Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 48
MINNINGAR
48 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Bergur RagnarHólmsteinsson
fæddist 9. janúar
1947 að Ytri-Hofdöl-
um í Viðvíkursveit,
Skagafirði. Hann
lést af slysförum að-
faranótt 24. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Hólm-
steinn Sigurðsson, f.
27.1. 1924, og Guð-
rún Bergsdóttir, f.
19.2. 1922, d. 26.2.
1996. Systkini Bergs
eru Sigrún Inga, f.
9.5. 1945, maki Sig-
urður Hólmkelsson, f. 14.10.
1932, og eiga þau fimm börn og
sex barnabörn; Anna Sigríður, f.
16.10. 1952, og á hún fimm börn
og sex barnabörn; og Marteinn
Hólm, f. 26.7. 1956, maki Stella
Bára Guðbjörnsdóttir, f. 17.10.
1960, og eiga þau þrjú börn.
Bergur ólst upp
að Ytri-Hofdölum
og byrjaði snemma
að vinna við bú-
skapinn. Ungur fór
hann að stunda
sjómennsku, fyrst á
ísfisktogurum hjá
Útgerðafélagi
Skagfirðinga en
einnig var hann á
flutningaskipum
um tíma. Bergur
stofnaði fyrirtæki
ásamt vini sínum
um skurð og sölu á
túnþökum, var
vélavörður í frystihúsinu Skildi í
nokkur ár, en tók einnig þátt í
sveitastörfunum. Síðustu ár var
hann bílstjóri hjá Suðurleiðum.
Útför Bergs fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku Bebbi. Mig langar til að
kveðja þig með þessum línum,
kæri frændi, um leið og ég þakka
þér fyrir allt.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margt að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku afi, Inga, Sigga, pabbi,
Friðsemd Erla Soffía og við öll,
megi guð gefa okkur styrk á erf-
iðri stund.
Þín frænka,
Guðrún Helga.
Hinsta kveðja frá systur og fjöl-
skyldu.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Inga, Sigurður og börn.
Elsku bróðir. Það kom sem reið-
arslag þegar mér var tjáð að þú
hefðir látið lífið í bílslysi. Af
hverju þú? Hver var tilgangurinn
með að kippa þér svo snögglega
burt úr þessu lífi? Þessar og aðrar
álíka spurningar veltast nú um í
höfðinu á mér en engin svör fást.
Ég mun ætíð fyrst og fremst
minnast þín sem stóra bróður,
greiðvikins, hjálpsams og barn-
góðs drengs.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Guð blessi minningu þína, kæri
bróðir.
Marteinn.
BERGUR RAGNAR
HÓLMSTEINSSON
✝ Gunnar ÓlafurHálfdanarson
fæddist í Stykkis-
hólmi 2. apríl 1909.
Hann lést á Beni-
dorm á Spáni, 24.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Hálfdan Ei-
ríksson, sjómaður í
Stykkishólmi, f. 10.
júlí 1878 á Djúpa-
læk, Skeggjasta-
ðahr., Langanes-
strönd, d. 15. okt.
1956, og Málfríður
Valentínusdóttir,
saumakona, f. 20. júlí 1879 í
Stykkishólmi, d. 5. febrúar 1956.
11 ára gamall fór Gunnar sem
2) Eiður Ágúst, f. 22. febr. 1936,
kvæntur Lucindu Grímsdóttur.
Þau eiga einn son. 3) Arnfríður
Halla, f. 3. febr. 1937, gift Jens
Ásmundssyni og eiga þau þrjú
börn. 4) Mjöll, f. 13. ágúst 1954,
gift Sigurði Rúnari Ólafssyni og
eiga þau tvö börn. Fósturbörn
Gunnars og Elínar eru : Elísa Þor-
steinsdóttir Löve, f. 13. jan. 1957
og Erlingur Logi Hreinsson, f. 14.
júní 1964.
Frá árinu 1970 bjó Gunnar með
Magneu Þóru Guðjónsdóttur, f. í
Reykjavík, 22. maí 1921. Þeirra
heimili var í Reykjavík, fyrst á
Réttarholtsvegi og nú seinni árin í
Lerkihlíð.
Gunnar vann að mörgum störf-
um, bifreiðastjóri hjá Þrótti um
árabil og starfsmaður Eimskips
síðustu starfsár sín.
Útför Gunnars fer fram frá Bú-
staðakirkju á morgun og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
vinnumaður að
Eystra Geldingaholti í
Árnessýslu og fermd-
ist þaðan. Hann vann
alla almenna vinnu
við bústörf á ýmsum
bæjum austan fjalls.
Árið 1933 kvæntist
Gunnar Elínu Valde-
marsdóttur, f. á Sól-
bakka í Hrunamanna-
hreppi, 27. jan. 1912,
nú látin. Þau slitu
samvistir.
Börn þeirra eru: 1)
Helena Marín, f. 30.
júní 1934, d. 12. sept.
1974. Maður hennar var Hreinn
Helgason. Þau eignuðust þrjú
börn.
Guð blessi minningu þína, elsku
Gunnar minn.
Er sumarið kom yfir sæinn
og sólskinið ljómaði um bæinn
og vafði sér heiminn að hjarta
ég hitti þig ástin mín bjarta.
Og saman við leiddumst og sungum
Með sumar í hjörtunum ungum,
– hið ljúfasta úr lögunum mínum,
ég las það úr augunum þínum.
Þótt húmi um hauður og voga,
mun himinsins stjörnudýrð loga
um ást okkar, yndi og fögnuð,
þótt andvarans söngrödd sé þögnuð.
(Sigfús Halldórsson.)
Lánsöm var ég að fá að kynnast
þér.
Magnea Guðjónsdóttir.
Þegar Gunnar kemur inn á heim-
ili Magneu móður minnar erum við
þrjú systkinin, af níu, enn heima og
við tökum því með ákveðinni varúð
þegar annar maður kemur á heim-
ilið í stað föður okkar. En Gunnar
vann hug okkar, vildi okkur allt hið
besta, var vinur okkar og hlúði að
heimilinu sem best hann gat. Það er
ekki alltaf auðvelt verk að taka að
sér heimili með stálpuðum börnum
og unglingum en hann var rólegur
maður og með tímanum ávann hann
sér traust og trúnað okkar
barnanna.
Í æskuminningum mínum eru
þetta góðir tímar með mömmu og
Gunnari.
Þau höfðu bæði gaman af ferða-
lögum og ég fór ekki varhluta af
því. Á hverju sumri var farið í
ferðalög, ýmist löng eða stutt, gist í
tjaldi og eldað á prímus, Húsafell,
Vestfirðir, Austfirðir, þeir eru fáir
staðirnir sem við höfum ekki komið
á. Við lentum í allskonar svaðil-
ferðum, um fáfarna fjallvegi og
óbrúaðar ár en Gunnar var við
stýrið og við mæðgur treystum
honum og öll komumst við heil
heim.
Gunnar á innilegt þakklæti mitt
skilið hvernig hann kom fram við
föður minn sem var sjúklingur til
margra ára. Faðir minn var alltaf
velkominn heim til okkar og milli
þeirra ríkti alla tíð velvild.
Nú á fullorðinsárum sé ég enn
betur hvað þessi velvild þeirra á
millum var okkur systkinunum
mikils virði og faðir okkar var alltaf
velkominn.
Á meðan ég á enn heimili mitt hjá
mömmu og Gunnari eignast ég mitt
fyrsta barn og er ég þar með dóttur
mína fyrstu fimm árin hennar.
Magga Gunna, dóttir mín, kallar
Gunnar afa frá fyrstu tíð og hann
gekk henni svo sannarlega í afa
stað og sá ekki sólina fyrir henni.
Þakkir á hann skildar fyrir allar
okkar góðu stundir á hennar fyrstu
árum og alltaf síðan. Hann átti nóga
væntumþykju til, og Ingibjörgu og
Guðfinni var hann líka sem besti afi
og við fjölskylda mín erum honum
þakklát fyrir allt það sem hann var
okkur frá fyrstu kynnum.
Hann var móður minni ákaflega
hjálplegur við heimilið og þegar
hún festi kaup á fokheldri íbúð í
Lerkihlíð, var traustið sett á hann
og hann brást því ekki og vann í
íbúðinni og gekk í múrverk og
smíðar og þau fluttu inn á tilsettum
tíma og þar hefur heimili þeirra
staðið í 17 ár. Þau hafa átt þar góða
tíma og það hefur alltaf verið gott
að koma til þeirra og þau ákaflega
samhent. Þeirra sameiginlega
áhugamál voru ferðalög og gömlu
dansarnir, sem þau stunduðu af
miklu kappi um árabil. Þau hafa
alltaf haldið áfram að ferðast, sem
var þeirra líf og yndi og hafa farið
mikið erlendis sér til mikillar
ánægju.
Að leiðarlokum þakka ég og fjöl-
skylda mín Gunnari allar góðu
stundirnar, stuðninginn og styrk-
inn sem hann veitti okkur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Við kveðjum kæran vin og biðj-
um honum Guðs blessunar.
Erla Óskarsdóttir
og fjölskylda.
GUNNAR ÓLAFUR
HÁLFDANARSON
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
!! "# ! $ !%&'
"# ! #% '!&'
(# "# ! !! ')%!!&'
%##&' % "# &' !% *#)+,#-!
"# &' . /!-% !
%0& "# &' #% ')%!!!
"! "# &' !!% 1 2!
0 3!& 2!
451 678
+%##%9 % ::
%0!% 0
, . ! ;
! "# $
% &'( ) # ' +'#0! #% <,#&'
! +'#0! =% #&'
' % !! !%! !!% - !&&'
9% !%9> ! !&%9> !
9% !%9% !%9> !
5 *885../
%!&93
0 , >0 %
2 ? ! -
*
% &&( #(
+ #
(
*
% "! *# !&&'
9+> ' % !&'
' )#& % &'
#% % &'
' !! <,#-%&' 0+>#2
% %!&%-!!
, =
/ 885../ !+%# @A
2+% 2
# -.( #(
) #
> ! !&%9> ! 9% !%9> !