Morgunblaðið - 01.06.2001, Side 57
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 57
HEIMDALLUR, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, held-
ur úti vefsíðu sem nefnist frelsi.is
og er henni ætlað að vera vettvang-
ur fyrir pólitíska umræðu út frá
sjónarhóli ungs fólks í flokknum.
Nýverið birtust þar tvær greinar
með nafnlausum ummælum um
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og
einkunnagjöf um þá. Undirrituð
fékk einkunnina 3,5 og þá umsögn
að bregðast ekki röngum málstað,
að vera hræðilegasti þingmaður
sjálfstæðismanna fyrr og síðar, að
geta alveg eins verið vinstrimaður,
að vera líkt og harður vinstrimaður
þegar kemur að menningarstyrkj-
um og álíka sjóðasukki og klykkt út
með: „Hvað er þessi kona að gera í
Sjálfstæðisflokknum? Það er sama
hvort litið er á störf hennar í borg-
arstjórn eða á Alþingi, hún á miklu
meiri samleið með Samfylkingunni.
Örugglega eini þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins sem er þeirrar
skoðunar að allt eigi að vera bann-
að, nema það sé sérstaklega leyft –
af henni.“
Hvers vegna 40% fylgi
í kosningum en ekki 2%?
Ef þau sjónarmið, sem lesa má út
úr ummælum ónafngreindra Heim-
dellinga um ýmsa þingmenn sína,
væru almenn meðal sjálfstæðis-
manna, væri Sjálfstæðisflokkurinn
smáflokkur, líkast til með einungis
2% fylgi. Í síðustu Alþingiskosing-
um fékk hann hins vegar meira en
40% atkvæða vegna þess að hann er
víðsýnn flokkur allra stétta og inn-
an hans rúmast fjölbreyttar skoð-
anir á ýmsum málum. Sem dæmi
má nefna sjávarútvegsmál, um-
hverfismál, heilbrigðismál, einka-
væðingu, Evrópumál og menning-
armál. Þær öfgar sem kenna má í
palladómum um þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins eru Heimdalli ekki
til framdráttar og dæma mörg um-
mælin sig sjálf. Lesa má milli lín-
anna að afstaða margra þingmanna
gegn því að breyta lögum um hnefa-
leika fer fyrir brjóstið á ráðgjöfum
hjá frelsi.is. Ég vísa lesendum á
umsögn heilbrigðis- og trygginga-
nefndar þingsins um boxið, þar sem
skýr rök koma fram því til stuðn-
ings að núgildandi lög standi
óbreytt. Ég tel að áfram megi halda
því fram að ekki eigi að berja fólk.
Það var mér kennt í æsku.
Málsvari fyrir helming sjálf-
stæðismanna í Reykjavík
Enginn gerir svo öllum líki. Ég
hef sem borgarfulltrúi og þingmað-
ur látið mig flest skipta og myndað
mér skoðanir í samræmi við lífsvið-
horf mín, reynslu og sjálfstæðis-
stefnuna og mun hér eftir sem hing-
að til vera trú sannfæringu minni.
Ég hef verið talsmaður þess á
mínum pólitíska ferli að umhverf-
ismál komi okkur öllum við og að
fjarri fari að þau séu „vinstri“
stefna. Þær ákvarðanir í umhverf-
ismálum sem teknar eru í dag munu
hafa afgerandi áhrif á morgun. Mik-
ilvægt og lýðræðislegt er að tryggja
samráð við frjáls félagasamtök í
umhverfismálum og hef ég lagt
fram þingsályktunartillögu þess
efnis á Alþingi. Ég talaði gegn því
að virkjað yrði við Eyjabakka,
reyndar sú eina af þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins, en fram kom í
skoðanakönnunum að helmingur
sjálfstæðismanna í Reykjavík (og
reyndar helmingur framsóknar-
manna) var á sama máli og ég um að
fram ætti að fara mat á umhverf-
isáhrifum virkjunar þar. Það er
ekki lítil ábyrgð að vera málsvari
helmings sjálfstæðismanna í
Reykjavík en ég skal axla hana með
ánægju.
Velferð, listir og menning
Ég er hlynnt því eins og þorri
sjálfstæðismanna að allir lands-
menn eigi rétt á að mennta sig og að
heilbrigðisþjónusta sé hverjum
manni aðgengileg. Sömuleiðis vil ég
að stutt sé við bakið á listum og
menningu og lagði m.a. til í borg-
arstjórn Reykjavíkur á sínum tíma
að Reykjavík sækti um að verða
menningarborg Evrópu. Sá draum-
ur rættist og lögðust margir á ár-
arnar, þar á meðal menntamálaráð-
herra, til þess að menningarborgin
Reykjavík yrði landsmönnum öllum
til sóma. Björn Bjarnason fær
reyndar þann palladóm hjá Heim-
dellingum að hann sé hlynntur sósí-
alisma í menningarmálum. Ég
kvarta ekki undan hans félagsskap.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að
hafa málsvara fyrir fleiri skoðanir
en hörðustu markaðshyggju af því
tagi sem lítill hópur Heimdellinga
talar fyrir. Þeir vilja hafa frelsi til
að berja á samflokksmönnum sínum
úr launsátri. Sjálfstæðismenn eru
upp til hópa frjálslynt fólk og skoð-
anir þær sem Heimdallur hefur
nafnlaust sett fram um þingmenn
sína eru af allt öðrum toga spunnar.
Gróa á Leiti er lífseig. Í gegnum
slagorðin skín þekkingarleysi og
reynsluleysi þeirra sem Heimdallur
vitnar í og ekki þora þeir að koma
fram undir nafni. Vonandi vaxa þeir
að vizku og þroska með tímanum.
Katrín
Fjeldsted
Frelsi
Lítill hópur Heimdell-
inga, segir Katrín
Fjeldsted, vill hafa
frelsi til að berja á
samflokksmönnum
sínum úr launsátri.
Höfundur er læknir og þingmaður
Reykvíkinga.
Frelsi til að berja?
NETVERSLUN Á mbl.is
Drykkjarbrúsi
aðeins kr. 400