Morgunblaðið - 01.06.2001, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Barnaskóli Vestmannaeyja
Laus staða
Bókasafns- og upplýsingafræðingur óskast
að skólasafni Barnaskóla Vestmannaeyja.
Leitað er að hugmyndaríkum starfsmanni til
að starfa við lifandi upplýsinga- og fræðslu-
miðstöð í skólanum. Skólasafnið er í nýinn-
réttuðu húsnæði, safnkostur er tölvuskráður
og öll aðstaða til upplýsingaöflunar og kennslu
til fyrirmyndar.
Upplýsingar gefur Hjálmfríður Sveinsdóttir,
skólastjóri, í símum 481 1944 og 481 1898
(heima).
Skólafulltrúi.
Íþróttakennarar ath!
Hér er kennarastaða sem vert er að
athuga frekar
Okkur vantar áhugasaman íþróttakennara
í Stykkishólm. Aðstaðan er eins og hún
getur best verið þ.e.
● Íþróttahús í fullri stærð.
● Tvær sundlaugar, 12 m innilaug/25 m úti-
laug/pottar o.fl.
● Tveir íþróttakennarar með hvern bekk.
● Allir bekkir með 3 tíma í íþróttum á viku.
● Þrír íþróttakennarar með mikla reynslu starfa
við skólann.
● Rúmlega 40 aðrir hressir starfsmenn.
● 230 nemendur í grunnskóla/30 nemendur
í framhaldsskóla.
● Stöðunni getur fylgt mikil þjálfun hjá UMF
Snæfelli.
● Sjón er sögu ríkari — hjartanlega velkomin
í heimsókn.
Allar frekari upplýsingar gefa Gunnar Svan-
laugsson, skólastjóri, í símum 438 1377 (vinna)
og 864 8864, netfang gunnar@stykk.is og
Eyþór Benediktsson, aðstoðarskólastjóri, í síma
438 1377 (vinna) og netfang eythor@stykk.is .
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TIL SÖLU
Blóm á grafreiti
Nú er rétti tíminn til þess að setja blóm á graf-
reiti. Tökum pantanir í Suðurgötukirkjugarð,
Gufuneskirkjugarð og Fossvogskirkjugarð alla
virka daga frá kl. 9—16 í síma 551 8166.
Garðyrkjudeild Kirkjugarða Reykjavíkur.
Til sölu í Kringlunni
Höfum til sölu 62,40 fermetra pláss í Kringlunni,
verslunarmiðstöð, ásamt tilheyrandi hlutdeild
í sameiginlegum svæðum.
Plássið er góðum stað á 1. hæð í norðurhúsi.
Upplýsingar gefur Hanna Lára Helgadóttir hrl.
Sundagörðum 2,
104 Reykjavík,
sími 590 2600.
TILKYNNINGAR
Vestfjarðavegur nr. 60:
Eyri — Vattarnes
mat á umhverfisáhrifum — athugun
Skipulagsstofnunar
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipu-
lagsstofnunar matsskýrslu um Vestfjarðaveg
nr. 60: Eyri — Vattarnes, í Reykhólahreppi.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 1. júní til 13. júlí 2001
á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Reykhóla-
hrepps og Bæjar- og héraðsbókasafninu, Ísa-
firði. Einnig liggur matsskýrslan frammi í
Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun
í Reykjavík. Matsskýrslan er aðgengileg á heima-
síðu Vegagerðarinnar: www.vegag.is.
Kynningarfundur um matsskýrsluna verður
í félagsheimilinu Vogalandi, Króksfjarðarnesi,
föstudaginn 8. júní kl. 20.30.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
13. júlí 2001 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi
166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun.
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996 - 2016,
Barðastaðir 1-5.
Í samræmi við 1. mgr. 21. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á Aðal-
skipulagi Reykjavíkur 1996-2016. Tillagan
lýtur að því að breyta norðurhluta lóðar-
innar nr. 1-5 við Barðastaði úr svæði fyrir
verslunar og þjónustumiðstöð í íbúða-
svæði.
Tillagan liggur frammi í sal Borgar-
skipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá
1. júní til 29. júní 2001. Þeim sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að koma með ábendingar og gera
athugasemdir við tillöguna. Ábendingum
og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 13. júlí
2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 1. júní 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Kynningarfundur
v. deiliskipulags fyrir miðbæ
Hafnarfjarðar.
Boðið er til kynningarfundar þar sem kynnt
verður tillaga að deiliskipulagi fyrir miðbæ
Hafnarfjarðar. Frestur til skila inn athugasemd-
um verður framlengur til 11. júní nk.
Fundurinn verður haldinn í Hafnarborg
fimmtudaginn 7. júní nk. kl. 20.00.
Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar.
Kjósahreppur
Deiliskipulag Höfða —
Neðra Hálsi
Hér með er lýst eftir athugasemdum við tillögu
að deiliskipulagi af Höfða í landi Neðra Háls.
Tillagan liggur frammi á sveitarskrifstofu Kjós-
arhrepps, Félagsgarði í Kjós, frá 1. júní til
29. júní nk.
Athugasemndum skal skila til oddvita Kjósar-
hrepps fyrir 1. júlí nk. og skulu þær vera skrif-
legar.
Oddviti Kjósarhrepps.
Landsbyggðafólk
athugið!
Bjóðum upp á ódýra gistingu til 15. júní nk.
Morgunmatur er innifalinn.
Gistiheimilið Berg
Bæjarhrauni 4, Hafnarfjörður.
Sími 565 2220, fax 565 4520.
Netfang: gestberg@vortex.is
Heimasíða: gestberg.vortex.is
Evrópumerkið/
European label
Evrópumerkið er viðurkenning fyrir ný-
breytni- og þróunarverkefni í tungumálanámi
og -kennslu.
Viðurkenningin er samstarfsverkefni á vegum
framkvæmdastjórnar ESB og er veitt árlega
í hverju þátttökulandi.
Innlend dómnefnd metur umsóknir og tekur
ákvörðun um veitingu viðurkenningarinnar.
Umsóknir um Evrópumerkið berist til Al-
þjóðaskrifstofu Háskólastigsins/Landsskrifstofu
Sókratesar fyrir 30. júní nk.
Bæklingi hefur verið dreift til skóla og stofnana
og þar er að finna umsóknareyðublað. Nánari
upplýsingar í síma 525 5813, netfang: rz@hi.is
og www.menntamalaraduneyti.is .
Auglýsing um
deiliskipulag fyrir miðbæ
Hafnarfjarðar
Framlenging á auglýsinga- og athugasemda-
fresti sbr. auglýsingu í Morgunblaðinu 20. apríl
2001 sama efnis.
Í samræmi við gr. 25 í skipulags- og byggingar-
lögum nr. 73/1997 m.s.br. er hér með auglýst
til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir
miðbæ Hafnarfjarðar.
Skipulagssvæðið afmarkast frá Norðurbakka
af Reykjavíkurvegi, Austurgötu, Brekkugötu
8, Suðurgötu frá nr. 11 að nr. 28, meðfram
Vesturhamri í suðurlóðarmörkum Strandgötu
50a, í áttina að strandlínunni og vestan við
göngustíg meðfram sjávarkambinum að
Reykjavíkurvegi. Deiliskipulag þetta kemur í
staðinn fyrir deiliskipulag sem staðfest var af
ráðherra 19.09.1983 m.s.br., fyrir þetta skipu-
lagssvæði.
Tillaga þessi var samþykkt af Bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar 3. apríl 2001. Áður auglýstur athuga-
semdafrestur framlengist til 11. júní 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til bæjarskipulags í Hafnarfirði. Þeir
sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast
samþykkir henni.
Bæjarskipulag Hafnarfjarðar.