Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 58
HESTAR 58 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Reiðfatnaður í miklu úrvali frá FREMSTIR FYRIR GÆÐI Hestamót Harðar haldið á Varmárbökkum laugardag og mánudag A-flokkur 1. Sigurður Sigurðarson á Skuggabaldri frá Litladal, brúnum, 8,85/9,00 2. Atli Guðmundsson á Hugin frá Haga I, apalgráum, 8,74/8,91 3. Guðlaugur Pálsson á Jarli frá Álfhólum, rauðjörpum, 8,50/8,63 4. Elías Þórhallsson á Frama frá Ragnheiðarstöðum, jörpum, 8,50/ 8,59 5. Sölvi Sigurðarson á Stormi frá Mosfellsbæ, brúnum, 8,42/8,36 6. Barbara Meyer á Þotu frá Skriðu, brúnni, 8,43/8,29 A-flokkur áhugamenn 1. Halldóra S. Guðlaugsdóttir á Hlátri frá Þórseyri, jörpum, 8,23/ 8,37 2. Þorkell Traustason á Brún- stjarna frá Hörgshóli, brúnstjörn., 8,07/8,19 3. Hrafnhildur Jóhannesdóttir á Kröflu frá Hamraborg, bleikálóttri, 8,07/8,10 4. Sveinbjörn S. Ragnarsson á Brenni frá Flugumýri, brúnum, 7,98/ 8,02 5. Björn Ólafsson á Mekki, mós- óttum, 7,79/7,93 6. Alexandra Kriegler á Blæ frá Hvítárholti, brúnni, 8,07/7,87 B-flokkur 1. Elías Þórhallsson á Galsa frá Ytri-Skógum, Rauðstjörn., 8,59/8,77 2. Sigurður Sigurðarson á Skunda frá Krithóli, jörpum, 8,58/8,70 3. Kristján Magnússon á Hrafnari frá Hindisvík, svörtum, 8,62/8,67 4. Þorvarður Friðbjörnsson á Krapa frá Kaldbak, gráum, 8,54/8,64 5. Friðdóra Friðriksdóttir á Trost- an frá Sandhólaferju, rauðtvístjörn., 8,66/8,60 6. Kristinn M. Þorkelsson á Vor- dísi frá Hörgshóli, brúnni, 8,53/8,59 B-flokkur, áhugamenn 1. Brynhildur Þorkelsdóttir á Álmi frá Reynisvatni, jarpstjörn., 8,32/ 8,40 2. Sveinbjörn S. Ragnarsson á Hausta, brúnum, 8,20/8,39 3. Björn Ólafsson á Hrafnaflóka frá Sigríðarstöðum, svörtum, 8,12/ 8,30 4. Ingibjörg Kristjánsdóttir á Friðsæl frá Miðhjáleigu, móálóttum, 8,19/8,30 5. Þorkell Traustason á Blátindi frá Hörgshóli, brúnum, 8,26/8,25 6. Einar Gústafsson á Tígli frá Álf- hólum, rauðstjörn., 8,12/8,18 Tölt 1. Sigurður Sigurðarson á Núma frá Miðsitju, brúnum, 7,07/7,57 2. Katrín Stefánsdóttir á Adam, brúnum, 6,80/7,43 3. Sævar Haraldsson á Glóð, rauðglófextri, frá Hömluholti, 6,90/ 7,18 4. Barbara Meyer á Streng, grá- skjóttum, frá Hrafnkelsstöðum, 6,63/6,67 5. Sölvi Sigurðarson á Kliðju, moldóttri, frá Litlu-Tungu, 6,57/6,62 6. Hjörtur Bergstað á Djákna, brúnum, frá Votmúla 6,17/6,56 Unghross í tamningu 1. Trausti Þ. Guðmundsson á Bassa 5 v. Kirkjuferjuhjáleigu, móál- óttum, 8,47 2. María D. Þórarinsdóttir á Hlökk 5 v. frá Kiðafelli, brúnum, 8,37 3. Atli Guðmundsson á Spröku 5 v. frá Litla-Landi, rauðri, 8,28 4. Þorvarður Friðbjörnsson á Skjá 5 v. frá Hafsteinsstöðum, móbrún- um, 8,10 5. Hinrik Gylfason á Fossi 5 v. frá Feti, móvindóttum, 8,07 Ungmenni 1. Eva Benediktsdóttir á Ísak frá Ytri-Bægisá, rauðskj., 8,36/8,61 2. Sigurður S. Pálsson á Gæfu frá Hvítárdal, brúnni, 8,27 8,61 3. Hrafnhildur Jóhannesdóttir á Miðli frá Leirulæk, brúnum, 8,26/ 8,27 Unglingar 1. Kristján Magnússon á Hlökk frá Reykjavík, brúnni, 8,56/8,77 2. Guðmundur Kristjánsson á Eldrúnu frá Hvítárholti, rauðri, 8,09/ 8,38 3. Ragnhildur Haraldsdóttir á Speli frá Vogum, brúnum, 8,16/8,23 4. Halldóra S. Guðlaugsdóttir á Hersi frá Útverkum, brúnum, 8,14/ 8,18 5. Jana K. Knútsdóttir á Baldri frá Dísarstöðum, bleikstjörn., 7,96 Börn 1. Linda R. Pétursdóttir á Val frá Ólafsvík, gráum, 8,78/8,87 2. Hreiðar Hauksson á Fróða frá Hnjúki, rauðstjörn., 8,54/8,61 3. Jóhanna Jónsdóttir á Söndru frá Skriðulandi, brúnni, 8,60/8,49 4. Viðar Hauksson á Klakki frá Laxárnesi, brúnum, 8,32/8,33 5. Þórhallur D. Pétursson á Breka frá Syðra-Skörðugili, brúnum, 8,49/ 8,33 150 m skeið 1. Sigurður V. Matthíasson á Svertu, rauðri, 14,78 sek. 2. Edda R. Ragnarsdóttir á Hörpu Sjöfn, 11 v. jarpri frá Sauðárkróki, 15,01 sek. 3. Orri Snorrason á Söru 9 v. brúnni, frá Morastöðum, 15,44 sek. 250 m skeið 1. Guðmundur Einarsson á Hersi 8 v. rauðum, frá Hvítárholti, 23,25 sek. 2. Sigurður V. Matthíasson á Skjóna 8 v. jörpum, frá Hofi, 23,85 sek. 3. Axel Geirsson á Ljóshraða 8 v. leirljósum frá Sauðárkróki, 24,96 sek. Úrslit HESTUR mótsins var tvímælalaust Skuggabaldur frá Litladal sem nú skeiðaði með ágætum og þar með eru niður kveðnar skoðanir ágætra manna sem vildu meina að sýna ætti klárinn í B-flokki. Brokkið og töltið í klárnum er með því besta sem sést hjá alhliða hesti. En þeir félagar Skuggabaldur og Sigurður Sigurð- arson fengu verðuga keppni frá Hugin frá Haga I og Atla Guð- mundssyni sem einnig komu sterkir út úr mótinu og hefðu getað sómt sér vel í sigursæti. En sigur þeirra fyrr- nefndu var óumdeildur og ánægju- legt hjá félagi að hafa slíka kjörgripi innan sinna vébanda. Skuggabaldur var valinn glæsilegasti gæðingur mótsins enda vart hægt að ganga framhjá hesti sem hlýtur 9,0 í aðal- einkunn í slíku vali. Nokkrum sinnum sáu dómarar ástæðu til að hefja níur á loft í ein- kunnagjöf og náði til dæmis Linda Rún Pétursdóttir 8,87 í einkunn í úr- slitum á Val frá Ólafsvík. Þá náði Kristján Magnússon góðum árangri bæði á hryssunni Hlökk í unglinga- flokki og eins Hrafnari frá Hindisvík í B-flokki gæðinga Harðarmótið var að venju lokað fyrir utanfélagsmönnum að undan- skildum kappreiðum og töltkeppni eins og tíðkast hjá öðrum félögum á höfuðborgarsvæðinu. Undantekning frá því er mót Fáks sem hefur um árabil verið opið utanfélagsmönnum. Fáksmenn opnuðu sitt mót í þeirri góðu trú að önnur félög myndu fylgja fordæmi þeirra og vildu þar með flýta fyrir þróun í þá átt að öll mót verði opin í framtíðinni. Þetta hefur ekki gengið eftir og greinilegt að menn hræðast svo að opna mót sín að þeir þora ekki einu sinni að prófa slíkt. Greina má kurr í Fáksmönnum af þessum sökum og eru uppi raddir um að fyrst önnur félög opni ekki sé engin ástæða fyrir þá að bjóða ná- granna sína velkomna uppá þessi býtti. Hugmyndin um opið mótahald þykir góð en ekki er víst að allir geri sér grein fyrir þeim möguleikum sem slíkt fyrirkomulag býður upp á og hvaða umhverfi mótahaldið verð- ur í með slíku fyrirkomulagi. Hestamót Harðar Háar tölur í spennandi keppni Hvítasunnan kom að þessu sinni í hlut Harðar sem mótsdagar fyrir gæðinga- keppni og kappreiðar félagsins. Hestakostur mótsins var góður og veðrið gott annan daginn og fylgdist Valdimar Kristinsson með spennandi keppni. Morgunblaðið/Valdimar Það var þess virði að reyna til þrautar með Skuggabaldur frá Litladal í A- flokki. Nú lá hann sprettina með sóma og rauf níu-múrinn og sig- urinn vís. Knapi er Sigurður Sigurðarson. Linda Rún Pétursdóttir og Valur frá Ólafsvík voru með stórgóða sýn- ingu og sigruðu af öryggi í keppni barna. Eitt glæsilegasta hrossið á móti Harðar var án efa Hlökk sem Kristján Magnússon sýndi í unglingaflokki og sigruðu þau með glæsibrag. Góð þátttaka var í flokkum áhugamanna á mótinu enda hafa þeir fyrir löngu sannað gildi sitt. Hér getur að líta verðlaunahafa í B-flokki, frá vinstri talið; Þorkell og Blátindur, Ingibjörg og Friðsæll, Björn og Hrafna-Flóki, Sævar og Hausti og Brynhildur og Álmur. Bassi frá Kirkjuferjuhjáleigu setinn af Trausta Þór Guðmundssyni varð hlutskarpastur unghrossa í tamningu. Efnilegur stóðhestur, en þeir eru nú á nýjan leik gjaldgengir í unghrossakeppnina hjá Herði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.