsson, framkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segist á sumum sviðum geta verið sammála Árna Vilhjálmssyni en á öðrum ekki. Þannig telur hann fyrir það fyrsta að gjald fyrir veiðiheimildir skapi ekki ein- hverja sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið. „Ég held að það sé misskilningur að gjaldtaka muni skapa víðtæka sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið. Ósátt sem byggist á gjaldtöku er ekki hjá stórum hópi manna. Það eru aðallega ritstjórar Morgunblaðsins og nokkrir hagfræðingar í Reykjavík ásamt öðrum sem hafa áhuga á gjaldtökunni. Umræðan um að gjald lægi einhverjar óánægjuöldur á ekki víða hljómgrunn hjá starfsmönnum í sjávarút- vegi eða tengdum atvinnugreinum. Ég verð ekki var við stuðning við þessar hug- myndir hér á landsbyggðinni. Gjald mun ekki gera smábátasjómenn eða fylgis- menn byggðakvóta sátta við núverandi fiskveiðistjórnun. Við í Vestmannaeyjum sjáum ekki hvaða sátt verður um fiskveiðistjórnunar- kerfið með gjaldtöku á útgerðarfyrirtæk- in. Eyjamenn sjá að það þýðir veikari fyr- irtæki. Við erum að glíma við að borga skuldir, sem eru umtalsverðar og hafa aukist að undanförnu. Staðan batnar ekki heima fyrir með því að leggja á okkur sérstakt gjald. Flatt gjald er einnig hættulegt vegna þess að sá sem leggur á gjaldið veit ekki um afkomuna í til- teknum og ólíkum greinum. Ég er sannfærður um að um leið og menn eru farnir að tala um út- færslu veiðileyfagjalds sem einhvers skatts þá lenda þeir í nákvæmlega sömu súpunni og núna mallar, það er að segja ei- lífri og endalausri togstreitu um hvern á að skattleggja og hve mikið. Ætli það kerfi verði ekki svipað og á sjötta áratugnum þegar bátar fengu eitt verð fyrir gjaldeyri og togarar annað,“ segir Sigurgeir. Hann bendir einnig á að annars vegar sé talað um veiðileyfagjald en hins vegar um að ríkið sjái um rekstur eftirlitskerfis og hafrannsókn þáttur verið ski útgerðarinnar o aðinum sem sv þróunarsjóð en rekstri þessara Stórkostle Sigurgeir Br vera hjartanleg óvissan um var helsti galli þess leikinn sé skýr. „Það er einnig menn séu ekki s kerfinu. Að mín af stað með kvó kostlegasta mill ur verið. Nú er e okkur peninga sem eru að leg daga voru penin ar milli saltfis skreiðarvinnslu yrðu ekki mikla fiskveiðistjórnu hætti í svona mi taka hér í Eyju ildir til að flytj um, Þetta er ekk peningum, áðu núna milli útger Fleiri fiskar ver að flytja kvóta er einn og sam unin er ekki m byggðarinnar h Nokkrir forsvarsmenn í sjávarútvegi Sum skoða Misjöfn viðbrögð eru meðal fors þess efnis m.a. að gjald fyrir ekki kaupa sig Skiptar skoðanir eru um það meðal forsvars Menn kaupa sig ekki frá ágreiningi með auðlindagjaldi SAMKOMULAGIÐ Í ÓSLÓ FYRIR 25 ÁRUM Í dag eru 25 ár liðin frá því aðundirritaðir voru í Ósló milli ís-lenzkra og brezkra stjórnvalda samningar sem innsigluðu sigur Ís- lendinga í landhelgisstríðinu og tryggðu þjóðinni full yfirráð yfir 200 mílna fiskveiðilögsögunni. Nokkrum mánuðum síðar, eða hinn 1. desember 1976, hurfu brezkir togarar á brott. Segja má að síðasta áfanga sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar hafi þar með verið náð á fullveldisdaginn. Óslóarsamningarnir komu í kjölfar harðra átaka, sem staðið höfðu yfir frá útfærslunni í 200 mílur í október 1975. Aðdragandi þeirrar útfærslu var töluverður. Undir forystu Geirs Hall- grímssonar, þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, markaði flokk- urinn þá stefnu, sem fyrstu merki sáust um 1973 að færa skyldi fiskveiði- lögsöguna út í 200 sjómílur. Vinstri- flokkarnir, sem haft höfðu forystu um útfærslu í 50 sjómílur 1972, höfðu efa- semdir um þessa stefnu. Í þingkosn- ingunum 1974 vann Sjálfstæðisflokk- urinn hins vegar stórsigur, sem annars vegar byggðist á þessari stefnumörkun og hins vegar á baráttu fyrir því að varnarsamningurinn við Bandaríkin yrði óbreyttur en vinstri- stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem mynduð var 1971 og sat fram á vor 1974, hafði það á stefnuskrá sinni að segja varnarsamningnum upp þótt ljóst væri að ekki væri einhugur um þá stefnu innan þeirrar ríkisstjórnar. Eftir útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur hófust hörð átök á mið- unum. Bretar sendu enn einu sinni brezk herskip inn í íslenzka fiskveiði- lögsögu og næstu mánuði á eftir voru hörð átök inn á við og út á við. Geir Hallgrímsson, sem þá var for- sætisráðherra, fór í sögulega ferð til London þar sem hann átti viðræður við Harold Wilson, þáverandi for- sætisráðherra Breta. Forráðamenn Atlantshafsbanda- lagsins beittu sér mjög í deilunni og þá ekki sízt framkvæmdastjóri þess, Joseph Luns. Norðmenn komu líka mjög við sögu og þá sérstaklega Knud Frydenlund, þáverandi utanríkisráð- herra Norðmanna. Að lokum voru samningar undirrit- aðir í Ósló 1. júní 1976 á samninga- fundi, sem Einar Ágústsson, þáver- andi utanríkisráðherra, og Matthías Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs- ráðherra, sátu fyrir Íslands hönd en merkur brezkur stjórnmálamaður, Anthony Crosland utanríkisráðherra, fyrir hönd Breta. Þegar samkomulagið hafði verið undirritað sagði Geir Hallgrímsson m.a.: „Við höfum nú komist að sam- komulagi við allar þjóðir varðandi út- færsluna í 200 mílur eða þær virða út- færsluna í reynd. Við höfum komið á friði á miðunum og afstýrt þar með slysum og manntjóni sem hvenær sem var gat átt sér stað. Það er ávinningur hverri þjóð að leysa deilumál við aðrar þjóðir með samkomulagi, ekki sízt miðað við þann árangur, sem við náum skv. innihaldi þessa samkomulags í aflatakmörkunum, tryggingu friðun- arsvæða og stjórn fiskveiða á Íslands- miðum.“ Matthías Bjarnason er nú einn á lífi þeirra ráðherra sem mest komu við sögu landhelgissamninganna í Ósló 1976. Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Matthías Bjarnason m.a.: „Þeg- ar síðasti brezki togarinn hélt síðan út úr landhelginni 1. desember 1976 varð endanlega ljóst, að Íslendingar réðu einir yfir 200 mílna fiskveiðilögsögu og aðrir kæmu þar ekki nærri án samninga við okkur. Ég fullyrði að samkomulagið frá í Ósló fyrir 25 árum og úrslit þessa máls sé langmikilvæg- asti atburðurinn í sögu þessarar þjóð- ar frá stofnun lýðveldisins.“ Undir þessi orð Matthíasar Bjarna- sonar vill Morgunblaðið taka. Baráttan fyrir útfærslu landhelg- innar var löng og ströng. Ef miðað er við lýðveldistímann eingöngu stóð hún í aldarfjórðung. Þegar horft er til baka verður ljóst að djörf en umdeild stefnumörkun Sjálfstæðisflokksins um útfærslu í 200 sjómílur markar þáttaskil. Landhelgisdeilan 1975–1976 hvíldi þungt á mörgum þeirra sem við sögu komu, ekki sízt skipherrum og áhöfn- um varðskipanna sem stóðu sig frá- bærlega vel við erfiðar aðstæður. Pólitísk forysta þjóðarinnar í þess- ari erfiðu úrslitadeilu var í höndum Geirs Hallgrímssonar sem þurfti bæði að takast á við andstæðinga okkar á al- þjóðavettvangi en líka við erfiðar póli- tískar aðstæður heima fyrir. Hann leiddi deiluna farsællega til lykta og tryggði þar með full og endanleg yfir- ráð íslenzku þjóðarinnar yfir 200 mílna fiskveiðilögsögunni. Það traust, sem Geir Hallgrímsson naut meðal helztu forystumanna aðildarríkja Atl- antshafsbandalagsins, átti mikinn þátt í þessari jákvæðu niðurstöðu fyrir Ísland. Landhelgisstríðin, sem þjóðin háði aftur og aftur á löngum tíma, reyndu mjög á þá sem að þeim komu. Þau framkölluðu margvíslegar deilur inn- anlands. Þau voru notuð af andstæð- ingum aðildar okkar að Atlantshafs- bandalaginu og varnarsamningnum við Bandaríkin til þess að kynda undir óánægju almennings með þátttöku okkar í varnarsamstarfi frjálsra þjóða. Þau voru notuð til þess að koma höggi á pólitíska andstæðinga á heimavígstöðvum. Viðbrögð stjórnar- andstæðinga við Óslóarsamningunum sýndu mikla skammsýni og pólitíska tækifærismennsku. Þær Evrópuþjóðir, sem stundað höfðu fiskveiðar við Ísland áratugum og jafnvel öldum saman, komu í raun fram við okkur eins og nýlenduherrar við nýlenduþjóð. Við höfðum ekki afl til þess að reka þær í burtu af mið- unum með valdi. En við nýttum okkur sterka stöðu á alþjóðavettvangi til þess að knýja fram sigur smáþjóðar gegn stórþjóðum. Með því að ná fullum yfirráðum yfir auðlindunum við Íslandsstrendur hef- ur grundvöllur verið lagður að vel- megun þjóðarinnar um langa framtíð. Það er svo önnur saga hvernig okkur hefur farnast við meðferð þessara auðlinda og við að tryggja eðlilega skiptingu á afrakstri þeirra til þjóð- arinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.