Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 52
MINNINGAR 52 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Margrét Sigríð-ur Benedikts- dóttir fæddist í Reykjavík 17. mars 1904. Hún lést að heimili sínu, Hall- kelshólum Gríms- nesi, þann 25. maí 2001. Foreldrar Margrétar voru hjónin Ingunn Björnsdóttir, f. 13.desember 1865, d. 11. mars 1959 og Benedikt Jóhannes- son, f. 12. júlí 1865, d. 1 desember 1955. Systkini Margrétar voru: Björn prentari í Reykjavík; Jón Ár- mann bóndi á Krossi í Innri- Akraneshreppi; Kristín hús- freyja í Reykjavík; Guðbjörg húsfreyja í Reykja- vík. Hinn 13. október 1928 giftist Margrét Alberti J. Finnboga- syni, f. 24. júlí 1900, d. 11. ágúst 1988, vélsetjara, bókaút- gefanda (Norðri hf) og síðast bónda að Hallkelshólum. Þau eignuðust eina dótt- ur, Rannveigu Björg útstillinga- hönnuð og hús- freyju, gifta Gísla Hendrikssyni hús- gagnabólstrara og fiskeldis- bónda að Hallkelshólum. Útför Margrétar fer fram frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Ég tigna kærleiks kraftinn hljóða. Kristur sem birtist oss í þér. Þú hefur föðurhjartað góða himnanna ríki opnað mér. Ég tilbið undur elsku þinnar, upphaf og takmörk veru minnar. (Sigurbjörn Einarsson.) Aðeins nokkur orð til að minnast föðursystur minnar, Margrétar Sigríðar Benediktsdóttur. Minn- ingar um hana eru flestar frá barnæsku minni. Oft um helgar röltum við pabbi milli systra hans. Þær bjuggu mjög nálægt hver annarri, Magga, Gauja og Stína. Alls staðar var gott að koma. Þáð- um við góðgjörðir hvar sem við komum. Pabba þótti afar vænt um systur sínar, ekki síst Möggu. Mér er minnisstæðast brosið hennar og þessi hlýja sem umvafði hana og geislaði frá henni. Hún var mér einstaklega góð. Fyrir nokkrum árum kom ég í heimsókn til hennar að Hallkels- hólum þar sem hún bjó hjá Rann- veigu dóttur sinni og Gísla tengda- syni sínum. Sama brosið og hlýjan tóku á móti mér. Margrét var svo heppin að eiga einstaklega góða dóttur. Það er held ég einsdæmi hversu vel Ranna hugsaði um móður sína og hjá henni lokaði hún augunum í hinsta sinn. Ranna naut góðrar að- stoðar manns síns, hans Gísla. Hann var Margréti sem besti son- ur. Ég kveð þig frænka mín, fegin hefði ég viljað eiga fleiri samveru- stundir með þér. Að lokum vil ég senda Rann- veigu og Gísla kveðju frá móður minni, Guðríði Jónsdóttur. Hún sagði þegar ég tilkynnti henni lát- ið: „Margrét var einstaklega góð kona.“ Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Gunnvör Björnsdóttir. Hún Margrét móðursystir okk- ar, eða Magga frænka eins og hún var alltaf kölluð af okkur systk- inabörnum sínum, er horfin á vit ljóssins heima. Hún var gift Albert J. Finnbogasyni, miklum öðlings- manni, og bjuggu þau á Hallkells- hólum í Grímsnesi ásamt Rönnu dóttur sinni og hennar manni, Gísla Hendrikssyni. Eftir andlát Alberts var hún svo lánsöm að geta búið í faðmi dóttur sinnar og tengdasonar til hinstu stundar. Hún var alltaf svo glöð og þakklát og sagði alltaf: „Hún Ranna mín hugsar svo vel um mig,“ og það var mikið rétt, því það gerði hún með miklum sóma. Magga var sér- stök kona. Hún hafði til að bera mikið æðruleysi og kærleik sem hún miðlaði til allra. Við sem þetta ritum vorum svo sannarlega að- njótandi hennar kosta frá því við vorum telpur og ætíð síðan. Það var alltaf svo gott að koma til hennar ef manni leið ekki vel, þá þurrkaði hún tárin og lagði smyrsl á sárin. Það hrannast upp svo ótal minningar sem ekki er hægt að minnast hér í þessum fátæklegu kveðjuorðum. Við kveðjum elsku- lega frænku með djúpu þakklæti og virðingu fyrir allt sem hún miðlaði okkur af sínum kærleiks- brunni. Við biðjum henni Guðs blessunar á nýjum leiðum. Við vottum Rönnu og Gísla okkar dýpstu samúð og biðjum alföður að gefa þeim styrk. Megi minningin um góða konu gera okkur öll að betri manneskjum. Systradætur, Hjördís og Brynhildur. Í dag kveðjum við elskulega frænku og vinkonu Margréti eða Möggu eins og hún var alltaf köll- uð. Ég kynntist Möggu, Albert og Rönnu dóttur þeirra í gegnum manninn minn, en Magga var móð- ursystir hans. Hún reyndist mér og okkur alla tíð sem besta vin- kona og þau hjón áttu stóran þátt í okkar lífi og hamingju. Þegar við giftum okkur í nóvember 1951 fengum við leigða yndislega ris- íbúð í húsi þeirra að Sigtúni 41. Þau fjögur ár sem við bjuggum þar eru ógleymanleg. Morguninn eftir brúðkaup okkar fundum við mjólk, brauð og fleira góðgæti sem hún hafði sett á skörina hjá okkur. Þessi rólega elskulega kona hafði ekki hátt en hún gaf mikið af sjálfri sér. Þegar sonur okkar Óli fæddist tóku þau honum opnum örmum og alltaf voru þau tilbúin að rétta fram hjálparhönd og var Óli litli sólargeislinn þeirra. Þetta voru yndislegir tímar. Síðar tóku þau upp heimili sitt og fluttu að Hallkelshólum í Grímsnesi. Albert hafði lengi þráð sveitina og var hann mikill hestamaður. Þau eign- uðust þar yndislegt heimili og var líf þeirra samofið ást og virðingu hvors til annars. Þegar Óli var sex ára fór hann í sveit til þeirra og var þar öll sumur fram til sextán ára aldurs. Hann hefur búið að því alla tíð. Ranna og Gísli eiginmaður hennar bjuggu líka að Hallkels- hólum. Gísli var með bólstrun ásamt því að vinna við búskapinn og var hann þeim sem besti sonur. Ekki fá orð lýst þeirri ást og um- hyggju sem þau báru fyrir Möggu og Albert alla tíð. Magga var búin að vera mikill sjúklingur í mörg ár og þurfti mikla aðhlynningu bæði dag og nótt. Aldrei hvarflaði að dóttur hennar að láta hana frá sér fara heldur sá hún algjörlega um móður sína með aðstoð Gísla og var Magga þeim alltaf svo blíð og þakklát. Við vottum Rönnu og Gísla okk- ar innilegustu samúð og minnumst Möggu frænku með ást og viðingu. Blessuð sé minning hennar. Drott- inn láti hið eilífa ljós lýsa henni. Hún hvíli í friði. Björg og Benidikt. Bernsku- og æskuárin eru mörgum ógleymanleg, oft kemur minningin um Margréti í hugann. Á þessu skeiði hnýtast meðal ann- ars þau vináttubönd sem ekkert fær að slíta ævina út. Margrét Benediktsdóttir er nú horfin sjón- um okkar á 98. aldursári. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum, Ingunni og Benedikt, að Frakkastíg 6 í Reykjavík. Systkinin voru fimm, tveir bræður og þrjár systur. Öll systkinin eru nú látin og frá þeim kemur stór og myndarlegur ætt- bogi. Margrét giftist Alberti J. Finnbogasyni sem ungur maður var að flytja heim frá Kanada. Bæði unnu þau í prentsmiðjunni Gutenberg og kynntust þar. Bú- skap sinn byrjuðu þau að Frakka- stíg 7 í Reykjavík og byggðu það hús. Þar fæddist einkadóttirin Rannveig Björg. Síðar fluttu þau að Sigtúni 41 í Reykjavík. Albert var mikill hestamaður og bóndi í sér og keypti jörðina Hólakot í Grímsnesi 1942 sem sumardvalar- stað. Ári síðar fékk hann leyfi til að breyta nafni Hólakots í Hall- kelshóla og tók þannig uppruna- legt nafn jarðarinnar eins og getið er í Landnámu. Árið 1957 ákváðu þau að byggja upp jörðina og gerðu það með myndarbrag. Margrét fékk sína ósk uppfyllta að fá að dvelja heima til síðustu stundar hjá Rönnu Björg og Gísla sem önnuðust hana af sérstakri natni. Síðustu stundina sat hún við eldhúsborðið með kaffibollann sinn og hjá henni Pétur læknir í Laug- arási, honum eru færðar þakkir fyrir hugulsemi og hjálpsemi í hennar garð. Þeir læknar í Laug- arási, Pétur og Gylfi, eru góðir læknar og virtir af sínum sjúkling- um. Heimili Margrétar var hlýlegt og oft mjög gestkvæmt, hún lifði lífi sínu fyrir aðra. Ganga hennar hér á jörð og sporin sem hún skildi eftir sig í hjörtum þeirra sem hana þekktu eru sannarlega í anda kristinnar trúar. Nú þegar lífi er lokið, fyllist hjarta mitt þakklæti fyrir allar þær stundir sem ég og fjölskylda mín áttum saman. Blessuð sé minning mætrar konu. Innilegar samúðarkveðjur til Rönnu Bjargar og Gísla. Auður Jónsd. MARGRÉT SIGRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.                            !"  #$"#   !"       "  %& $  " ! '(    )( $ # *    * + " " #      !!  "!#   "$ !!   %  "$"         "         &  '  ( # )*+!,  ()%%- )% . #/0,+0     )  (*!*   (*  )1  +1) )1) !!  '# $ !!     $" )1+1) $ !!  #  /, $"    $" 2! $ !!  ) $ !!  /$ (  )# " $) ' $"  +1) /, $ !!  #)   $" 1-# 1)  ),  !!   #   $ !!  '# 1 3 %" **4 " ***4      "           # 5  3 )# 67 0#,$ 1           ,     "    #*# ,4  " ( !+   !!  -#%  !!  '#8  + -# 1)  !!  **4 ***4 4%%)* "    $"  "        " -       '   9     :0 )% . #/0,+0          .(*     "    /" !  ( $ (-  (*  011   )1"  - ;  )1 !!  +)  )1" 3 "  *,4 # *,4 !!  '   !!  **4 " ***4 2'     "       ( & 4!) .. "  (     ( -  &(*  ,,1 3"  " ( !  "2"  )(- "  # !   "    -# !!  -#"  ) !!   )1) (#! " )1 ',<% !!  ,4 (#! " +  !!   + (#!  !!  " '$!# " '  &0 (#! " '# 1 :% !!  **4 " ***4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.