Morgunblaðið - 06.06.2001, Blaðsíða 1
125. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 6. JÚNÍ 2001
ÓEIRÐALÖGREGLA í höfuðborg
Nepals, Katmandu, hélt uppi
ströngu útgöngubanni í gær en á
mánudag kom til mikilla óeirða og
tveir menn féllu, að sögn fyrir
byssum lögreglumanna. Fólkið mót-
mælti skýringum stjórnvalda á
morðinu á konungsfjölskyldunni á
föstudag. Þriggja manna rannsókn-
arnefnd sem skipuð hafði verið gat
ekki hafið störf í gær vegna þess að
einn nefndarmanna, leiðtogi stjórn-
arandstöðuflokks marxista, taldi til-
högunina stríða gegn stjórnarskrá.
Birendra konungur, Aiswarya
drottning, tvö börn þeirra og sex
manns að auki létu lífið á föstudag og
var í fyrstu sagt að Dipendra rík-
iserfingi hefði myrt fjölskyldu sína.
Hann hefði síðan reynt að skjóta
sjálfan sig. Dipendra mun hafa verið
í öndunarvél en lést á sunnudag. Síð-
ar var fullyrðingin um þátt hans
dregin til baka, sagt að um slysaskot
hefði verið að ræða.
Tugir manna handteknir
Fólkið sem mótmælti á mánudag
grét og kallaði nafn hins látna kon-
ungs sem afsalaði sér einveldi 1990
og samþykkti að komið yrði á lýð-
ræði og fjölflokkaskipulagi. Margir
lýstu reiði sinni í garð ráðamanna.
„Refsið hinum raunverulegu morð-
ingjum!“ var hrópað og lýst andúð á
nýjum konungi, Gyanendra. Tveir
tugir ungra manna voru handteknir í
gær er þeir gengu að konungshöll-
inni, veifuðu þjóðfánanum og kröfð-
ust skýringa. Fjölmiðlar tóku undir
kröfur um að allur sannleikurinn
yrði leiddur í ljós.
Gyanendra er yngri bróðir Bir-
endra og tók við embætti á mánudag
en í millitíðinni hafði Dipendra prins
verið við völd að nafninu til þar sem
hann var réttborinn til erfða. Gyan-
endra þykir hafa eyðilagt trúverðug-
leika sinn með því að segja að slysa-
skot hafi orðið fjölskyldunni að
fjörtjóni sem þykir ósennileg skýr-
ing. „Enginn trúir honum,“ sagði
verslunareigandi í Katmandu í gær.
Nepal er landlukt ríki í Himalaja-
fjöllum, íbúarnir um 23 milljónir og
fátækt mikil. Margs konar orðrómur
var þar á kreiki, meðal annars var
grannþjóðinni Indverjum kennt um
morðin, einnig skæruliðum maóista.
Um 1600 manns hafa fallið í átökum
skæruliða og hersins síðustu árin.
Óeirðalögregla framfylgir útgöngubanni í höfuðborg Nepals
Nýjum konungi illa tekið
AP
Nepalskir lögreglumenn vísa fólki á brott af götum Katmandu í gær. Tveir féllu og 19 manns slösuðust í óeirð-
um sem urðu í borginni á mánudag en kyrrt var að mestu í gær.
Sannfærðir um/28
Katmandu, Nýju-Delhí. AP, AFP.
HAMAS-samtökin eru ekki bundin af
vopnahléinu sem Yasser Arafat, for-
seti heimastjórnar Palestínumanna,
lýsti yfir í síðustu viku og munu halda
áfram uppreisn (intífata) gegn Ísrael-
um, að því er andlegur leiðtogi sam-
takanna, Ahmend Yassin, tilkynnti í
gær. Fregnir bárust af því að skipst
hefði verið á skotum á svæðum Pal-
estínumanna og var það haft til marks
um hve tæpt vopnahléið stæði.
Stuðningur Hamas-samtaka mús-
líma við vopnahléið sem Arafat lýsti
yfir sl. laugardag er talinn nauðsyn-
legur til að það vari. Samtökin sögðu
að maðurinn sem sprengdi sjálfan sig
í loft upp fyrir utan skemmtistað í Tel
Aviv sl. föstudagskvöld, með þeim af-
leiðingum að 20 ungmenni létust,
hefði verið félagi í samtökunum. Hafa
þau lýst sig ábyrg fyrir fjölda
sprengjutilræða gegn Ísrael.
Í gærmorgun sagði í dreifiriti sem
undirritað var af hernaðararmi Ham-
as og Fatah-samtökum Arafats að
vopnahléið yrði virt. En ekki leið á
löngu þar til lykilmenn í Hamas
drógu það í efa og gáfu í skyn að
dreifiritið kynni að vera falsað.
Yassin sagði í gær að „svonefnt
vopnahlé“ væri milli tveggja herja.
„Við erum ekki her. Við erum fólk
sem þarf að verja sig og vinna gegn
yfirgangi.“
Peres segir vopnahléð halda
Shimon Peres, utanríkisráðherra
Ísraels, sagði aftur á móti að dregið
hefði úr ofbeldisaðgerðum Palestínu-
manna undanfarna daga og það væri
til marks um að vopnahlé væri í raun
komið á. Hann sagði enn fremur að
Ísraelar krefðust þess að allt yrði með
kyrrum kjörum í tvo mánuði áður en
friðarviðræður gætu hafist en Palest-
ínumenn gerðu kröfu um að viðræður
hæfust einum mánuði eftir að átökum
linnti.
Yassin var í hópi um tvö þúsund
Palestínumanna sem komu saman á
Gaza-svæðinu í gær og minntust þess
að 34 ár voru liðin frá upphafi sex-
dagastríðsins milli Ísraela og araba.
Báru menn myndir af Arafat og Yass-
in og hrópuðu að uppreisninni yrði
haldið áfram uns fullur sigur ynnist.
Síðla á mánudag hafði Arafat kall-
að saman fund leiðtoga í Fatah-sam-
tökunum og Hamas og í sameigin-
legri yfirlýsingu sagði að frá og með
miðnætti yrði hætt árásum í Ísrael.
En skömmu síðar neitaði Yassin því
að kannast nokkuð við yfirlýsinguna.
Powell ræðir við Arafat
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ræddi við Arafat í
síma í gær, í annað sinn á einum sólar-
hring, að því er opinber fréttastofa
Palestínumanna, WAFA, greindi frá.
Hefði Powell hringt í Arafat og þeir
rætt um „versnandi stöðu á palest-
ínskum landsvæðum.“
Þrátt fyrir skærur á stöku stað
sagði George W. Bush Bandaríkjafor-
seti í gær að auknar friðarhorfur rétt-
lættu að yfirmaður bandarísku leyni-
þjónustunnar (CIA), Georg Tenet,
héldi til Mið-Austurlanda. Mun Tenet
halda þangað í dag og taka þátt í við-
ræðum um öryggismál. Er þetta til
marks um að Bandaríkjamenn ætli að
auka viðleitni sína til að koma á friði
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Þetta er í fyrsta sinn síðan í októ-
ber sem Tenet fer til Mið-Austur-
landa en lægra settir CIA-menn hafa
undanfarið ár setið fundi með báðum
deiluaðilum en ekki orðið ágengt. Að
minnsta kosti 450 Palestínumenn, 110
Ísraelar og 13 ísraelskir arabar hafa
fallið í átökum fyrir botni Miðjarðar-
hafs síðan uppreisn Palestínumanna
gegn Ísrael hófst í september sl. í
kjölfar þess að friðarumleitanir fóru
út um þúfur.
Hamas-samtökin lýsa
sig óbundin af vopnahléi
Jerúsalem, Gaza. AP, AFP, Reuters.
EVRÓPUSAMBANDIÐ leit-
aði í gær stuðnings aðila í fisk-
iðnaði við áætlanir sem binda
eiga enda á ofveiði er stefnir
þorsk- og ýsustofnum í voða.
Áætlanirnar eiga þó um leið að
tryggja afkomu samfélaga er
byggja á fiskveiðum.
Franz Fischler, sem fer með
sjávarútvegsmál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, sagði á fundi með
um það bil 400 fulltrúum sjó-
manna, vísindamanna, um-
hverfisverndarsinna og ann-
arra aðila í sjávarútvegi að
hann vildi taka meira tillit til
viðhorfa þeirra við gerð áætl-
ana um róttækar umbætur á
fiskveiðistefnu Evrópu-
sambandsins.
ESB vill
hindra
ofveiði
Brussel. AP.
FRÁ og með deginum í dag eru
valdahlutföllin í öldungadeild
Bandaríkjaþings breytt. Demókrat-
ar hafa fengið þar eins sætis meiri-
hluta í kjölfar þess að þingmað-
urinn James Jeffords (til vinstri)
sagði sig úr Repúblikanaflokknum
og tekur í dag sæti sem óháður. Hér
er hann ásamt Joe Lieberman, þing-
manni demókrata. Repúblikanar
hafa haft völdin í öldungadeildinni
síðan 1995. Jeffords hefur lýst því
yfir að hann muni veita demókröt-
um stuðning í ýmsum mikilvægum
málum. Þetta auðveldar demókröt-
um að andæfa stefnu stjórnar
Georges W. Bush forseta því nú
ráða þeir því hvaða lagafrumvörp
öldungadeildin tekur fyrir.
AP
Breytt
valdahlutföll
HUNDRUÐ manna lentu í átökum
við óeirðalögreglu á götum Leeds á
Englandi í gærkvöldi. Var kveikt í
bílum og lögreglan grýtt. Hópur
manna af asískum uppruna réðist
gegn lögreglunni og kastaði flöskum
og plastkössum. Einn maður slasað-
ist í átökunum. Talið er að orsök
óeirðanna sé handtaka manns úr
hverfi Bangladesa í borginni fyrir
tveim dögum. Vika er síðan til óeirða
kom milli kynþátta í borginni Old-
ham á Englandi.
Óeirðir
í Leeds
Leeds. AFP.