Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 39
hlutfall af
u 27-42%
25% sem
eiðidánar-
0.86 sem
sem afla-
ngarstofn
lágmarki
m munu
ngunum
r en 6 ára
ns.
985-1996,
fa reynst
8 og 1999
alárgang-
i talsverð
rgangsins
þá átt að
kveiðiárið
n. Gert er
veiðiárinu
inn 2001
notkun á
eytingum
fellt niður
k.
t aflaregl-
fiskveiði-
r 577 þús.
745 þús.
frá því í síðari heimsstyrjöld. Veiði-
stofn í ársbyrjun 2001 er nú metinn
um 127 þús. tonn og hrygningar-
stofn um 85 þús. tonn sem er
nokkru lægra en var í síðustu út-
tekt. Ufsastofninn telst hafa verið í
sögulegu lágmarki undanfarin ár.
Nýliðun í ufsastofninn hefur verið
léleg á undanförnum árum og litlar
haldbærar vísbendingar eru um
stærð uppvaxandi árganga. Göng-
ur ufsa inn á íslenskt hafsvæði voru
metnar í annað sinn í stofnmati árs-
ins 2001.
Hafrannsóknastofnunin leggur
til að enn verði dregið úr sókn í
ufsastofninn og að afli á fiskveiði-
árinu 2001/2002 fari ekki yfir 25
þús. tonn. Með þessu er stefnt að
sjálfbærum veiðum úr stofninum í
framtíðinni.
Karfastofnar
Samanlagður afli gullkarfa og
djúpkarfa á Íslandsmiðum árið
2000 var tæp 73 þús. tonn en síðast-
liðinn áratug var samanlagður afli
á bilinu 68-97 þús. tonn.
Gullkarfaafli var áætlaður rúm
41 þús. tonn árið 2000, sem er 1000
tonnum meiri afli en árið áður.
Sókn í stofninn hefur minnkað
verulega á undanförnum árum en
afli á sóknareiningu hefur verið
fremur lítill undanfarin ár. Vísitöl-
ur gullkarfa úr stofnmælingu botn-
fiska lækkuðu verulega á árunum
1986-1995. Vísitalan óx hinsvegar
frá 1996-1999 vegna sterka ár-
gangsins frá 1985 en hefur lækkað
aftur í tveimur síðustu stofnmæl-
ingum og er enn lág. Niðurstöður
stofnmælinga botnfiska benda til
þess að árgangurinn frá 1990 sé
sterkur og er hans þegar farið að
gæta í veiði. Þar sem fyrirsjáanlegt
er að nýliðun í veiðistofninn verður
ekki umtalsverð úr árgöngunum
eftir 1990 árganginn, er mikilvægt
að takmarka sókn svo veiðistofn
minnki ekki á næstu árum. Því
leggur Hafrannsóknastofnunin til
að sókn í gullkarfastofninn á fisk-
veiðiárinu 2001/2002 verði tak-
mörkuð þannig að hámarksafli fari
ekki yfir 30 þús. tonn.
Áætlað er að tæp 32 þús. tonn af
djúpkarfa hafi veiðst á Íslandsmið-
um árið 2000 en um 29 þús. tonn ár-
ið 1999. Aflinn jókst verulega á ár-
unum 1989-1994 en síðustu ár hefur
afli minnkað. Sú minnkun sem varð
í afla og sókn er nú að skila sér í
auknum afla á sóknareiningu, sem
er þó enn mjög lágur. Vísbendingar
eru um aukna nýliðun í veiðistofn-
inn, en þó er ástand stofnsins enn
talið slæmt. Hafrannsóknastofnun-
in leggur því til að sókn í djúpkarfa
á Íslandsmiðum verði takmörkuð
þannig að hámarksafli fiskveiðiárið
2001/2002 fari ekki yfir 30 þús.
tonn. Þessi ráðgjöf er í samræmi
við ráðgjöf Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins um 35 þús. tonna heildar-
kvóta úr öllum stofninum frá A-
Grænlandi að Færeyjum.
Úr úthafskarfastofninum veidd-
ust um 127 þús. tonn á síðasta ári
og er því búið að veiða rúmlega 1.8
milljónir tonna frá því veiðar hófust
árið 1982. Á síðasta ári var afli ís-
lenskra skipa rúm 45 þús. tonn,
samanborið við 44 þús. tonn árið
1999. Stærstur hluti afla Íslend-
inga veiddist innan íslensku lög-
sögunnar. Á síðustu árum hefur
aukinn hluti aflans verið veiddur á
meira en 600 m dýpi. Vísbendingar
eru um að karfi í úthafinu skiptist í
tvo stofna sem halda sig á mismun-
andi dýpi.
Magn úthafskarfa var síðast
mælt sumarið 1999. Þá mældust
600 þús. tonn af úthafskarfa ofan
500 m dýpis, samanborið við 2,2 og
1,2 milljónir tonna árin 1994 og
1996. Mælingin 1999 var talin van-
mat. Magn karfa neðan 500 m dýp-
is var áætlað um hálf milljón tonna,
en það mat er mjög ónákvæmt.
Samkvæmt dýptardreifingu afla og
stofnmati eru vísbendingar um að
sókn í neðri hluta stofnsins sé mun
meiri en í efri hluta hans. Í ljósi
óvissunnar um samspil stofna eða
stofnhluta karfans er talið nauð-
synlegt að stjórna veiðum aðskilið
úr hverjum hluta fyrir sig.
Alþjóðahafrannsóknaráðið legg-
ur til að afli á árinu 2002 verði að
hámarki 85 þús. tonn.
Fyrirhugaður er fjölþjóða leið-
angur í júní–júlí 2001 þar sem
mæla á stærð karfastofna í úthaf-
inu.
Grálúða
Grálúða við Austur-Grænland,
Ísland og Færeyjar er talin vera af
sama stofni. Heildarafli grálúðu á
þessu svæði var tæp 27 þús. tonn
árið 2000 samanborið við 20 þús.
tonn árin 1998 og 1999.
Afli Íslendinga árið 2000 var
14.500 tonn. Heildarsókn í stofninn
náði hámarki árið 1996 en hefur
minnkað um meira en helming á
síðustu fjórum árum. Afli á sókn-
areiningu, sem var í lágmarki 1995-
1997, hefur aukist umtalsvert á síð-
ustu þremur árum en var á síðasta
ári einungis rúm 60% af meðaltali
áranna 1985-1989.
Alþjóðahafrannsóknaráðið legg-
ur til að sókn á hverjum tíma verði
miðuð við að veiðidauði sé 2/3 af
veiðidauða við hámarksafrakstur. Í
ljósi þessa leggur Hafrannsókna-
stofnunin til að heildarafli grálúðu
á hafsvæðinu Austur-Grænland/Ís-
land/Færeyjar fiskveiðiárið 2001/
2002 verði takmarkaður við 20 þús.
tonn.
rki
n
! " #
$
"
% &' %
(
)
*
+
,
-
.
-
.
.
+
.
+)
.
)
*
.
*+
.
*
+,*
.
+
--
.
,
,*
.
-
)
.
,*+
.
*,,
.
.
tonn í ársbyrjun 2003 en hrygning-
arstofn úr 219 þús. tonnum 2001 í
315 þús. tonn árið 2003.
Á árinu 2002 verða árgangarnir
/""0
"
"
1
1
/
&
2 3 4""
5'$
4"'
6 "
6 %"
6$"' 7
"' &8 "' 6 9!
:"
!"%
;(:"
!"%
7 4""" <
7
="
>
?
>0$ > 7
8
)
)
)
*
)*
*
*
,
+*
1 1
78"
"% "
+*
@
! "!#
$
"!% ! &"
! '(&!
$)*
+,
+-* .' /
!0
0
"!
"
1
&&2 # 10
. 3 0 '0
.
#*0
! 10
frá 1997 og 1998 mest áberandi í
aflanum og 5 ára fiskur og yngri
um 76% aflans í fjölda. Aldurssam-
setning kann því að leiða til of mik-
illar sóknar í uppvaxandi árganga
og tíðra svæðalokana vegna smá-
fisks í afla.
Ýsa
Ýsuaflinn á árinu 2000 var rúm
42 þús. tonn eða 8% minni en árið
áður. Fyrir fiskveiðiárið 2000/2001
lagði Hafrannsóknastofnunin til 30
þús. tonn aflahámark og aflamark
var ákveðið það sama. Meðal-veiði-
dánartala 4-7 ára fisks árið 2000 er
metin 0.81 og hefur ekki verið
hærri í áratugi.
Stærð veiðistofns ýsu í ársbyrj-
un 2001 er metin 81 þús. tonn og
hrygningarstofn 45 þús. tonn. Til
að meta stærð stofnsins var notuð
endurbætt aldurs-aflagreining
(XSA-greining). Við mat á veiði-
dánartölum á árinu 2000 var nú ein-
göngu stuðst við aldursskiptar vísi-
tölur úr stofnmælingu botnfiska.
Mat á stærð árganga er í meg-
indráttum svipað og í síðustu út-
tekt en flestir þeirra minnka þó
eitthvað nema stóri árgangurinn
frá 1995. Árgangurinn frá 1996 er
hinsvegar metinn sá minnsti frá
1979. Mat á árgöngunum frá 1998-
2000 bendir til að þeir séu allir stór-
ir sem er óvenjulegt með þrjá ár-
ganga í röð.
Veiðidánartala ýsu var mjög há á
árinu 2000 (0.81) og allar horfur á
að svo verði áfram á árinu 2001.
Hafrannsóknastofnunin leggur til
að dregið verði úr sókn í ýsustofn-
inn þannig að veiðidánartala fari
ekki yfir 0.45 fiskveiðiárið 2001/
2002, en það samsvarar 30 þús.
tonna hámarksafla. Þessi sam-
dráttur miðar að sjálfbærum veið-
um úr stofninum.
Ufsi
Ufsaaflinn árið 2000 var rúm 33
þús. tonn sem er svipaður afli og
árið 1999. Þetta er minnsti ufsaafli
und-
eins
nn á
u um
rstöð-
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 39
ki nokkur
angri sem
jónssonar
etin veru-
ð lá fyrir
ilar verið
t á stofn-
rsendum.
aðferðum
nandi nið-
psins sl.
Hafrann-
r að grein-
mt þeirri
saðferðir,
ndanfarin
ft viðvar-
ts á stærð
eimur til-
svo 10 ár-
ofmat, en í
t veruleg
nnfremur
hafi verið gert ráð fyrir Grænlands-
göngum, sem hafi ekki skilað sér í
veiðinni. Aukinheldur hafi sérfræð-
ingum orðið betur ljóst að hin góðu
aflabrögð 1997/1998 hafi skekkt
matið á ástandi stofnsins stórlega.
Þegar mikil sóknarminnkun, sem
hafi orðið með samdrætti í aflaheim-
ildum upp úr 1994, hafi skilað sér í
verulegri aukningu afla á sóknar-
einingu hafi staðan villt mönnum
sýn. Nú liggi fyrir að það að miða við
línulegt samband milli þess hve vel
fiskast og hve stór stofninn sé sé
ekki góð aðferðarfræði. Niðurstaða
framlagðrar úttektar Hafrann-
sóknastofnunar sé að þetta þurfi að
leiðrétta og það sé mögulegt. End-
urskoðað stofnmat 2001 byggist á
tímaraðagreiningu, sem hafi ekki
eins mikla tilhneigingu til ofmats og
sé því vænlegri, þótt enn sé töluverð
vinna framundan við að bæta að-
ferðirnar í ljósi reynslunnar. Mögu-
leiki sé til að bæta aðferðirnar og
rannsóknum verði beint í þá átt.
Alltof þung sókn
Jóhann Sigurjónsson sagði að
eðlilega sé spurt hvers vegna sé
ekki hægt að veiða 400 til 500 þús-
und tonn af þorski á ári eins og fyrr
á nýliðinni öld og hvort grisjunar-
tíminn sé kominn. Hann segir að þó
Hafrannsóknastofnun fallist á að of-
mat á stofnstærð hafi átt sér stað
undanfarin ár sé jafnframt ljóst að
sóknin í þorskstofninn hafi verið allt
of þung undanfarna hálfa öld og nú
sé verið að súpa seyðið af því. Aðrir
þættir spili líka inn í. Loftslag hafi
verið allt annað í byrjun nýliðinnar
aldar en í lok hennar. Því hafi verið
meira um Grænlandsgöngur á fyrri
hlutanum og nýliðun hafi komið
annars staðar frá en eingöngu af Ís-
landsmiðum. Aukið skark flotans á
miðunum hafi líka haft skekkjuáhrif
á matið, hugsanlega brottkast,
hversu áreiðanleg gögn eru frá flot-
anum og hvernig eigi að nota þau,
en í nýju stofnmati sé byggt á að-
ferðum sem séu óháðar þeim.
Meiri veiði er út í hött
Í máli Jóhanns Sigurjónssonar
kom fram að á fyrri hluta 20. aldar
hafi veiðst mikið af fiski níu ára og
eldri en annað hafi verið upp á ten-
ingnum á nýliðnum árum. Nýting
stofnsins hafi því ekki verið skyn-
samleg. Hins vegar sé svarið ekki að
grisja stofninn og veiða meira, eins
og sumir hafi haldið fram. Í raun sé
skelfilegt að slík umræða skuli vera
í gangi í samfélagi sem lifi og eigi
allt undir að vel takist til við nýtingu
fiskistofnanna, því sýnt hafi verið
fram á að mjög arðbært sé að
geyma fisk í sjó. Engar mælingar
styðji grisjun og fiskifræðingar sem
fáist við ráðgjöf og rannsóknir í haf-
inu haldi grisjun ekki fram þótt
vatnalíffræðingar erlendis kunni að
gera það. „Þar sem menn hafa verið
að grisja þorskstofna er ástandið
ekki gott,“ segir hann og vitnar m.a.
í ástandið í Norðursjó, Eystrasalti
og austurströnd Norður-Ameríku.
Ennfremur Íslandsmið um þessar
mundir, því með ofmati á stofnstærð
þorsks undanfarin þrjú til fjögur ár
hafi í raun verið mælt með grisjun.
Jóhann Sigurjónsson segir að
þrátt fyrir ofmat þorskstofnsins,
óvissu varðandi úthafskarfa og að
ýsa og ufsi séu í lægð sé útlitið mjög
bjart varðandi sumargotssíldina en
þar hafi verið mælt með 125.000
tonna aflaheimildum og hafi aldrei
verið mælt með meiri aflaheimild-
um. Mjög góðar horfur séu í loðnu-
stofninum, humarstofninn sé greini-
lega að rétta úr kútnum, aukning í
grálúðu haldist frá fyrra ári, djúp-
karfastofninn sé á uppleið og talið sé
að botni hafi verið náð í rækjustofn-
um.
unar
r
Morgunblaðið/Jim Smart
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir að veitt hafi verið of mikið allt frá árinu 1960
og alloft hafi verið leyft að veiða mun meira en stofnunin hafi lagt til.