Morgunblaðið - 01.06.2001, Qupperneq 59
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 59
Í DAG, hinn 1. júní,
taka gildi tvenn ný lög
sem hvor um sig munu
færa neytendum mikl-
ar réttarbætur. Þau
lög sem hér um ræðir
eru annars vegar ný
lög um lausafjárkaup
(kaupalög) og hins veg-
ar lög um þjónustu-
kaup. Gildistaka um-
ræddra laga er stór
áfangi fyrir neytendur
enda hafa fram til
þessa engin bein
ákvæði verið í lögum
um þjónustukaup og
eldri kaupalög eru að
stofni til frá árinu
1922.
Ný kaupalög
Í nýjum kaupalögum fá flest
ákvæði eldri laga andlitslyftingu.
Inntak margra þessara ákvæða er
þó óbreytt og er það neytendum al-
mennt til góða þar sem neytendur
þekkja reglur eldri laga og munu
geta notað þá kunnáttu sína áfram. Í
nýju lögunum eru þó tiltekin nýmæli
sem vert er að kynna sérstaklega
fyrir íslenskum neytendum. Nýmæl-
in sem helst ber að nefna eru annars
vegar sérreglur nýrra kaupalaga um
neytendakaup og ákvæði um al-
menna lengingu ábyrgðartíma úr
einu ári í tvö ár.
Lög um lausafjárkaup eru að
meginstefnu til frávíkjanleg og er
því kaupanda og seljanda almennt
heimilt að semja sig undan lögunum.
Sérreglur nýrra kaupalaga um neyt-
endakaup mæla hins vegar svo fyrir
að almennt er óheimilt að víkja frá
lögunum þegar um neytendakaup er
að ræða. Þetta þýðir að ef seljand-
inn hefur atvinnu af sölunni og
kaupandinn kaupir hlutinn til per-
sónulegra nota fyrir sig er aðilum
óheimilt að víkja frá ákvæðum
kaupalaga kaupandanum/neytand-
anum í óhag. Með þessum hætti
koma sérreglur kaupalaga um neyt-
endakaup í veg fyrir það að selj-
endur geti gert samninga við neyt-
endur sem brjóta gegn lögunum og
eru ákvæðin því fagnaðarefni fyrir
alla neytendur. Lenging ábyrgðar-
tíma úr einu ári í tvö hefur einnig
umtalsverða þýðingu fyrir íslenska
neytendur. Nú tekur gildi sú regla
að krafa kaupanda vegna galla á
hlut fellur ekki niður fyrr en tvö ár
eru liðin frá því að hluturinn var
keyptur. Fram til þessa hefur um-
rædd krafa fallið niður að einu ári
liðnu frá kaupum. Ýmsum hlutum er
ætlaður endingartími í mörg ár og
því hefur niðurfelling ábyrgðar eftir
eitt ár oft reynst afar ósanngjörn
gagnvart neytandanum. Með leng-
ingu ábyrgðartímans er réttur neyt-
enda mun betur tryggður.
Lög um þjónustukaup
Eins og heiti laganna gefur í skyn
gilda lög um þjónustukaup um
samninga um kaup á þjónustu. Þjón-
ustan getur m.a. falið í sér bifreiða-
viðgerðir, vinnu við pípulagnir og
þjónustu arkitekta og verkfræðinga.
Lög þessi eru ófrávíkjanleg og er
því eins og í neytendakaupum
óheimilt að semja um lakari rétt en
lögin kveða á um.
Með lögunum er réttur neytand-
ans í slíkum viðskiptum loks lögfest-
ur og eru ýmis ákvæði laganna mikil
réttarbót fyrir neytendur. Sem
dæmi má nefna að lögin leggja
ákveðna upplýsinga- og leiðbein-
ingaskyldu á seljanda þjónustu.
Þannig ber seljanda að upplýsa
neytandann um það hvort kaup á
þjónustunni, t.d. viðgerð á hlut, sé
hagkvæm eða ekki með hliðsjón af
verðgildi hlutarins. Ákvæði þetta er
til mikilla bóta þar sem aðili sem
hefur atvinnu af að selja þjónustu
sína á grundvelli fagþekkingar er
betur fær en neytandi um að gera
sér grein fyrir því hvort það svari
kostnaði að vinna verkið. Í lögunum
er tiltekið hvenær þjónusta telst
gölluð og hve lengi seljandi ber
ábyrgð á unnu verki. Ábyrgðartími
á þjónustu skv. lögunum er tvö ár í
samræmi við nýju kaupalögin. Í lög-
unum eru einnig ákvæði um verð
þjónustu, þ. á m. um verðáætlanir
og verðtilboð. Neytendasamtökin
lýsa yfir sérstakri ánægju með þau
ákvæði þar sem mörg slík ágrein-
ingsmál berast samtökunum.
Neytendasamtökin fagna mjög
setningu framangreindra laga en
setning þeirra hefur verið eitt af
baráttumálum Neytendasamtak-
anna síðustu árin.
Ólöf Embla
Einarsdóttir
Höfundar eru lögfræðingar hjá
Neytendasamtökunum.
Réttarbætur
Neytendasamtökin,
segja Björk
Sigurgísladóttir
og Ólöf Embla
Einarsdóttir fagna
mjög setningu laganna.
Björk
Sigurgísladóttir
Til hamingju með
daginn, neytendur!
EINS og fram hefur
komið hafa þroska-
þjálfar hjá Reykjavík-
urborg verið í verkfalli
síðan 18 maí sl. og
þroskaþjálfar hjá ríki
og sveitarfélögum hafa
boðað til verkfalls 1
júní nk.
Hvaða viðhorf end-
urspeglar sá samnings-
vilji sem opinberar
samninganefndir sýna
í verki í baráttu
þroskaþjálfa til að fá
launakjör sín leiðrétt?.
Er það verðmætamat
stjórnvalda á þjónustu
við fatlaða eins og for-
maður og framkvæmdastjóri
Þroskahjálpar spurðu sig í grein
sinni í Morgunblaðinu 16 maí sl.?
Eða er það þekkingarleysi þeirra á
faglegum störfum þroskaþjálfans?
Kjör þroskaþjálfa í dag eru engan
veginn í tengslum við menntun
þeirra og ábyrgð í starfi og fara þeir
fram á að laun þeirra miðist við laun
sambærilegra faghópa sem hafa
sambærilega menntun að baki. Er
það fullmikið af því góða og sam-
ræmist ekki veðmætamati starfa
þeirra, eða hvað?
Þroski barns er flókið ferli,
þroskaþættirnir samofnir og hafa
gagnkvæm áhrif hver á annan. Fyrir
flest okkar er það sjálfsagður hlutur
að barn okkar öðlist reynslu og
þroska gegnum samspil sitt við um-
hverfið. Því miður er ekki öllum gef-
ið að læra á svo auð-
veldan hátt og þurfa því
aðrar leiðir og lengri
tíma til að tileinka sér
þekkingu og reynslu.
Ef hreyfigetan er skert
verða athafnir öðruvísi,
ef hugsanafærni er
skert verður úrvinnsl-
an öðruvísi og ef skynj-
un er skert upplifum
við hlutina öðruvísi.
Starf þroskaþjálfans
felst meðal annars í því
að tryggja að hvert
barn með skerta getu
njóti sömu fjölbreytni í
upplifun og önnur börn.
Sérþekking þroska-
þjálfans tryggir að farnar séu þær
leiðir sem henta hverju barni hverju
sinni og starf sitt byggir hann á fag-
menntun sinni á þroskaferli einstak-
lingsins, sviði fötlunar og skipuleg-
um vinnubrögðum.
Undirrituð þjálfar og hefur yfir-
umsjón með atferlismeðferð ein-
hverfs barns á leikskóla, undir hand-
leiðslu Greiningarstöðvar auk
reglulegra heimsókna erlendra ráð-
gjafa. Meðferð barnsins er hluti af
fjölþjóðlegri rannsókn á vegum Iv-
ars Lovaas prófessors við Kaliforn-
íuháskóla sem þróaði heildstæða at-
ferlismeðferð sem meðferðarform.
Barnið er í stífri atferlismeðferð allt
að 8 tímum á dag í leikskólanum.
Þrír þroskaþjálfar koma þar að
þjálfun barnsins. Starfið er krefj-
andi, krefst mikils aga og nákvæmni.
Þar sem undirrituð hefur yfirumsjón
með þjálfun barnsins þiggur hún
laun sem deildarstjóri og eru það
heilar 112.589.00 á mánuði fyrir
100% starf. Atferlismeðferðin felur í
sér marga kennsluþætti sem hver
um sig er þróaður til að kenna
ákveðna færni eða hugtak og alltaf
tekið mið af eðlilegri þroskafram-
vindu. Menntun þroskaþjálfans er
dýrmæt á þessum starfsvettvangi og
hafa þeir því verið eftirsóttur starfs-
kraftur og komið mikið að þjálfun
þeirra barna sem tekið hafa þátt í
Lovaas-rannsókninni hér á landi.
Árangur og ánægja hafa löngum
haldist í hendur, svo vissulega fáum
við ánægju út úr störfum okkar, en
launin eru hvorki hvetjandi né við-
unandi og endurspegla að mínu mati
lítilsvirðingu fyrir starfi mínu. Nú er
svo komið að ég ætla ekki að una við
þetta lengur og hef sagt starfi mínu
lausu. Ef ekki verður leiðrétting á
þessum bágu kjörum þroskaþjálfa
hyggst ég snúa mér að öðrum starfs-
vettvangi. Enda virðist það vera
markmið hins opinbera að halda
þroskaþjálfastéttinni sem láglauna-
stétt og stuðla þannig að flótta úr
stéttinni.
Hvers virði er
faglegur auður?
Ásta Björk
Björnsdóttir
Höfundur er þroskaþjálfi.
Kjarabarátta
Kjör þroskaþjálfa í dag,
segir Ásta Björk
Björnsdóttir, eru engan
veginn í tengslum við
menntun þeirra og
ábyrgð í starfi.